Morgunblaðið - 05.02.1997, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 19
ERLENT
20 falla í
átökum
nálægt
Bogota
Bogota. Reuter.
TUTTUGU manns að minnsta kosti
féllu í hörðum bardögum visntri-
sinnaðra uppreisnarmanna og
stjórnarhers Kólumbíu skammt fyr-
ir utan höfuðborg landsins, Bogota,
að sögn talsmanns stjómvalda.
Bardagar hófust sl. föstudag í
fjalllendi í Meta-héraði, um 50 km
austur af Bogota. Lét stjórnarher-
inn til skarar skríða umhverfis
bæinn San Juanito skömmu eftir
að samtök skæruliða, Byltingar-
sveitir Kólumbíu (FARC), höfðu
sleppt tveimur mönnum sem þau
höfðu í haldi. Annar var kolumbísk-
ur kaupsýslumaður og hinn fransk-
ur vegaverkfræðingur.
Stjórnarherinn sendi fótgöngu-
liða á vettvang og beitti fallbyssu-
þyrlum auk þess sem sprengjuflug-
vélar létu sprengjum rigna yfir
ætluð víghreiður skæruliða.
Löngum hafa skæruliðar FARC
og stjórnarher Kólumbíu tekist á
en aldrei svo nálægt höfuðborginni.
í gær var 40 hermanna enn sakn-
að. Fjarskiptasamband við flokkinn
rofnaði um miðjan dag sl. sunnu-
dag. Fréttastofan Radionet sagði
að a.m.k. 19 hermenn hefðu fallið
og átta særst. Starfsmenn Rauða-
krossins gengu fram á a.m.k. 20
lík hermanna skammt frá San Juan-
ito á mánudag. Til bæjarins
streymdu smábændur frá ná-
grannaþorpum undan skothríð og
sprengjuregni.
Reuter
Ný höll fyrir kanslarann
MÓDEL að nýrri byggingu
Þýskalandskanslara, sem rísa
mun í Berlín. I gær var fyrsta
skóflustungan tekin að húsinu en
það á að taka í notkun í maí árið
1999, en sama ár á mestöll þýska
sljórnsýslan, þing, flest ráðuneyti
og kanslarinn, að flytja frá Bonn
til Berlínar. Viðgerðir standa nú
yfir á Reichstag, þinghúsinu í
Berlín, en nýtt hús verður reist
fyrir skrifstofur kanslarans.
Þýsku arkitektarnir Axel Schult-
es og Charlotte Frank teiknuðu
húsið.
Kostnaður við flutningana má
ekki fara yfir 20 milljarða marka,
um 850 milljarða ísl. kr., en gert
er ráð fyrir að bygging nýja kansl-
arahússins kosti um 400 milljónir
marka, um 17 milljarða ísl. kr.
Mikil bjartsýni ríkir um að takast
muni að flyú’a í maí 1999 eins og
áætlað er, og telja sumir að það
verði jafnvel hægt fyrr. Roman
Herzog, forseti Þýskalands, hefur
þegar flutt sig til Berlínar. Níu
ráðuneyti munu flytja til Berlínar
en sjö ráðuneyti verða eftir í Bonn.
Er gert ráð fyrir að um 18.500
opinberir starfsmenn muni taka
saman föggur sínar og flylja til
Berlínar, svo og tugir þúsunda
manna sem starfinu tengjast, svo
sem fréttamenn og erlendir sendi-
fulltrúar.
Gull frá Sviss og Svíþjóð enn í bönkum í Bandaríkjunum og Bretlandi
Afhendmgu nasistaguUs frestað
New York, Ziirích. Reuter.
BANDARIKJAMENN, Bretar og Frakkar hafa
ákveðið að fresta afhendingu gullstanga að verð-
mæti 68 milljónir dala, um 4,7 milljarðar ísl. kr.,
sem átti að fara fram á þessu ári, að sögn The
New York Times. Telur Bandaríkjastjórn sig hafa
í höndum gögn sem styðja fullyrðingar gyðinga
um að hluta gullsins hafi verið rænt af gyðingum
sem sendir voru í útrýmingarbúðir. Svisslendingar
og Svíar skiluðu bandamönnum gullinu í lok
heimsstyijaidarinnar síðari.
Endanleg ákvörðun um málið verður tekin þeg-
ar það hefur verið kannað til fulls. Ahugi er inn-
an Bandaríkjastjórnar á að láta gullið renna í
sjóð sem greiði bætur til fórnarlamba helfararinn-
ar. Gullið er nú geymt í bönkum í Bandaríkjunum
og Bretlandi, alls um fjórir milljarðar dala, um
280 milljarðar ísl. kr., og hefur stærstum hluta
þess verið skilað til evrópskra seðlabanka á síð-
ustu árum.
Talsmaður svissneska seðlabankans sagði á
mánudag, að óvíst væri, að starfsmenn hans hefðu
vitað það 1943, að gulli, sem hann tók við af
nasistum, hefði verið rænt í Belgíu. Þá sagði
hann það koma fram í skjölum, að Svíar hefðu
ekki síður tekið við nasistagulli í stríðinu en Sviss-
lendingar.
