Morgunblaðið - 30.01.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1997 31
s
+ Halldór Ágúst
Gunnarsson var
fæddur í Stykkis-
hólmi 1. mars 1921.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur
hinn 23. janúar síð-
astliðinn. Foreldr-
ar hans voru hjónin
Gunnar Halldórs-
son, f. 1898, d.
1964, og Sigrún
Benediktsdóttir, f.
1891, d. 1982.
Halldór kvæntist
26.12. 1942 Brynd-
ísi Helgadóttur frá
Akureyri. Þau eignuðust sjö
börn sem eru: 1) Auður Gunn-
ur, f. 21.8. 1940, gift Halldóri
Guðmundssyni, þau eiga þrjú
börn. 2) Helga, f. 15.9. 1942,
gift Auðuni S. Hinrikssyni og
eiga þau fjögur börn. 3) Hugr-
ún, f. 24.3. 1945, gift Andr-
Elsku pabbi. Nú er lokið þinni
hetjulegu baráttu við erfiðan sjúk-
dóm. Það er sárt að hugsa til þess
að þú ert ekki lengur hjá okkur.
Þú varst stolt okkar allra.
Þegar við fórum í heimsókn til
þín eða við fengum þig í heimsókn
fræddir þú okkur um allt mögulegt
og slóst á léttu strengina. Gaman-
semin sat í fyrirrúmi. Þú varst mik-
ill listamaður í eðli þínu og ber þar
hæst ljósmyndaáhugann. Þær eru
ófáar myndirnar sem þú tókst,
bæði úti í náttúrunni og við margs
konar tækifæri okkur öllum til
ánægju. Oft fórstu einsamall með
rútu á Þingvöll á haustin til að taka
myndir af haustlitunum. Þú varst
duglegur við að senda okkur stækk-
aðar myndir af ýmsu því sem fyrir
augun bar og oft léstu fylgja með
segulbandsspólu með fallegum lög-
um.
Tónlistaráhuginn var einnig mik-
ill enda áttirðu mikið af plötum,
geisladiskum og segulbandsspólum
með góðri tónlist. Fyrr á árum var
oft tekið lag á harmonikuna eða
munnhörpuna.
ési Garðarssyni,
þau eiga tvö börn,
auk þess sem
Hugrún á fimm
börn frá fyrra
hjónabandi. 4)
Halla, f. 5.11. 1947,
gift Óskari Val-
geirssyni, þau eiga
fjögur börn. 5) Sig-
rún, f. 23.8. 1949,
gift Hilmari Krist-
ensen. Sigrún á
þrjú börn með
Halldóri Georg
Kristjánssyni sem
lést 1987. 6) Gunn-
ar, f. 6.9. 1950. 7) Sævar, f.
12.8. 1952. Hann á einn son.
Þá átti Bryndís fyrir einn son,
Svavar Orn, sem nú er látinn.
Hann átti þrjú börn.
Útför Halldórs fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Elsku pabbi, ég kveð þig með
söknuði og geymi allar hugljúfu
minningarnar í hjarta mér. Ég veit
að það verður vel tekið á móti þér.
Þín einlæg dóttir,
Sigrún.
Okkur langar hér í örfáum orð-
um að minnast elskulegs afa okkar
sem barðist við erfiðan sjúkdóm
til síðasta dags. Á þessari stundu
koma upp í hugann margar minn-
ingar sem okkur er ljúft að geyma.
Eins og þegar við vorum lítil hafð-
ir þú gaman af að spjalla við okk-
ur inn á segulband og geymdir svo
spólurnar þar til við vorum fullorð-
in og gafst okkur þær þá vel merkt-
ar og skreyttar að þínum hætti. í
þér bjó mikill listamaður sem ekki
fékk að njóta sín til fulls. Alla af-
mælisdaga mundir þú og sparaðir
ekki símtölin til hamingjuóska,
helst vildirðu koma og taka mynd-
ir sem og þú gerðir í nokkur ár.
Myndavélin var alltaf til taks, oftar
en ekki þegar við komum í heim-
sókn var tilvalið að taka myndir
og skoða nokkur myndaalbúm og
þá fylgdu gjarnan skemmtilegar
sögur með, því alltaf var stutt í
gamanið hjá þér. Þú varst mikill
blómaunnandi og stundum var
maður leystur út með græðlingum
af kólus sem þið amma hélduð
mikið upp á. Þú varst mikið fyrir
fjölskyldu- og ættartengsl og
stóðst fyrir nokkrum ættarmótum.
