Morgunblaðið - 30.01.1997, Blaðsíða 37
I
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1997 37
FRETTIR
Hjörtur Nielsen flytur
í nýtt húsnæði
Hið íslenska
k vikmy ndafræðafélag
Karsten
Fledelius
flytur erindi
KARSTEN Fledelius, lektor við
Kaupmannahafnarháskóla flytur er-
indi á vegum Hins íslenska kvik-
myndafræðafélags í Norræna húsinu
í dag fimmtudaginn 30. janúar kl.
20. Erindið nefnist: „Feature Film
as a mirror of changing values“,
(„Leiknar kvikmyndir sem spegill
breyttra viðhorfa"). Sýnd verða
mynddæmi og erindið verður flutt á
ensku.
I rúmlega aldarfjórðung hefur
Karsten sinnt kennslu og rannsókn-
um á kvikmyndum, jafnt leiknum
sem heimildakvikmyndum, m.a. með
tilliti til heimildagildis þeirra, hvernig
megi nota þær sem sagnfræðilegar
heimildir, hvers konar viðhorf þær
spegla og hvaða boðskap þær flytja
áhorfendum. Fledelius er lektor við
Kaupmannahafnarháskóla og starfar
við þá deild sem kennd er við Film-
og medievidenskab. Áður vann hann
við Sagnfræðistofnun sama skóla en
Fledelius er miðaldasagnfræðingur
og hefur lagt sérstaka áherslu á
Býsanstímann. Fljótlega tók áhugi
hans að beinast að kvikmyndum og
hefur hann ritað greinar og bækur
um kvikmyndir og sagnfræði, flutt
fjöida fyrirlestra um efnið, haldið
námskeið víða um heim og staðið
framarlega í alþjóðlegu samstarfí á
rannsóknasviði sínu, m.a. verið for-
seti IAMHIST, International Assoc-
iation for Audio-Visual Media in Hi-
storical Research and Education.
Karsten Fledelius er nú staddur á
íslandi sem NORDPLUS gestakenn-
ari í sagnfræði og hefur með höndum
hluta af námskeiðinu „Sagnfræði og
kvikmyndir" við sagnfræðiskor Há-
skóla ísiands.
Mótmæla seina-
gangi samn-
inganefndar
A FUNDI trúnaðarmanna, stjómar
°g kjararáðs Sjúkraliðafélags íslands
yar eftirfarandi ályktun samþykkt:
„Fundur trúnaðarmanna, kjara-
málanefndar og framkvæmdastjórn-
ar Sjúkraliðafélags íslands, haldinn
þriðjudaginn 28. janúar 1997, mót-
mælir harðlega tregðu samninga-
nefndar fjármálaráðherra og Reykja-
víkurborgar til samninga við laun-
þega.
Trúnaðarmannafundur SLFÍ
hafnar algjörlega hugmyndum fjár-
málaráðherra og fulltrúa Reykjavík-
urborgar um aukið forstjóraveldi til
geðþóttaákvarðana um kjör starfs-
tnanna sinna, án afskipta launþegar-
hreyfingarinnar. Vísvitandi er að því
stefnt með forstjóraveldi fjármála-
ráðherra að afnema samræmda kja-
rasamninga og afskipti verkalýðs-
hreyfíngarinnar af starfskjörum og
réttindum launþega.
Fundurinn lýsir eftir afrakstrinum
af góðærinu og að honum verði skipt
réttlátlega. Góðæri sem ekki gefur
tilefni til annarra hækkana en
tveggja til þriggja prósenta hækkun-
ar á lægstu laun eða u.þ.b. 1.300-
2.000 kr. hækkun á 65.000 kr. mán-
aðarlaun er ekki afrakstur góðæris
heldur áframhaldandi harðæri fyrir
fjölda launþega.
Trúnaðarmenn sjúkraliða benda
á, að haldi sem horfír er ljóst að
þjóðfélaginu er stefnt í harðar vinnu-
deilur sem ekki verður séð fyrir end-
ann á. Hugmyundir forsætisráðherra
að kjarasamningar í góðæri gefi ekki
tilefni til meira 2-3% hækkana á
laun eru gjörsamlega óviðunandi.
