Morgunblaðið - 05.02.1997, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 17
Hagnaður íslandsbanka
642 milljónir kr. ífyrra
HAGNAÐUR Íslandsbanka hf. og
dótturfélaga hans nam alls um 642
milljónum króna á síðasta ári, borið
saman við um 331 milljónar kr.
hagnað árið 1995. Þessa bættu af-
komu má fyrst og fremst rekja til
þess að mikil aukning hefur orðið
í allri starfsemi bankans án þess
að rekstrarkostnaður hafi aukist,
að sögn Vals Valssonar banka-
stjóra.
Hreinar vaxtatekjur, þ.e. vaxta-
tekjur að frádregnum vaxtagjöld-
um, jukust um 297 milljónir frá
fyrra ári eða 10%. Vaxtamunur
hélt hins vegar áfram að lækka.
Hann var 4,4% árið 1996, en 4,5%
árið 1995. Aðrarrekstrartekjurjuk-
ust um 147 milljónir eða um 9%.
Rekstrarkostnaður bankans
HAGNAÐUR af rekstri Steinullar-
verksmiðjunnar hf. á Sauðárkróki
nam rúmum 66 milljónum króna á
síðasta ári miðað við rúmlega 35
milljóna hagnað árið 1995.
Að sögn Einars Einarssonar,
framkvæmdastjóra Steinullarverk-
smiðjunnar, eru helstu ástæðumar
fyrir bættri afkomu fyrirtækisins
aukin sala á innanlandsmarkaði,
hagstæð þróun söluverða og gengis
á helstu útflutningsmörkuðum.
„Mjög góð nýting hefur verið á verk-
smiðjunni undanfarin ár en það eru
engin áform uppi um að stækka
hana. Útflutningurinn hefur byggst
á því að fullnýta ónýtta afkastagetu
fjárfestingar sem er á staðnum en
útflutningur myndi ekki standa und-
ir þeirri viðbótarfjárfestingu að
stækka við sig.“
Megintilgangur útboðsins er að
fjármagna kaup á nóta- og togveiði-
skipinu Hersi AR 4. Útboðinu er enn-
fremur ætlað að styrkja eiginfjárstöðu
fyrirtækisins en að lokinni samein-
ingu Vinnslustöðvarinnar hf. og Meit-
ilsins hf. er eiginfjárhlutfall fyrirtæk-
isins um 30%. Ætlunin er að lækka
skuldir og þar með verður vaxta- og
greiðslubyrði fyrirtækisins minnkuð
og rekstrinum gert mögulegt að skila
auknum hagnaði. Fjármagnskostnað-
ur hefur verið félaginu þungur á liðn-
um árum og gert það að verkum að
arðsemi þess hefur verið óviðunandi,
segir ennfremur í frétt.
Rekstraráætlun yfirstandandi
rekstrarárs gerir ráð fyrir að rekstr-
artekjur verði um 4.580 milljónir
króna og rekstarhagnaður um 150
milljónir. Ekki er tekið tillit til vænt-
anlegrar hlutafjáraukningar og áhrifa
hennar í rekstraráætlun þessari.
Áætlaður hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsgjöld nemur 768 milljónum
króna.
lækkaði um 6 milljónir milli ára og
er það í samræmi við þróunina und-
anfarin ár. Var hlutfall rekstrar-
kostnaðar af heildarfjármagni 4,7%
á síðasta ári en var 5,3% árið 1995.
Starfsfólki fækkaði á árinu og voru
stöðugildin að meðaltali 706 hjá
bankanum og dótturfélögum, en
727 árið 1995. Valur sagði að lækk-
un á rekstrarkostnaði bankans
mætti auk þess rekja til þess að
nú væri að skila sér fjárfesting í
hagræðingu sem lagt hefði verið í
á fyrstu árum bankans og væri að
fullu afskrifuð. Gert væri ráð fyrir
því að starfsfólki myndi fækka
áfram á þessu ári.
