Morgunblaðið - 30.01.1997, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.01.1997, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1997 35 FRÉTTIR Námskeið í páskaföndri DÓRA Sigfúsdóttlr heldur nám- skeið fyrir eldri borgara í páska- föndri 19. febrúar nk. i Risinu, Hverfisgötu. Einnig er Dóra til viðtals um að Nefnd um stuðning við atvinnurekst- ur kvenna IÐNAÐAR- og viðskiptaráðherra hefur skipað nefnd sem falið er að kanna hvort og þá með hvaða hætti, stjórnvöld geta stutt við atvinnu- rekstur kvenna sérstaklega. Nefnd- in tekur þegar til starfa og er ætlað að skila ráðherra tillögum sínum í haust. í nefndina hafa verið skipaðar: Jónína Bjartmars, lögfræðingur, formaður, Ragnheiður Kristjáns- dóttir, deildarsérfræðingur, iðnað- ar- og viðskiptaráðuneyti, ritari, Jónína Benediktsdóttir, fram- kvæmdastjóri, Herdís Sæmundar- dóttir, kennari, f.h. félagsmálaráðu- neytis, Elísabet Benediktsdóttir, f.h. Byggðastofnunar, Vigdís Hauksdóttir, verslunarmaður og Brynhildur Bergþórsdóttir, f.h. Iðn- tæknistofnunar. Til að leggja mat á þörf á slíkri þjónustu hér á landi hefur iðnaðar- og viðskiptaráðherra falið ofan- greindri nefnd eftirfarandi hlut- verk: Að kynna sér með hvaða hætti staðið er að stuðningi stjórn- valda við atvinnurekstur kvenna í ýmsum nágrannalöndum okkar. Sérstaklega er bent á Svíþjóð, Kanada og verkefni á vegum ESB, að leggja mat á þörf fyrir sértækar aðgerðir á þessu sviði hér á landi m.a. með könnun á viðhorfi kvenna í fyrirtækjarekstri til þeirra, að skila ráðherra áliti um hver þörfin fyrir slíkar aðgerðir er hér á landi og sé hún til staðar og að skila þá tillög- um um með hvaða hætti standa skuli að slíkum aðgerðum. Nefndin skal hafa samvinnu við atvinnuráðgjafa á landsbyggðinni, atvinnu- og iðnþróunarfélög, Afl- vaka Reykjavíkur og aðra þá aðila sem að stuðningi við atvinnulífið koma. Hún skal skila ráðherra áliti sínu og tillögum fyrir 1. október 1997. Ræddu kvennaþing SÞ STJÓRN Landssambands sjálfstæð- iskvenna og Sjálfstæðiskvennafélag Arnessýslu héldu stjórnarfund laug- ardaginn 18. janúar sl. í húsnæði sjálfstæðismanna á Selfossi. Síðdegis var haldinn opinn fundur um kvennasamning Sameinuðu þjóð- anna (CEDAW) er bannar alla mis- munun gagnvart konum. Þrír lög- fræðingar kynntu samninginn og fjölluðu um einstök ákvæði hans: Elsa S. Þorkelsdóttir, framkvæmda- stjóri Jafnréttisráðs, Lára V. Júlíus- dóttir lögmaður og Sólveig Péturs- dóttir alþingismaður. í fréttatilkynningu segir: „í erind- um sínum ræddu frummælendur taka við hópum, 10 eða fleiri, í páskaföndurgerð s.s. kransa á hurðir, borðskraut ýmiss konar og páskahænur. Upplýsingar veitir Dóra Sigfúsdóttir, Sólvallagötu 39. þennan mikilvæga samning sem ís- land er aðili að og báru ýmis ákvæði hans saman við íslensk lög, þ.