Afrakstur slíkra góðærishugmynda
ráðherrans svara ekki væntingum
launþega og leiðir fyrr en síðar til
verkfalla með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum.
Sjúkraliðar gera kröfu um skyn-
samlega samninga, betri laun, lægri
skatta, lækkun vaxta, samninga um
aukinn kaupmátt. Sjúkraliðar kreij-
ast þess að góðærið skili sér til þjóð-
arinnar en ekki fárra útvalinna."
VERSLUNIN Hjörtur Nielsen hef-
ur flutt sig í bláu húsin við Faxa-
fen, Suðurlandsbraut 52.
í fréttatilkynningu segir að á
þessu ári bjóði verslunin viðskipta-
vinum sínum upp á þá nýbreytni
að vera með mánaðartilboð í hverj-
um mánuði. Á mánaðartilboðinu
Hreyfimynda-
félagið sýnir
Stórir strákar
gráta ekki
HREYFIMYNDAFÉLAGIÐ sýnir í
samvinnu við Film Kontakt Nord
norsku heimildarmyndina Stórir
stákar gráta ekki eða „Big Boys
Don’t Cry“ fimmtudagskvöld kl. 19
í Háskólabíói.
Myndin segir frá nokkrum strák-
um sem lent hafa í fangelsi fyrir
afbrot, m.a. fíkniefnabrot, og segir
frá því hvernig þeim tekst að fóta
sig í meðferðinni innan veggja og
utan.
Á undan myndinni eru sýndar
tvær stuttmyndir.
Þorrafagnaður
í Neskirkju
HALDINN verður þorrafagnaður
félagsstarfs aldraðra í safnaðar-
heimili Neskirkju laugardaginn 1.
febrúar kl. 15.
Boðið verður upp á ýmis
skemmtiatriði auk hefðbundins
þorramatar. Verði er mjög stillt í
hóf eða 1.300 kr. og eru allir vel-
komnir. Vinsamlegast tilkynnið
þátttöku í síma 551-6783 milli kl.
16 og 18 til föstudags.
■ LIONSKL ÚBBURINN Mun-
inn stendur fyrir harmonikuballil
föstudaginn 31. janúar nk. í Lions-
heimilinu Lundi, Auðbrekku 25,
Kópavogi. Húsið verður opnað kl.
21. Félagar úr Harmonikufélagi
Reylqavíkur sjá um tónlistina og
dansgólf staðarins er rúmgott. Allur
ágóði af skemmtuninni fer í líknar-
sjóð klúbbsins en hann hefur m.a.
stutt við bakið á samtökum fatl-
aðra, einstaklingum og fleiri sem
þurft hafa á aðstoð að halda. Að-
íranesevrir er 1.000 kr.
Viö erum
á vaktinni
til 22.00
öll kvöld vlkunnar
tCa LYFJA
U Lágmúla 5
Sími 533 2300
verði viðskiptavinum boðið að
kaupa vörur með góðum afslætti.
Febrúarmánuður er fyrsti mánuð-
urinn og þá er ný kristalslína boð-
in með 20% afslætti auk fleiri smá-
tilboða. Verslunin Hjörtur Nielsen
hefur nú hafið sölu á Waterford
kristalnum.
Meðaltalshækk-
un til bænda
tæp 2%
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins:
„Vegna frétta síðustu daga þar
sem vitnað hefur verið í Hagtölur
mánaðarins um að búvörur sem háð-
ar eru verðlagsgrundvelli hafi hækk-
að um 6,6% frá janúar 1996 til jan-
úar 1997 vill Upplýsingaþjónusta
landbúnaðarins benda á eftirfarandi:
Verð til bænda skv. gildandi verð-
lagsgrundvelli 1. janúar 1996: Mjólk
1 ltr. 27,66, nautgripakjöt, kg
263,74, kindakjöt, kg 206,18 og slát-
ur, stk. 189,02.
Verð til bænda skv. gildandi verð-
lagsgrundvelli 1. janúar 1997: Mjólk
1 ltr. 28,97, nautgripakjöt, kg
257,10, kindakjöt, kg 206,28 og slát-
ur, stk. 178,75. Breyting í % milli
ára er: Mjólk +4,74, nautgripakjöt
-2,52, kindakjöt, kg +0,54 og slátur,
stk. -5,43.