Hvað þú varst ánægður þegar öll
barnabörnin hittust fyrir rúmu ári,
og þú varðst að koma og taka
myndir af hópnum.
En, elsku afi, það var svo erfitt
og óréttlátt að sjá þig fara á þenn-
an hátt, því þú áttir eftir að gera
svo margt og ferðast svo mikið
með henni Önnu vinkonu þinni,
sem reynst hefur þér svo góð. Það
er nú samt gott að þú þurftir ekki
að þjást lengur og við trúum því
að hún amma taki á móti þér. Svo
veistu það, afi, að okkur þykir
vænt um þig og við munum varð-
veita minningu þína. Hvíl þú í friði.
Elsku mamma, Guð gefi þér og
systkinum þínum, Önnu og öðrum
aðstandendum styrk til að taka á
þessari miklu sorg.
Þín afabörn,
Margrét, Hinrik, Hulda Karen
og Auðunn Sigurður Auðunsbörn.
Er hnígur sól að hafsins djúpi
og hulin sorg á bijóstin knýr,
vér minnumst þeirra, er dóu i draumi
um djarft og voldugt ævintýr.
Þá koma þeir úr öllum áttum,
með óskir þær, er flup hæst,
og gráta í vorum hljóðu hjörtum
hinn helga draum, sem gat ei ræst.
Og þá er eins og andvörp taki
hin undurfagra sólskinsvon,
og allir kveldsins ómar verði
eitt angurljóð um týndan son.
Og hinzti geislinn deyr í djúpið,
- en daginn eftir röðull nýr
oss kveikir sama dýra drauminn
um djarft og voldugt ævintýr.
(Jóhannes úr Kötlum)
Elsku Halldór við þökkum þér
yndislegar samverustundir og vott-
um um leið öllum ástvinum samúð
okkar.
Hrafnhildur og Helgi.
HALLDÓR ÁGÚST
GUNNARSSON
Einnig var blómaáhuginn mikill.
Sérstakt yndi hafðir þú af Kólus
því hann sýnir svo marga liti. Þess
vegna varstu ekkert hrifinn af
grænblöðungunum mínum. Fjólu-
blái liturinn þurfti helst að vera ríkj-
andi. Ef ég gaf þér gjöf gætti ég
þess alltaf að gleyma ekki fjólubláa
litnum.
Okkur þótti athyglisvert hversu
minnugur þú varst á alla afmælis-
daga, okkar barnanna, afabarn-
anna og langafabarnanna, eins og
hópurinn var orðinn stór. Það hefur
áreiðanlega oft verið erfitt hjá þér,
pabbi minn, að sjá fyrir þínum stóra
barnahóp. En þér var lagið að kenna
okkur húsreglurnar og enginn mátti
svíkjast um við uppvaskið. Snyrti-
mennska varð að sitja í fyrirrúmi
enda varstu snyrtimaður sjálfur.
Yfirleitt varstu harður á að útivist-
artími væri virtur en stundum var
hægt að fara samningaleiðina.
Hjálpsamur varstu þegar á þurfti
að halda og fljótur varstu til ef
mála þurfti íbúðina hjá okkur. En
þú vildir hafa áhrif á litavalið og
varst ekki alltaf sáttur við það sem
við völdum.
Elsku pabbi, missir þinn og okk-
ar var mikill þegar mamma dó. Nú
er ykkar beggja sárt saknað. En
þú kynntist yndislegri konu, Önnu,
og áttir með henni góðar stundir.
Þið áttuð svo mörg sameiginleg
áhugamál. Þú barst mikla virðingu
fyrir henni. Okkur þótti gott að vita
af þér í návist hennar.
Ég sendi starfsfólki á deild 7A á
Borgarspítalanum hugheilar kveðj-
ur með þakklæti fyrir þann styrk
sem okkur var veittur.
Guð komi sjálfur nú með náð,
nú sjái Guð mitt efni og ráð.
Nú er mér, Jesú, þörf á þér,
Þér hefi ég treyst í heimi hér.
(H.P.)
+ Guðný Briem
Haraldsdóttir
fæddist í Reykjavík
29. júni 1927. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur að-
faranótt 25. janúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Lára Jónsdóttir, f.