ám. jafnréttislögin. Almenn þátttaka í umræðunum var mikil og greinilegt er að samningurinn, sem fuilgiltur var af íslands hálfu um miðjan síð- asta áratug, hefur ýmislegt að geyma er vekur athygli þeirra sem hann skoða, sérstaklega með tilliti til íslenskra laga. Fram kom á fund- inum að ísland er eitt örfárra aðild- arríkja Sameinuðu þjóðanna sem ekki sá ástæðu til að setja neina fyrirvara um samninginn og var sér- staklega til þess tekið á fundinum á Selfossi. Eitt þeirra atriða sem rædd voru á fundinum var launamunur kynjanna. Þrátt fyrir að ísland telj- ist nokkuð framarlega í hópi þjóða í jafnréttismálum er pottur brotinn í því efni hér á landi þar sem slíkur launamunur er viðurkennd stað- reynd og þar með brot á Kvenna- samningi Sameinuðu þjóðanna.“ Námskeið fyrir almenning um Internet í VETUR verður boðið upp á tölvu- námskeið fyrir almenning í verslun- um Tæknivals hf. alla laugardaga undir heitinu Lærðu á laugardögum. „Viðfangsefni febrúarmánaðar verður Internet. Fólki gefst kostur á að kynnast upplýsingahraðbraut- inni frá öllum hliðum. Byijað verður á tveim námskeiðum um heimasíðu- gerð, hið fyrra verður 1. febrúar nk. og það seinna viku síðar. Næstu laugardaga þar á eftir verður fjallað um það hvernig á að umgangast veraldarvefinn, reglur kynntar og leiðbeint um almenna notkun. Settar hafa verið upp litlar kennslustofur í verslunum Tækni- vals. Sérfræðingar flytja fyrirlestra og verða fólki innan handar með leiðbeiningum og sýnikennslu. Öllum er heimil þátttaka án endurgjalds. Fyrsta námskeiðið verður í verslun Tæknivals, Skeifunni 17, Reykjavík, laugardaginn 1. febrúar kl. 10.30 til 12 og sama dag í verslun Tækni- vals, Reykjavíkurvegi 64, Hafnar- firði kl. 12.30 til 14,“ segir í frétta- tilkynningu. LEIÐRÉTT Rangur starfstitill í FRÉTT um úrskurð samkeppnis- ráðs í blaðinu í gær var sagt að Guðmundur Sigurðsson væri lög- fræðingur hjá Samkeppnisstofnun. Það er rangt. Guðmundur er við- skiptafræðingur að mennt og hefur starfsheitið forstöðumaður sam- keppnissviðs. Rangur myndatexti í frétt um þorrablót í Sólvangi í gær birtist rangur myndatexti við mynd af hjónunum Jóhönnu Rannveigu Pétursdóttur og Bjarna Aðalgeirs- syni á Mánárbakka. Beðist er vel- virðingar á þessum mistökum. Frábær kaupaukatilboð Vidbæfium viðl VERSLANIR LAUGAVEGI 51 - S. 551-7717 - SKEIFUNN119 -! 5% staðgreiðsluafsláttur MEÐAN BIR6ÐIR ENDAST! • ■ . ,-v. ' . . Isafjörður • Isafjörður • Isafjörður • ísafjörður n x á Isafirði 4 ísland að vetri býður upp á fjölmarga möguleika til afþreyingar og skemmtunar. Skíðaferðir, fjallaskoðun, listalíf, matur, menning og skemmtun. Fiugleiðir innanlands bjóða flug, gistingu, skemmtun og ævintýri á einstöku Gjugg-verði fyrir einstaklinga, hópa og fyrirtæki. Lífgaðu upp á tilveruna í vetur og skelltu þér í ógleymanlega helgarferð til ísafjarðar með Flugleiðum innanlands. Ísafjardarbær, gleður! ■ íiftljofðuf - RsykjiviV Gjuugpflkki frú ki 14.230 • Flug fram og tii baka. • Gisting í 2 nætur með morgunverði. • Afslóttarhefti og flugvall- arskattur innifalinn. Verð pr. mann. Gjugghelgin 7.*A fubríiar Ósvikið vestfirskt þorrablót Boðið upp á stórskemmtilega helgar- dagskrá frá föstudegi til sunnudags, með ótal skemmtiiegum uppákomum: • Siglingar • Skíða- og sleðaferðir • Þorrapizzur •Tónleikar • Hlaðborð til sjávar og sveita • Smakkferð X n r nmtosFíucte iif.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.