Morgunblaðið - 30.01.1997, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D
24. TBL. 85. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1997
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Eldfimt
ástand í
Búlgaríu
STJÓRN sósíalista í Búlgaríu
lýsti því yfir í gær að ástandið i
landinu væri „eldfimt“ og hvatti
flokka stjórnarandstöðu til að
fallast á fund þar sem ákvörðun
yrði tekin um dagsetningu þing-
kosninga. Sósíalistar fengu um-
boð til stjórnarmyndunar i fyrra-
dag, þrátt fyrir andstöðu og
mótmæli almennings og stjórnar-
andstöðu. Sagði innanríkisráð-
herrann, Nikolai Dobrev, að
stjórnarandstaðan yrði að gera
sér grein fyrir því hversu alvar-
legt ástandið væri og að nýja
stjórnin sem sósíalistar væru að
reyna að mynda ætti aðeins að
sitja i þijá til fimm mánuði. Efna-
hagur Búlgariu er í kalda kolum
og í gær lýsti Petar Stoyanov,
forseti landsins, þvi yfir að Búlg-
arir gætu að öllum líkindum ekki
greitt afborganir af erlendum
skuldum sinum i ár, nema til
komi fjárhagsaðstoð erlendis frá.
Einnar klukkustundar alls-
Reuter
heijarverkfall var í Búlgaríu í
gær og lömuðust samgöngur og
ýmis atvinnustarfsemi á meðan
á þvi stóð. Þessi maður var einn
af þeim sem stöðvuðu umferð um
götur Sofiu, höfuðborgar Búlg-
aríu, í gær.
Finnar endurmeti
afstöðu til NATO
Helsinki. Reuter.
FINNAR kunna að þurfa að endur-
skoða afstöðu sína til Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) og gera það
upp við sig hvort þeir eigi jafnvel
að sækja um aðild, segir Anneli Ta-
ina, varnarmálaráðherra.
Þótt Finnar hafí ekki óskað eftir
aðild að NATO hafa þeir ekki „lokað
dyrunum" að bandalaginu, sagði Ta-
ina í samtali við Helsingin Sanomat.
„Stækkunarferlið innan NATO fer
geyst, með nýjum sveigjum og beygj-
um, svo að mögulegt er að stefnu-
breyting verði einnig að eiga sér stað
í Finnlandi," sagði Taina, aðspurð um
hvort aðildarumsókn væri væntanleg
á borð ríkisstjómarinnar á þessu kjör-
tímabili, sem lýkur 1999.
Finnar gengu í Evrópusambandið
1995 og telja stjórnvöld að sú aðild
sé grundvöllur öryggis Finnlands.
Lýsti Martti Ahtisaari, forseti Finn-
lands, því yfir fyrir skemmstu að
Finnar hefðu enga þörf á því að
sækja um aðild að NATO.
Varnarmálaráðherrann er hins
vegar á því að „réttlætanlegt sé að
gera ráð fyrir því að nánari sam-
vinna í tengslum við stækkun NATO
og friðarsamstarf bandalagsins muni
leiða til þess að allt hernaðaröryggi
í Evrópu reiði sig á NATO.“
Finnar taka þátt í friðarsamstarf-
inu og sagði Táina að ef það sam-
starf yrði aukið, ættu Finnar að
sækjast eftir setu í ráði NATO-þjóða
og ríkja friðarsamstarfsins, sem rætt
hefur verið um að stofna.
Hæstiréttur Pakistan dæmir brottrekstur Bhutto réttmætan
Bhutto telur að má
eigí flokk hennar út
Karachi. Reuter.
BENAZIR Bhutto, fyrrverandi for-
sætisráðherra Pakistans, kvaðst í
gær búast við því að reynt yrði að
ganga áf flokki sínum dauðum, eftir
að hæstiréttur landsins felldi þann
úrskurð að rétt og lögiega hefði ver-
ið staðið að því er forseti landsins,
Farooq Leghari, leysti þingið upp og
vék ríkisstjórn hennar frá yöldum í
nóvember á síðasta ári. Ákvörðun
hæstaréttar þýðir að gengið verður
til þingkosninga þann 3. febrúar nk.
„Þeir geta ekki losnað við okkur
úr stjómmálum. Þeir vilja má okkur
út að lögum,“ sagði Bhutto á blaða-
mannafundi sem hún hélt í Karachi,
skömmu eftir að úrskurður hæsta-
réttar lá fyrir. „Nú munu þeir setja
saman upplognar morðákærur á
hendur mér og koma mun til fjölda-
handtakna á mönnum okkar,“ bætti
hún við. Hún sagði úrskurð hæsta-
réttar ekki koma á óvart. Það hefði
verið ljóst þegar rétturinn hafði ekki
fyrirskipað að stjórn hennar tæki
sæti að nýju fimm vikum eftir að
henni var komið frá völdum, likt og
gerðist árið 1993 er stjórn Nawaz
Sharif var vikið frá.
