Morgunblaðið - 05.02.1997, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Athugasemdir við
skrif Gunnlaugs
Þórðarsonar
Sjúkrahúsin á
landsbyggðinni
DR. GUNNLAUG-
UR Þórðarson veitist
harkalega að sjávar-
útvegsráðherra og
vísindamönnum Haf-
rannsóknarstofnunar í
skrifum sínum í Morg-
unblaðinu 18. og 28.
janúar s.l. Tilefnið er
aðallega ráðgjöf fiski-
fræðinga um ástand
rækjustofnsins á
Flæmingjagrunni og
ákvörðun íslenskra
stjómvalda um heild-
arafla íslenskra skipa
á svæðinu. Telur dr.
Gunnlaugur takmörk-
un veiða ónauðsynlega og ekkert
annað en undirlægjuhátt við út-
lendinga. Er þar m.a. vísað til
skrifa Jóns Kristjánssonar fiski-
fræðings, sem hefur starfað á veg-
um eigenda nokkurra úthafsveiði-
skipa á Flæmingjagrunni.
Ráðgjöf
vísindamanna
Auðvitað getur menn greint á
um vísindalegar kenningar og
meðferð niðurstaðna vísinda-
manna, en markmiðið er að tryggja
varðveislu auðlinda sjávar og hag;
kvæma nýtingu til langs tíma. Á
alþjóðlegum svæðum beijast ís-
lensk stjómvöld ennfremur fyrir
því að tryggja íslensku þjóðinni
eðlilegan hlut.
Á síðasta ársfundi Norðvestur-
Atlantshafsfiskveiðistofnunarinn-
ar (NAFO) tóku þrír fiskifræðingar
frá Hafrannsóknarstofnuninni þátt
í starfí um 40 manna vísindanefnd-
ar. Þau gögn sem Hafrannsókna-
stofnun höfðu borist frá Jóni Krist-
jánssyni voru m.a. lögð fram á
fundinum. Niðurstaða vísinda-
nefndarinnar var að flest benti til
að rækjustofninn á Flæmingja-
grunni væri í mikilli hættu. Hlut-
fall kvendýra í afla hefði lækkað
um 70% frá 1993 til 1996 og sú
hætta væri fyrir hendi að stærsti
árangurinn (1993) yrði ofnýttur
áður en dýr úr honum yrðu hrygn-
andi kvendýr síðar á þessu ári. Því
yrði að takmarka veiðarnar veru-
lega.
Aðrar veiðiþjóðir en Islendingar
höfðu komið sér saman um veiði-
stýringu á Flæmingjagrunni fyrir
árið 1996, sem byggði á sóknar-
dögum á ákveðnum viðmiðunar-
tíma. íslendingar mótmæltu því
kerfí og stunduðu fijálsar veiðar á
síðasta ári. Besta viðmiðun íslend-
inga í fyrrnefndu kerfí em 1191
dagur fyrstu 8 mánuði ársins 1995
þegar íslendingar veiddu um 5.000
lestir. Það eru dagarnir í þessu
kerfí sem síðasti ársfundur NAFO
skar niður um 10%
fyrir árið 1997 og því
eru það hreinar blekk-
ingar hjá dr. Gunn-
laugi þegar hann ber
þann niðurskurð sam-
an við hlutfallslega
aflaminnkun íslenskra
skipa vegna heildar-
aflatakmörkunar á
þessu ári, í stað alger-
lega fijálsra veiða
okkar á síðasta ári.
Það er á grundvelli
ráðgjafar fiskifræð-
inga um ástand rækju-
stofnsins sem íslensk
stjómvöld ákváðu
6.800 lesta heildarkvóta fýrir
rækju á Flæmingjagrunni á þessu
ári. Mikið sé í húfí að íslendingar
geti stundað veiðar á þessu svæði
um ókomin ár og því verði að koma
í veg fyrir ofveiði og hrun stofns-
ins. Hafa bæði heildarsamtök sjó-
Bæði heildarsamtök sjó-
manna og LÍÚ studdu
niðurstöður stjórnvalda
um Flæmingjagrurin,
segir Ari Edwald, enda
er markmiðið að stuðla
að varanlegri nýtingu.
manna og Landssamband íslenskra
útvegsmanna stutt þessa stefnu.
Bara veiða meira
Dr. Gunnlaugur virðist þeirrar
skoðunar almennt að veiðiálag
hafi engin áhrif til að minnka fiski-
stofna, en virðist þó gera ráð fyrir
að skortur á veiði valdi „örtröð“!
Hann bætir því við málið í Morgun-
blaðinu í dag (30. janúar) að þorsk-
ur leiti nú í ár landsins vegna fæðu-
skorts og þess að hann sé of lítið
veiddur.
Það er að sjálfsögðu ekkert við
því að segja að dr. Gunnlaugur
hafi þessa skoðun. En það kemur
svo sannarlega á óvart að slíkar
kenningar komi úr penna manns
sem mér er sagt að hafi átt dijúg-
an þátt í þeirri verndun fískimið-
anna sem fólst í útfærslu landhelg-
innar. Til hvers að færa út land-
helgina ef veiðarnar skipta engu
máli?
Höfundur er aðstoðarmaður
sjávarútvegsráðherra og var
formaður sendinefndar Islands &
síðasta ársfundi NAFO.
Ari Edwald
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrnpflugvelli
og Rábhústorginu
■kjarnl málsins!
Kork*o*Plast
Kork O Floor
er ekkert annaö en
hiö viðurkennda
Kork O Plast, límt é
þéttpressaöar
viöartrefjaplötur,
kantar meö nót og gróp.
