Morgunblaðið - 30.01.1997, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Fjárfestar ATHUGIÐ.
Þolinmótt fjármagn óskast.
Leitaö er efitir Qárfestum vegna undirbúnings á
stofiaun fynrtækis sem stunda mun hvalaskoðanir.
Áhugasamir hafið
samband í síma 898-1000.
Tilkynning
Þar sem ég undirritaður, Oddur C.S. Thorarensen
apótekari, er nú að láta af störfum frá og með 1. febrúar
1997, verður Laugavegs Apótek framvegis rekið af
öðrum aðilum. Lyfsöluhafi verður Eysteinn Arason,
núverandi yfirlyfjafræðingur apóteksins, sem gengt
hefur því starfi með miklum sóma og við vaxandi
vinsældir nú um nokkurra ára skeið. Annað starfsfólk,
sem eins og allir, sem til þekkja vita, er mjög traust, gott
og með afbrigðum hjálpsamt, verður og óbreytt.
Um leið og ég þakka öllum þeim fjölda, sem hefur
viljað nýta sér þá þjónustu, sem ég og starfsfólk mitt
höfum reynt að veita í allri einlægni og eftir bestu getu,
þakka ég ykkur einnig þann trúnað og þá vinsemd, sem
þið hafið sýnt okkur alla tíð. Það hefur veitt mér mikla
lífsfyllingu persónulega, að fá að aðstoða og hjálpa
þeim, sem hafa haft not af.
Laugavegs Apótek mun því verða rekið áfram af
fullum krafti með sama starfsfólkinu og á sama stað og
það hefur verið starfrækt lengst af. Vona ég því að
nýjum eigendum verði sýnd sama velvild og vinsemd og
mér og starfsfólki mínu hefir verið sýnd alla tíð í mínu
starfi svo þetta góða samstarf megi halda áfram um
ókomna tíð öllum til blessunar. Megi góður Guð vera
með ykkur öllum.
Með vinsemd, virðingu og miklu þakklæti,
Oddur C. S. Thorarensen.
Blað allra landsmanna!
-kjarni málsins!
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Þakklæti fyrir
Bárurnar
MIG langar til að koma
á framfæri þakklæti til
þeirra sem sáu um að
Bárurnar voru staðsett-
ar í Fossvogskirkju-
garði. Þegar ég var þar
um jólin og sá nafn föð-
ur míns, ásamt nöfnum
margra annarra ein-
staklinga sem hlotið
hafa vota gröf, varð ég
fyrir tilfinningu sem
ekki er hægt að lýsa.
Hann hét Kristján Vídal-
ín Brandsson, fæddur
12. júní 1881, sjórinn
tók hann 8. des. 1941.
Þetta er mjög fallegur
minningarreitur og
ábyggilega kærkominn
þeim sem eiga sína nán-
ustu í sjónum.
Dýrfinna
Kristjánsdóttir,
Safamýri 31, Rvík.
Göngustígur á
Arnarnesið
RÓSA hringdi og vill
bæta við frétt í Mbl.
þriðjudaginn 28. janúar
um göngustíg frá
Garðabæ yfir á Arnar-
nesið. Hún er sammála
því að hætt verði við fýr-
irhugaðan göngustíg þar
sem hún telur að það
raski náttúrunni. Hún
telur ekki nauðsyn á
þessum göngustíg þar
sem það fari ekki svo
margir þessa leið.
Leikfimi fyrir of
þungar konur
LINDA Pétursdóttir
hringdi vegna athuga-
semda sem birtust í Vel-
vakanda fyrr í mánuðin-
um um leikfimi fyrir of
þungar konur. Hún vill
benda konum á að í Bað-
húsinu hefjast átaksnám-
skeið fyrir of þungar kon-
ur í byijun febrúar.
Þakkir til ÍR-inga
ÉG VIL þakka ÍR-ingum
fýrir frábært mót í frjáls-
um íþróttum sem haldið
var í Laugardalshöll um
síðustu helgi þar sem
stórkostlegur árangur ís-
lensks íþróttafólks kom í
ljós. Hafið þökk fyrir ÍR-
ingar, þá sérstaklega
bræðurnir Þráinn og Vé-
steinn Hafsteinssynir.
Með íþróttakveðju,
Eyjólfur Magnússon.
Tapað/fundið
Gleraugu töpuðust
GYLLT karlmannsgler-
augu töpuðust, líklega
nálægt Landsbanka á
Grensásvegi, fimmtudag-
inn 23. janúar sl. Skilvís
fmnandi vinsamlega
hringi í síma 554-1309.
Armband fannst
GULLARMBAND fannst
í Heimahverfi fyrir jól. Á
sama stað tapaðist nýlega
lítil dökkgræn hunda-
kápa. Upplýsingar í síma
553-7112.
Skíði töpuðust
KÁSTLE-skíði með svört-
um bindingum voru tekin
í misgripum í Bláfjöllum
sunnudaginn' 12. janúar
og önnur minni en svipuð
skilin eftir. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 557-7799.
Alpahúfa tapaðist
SVÖRT alpahúfa tapaðist
í Kringlunni 21. janúar sl.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hringi í síma
552-8464 og 552-3159.
Fundarlaun.
SKÁK
Umsjön Margcir
Pétursson
SVARTUR leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp á al-
þjóðiega Excelsior Cup
mótinu í Gautaborg um
daginn. Evgení Gleizerov
(2.545), Rússlandi hafði
hvítt, en Svíinn sókndjarfi,
Jonny Hector (2.500) var
með svart og átti ieik.