Opinber verðlagning breyttist ekki
á öðrum afurðum, þ.e. eggjum, kjúkl-
ingum eða hrossakjöti.
Að teknu tilliti til framleiðslu-
magns af hverri afurð var vegin
meðalhækkun til bænda á árinu 1996
tæplega 2%.“
Hádegisfundur
og* ráðstefna
um nýsköpun í
atvinnulífi
HALDINN verður hádegisfundur og
ráðstefna í Háskóla íslands fímmtu-
daginn 30. janúar sem ber yfírskriftina
Nýsköpun, háskóli og atvinnulíf. Það
eru Nýsköpunarsjóður námsmanna og
Atvinnumálanefnd Stúdentaráðs sem
standa að uppákomunum.
Tilefnið er að laugardaginn 1. febr-
úar verða Nýsköpunarverðlaun for-
seta íslands afhent á Bessastöðum
þar sem námsmanni/námsmönnum
verða veitt heiðursverðlaun fyrir
framúrskarandi úrlausn á verkefni
sem unnið var á vegum Nýsköpunar-
sjóðs námsmanna sumarið 1996.
Tilgangurinn með þessu er að vekja
athygli á Nýsköpunarsjóði náms-
manna og að vekja menn til umhugs-
unar hvernig auka megi jákvætt sam-
starf háskóla og atvinnulífs með sér-
stöku tilliti til nýsköpunar.
Hádegisfundurinn verður haldinn í
Lögbergi, stofu 101, kl. 12.10. Þar
munu taka til máls Bjöm Bjamason
menntamálaráðherra, Stefán Ólafs-
son prófessor og Páll Kr. Pálsson
framkvæmdastjóri Sólar hf. Fundar-
stjóri verður Baldur Þórhallsson.
Ráðstefnan verður haldin í Þjóð-
arbókhlöðunni kl. 15-18. Stærstum
hluta ráðstefnunnar mun verða varið
í hópstarf. Hópamir og hópstjórar
verða eftirfarandi: Kennsla og undir-
búningur fyrir vinnumarkaðinn.
Hópstjóri: Jón Torfi Jónasson, for-
seti Félagsvísindadeildar, Hvernig
getur háskóli stuðlað að nýsköpun í
atvinnulífí? Hópstjóri: Valdimar Kr.
Jónsson prófessor og Hverju hefur
Nýsköpunarsjóður námsmanna skil-
að? Hópstjóri: Halldór Jónsson, deild-
arstjóri rannsóknarsviðs.
Að loknu hópstarfí munu verða
pallborðsumræður.
Ný stjórn
Varðar
AÐALFUNDUR Varðar - Fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík var haldinn laugardaginn 25. jan-
úar sl. að Hótel Sögu þar sem m.a.
var kosið í nýja stjóm.
í stjórn voru kosnir: Baldur Guð-
laugsson, formaður, Ámi Sigfússon,
Dagný Erna Lárusdóttir, Garðar Ing-
varsson, Júlíus S. Ólafssop, Kjartan
Gunnarsson, Sigurbjörg Ásta Jóns-
dóttir og Sigurður M. Magnússon,
meðstjómendur. Auk framan-
greindra eru formenn sjálfstæðisfé-
laganna í Reykjavík sjálfkjömir í
stjórnina.
Að loknum venjulegum aðalfund-
arstörfum flutti Davíð Oddsson for-
sætisráðherra ræðu.
■ HIÐ árlega þorrablót Bolvík-
ingafélagsins verður haldið í Vík-
ingasal, Hótel Loftleiða, laugar-
daginn 1. febrúar. Hefð er fyrir því
að konur mæti í íslenskum búningi
á þorrablót sitt í heimabyggðinni.
Gaman væri ef konur gætu viðhald-
ið þeim sið á þorrablót Bolvíkingafé-
lagsins; það er þó alls ekki skilyrði.
STRÁKAR!!! ÞAÐ ER STUNDUM GOTT
www.centrum.is/hanz Hanz, Kringlunni 8-12,s.5681925.