Morgunblaðið - 30.01.1997, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 30.01.1997, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR/MYIMDBÖND/ÚTVARP-SJÓNVARP MYNDBÖND Fyrirsj áanleg sannleiksleit I leit að sannleikanum (Where Truth Lies)______ Spcnnumynd ★ Leikstjórn og kvikmyndataka: Will- iam H. Molina. Handrit: Ted Perk- ins. Tónlist:. Aðalhlutverk: John Savage, Malcolm McDowell, Kim Cattrall. 90 mín. Bandarísk. Silver- line/Myndform. 1995. Útgáfudagur 28. janúar. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. FYRIR f.mm árum átti sér stað banaslys. Wendy Lazarre ók þá út í nóttina, undir áhrifum áfengis, missti stjóm á bifreið sinni og beið bana. Allt síðan þá hefur eiginmaður henn- ar, geðlæknirinn Ian Lazarre (ekki sálfræðingur eins og margoft er rangt með farið í þýðingu) dregið dánarorsökina í efa. Hann getur hreinlega ekki sætt sig við sannindi þessi og líður sál- arkvalir í leit að hinni réttu. Þegar hugsýki þessi virðist hafa tekið völdin yfir lífí hans bregða unn- usta hans og besti vinur á það ráð að senda hann á hæli til frægs geðlækn- is (Malcolm McDowell). Sá beitir harkalegum aðferðum til þess að lækna sjúklinga sína og með strangri og hættulegri lyfjameðferð tekst honum að opna dyr Lazarre að sann- leikanum. Sálfræðitryllir þessi er full-brokk- gengur og er þar fyrst og fremst um að kenna slökum og fyrirsjáanlegum söguþræði. Auk þess era hugarórar og sannleiksleit Lazarre raglingsleg Borðstofuborð og— 4 stólar. Massíf fura. Áður 47.520 Bamaborð. Áður 2.998 Bamastóll Áður 2.998 Nú aðeins 1.48« Skrifbprð. Massíf fura. Áður 29.998 Kaffi- og matarstell fyrir fjóra, 20 hlutir. Áður 1.998. L Hornbchhur* 1 bord 09 * sto Massíffura Ásamt ýmsum öðrum góðum tilboðum. Kjarakaup Visa og Euro roögrei&slur ehf Faxateni 10, sími 568 4910. Síðasta mynd River Phoenix ► ÞEGAR River Phoenix lést fyrir þremur árum úr of stórum skammti af eitur- lyfjum var hann að vinna að kvikmyndinni „Dark Blood“. Jim Barton, sem skrifaði handritið, hefur nú í hyggju að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið og leikstýra myndinni sjálfur. I hlutverk Phoenix, sem átti að leika ungan mann sem býr í eyði- mörkinni og er með heims- endi á heilanum, hefur hann fengið Jonatahan Rhys- Myers. í hlutverk óham- ingjusams pars sem verður á vegi piltsins fékk hann Charles Dance og Clare Higgins. Koma þau í stað Jonatahan Pryce og Judy Davis. bróður (James i„iEarl Jones). ifeigjj; Ijiia. Earl gerir það sem hann telur móður sína hafa viljað, að hafa uppi á hinni nýju fjölskyldu. Þegar honum tekst það er það þeim jafn- örðugt og honum að sætta sig við hinn nýja ætt- ingja. En móðursystir bræðranna einsetur sér að leiða þá í skilning um að þeir geti ekki snúið baki við blóðböndunum. Fjölskyldumál er lítil og látlaus mynd sem segir þessa hugnæmu sögu á einkar áhugaverðan og vandaðan máta. Myndin er í sjálf- um sér ekkert tímamótaverk en á sinn hátt er hún flekklaus, sama hvert litið er. Það sem stendur þó upp úr er einstakur samleikur aðal- leikaranna sem einn og sér gerir myndina fullkomlega áhorfunar- innar virði. JAMES Earl Jones og Robert Duvall sýna „einstakan samleik“ í Fjölskyldumálum. MCDOWELL og Savage standa sig „sómasamlega". og full rúmfrek og því skortir mynd- ina tilfinnanlega þá spennu sem hún þarfnast til þess að verða athyglinnn- ar verð frá upphafi til enda. Hún nær sér þó á strik rétt undir lokin og myndast þá hin ágætasta spenna, sem hefði mátt ríkja víðar. John Savage og Malcolm McDowell standa sig og sómasamlega, sem þó er ekki hægt að segja um frammistöðu ann- arra leikara. Að lokum er vert að geta tónlistar þeirra Davids og Erics Wurst, sem er óvenju sterk og mynd sem / leit að sannleikanum mjög til framdráttar. Skarphéðinn Guðmundsson Vönduð o g vand- lega leikin mynd Fjölskyldumál_______________ (A Family Thing) D r a m a ★ ★★ Leikstjóri: Richard Pearce. Fram- leiðendur: Robert Duvall, Todd Blake, Randa Haines. Handrit: Billy Bob Thornton og Tom Epperson. Kvikmyndataka: Fred Murphy. Að- alhlutverk: Robert Duvall, James Earl Jones. 105 mín. Bandarísk. United Artists/Warner myndir. 1995. Útgáfudagur 13. janúar. Öll- um leyfð. ÞEGAR móðir Earls Picher (Robert Duvall) fellur frá í hárri elli skilur hún eftir bréf til hans þar sem hún greinir frá því að hann sé í raun ekki sonur hennar. Sannleikurinn væri sá að hann hefði verið fæddur af litaðri konu, sem nauðgað var af hvítum föður hans, og hún látist í kjölfar fæð- ingarinnar. Væri Earl þannig í raun og veru hvítur maður af lit- uði fólki kominn og ætti sér fjöl- skyldu í Chicago, þar á meðal Skarphéðinn Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.