Framlag í afskriftarreikning út-
lána var 922 milljónir á árinu 1996,
borið saman við 830 milljónir árið
Heildarsala fyrirtækisins var um
159 þúsund rúmmetrar og nam sala
á innanlandsmarkaði um 88 þúsund
rúmmetrum, sem er um 6% aukning
á milli ára. Út voru fluttir um 71
þúsund rúmmetrar, sem er nokkru
minna magn en árið áður, segir í
frétt frá fyrirtækinu.
Tekjur Steinullarverksmiðjunnar
voru 541,6 milljónir í fyrra. Er það
mjög svipað og árið áður. Rekstar-
gjöldin lækkuðu á milli ára, úr tæp-
um 427 milljónum í 397 milljónir.
Langtímalán fyrirtækisins minnkuðu
einnig á milli ára, úr tæpum 425
milljónum í rúmar 379 milljónir og
eigið fé fyrirtækisins í árslok 1996
var 268,8 milljónir króna. Um síð-
ustu áramót var veltufjárhlutfallið
2,25 og eiginfjárhlutfallið hækkaði
úr 25,4% í 34,4%.
SAMSKIP hf. og Básafell hf. hafa
sett á stofn nýtt flutningafyrirtæki
á ísafirði, Flutningamiðstöð Vest-
fjarða hf. Stofnun fyrirtækisins er
liður í því að efla innanlandsþjónustu
Samskipa enn frekar, en fyrir eru á
vegum félagsins flutningamiðstöðv-
ar á Akureyri, Reyðarfirði, í Vest-
mannaeyjum og á Selfossi, að því
er segir í frétt.
Þar kemur fram að á liðnum árum
hefur þróunin á flutningamarkaðn-
um verið sú að hlutur landflutninga
hefur stóraukist á kostnað sjóflutn-
1995. Sem hlutfall af heildarfjár-
magni nam framlagið 1,3% sem er
óbreytt hlutfall frá fyrra ári.
„Framlagið í afskriftarreikning er
nú hlutfallslega svipað og það var
árið 1990. Við teljum reyndar að
það þurfi að lækka og muni lækka,
en sennilega ræður verð fasteigna
hvað mestu um þessa þróun á síð-
asta ári. Raunverð fasteigna fór
lækkandi á síðasta ári. Það hefur
mikil áhrif á mat okkar á öllum
tryggingum og verðmæti fullnustu-
eigna.“
Glitnir með 87 milljóna hagnað
Þegar litið er yfir þau sjö ár sem
íslandsbanki hefur verið starfandi
er samtals um 800 milljóna króna
hagnaður.
V AXTABREYTIN G AR verða hjá
Landsbanka íslands á inn- og útlána-
hlið á næsta vaxtabreytingardegi
sem er á þriðjudaginn kemur.
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbanka íslands,
sagði að ljóst væri að breytingar
yrðu gerðar á innlánsvöxtum Lands-
bankans á næsta vaxtabreytingar-
inga. Samskip hafa lagað sig að
breyttum aðstæðum með því að
fækka strandferðaskipum félagsins
í eitt og mæta sveiflum í eftirspurn
með auknum landflutningum. Félag-
ið ræður nú yfir þéttriðnu þjónustu-
neti sem nær til helstu þéttbýlisstaða
á landinu og er Flutningamiðstöð
Vestfjarða hluti af því neti.
Flutningamiðstöðin mun annast
alla almenna vöruflutninga, vöru-
geymslu og -dreifingu, fiskflutninga,
gámaflutninga, landanir úr skipum
o.fl. Með tengingu við flutningakerfi
Öll dótturfélög bankans skiluðu
hagnaði á síðasta ári, en jafnframt
jukust viðskipti þeirra verulega.
Hagnaður Glitnis var 87 milljónir,
hagnaður VÍB 37 milljónir og
hagnaður Verslunarlánasjóðs 57
milljónir.