Hvítur lék síðast 27.
Bg6—f5? en betra var 27.
Rf4xd3 með tvísýnni
stöðu.
27. - Hxf5! 28. Dxf5 -
Hf8 29. De6 - Dd4?!
Jonny er brögðóttur, en
einfaldara virðist 29. —
Rxcl 30. Haxcl — Be3 31.
Khl — Bxcl 32. Rxcl —
Dxb2 með vinningsstöðu á
svart) 30. Rd5? (Skárra
var 30. De7! Þótt
hart sé sótt að
hvíti eftir 30. —
Bxe4+ 31. Kfl
— Hg8. Nú vinn-
ur Jonny snar-
lega:) 30. —
Bel! 31. Be3 -
Dxb2+ 32. Kgl
- Bf2+ 33.
Bxf2 - Dxf2+
34. Khl - Bc8!
35. De7 - Bh3
og Rússinn gafst
upp.
Pizzakvöld
Hellis Ungir
skákmenn á aldrinum
14—20 ára ættu að taka
vel eftir þessari nýjung í
starfi Hellis, sérstaklega
ef þeir taka pizzu fram
yfir þjóðlegan þorramat.
Það fyrsta verður á laugar-
daginn 1. febrúar kl. 18 í
húsnæði Hellis, hjá Bridge-
sambandinu í Mjódd. Þau
hefjast með fyrirlestri, þá
verður pizza og gos og
kvöldið endar með hrað-
skákmóti. Ókeypis fyrir
félagsmenn Hellis, en kr.
500 fyrir aðra.
Með morgunkaffinu
Ást er...
... augngoturþínar.
TM Refl U.S. Pal. Off — aH nghls reservod
(C) 1997 Los Angeles Times Syndicate
ÉG REYNDI að ná hattin-
um hans Sigga upp úr
vatninu, en hann hefur
bundið hann of þétt undir
hökuna.
FYRIRGEFÐU hvað
ég kem seint. Ég
fann ekki regnhlíf-
ina mína.
Víkverji skrifar...
AFMÆLISMÓT ÍR í fijálsum
íþróttum síðastliðinn laugar-
dag var söguleg stund fyrir unnend-
ur íþrótta hér á landi. Fjöldi fólks
fylgdist með keppninni og varð vitni
að glæsilegum árangri. Og ekki
aðeins viðstaddir í Laugardalshöll-
inni, heldur einnig sjónvarpsáhorf-
endur hér á landi og Evrópumets
Bartovu í stangarstökki var síðan
getið í fréttatímum erlendra sjón-
varsspstöðva með myndum úr Höll-
inni.
í eina tíð voru fremstu frjáls-
íþróttamenn landsins flaggskip ís-
lenskra íþrótta _og stór hluti þeirra
kom einmitt úr ÍR. Þrátt fyrir ágæt-
an árangur einstakra iðkenda á
liðnum áratugum hafa frjálsar
íþróttir aldrei náð þeim tindum og
þær gerðu á síðari hluta fimmta
áratugarins og sjötta áratugnum.
Því var stórkostlegt að sjá nokkra
snjöllustu íþróttamenn íslands í
keppninni á laugardag og toppurinn
á frammistöðu þeirra var heimsmet
Völu Flosadóttur í unglingaflokki.
Það var ekki tilviljun að Jón Am-
ar Magnússon var nýlega valinn
íþróttamaður ársins annað árið í röð
og stöllumar Vala og Guðrún Am-
ardóttir urðu meðal þeirra efstu í
valinu. Styrkur íslenskra fijáls-
íþróttamanna vex með hveiju árinu,
hópurinn stækkar og áhugi almenn-
ings lætur ekki á sér standa. Von-
andi komast fijálsar íþróttir fljótt á
þann stall sem þeir ber í íþróttalífínu.
XXX
AÐ ERU ekki allar íþróttir
jafnhollar og þær sem iðkaðar
voru í Laugardalshöllinni um helg-
ina. Vestur í Bandaríkjunum eru til
dæmis stundaðir hnefaleikar þar
sem nánast allt er leyfilegt, spörk
og högg nánast hvar á andstæðing-
inn sem er; það eina sem er bannað
er að klóra í augu, bíta og beija á
hálsinn. Keppendur mega lumbra
hvor á öðrum þar til annar þeirra
missir meðvitund, gefst upp eða
meiðist svo alvarlega að læknir
stöðvar bardagann.
Slíkir bardagar eru bannaðir í
nokkrum ríkjum í Bandaríkjunum
en í einu þeirra, New York, voru á
síðasta ári sett sérstök lög sem
leyfðu „íþróttina". Þar tókst skipu-
leggjendum bardagamóta að sann-
færa stjórnmálamenn um að þessi
keppni væri hættulaus vegna þess
að enginn keppandi hefði enn látið
lífíð!
Víða um heim er menning þjóða
orðin gegnsýrð af ofbeldi; við erum
að sjá fyrstu merki um slíka þróun
hér á landi. Mun kannski koma að
því að áhorfendabekkir á fijáls-
íþróttamótum verða tómir vegna
þess að í öðrum íþróttasal er á sama
tíma boðið upp á blóðug slagsmál,
og mestu íþróttahetjurnar verða
þær sem gera andstæðinga sína
óvíga í eitt skipti fyrir öll?