27.6. 1898, d. 16.8.
1960, og Haraldur
Briem Bjömsson, f.
7.2. 1902, d. 17.3.
1930. Guðný á þrjá
eldri bræður, Bjöm,
f. 1923, Jón, f. 1924,
Magnús, f. 1926, og yngri bróð-
ur, Jón Aðalstein, f. 1934.
Guðný giftist í febrúar 1947
Konráði Guðmundssyni veit-
ingamanni. Þau byijuðu bú-
Fallinn er frá einstakur Ijúfling-
ur, nokkur kveðjuorð til hennar.
Ég bjó í sama húsi og hún frá
árinu 1989. Þá fluttu þau hjónin,
Guðný og Konráð, í húsið við Há-
teigsveg 15 og voru þau bæði ákaf-
lega áhugasöm að snyrta og fegra
lóðina og annað sem tilheyrði eign-
inni. Guðný var ávallt áhugasöm
um garðyrkju og um garðinn okkar
hugsaði hún betur en ég, þótt hún
væri orðin mikill sjúklingur síðast-
liðin fimm ár. Hennar heímili var
afskaplega notalegt, öll hennar
snyrtimennska og fallega handa-
skap sinn á Akur-
eyri en fluttu fljót-
lega til Siglufjarðar
og síðar um 1952 til
Reykjavíkur. Böm
þeirra em: 1) Har-
aldur f. 1946, bú-
settur í Reykjavík,
sonur hans er
Magnús Bjöm, f.
1977. 2) Björg
Hulda, f. 1953, gift
Gesti Ó. Sigurðs-
syni, bömin em
þrjú, Edgar Konráð
Gapunay, f. 1975,
Guðný Björg, f.
1986, og Sigurður Magnús, f.
1988.
Útfór Guðnýjar fer fram frá
Bústaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 10.30.
vinna var henni mikið til sóma.
Kyrrlát og hljóðlát var hún Guðný
mín. Þakka ég góða samveru sem
aldrei féll skuggi á.
Innilega samúð votta ég börnum
og aðstandendum.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Pálína Þorleifsdóttir.
GUÐNÝ BRIEM
HARALDSDÓTTIR
t
Elskulegur faðir okkar,
VILHJÁLMUR KRISTINN
HALLGRÍMSSON,
fyrrv. rafvirkjameistari,
frá Felli í Mýrdal,
Lönguhlíð 3,
Reykjavík,
lést 28. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ragnhildur Auður Vilhjálmsdóttir,
Árni Vilhjálmsson.
t
Hjartkær eiginmaður minn,
VALDIMAR F. GÍSLASON
kaupmaður,
Stangarholti 24,
er látinn.
Kristjana Þorsteinsdóttir.
t
Systir mín og frænka,
GUÐRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR,
áður til heimilis Reynimel 44,
Reykjavík,
andaðist á elliheimilinu Grund 28. janúar
sfðastliðinn.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gyða Þórðardóttir, Þórður Ág. Henriksson.
t
Maðurinn minn, faðir og tengdafaðir,
GUNNAR ÓLAFSSON,
Skaftahlfð 26,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum að kvöldi
28. janúar.
Útför hans verður auglýst síðar.
Inga S. Björnsdóttir,
Hulda Gunnarsdóttir, Sævar Snæbjörnsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓHANNA MAGNEA
SIGURÐARDÓTTIR,
Meðalholti 14,
Reykjavík,
lést á Landakotsspítala miðvikudaginn
29. janúar.
Sigurlín E. Magnúsdóttir, Rósinkrans Kristjánsson,
Þórir Magnússon, María Jóhannsdóttir,
Gunnar H. Magnússon, Sigrún Geirsdóttir,
Grétar Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGFÚS BERGMANN
VALDIMARSSON
sjómannatrúboði,
Pólgötu 6,
ísafirði,
verður jarðsunginn frá ísafjarðarkirkju
laugardaginn 1. febrúar kl. 14.00.
Guðbjörg S. Þorsteinsdóttir,
Hermann Sigfússon, Ósk Óskarsdóttir,
Sigríður Sigfúsdóttir, Björn Gíslason,
Ingibjörg Sigfúsdóttir, Jón Víðir Njálsson,
Þorsteinn Sigfússon, Rósa Kjartansdóttir,
Jóhann Sigfússon, Svanfríður Arnórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.