Heildareignir íslandsbankasveit-
arinnar námu í árslok 1996 tæplega
78 milljörðum króna og jukust á
árinu um rúmlega 13 milljarða eða
20%. Eigið fé á sama tíma var 5.386
milljónir. Arðsemi eiginijár var
13,7% á árinu, en var 7,4% árið
1995.
Aðalfundur íslandsbanka verður
haldinn mánudaginn 17. mars nk.
á Hótel Sögu. Þar verður lögð fram
tillaga um að hluthöfum verði
greiddur 8% arður.
degi vegna álagningar fjármagns-
tekjuskatts. Hvaða áhrif það hefði á
útlánsvexti væri of snemmt að segja
til um. Hann sagði að með þessu
væri bankinn að bregðast við
óánægju með skattinn, auk þess sem
breytingar í þessum efnum væru í
samræmi við fyrri yfirlýsingar bank-
ans um þessi mál.
Samskipa er unnt að bjóða heildar-
lausnir á sviði flutningaþjónustu og
skyldrar starfsemi, hvort sem senda
þarf vörur innanlands eða utan, þar
með talið hraðsendingar til útlanda.
Auk höfuðstöðva á ísafírði verða
starfræktar afgreiðslur á öðrum
helstu stöðum í fjórðungnum og hjá
Landflutningum-Samskipum í
Reykjavík. Stjórn félagsins skipa
Baldur Guðnason, Anna G. Aradótt-
ir og Ragnar Guðmundsson. Fram-
kvæmdastjóri er Guðmundur Hólm
Indriðason.
Fólk
Nýrfram-
kvæmdastjóri
Kaupþings
Norðurlands
STJÓRN Kaupþings Norðurlands hf.
hefur ráðið Tryggva Tryggvason við-
skiptafræðing sem framkvæmda-
stjóra félagsins frá og með 3. febr-
úar. Hann tekur við starfinu af Jóni
Halli Péturssyni sem ráðinn hefur
verið framkvæmdastjóri fjármála-
sviðs Útgerðarfélags Akureyringa
hf. Aðstoðarframkvæmdastjóri
Kaupþings Norðurlands hf. verður
Sveinn Torfi Pálsson, en hann hefur
starfað hjáfélaginu síðan 1993.
• TRYGGVI Tryggvason er 26
ára gamall Akureyringur. Hann lauk
námi í viðskipta-
fræði frá Háskóla
íslands vorið 1995
og fór þá í fram-
haldsnám til Uni-
versity of Strat-
hclyde í Skotlandi
og útskrifaðist það-
an með meistara-
próf í fjármálum
haustið 1996. Að undanfömu hefur
Tryggvi starfað sem sjóðsstjóri hjá
Verðbréfamarkaði Islandsbanka hf.
Sambýliskona Tryggva er Guðný
Maríanna Þorsteinsdóttir og eiga þau
eina dóttur, Rósu Margréti, 4 ára.
• SVEINN Torfi Pálsson hefur
unnið hjá Kaupþingi Norðurlands hf.
síðastliðin fjögur ár
við ráðgjöf um
verðbréfaviðskipti
einstaklinga og
fyrirtækja. Auk
þess hefur hann
haft umsjón með
viðskiptum félags-
ins á Verðbréfa-
þingi íslands.
Sveinn hefur BS gráðu í markaðs-
og fjármálum frá University of So-
uth Carolina. Sambýliskona Sveins
er Brynhildur Smáradóttir, hjúkrun-
arfræðinemi.
Kaupþing Norðurlands hf. var
stofnað árið 1987 á Akureyri. Fyrir-
tækið er sjálfstætt verðbréfafyrir-
tæki og aðili í Verðbréfaþingi fslands
og veitir alhliða þjónustu og ráðgjöf
á sviði verðbréfaviðskipta. Félagið
tekur tvo hlutabréfasjóði, Heildar-
eignir sjóðanna nema nú um 830
milljónum króna. Jafnhliða selur fé-
lagið verðbréfasjóði Kaupþings.
