Morgunblaðið - 30.01.1997, Blaðsíða 20
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
20 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1997
Kosningamar í Tsjetsjníju
Basajevjátar
ósigur og snýr
sér að viðskiptum
Gronsí. Reuter.
SHAMIL Basajev, einn helsti leið-
togi skæruliða í Tsjetsjníju og
harðlínumaður í sjálfstæðisbaráttu
landsmanna, viðurkenndi í gær
ósigur sinn í forsetakosningunum,
sem fram fóru fyrr í vikunni. Jafn-
framt lýsti Basajev yfir því að hann
myndi una niðurstöðum kosning-
anna og sigri Aslans Maskhadovs.
Samkvæmt tölum sem birtar
voru í gær hlaut Maskhadov 64,8%
greiddra atkvæða í kosningunum
á mánudag en Basajev 22,7%.
Starfandi forseti Tsjetsjníju, Zeli-
khan Jandarbajev, var í þriðja
sæti og hafði hlotið rúm 10% at-
kvæða.
Tölvurnar heilla
Basajev, sem er 32 ára og Rúss-
ar telja hættulegasta hryðjuverka-
mann á rússnesku landsvæði,
kunngerði að hann hygðist ekki
andæfa stjórn Maskhadovs,
mannsins sem verið hefði leiðtogi
hans í sjálfstæðisstríðinu gegn
Rússum. Vísaði hann á bug öllum
fullyrðingum um klofning í rcðum
skæruliðaleiðtoganna, sem háðu
harða baráttu um forsetaembættið
er oftar en ekki einkenndist af
persónulegum árásum og svika-
brigslum.
Basajev lét þess og getið að hann
hygðist hætta afskiptum af stjóm-
málum og snúa sér að tölvuviðskipt-
um. „Ég mun ekki standa í vegi
fyrir honum. Ég mun snúa mér að
mínum einkamálum og láta til mín
taka í viðskiptum, tölvuviðskipt-
um.“ Basajev lét þessi orð falla í
höfuðstöðvum sínum í Minutka-
hverfínu í Grozní en sá hluti borgar-
innar er rústir einar eftir átök
skæruliða og rússneska hersins.
Sterk staða
Fréttaskýrendur eru almennt
þeirrar hyggju að Aslan Maskhadov
geti verið stoltur af sigri sínum og
þeim árangri sem hann hafí náð í
sjálfstæðisbaráttunni. Tsjetsjenar
njóti samúðar heimsbyggðarinnar
vegna þeirra fórna sem þeir hafí
þurft að færa í sjálfstæðisbarátt-
unni, sem kostað hefur tugi þús-
unda mannslífa. Þá hafi þeim tekist
að niðurlægja rússneska herinn og
nú sé kominn fram á sjónarsviðið
sterkur leiðtogi þjóðarinnar, sem
kosinn hafí verið í kosningum er
njóti alþjóðlegrar viðurkenningar.
Milosevic vill viðræður
Belgrad. Reuter.
SLOBODAN Milosevie, forseti
Serbíu, segir, að viðræður séu leið-
in til að leysa deiluna um kosninga-
svik og er sammála því, að ofbeldi
komi að engu gagni. Kom þetta
fram hjá ígor ívanov, fyrsta aðstoð-
arutanríkisráðherra Rússlands, í
gær.
Ivanov, sem ræddi við Milosevic
í fyrradag, sagði, að deilan um
niðurstöðu sveitarstjórnarkosning-
anna í Serbíu væri innanríkismál
og því hefði það ekki verið hans
hlutverk að miðla málum, aðeins
að lýsa áhyggjum með ástandið í
landinu.
„Milosevic fullvissaði mig um, að
tillögur um lausn deilunnar væru
væntanlegar og væri þar gert ráð
fyrir viðræðum við öll stjórnmáia-
samtök í landinu," sagði ívanov.
ívanov gagnrýndi ýmis Evrópu-
ríki fyrir að reyna að hafa áhrif á
þróun mála í Serbíu á sama tíma
og þau neituðu landinu um aðild
að stofnunum á borð ÖSE, Örygg-
is- og samvinnustofnun Evrópu, og
Evrópuráðinu.
Lokadagar
útsölnnnar
VffiFLWJOiVI
1. febrúar
í Bláu húsin við
Suðurlandsbraut 54
(Exo húsgögn flytur)
oýQdmsljés
Krínglan, sími 568-9511
Reuter
ÁTTRÆÐ rússnesk kona grætur er hún þiggur ölmusu í rústum
Grozní, höfuðstaðar Tsjetsjnyu. Átökin í borginni bitnuðu ekki
síður á Rússum búsettum þar en Tsjetsjenum og algengt er að
betlarar eigi allt sitt undir náungakærleik þeirra sem studdu
Aslan Maskhadov, hinn nýkjörna forseta Tsjetsjnyu.
Nýr kanslari Austurríkis
Aukín atvinna
og hlutleysi
sett áoddinn
Vín. Reuter.
VIKTOR Klima, sem á þriðjudag
tók við embætti kanslara Austur-
ríkis af Franz Vranitzky, hélt í gær
jómfrúarræðu sína á þingi og hét
því að beijast gegn atvinnuleysi
um leið og hann hygðist leggja
áherslu á hlutleysi Austurríkis.
Vamarmál hafa löngum verið
viðkvæm í Austurríki og sagði
Klima að ekki yrði nein breyting
á 41 árs hlutleysi landsins án víð-
tæks stuðnings almennings.
Endalok kalda stríðsins, inn-
ganga í Evrópusambandið og kröf-
ur fyrrverandi Varsjárbandalags-
ríkja, sem liggja að Austurríki, um
að aðild að Atlantshafsbandalag-
inu hafa verið kveikja að líflegum
umræðum um hlutleysið, sem er
kveðið á um í stjómarskrá Austur-
ríkis.