Bhutto sakar hæstarétt um að
fella dóm sinn nú til að hafa sem
mest áhrif á þingkosningar sem fram
fara á mánudag. Þá gaf hún til kynna
að rétturinn væri andsnúinn Bhutto-
ijölskyldunni en föður hennar, Zulf-
ikar Ali Bhutto, var komið frá í valda-
ráni árið 1977 og hann síðar hengd-
ur.
Ekki sagðist Bhutto eiga von á
því að kosningarnar myndu fara
heiðarlega fram en hún sagði flokk
sinn ekki myndu hunsa þær. Nauð-
synlegt væri að afhjúpa fyrirætlun
forsetans og bráðabirgðastjórnar
hans. Andstæðingar Bhutto hafi sett
sér það markmið að drepa bróður
hennar, Murtaza, í september sl.,
koma henni frá völdum, kljúfa flokk
hennar og koma flokki forsetans til
valda.
Reuter
BENAZIR Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, boð-
aði í gær til blaðamannafundar á heimili sínu þar sem hún sak-
aði hæstarétt og forseta landsins um að vera andsnúna fjöl-
skyldu sinni og vilja koma flokki hennar endanlega frá.
Saddam sagður hafa sett eiginkonu sína í stofufangelsi
Merki um valda
baráttu í Irak
Washington. Reuter.
TALSMAÐUR Bandaríkjaforseta
sagði í gær að ýmis merki væru
um að hörð valdabarátta væri nú
háð í írak. Vísar hann til frétta,
sem hafðar voru eftir háttsettum
manni í bandaríska hernum, um
að Saddam Hussein, forseti íraks,
hefði sett eiginkonu sína í stofu-
fangelsi.
Ekki fylgdu neinar skýringar
-fullyrðingunum um stofufangelsi
og ekki hefur fengist upplýst hve-
nær það gerðist eða hvers vegna.
Heimildarmaðurinn, sem ekki vill
láta nafns síns getið, gat sér þess
til að skotárás á son Saddams,
Uday, í síðasta mánuði, hefði ýtt
undir ótta forsetans um öryggi
sitt. Sagði heimildarmaðurinn að
Saddam skipti enn oftar um dval-
arstað en áður vegna þessa. Uday
liggur enn á sjúkrahúsi og er búist
við að hann muni missa annan
fótinn þar sem drep er komið í
hann.
Talsmaðurinn, Mike McCurry,
sagði ýmsa atburði að undanförnu
benda til þess að flókin valdabar-
átta sé háð í írak og að Banda-
ríkjamenn fylgdust grannt með
þróun mála þar, vegna öryggis-
mála á Persafióasvæðinu.
■ Eiginkonan sögð/18
Reuter
ÍRASKA sjónvarpið birti í
gær viðtal við Uday, son Sadd-
ams, sem liggur á sjúkrahúsi
í Baghdad eftir skotárás sem
gerð var í síðasta mánuði. Er
búist við að taka verði annan
fótinn af honum vegna dreps.
Tekur alnetið
tímasókn fram?
London. Reuter.
NÁMSMENN, sem nýta sér
alnetið við nám, geta náð jafn-
góðum árangri og jafnvel
betri en þeir sem sækja tíma,
að því er fram kemur í breska
vísindaritinu New Scientist
Þar segir frá rannsókn sem
gerð var á 33 nemendum í
félagsfræði við Kaliforníu-
háskóla í Northridge. Fengu
þeir nemendur, sem fengu
kennslu um alnetið, að jafnaði
20% hærri einkunnir en þeir
sem sóttu tíma í háskólanum.
Þá kom einnig í ljós að hópur-
inn, sem nýtti sér alnetið,
varði lengri tíma í námið,
skildi námsefnið betur og vann
betur saman. Enginn náms-
mannanna vissi að þeir væru
þátttakendur í tilraun.
Jerald Schutte, sem fram-
kvæmdi rannsóknina, telur
skýringuna á því að hópvinna
alnetsnemanna var árangurs-
ríkari vera þá að þeir hafi
talið það nauðsynleg tengsl við
námið þar sem þeir sóttu ekki
tíma. Helmingur nemendanna
sótti kennslu einu sinni í viku
um 14 vikna skeið, en hinn
helmingurinn hittist einungis
í upphafi annar og við lok
hennar. Alnetsnemarnir nýttu
sér tölvupóst þegar þeir unnu
saman og ræddu saman viku- •
lega á spjallrásum alnetsins
með aðstoð Schutte.