Nýrfram-
kvæmdastjóri
Iceland Review
• ÞORSTEINN S. Ásmundsson
hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri
Iceland Review frá
1. febrúar. Hann
hefur undanfarin
23 ár verið fram-
kvæmdastjóri Suð-
urgarðs hf. á Sel-
fossi en það fyr-
irtæki starfar á
sviði trygginga- og
ferðaþjónustu. Þor-
steinn lauk prófi frá Verslunarskóla
íslands 1970 og námi í rekstar- og
viðskiptafræðum frí Endurmenntun-
arstofnun Háskóla íslands 1995-96.
Eiginkona hans er Elsa B. Ásmunds-
dóttir og eiga þau 3 börn.
Fyrirtækið gefur út tímaritin Ice-
land Review, Iceland Business, Atl-
antica og Upphátt en þau tvö síðast-
nefndu eru gefin út í samvinnu við
Flugleiði. Umfangsmikil bókaútgáfa
er á vegum Iceland Review, aðallega
á sviði landkynningar, menningar og
lista og eru sumar þeirra gefnar út
á allt að níu tungumálum. Einniger
umtalsverð útgáfa landkynning-
arbæklinga fyrir fyrirtæki og stofn-
anir. Iceland Review sendir frá sér
„Daily News“ eða daglegar fréttir á
ensku inn á alnetið og er auk þess
þátttakandi í ýmsum öðrum verkefn-
um í tengslum við alnetið. Útgáfan
hefur starfað í 33 ár og hjá henni
starfa 25 manns, að því er segir í
frétt frá Iceland Review.
Steinullarverk-
smiðjan með 66
milljóna hagnað
Vinnslustöðin hf.
með hlutafjárútboð
STJÓRN Vinnslustöðvarinnar hefur ákveðið að auka hlutafé fyrirtækisins
að nafnverði um 200 milljónir króna. Gengi bréfanna hefur verið ákveðið
2,79 til forkaupsréttarhafa og stendur forkaupsréttartímabilið frá 7. febr-
úar til 28. febrúar. Sala á almennum markaði hefst 3; mars og mun gengi
bréfanna verða ákveðið með hiiðsjón af markaðsaðstæðum á fyrsta sölu-
degi. Gengi getur breyst á sölutímabilinu og tekur það mið af markaðsað-
stæðum þar til útboðinu lýkur. Handsal hf. mun annast framkvæmd sölunnar.
Flutningamiðstöð Vest-
fjarða stofnuð á Isafirði
ÍSLANDSBANKI
Rekstrarreikningur Tinf 1996 1995 Breyting 1995-96
Vaxtatekjur 7.027 6.217 +13%
Vaxtagjöld 3.889 3.377 +15%
Hreinar vaxtatekjur 3.138 2.840 +10%
Aðrar rekstrartekjur 1.786 1.639 +9%
Hreinar rekstrartekjur 4.924 4.479 +10%
Önnur rekstrargjöld 3.335 3.341 0%
Framlag í afskriftareikning 922 830 +11%
Skattar -25 23
Hagnaður tfmabilsins 642 331 +94%
Efnahaasreikninaur 31 /121996 ?kuldir: Milljónir króna
Eignir:
Milljónir króna
Skuldlr viO lánastoín. 10.090
Innlán 38.344
Sjóður, innistæður og verðbréf 8.020 Lántaka 22.129
Útlán 61.919 Aðrar skuldir 731
Markaösverðbr. og eignarhlutir 4.519 Víkjandi skuldir 1.185
Aðrar eignir 3.407 Eigið fé 5.386
SAMTALS 77.865 SAMTALS 77.865
Vaxtabreytingar væntan-
legar hjá Landsbankanum