Segja Svía einnig hafa tekið við gulli
„Það er rangt, að Sviss hafi verið eina hlut-
Iausa ríkið, sem tók við gulli frá þýska ríkisbank-
anum,“ sagði Werner Abegg, talsmaður sviss-
neska seðlabankans, og bætti því við, að skjöl
um samskipti Sviss og Svíþjóðar frá 1943 sýndu,
að þá hefðu Svíar einnig tekið við þýsku gulli.
Svisslendingar spurðu Svía að því 1943 hvort
þeir tækju enn við gulli frá Þjóðveijum og svarið
var, að það gerðu þeir og svo var líka 1944.
Svissneski seðlabankinn var með þessu að svara
yfirlýsingu Alfonse D’Amato, formanns banka-
málanefndar bandarísku öldungadeildarinnar, en
þar sagði, að svissneski seðlabankinn hefði tekið
við 100 tonnum af gulli frá nasistum eftir að
Svíar hefðu hafnað því með þeim rökum, að því
hefði verið stolið í Beigíu.
Abegg sagði, að yfirstjórn Bandamanna hefði
vitað af þessum skjölum í viðræðunum, sem
leiddu til Washington-samningsins 1946. Stóðu
að honum Bretar, Bandaríkjamenn, Frakkar og
Svisslendingar og samkvæmt honum hétu þeir
síðastnefndu að skila aftur 60 milljónum dollara
vegna þess gulls, sem þeir hefðu tekið við af
nasistum.
Voru vöruð við
Abegg lagði einnig áherslu á, að skilja yrði á
milli þess, sem var vitað í stríðinu, og þess, sem
síðar kom í ljós. Viðurkenndi hann, að skjölin
sýndu, að hlutlausu ríkin hefðu verið vöruð við
nasistagullinu en það hefði ekki komið í ljós fyrr
en eftir stríð hve mikil þessi viðskipti voru.
D’Amato sagði, að ríki, sem hefðu í raun ver-
ið hlutlaus, hefðu ekki tekið við nasistagulli enda
hefðu Bandamenn varað við því í janúar 1943.
lítið þið ekki á samanburðartöfluna
rennið yfir staðalbúnaðinn
skoðið fjölbreyttu lánakjörin
kíkið á aukapakkana
og gaumgæfið verðið
Xtra pakkar
LSi vél búin:
1.3 lítra rúmmáli
12 ventlum
Fjölinnsprautun
84 hestöflum
Vökva- og veltistýri
Útv./segulb. með 4 hátölurum
Stafræn klukka
Fjarstýrð opnun á bensínloki
Dagljósabúnaður
Litað gler
Tveggja hraða þurrkur með
biðrofa og rúðusprautu
Afturrúðuhitari með tímarofa
Samlitir stuðarar
Heilir hjólkoppar
Tveir styrktarbitar í hurðum
Krumpusvæöi
Barnalæsingar
o.m.fl.
CC
3
Q
<
Z
o
ca
_i
<
Q
í
t/i
Qt
UJ
jz
LU
Samanburðurinn hjálpar þér að velja rétt
O _ L:l_ LIVIikirtKi \aa/ mvriTA /~\DCI kiiccaki
3 dyra bílar HYUNPAt Accent LSi vw GolfCL TOYOTA OPEL Corolla XLi Astra GL NISSAN Almera LX
Rúmtak vélar sm2 1341 1398 1330 1389 1392
Hestöfl 84 60 75 60 87
Lengd 4103 4020 4095 4051 4120
Breidd 1620 1696 1685 1691 1690
Vökva- og veltistýri J J J J/N J
Utvarp + segulb. J J N J/N J
Metallakk InnifaliS 18.000 Innifalið 21.000 Innifalið
VERÐ 995.000 1.220.000 1.164.000 1.199.000 1.248.000
9.742 kr. á mánuði
með kaupleigu í 36 mánuði.
Kaupverð 995.000 kr.
Útborgun(bíll/pen.) 275.000 kr.
Lokaafborgun 547.000 kr.
Komið svo
við hjá
okkur, veljið
bíl og takið
einn góðan
hring í
rólegheitum.
Þá ættuð þið
að hafa
sannfærst
um að þeir
sem eignast
Accent fá
fólksbíl
á verði
smábíls.
- veldu þér einn
ur
VetrardekRT mottur.
hliðarlistar, bónpakki.
Vindskeið
vetrardekk, mottur,
hliðarlistar, bónpakki.
GSM sími
l vetrardekk, mottur,
hliðarlistar, bónpakki.
Geislaspilari
vetrardekk, mottur,
hliöarlistar, bónpakki.
Meðalverðmæti pakkanna er um 80.000 kr.
en þeir fást fyrir aðeins 25.000 kr. á
PAKKADÖGUM við kaup á Hyundai bifreið.
Verð frá
<&
HYUnDHI
tíl framtíðar
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200 - BEINN SÍMI: 553 1236
995.