Eldraun Klima í stjórnmálum
var í embætti fjármálaráðherra,
þar sem hann þurfti að leggja ríka
áherslu á aðhald og sparnað í fjár-
lögum við litlar vinsældir almenn-
ings. Hann sagði í gær að ekki
yrði dregið úr aðhaldi, en hins veg-
ar ætlaði hann ekki að missa sjón-
ar af þeim, sem minna mættu sín
í þjóðfélaginu.
„Ríkið ætti að vera til staðar til
að gegna skyldum sínum þegar
hinn frjálsi markaður bregst,“
sagði Klima.
Klima er 49 ára gamall og átt-
undi kanslari Austurríkis frá því
að annað Iýðveldið var stofnað árið
1945. Hann tekur við Austurríska
Reuter
VIKTOR Klima, kanslarí
Austurríkis, flytur sína fyrstu
ræðu í embætti í austurríska
þinginu.
jafnaðarmannaflokknum (SPÖ) á
viðkvæmum tíma. Flokkurinn hef-
ur ekki notið minna fylgis frá
stríðslokum og innan hans er
ágreiningur um allt frá einkavæð-
ingu til hlutverks Austurríkis í al-
þjóðlegu varnarsamstarfi.
Her Burundi vænd-
ur um fjöldamorð
Genf. Reuter.
HER Burundi, sem hrifsaði völd á
liðnu ári, hefur myrt þúsund menn
frá upphafí desembermánaðar sam-
kvæmt yfírlýsingu, sem mannrétt-
indaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna
gaf út í gær.
Þar sagði að morðin bæru því
vitni að ofbeldi væri að færast í
aukana í átökum hersins, þar sem
Tútsar hafa tögl og hagldir, og
skæruliða úr röðum Hútúa, sem eru
í meirihluta meðal íbúa landsins.
I yfírlýsingunni sagði að skæru-
liðar Hútúa_ hefðu einnig framið
fjöldamorð. Á sama tíma hefðu þeir
myrt 58 menn.
Að sögn mannréttindaskrifstof-
unnar hefur herinn undanfarið
fylgt þeirri stefnu að flytja bændur
úr röðum Hútúa með valdi og hvor-
ir tveggja, herinn og skæruliðar
aukið notkun jarðsprengja.
Sagði að mesta ódæðisverkið
hefði verið framið 2. og 3. desem-
ber þegar hermenn myrtu 700
manns á Kayanza-svæðinu.
Herinn neitar ætíð að hafa myrt
Hútúa og kennir skæruliðum um
fjöldamorð. Tútsar eru aðeins fjórð-
ungur íbúa Burundi og þeir óttast
að verða þurrkaðir út gefí þeir eftir
völd í hernum.
Shkele
beðinn um
að mynda
stjórn
GUNTIS Ulmanis, forseti
Lettlands, fól Andris Shkele
forsætisráðherra, sem í liðinni
viku sagði af sér, að mynda
nýja stjórn.
Shkele sagði af sér í fússi
eftir að Ulmanis hafði skorað
á þingið að hafna nýjum fjár-
málaráðherra, sem forsætis-
ráðherrann studdi.
Shalikashvili
hyggst hætta
JOHN Shalikashvili, yfírmað-
ur bandaríska herráðsins, hef-
ur tilkynnt William Cohen
vamarmálaráðherra að hann
hyggist láta af störfum í sept-
ember, að því er sagði í til-
kynningu frá Bandaríkjafor-
seta í gær.
Shalikashvili hefur gegnt
starfínu í tvö tveggja ára tíma-
bil og er ákvörðun hans í sam-
ræmi við hefðbundna setu yfír-
manna herráðsins. Enginn
hershöfðingi hefur gegnt
þessu starfi lengur en fjögur
ár.
Shalikashvili er sextugur og
fæddist í Varsjá í Póllandi.
50.000 naut-
gripum verði
slátrað
HORST Seehofer, heilbrigðis-
ráðherra Þýskalands, hvatti í
gær til þess að öllum þýskum
nautgripum, sem eru af bresku
kyni, yrði slátrað til að koma
í veg fyrir útbreiðslu kúariðu.
Talið er að um sé að ræða
50.000 gripi.
Ótti við kúariðu hefur
magnast í Þýskalandi eftir að
sjúkdómurinn greindist í kálfí
sem talið er að hafi fæðst í
Þýskalandi, og 41 árs gömul
kona lést af sjúkdómi, sem
hefur verið rakinn til kúariðu.
Leiðtoga-
fundur vegna
gíslamáls
RYUTARO Hashimoto, for-
sætisráðherra Japans, og Al-
berto Fujimori, forseti Perú,
ætla að sögn japanskra emb-
ættismanna að eiga fund í
Toronto í Kanada á laugardag
til að ræða leiðir til að fá lausa
72 gísla, sem nú hafa verið í
haldi hjá perúskum skærulið-
um í bústað japanska sendi-
herrans í Lima í sex vikur.
Sagt var að ákveðið hefði
verið að þeir hittust í hlutlausu
landi og Kanada orðið fyrir
valinu.
30 farast í
bruna í Kína
TALIÐ er að a.m.k. 30 manns
hafi beðið bana og tugir
manna slasast þegar mikill
eldur kviknaði í hóteli í borg-
inni Changsha í Hunan-héraði.
Sagt var að hundrað menn
hefðu verið lagðir á sjúkrahús.
Starfsmaður sjúkrahúss í
Hunan-héraði sagði að verið
gæti að allt að 200 manns
hefðu farist í brunanum.