Morgunblaðið - 16.01.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 25
ERLEMT_________
Slysin ógna flug-
vélaiðnaðinum
Ciller
sýknaf
spillingu
TYRKNESK þingnefnd hefur
vísað frá síðustu þremur spill-
ingarákærunum á hendur
Tansu Ciller,
aðstoðarfor-
sætisráðherra
Tyrklands, en
hún hafði ver-
ið sökuð um
að hafa auðg-
ast með óeðli-
legum hætti
er hún var for-
sætisráðherra í þrjú ár frá
1993. Átta af 15 nefndarmönn-
um, allt stjórnarliðar, fundu
enga sök hjá henni en sjö full-
trúar stjórnarandstöðunnar
vildu vísa máli hennar til
hæstaréttar. Búist er við, að
sama niðurstaða verði á þingi.
Það var íslamski Velferðar-
flokkurinn, sem upphaflega
sakaði Ciller um spillingu, en
nú hefur hann snúið við blaðinu
enda kominn í stjórn með flokki
hennar.
• •
Okuhraðinn
eykst
ÖKUHRAÐINN á þýsku hrað-
brautunum hefur aukist mikið
síðustu 15 árin og einkanlega
þar sem engar hraðatakmark-
anir gilda. Þar var meðalhrað-
inn 134 km á klst. 1995 en 120
km 1981. Einn af hveijum sex
ökumönnum fer hraðar en 155
km.
Rannsókn á
„eiturbyrlun“
HAFIN er rannsókn á því í
Frakklandi hvort Marc Mollet,
fyrrum yfirmaður lyfjaverslun-
ar frönsku ríkisspítalanna, hafi
gerst sekur um „eiturbyrlun",
að hafa vitandi vits dreift
hættulegum vaxtarhormónum
á árunum 1984 til ’86. Þessir
hormónar, sem unnir voru úr
heiladingli látins fólks, voru
bannaðir 1985 en grunur leikur
á, að gamlar birgðir hafi verið
notaðar áfram í sparnaðarskyni
þótt ástæða væri til að ætla,
að hormónarnir gætu valdið
Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómi.
Hann svarar til kúariðu í naut-
gripum. Af 50 dvergvöxnum
börnum, sem fengu þessa
hormóna, eru 40 látin.
Washington. Reuter.
EINN af frammámönnum Boeing-
verksmiðjanna bandarísku sagði í
fyrradag, að hætta væri á, að upp-
gangurinn í flugvélaiðnaðinum
stöðvaðist ef ekki yrði gripið til að-
gerða til að auka flugöryggi.
Charles Higgins, aðstoðarforstjóri
öryggisdeildar Boeings, sagði á ráð-
stefnu um flugöryggi í Washington,
að yrði áfram sami vöxtur og nú í
flugumferð og flugslysum, mætti
búast við flugslysi í viku hverri árið
2205. Sagði hann, að jafnvel þótt
öryggismálin yrðu alls staðar komin
í sama horf og nú er í Bandaríkjun-
um, þá mætti gera ráð fyrir slysi á
hálfsmánaðarfresti.
Það hefur sýnt sig, að þegar mik-
il slys verða, fækkar flugferðum fýrst
á eftir og Higgins sagði, að slys í
hverri eða annarri hverri viku gæti
haft þau áhrif, að fólk hætti að
treysta flugvélum og þá tæki stöðn-
unin við í flugvélaiðnaðinum.
Ráðstefnan var á vegum George
Washington-háskólans og sérstakrar
þingnefndar, sem stofnuð var eftir
að flugvél frá Trans World Airlines
fórst í fyrrasumar með 230 manns.
Higgins sagði, að tveir þriðju
flestra slysa á síðustu fimm árum
hefðu stafað af því, að flugmennimir
hefðu misst stjórn á vélunum, til
dæmis í vondum veðrum, eða flogið
á þrátt fýrir að hafa stjóm á vélun-
um. Þá er átt við, að flogið sé utan
í fiöll eða fjallshlíðar eða brotlent í
aðflugi að flugvelli. Fram kom á ráð-
stefnunni, að verið væri að auka þjálf-
un flugmanna til að þeir gætu betur
bmgðist við óvæntum atburðum og
verið er að búa flugvélar tækjum, sem
vara flugmenn við fjöllum, sem stund-
um sést ekki til vegna veðurs.
Samræmingar þörf
Carol Hallett, forstjóri U.S. Air
Transport Ass., sagði, að samræma
þyrfti reglugerðir um allan heim og
koma í veg fyrir, að menningar- og
lagalegur munur bitnaði á flugörygg-
inu. Nefndi hún sem dæmi, að væri
flogið frá New York til Frankfurt,
væri farið um sex flugumsjónarsvæði
þar sem töluð væru mörg tungumál
og munurinn á mælieiningum, regl-
um um umhverfisvernd og annað
væri eftir því.
Njósnir í íran
YFIRVÖLD í íran segjast hafa
handtekið sex menn í norðvest-
urhluta landsins fyrir að hafa
njósnað fyrir ónefnt, erlent ríki.
Skýrði fréttastofan IRNA frá
þessu en í fyrra sagði hún, að
afhjúpaðir hefðu verið nokkrir
njósnahringir á svæðinu.
Bað gyðinga
afsökunar
JEAN-Pascal Delamuraz, efna-
hagsráðherra Sviss, baðst í gær
afsökunar á því að ’nafa lýst
bótakröfum gyðinga á hendur
svissnesku stjórninni sem
„fjárkúgun". Hefur Alheimsráð
gyðinga fallist á afsökunar-
beiðnina. Gyðingar segja, að
svissneskir bankar hafi hagn-
ast vel á viðskiptum sínum við
nasista, sem hafi komið miklu
gulli fyrir í þeim. Því hafi þeir
aftur rænt að stórum hluta og
oft af fórnarlömbum Helfarar-
innar.