UNDIRLAGSKORK IÞREMUR ÞYKKTUM.
VEGGTÖFLUKORKPLÖTURIÞREMUR ÞYKKTUM.
KORK-PARKETT, VENJULEGTITVEIMUR ÞYKKTUM.
KORK-gólfflisar
með vinyl-plast áferð
Kork-odPlast:
i 20 gerðum
PÞ
&CO
Þ. ÞORGRÍMSSON &CO
ARMUIA 29 • PÓS7MÖLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
$IMI 553 8640 568 £ 100
Blað allra landsmanna!
- kjarni máhins!
HAGRÆÐING, að-
haldssemi og ráðdeild
er nauðsynleg í ríkis-
rekstrinum. Breyting-
ar eiga sér stað í þjóð-
félaginu, í heilbrigðis-
þjónustunni sem ann-
ars staðar. Ekki bætir
það heilsufar eða líðan
að beija höfðinu við
steininn. Fólkið í land-
inu vill bestu heil-
brigðisþjónustu sem
völ er á og í sumum
tilvikum er hana að-
eins að fá á hátækni-
húsunum í Reykjavík
og á Akureyri. Þessa
sér stað bæði á fjárlögum og
fjáraukalögum ár hvert þar sem
aukning er talsverð til þeirra. Mis-
skilnings hefur þó gætt undanfarið
í umfjöllun um niðurskurð á lands-
byggðarsjúkrahúsum. Alþingi hef-
ur ekki tekið ákvörðun um 160
milljóna króna sparnað til þeirra.
Framlögum til rekstrarins verður
heldur ekki breytt nema með lög-
um. Vinnuhópur sem skipaður var
af hálfu heilbrigðisráðherra lagði
til að skipuð yrði verkefnisstjórn
sem leitaði leiða til þess að ná 160
milljóna króna spamaði á þremur
árum. Fyrsta skrefið yrði það að
skera niður framlögin til 12 sjúkra-
húsa á landsbyggðinni um 60 millj-
ónir á árinu 1997 og halda síðan
áfram og ná 100 milljónum til við;
bótar á næstu tveimur árum. í
þessu skyni var hagræðingarliður
heilbrigðisráðuneytisins skertur
um 60 milljónir, lækkaði úr 105 í
45 milljónir og ráðgert að fyrirhug-
aður sparnaður kæmi á móti. I fjár-
lögum er því gert ráð fyrir 60
milljóna króna sparnaði en eftir
er að deila honum niður á sjúkra-
húsin. Þannig var málið kynnt af
hálfu formanns fjárlaganefndar
Alþingis við 3. umræðu fjárlaga. I
umfjöllun af hálfu meirihluta ijár-
laganefndar kom einn-
ig fram að væntanleg-
ur sparnaður þyrfti að
nást með samvinnu og
samráði stjómvalda
og heimamanna. Ekki
yrði tekin einhliða
ákvörðun heldur
skyldi tekið tillit til
aðstæðna á hveijum
stað. Niðurskurður
umfram 60 milljónir
hefur ekki verið
ákveðinn og hlýtur
framhaldið að ráðast
af því hvernig til tekst
með fýrsta skrefið.
Verkefnisstjómin á
nú í viðræðum við fyrirsvarsmenn
sjúkrahúsanna á landsbyggðinni
og hefur lagt ákveðnar tillögur
fyrir þá, sem þeir munu síðan
svara. Að málsmeðferðinni má
fínna og verður því ekki neitað að
nokkur munur er gerður á sjúkra-
húsum í Reykjavík, Hafnarfírði,
Reykjanesi, Selfossi og Akranesi
annars vegar og hinum 12 lands-
byggðarsjúkrahúsum hins vegar.
Rekstrarráðgjafi starfar með ráðu-
neyti og forsvarsmönnum að auk-
inni hagræðingu, meiri verkaskipt-
ingu og samvinnu sjúkrahúsa á
Suðvesturlandi. Hins vegar sendir
verkefnisstjórnin stjómendum
annarra sjúkrahúsa beinar tillögur
sínar um niðurskurð í prósentum
og milljónum. Forsvarsmenn
landsbyggðarsjúkrahúsanna ættu
að fá skipaðan hlutlausan rekstrar-
fræðing eins og hin og hann leiti
leiða með heimamönnum og ráðu-
neytinu til meiri samvinnu, ha-
græðingar og sparnaðar. Sá aðili
þyrfti að setja sig inn í margvísleg-
ar aðstæður. Það hefði hentað vel
að hann hefði til dæmis verið
staddur á Siglufirði í janúarmán-
uði. Oft var þá landleiðin ófær
vegna snjóa og illviðris, flugsam-
göngur lágu niðri dögum saman,
Sti'órnendur sjúkrahúsa
og allt landsbyggðarfólk
á það ekki skilið, segir
Hjálmar Jónsson, að
gáleysislega sé fjallað
um þætti sem miklu
varða um líðan og ör-
yggi íbúanna.
snjóflóðahætta vofði yfír bænum
og hafís var og er fýrir ströndum.
Við þessar aðstæður hefði verið
rétt að hugleiða hvaða hlutar af
starfsemi sjúkrahússins væru
óþarfir og hvað mætti samnýta
með nágrönnum í kjördæminu.
Aðstæður eru margvíslegar og
nauðsynlegt er að vera gjör-
kunnugur þeim þegar tillögur eru
gerðar um breytingar. Von er að
heimamenn reki upp stór augu
þegar því er haldið fram að skera
eigi niður framlög til sjúkrahúsa á
landsbyggðinni án þess að skerða
þjónustuna. Vonandi er hægt að
hagræða undir þeim formerkjum,
en ekki er hægt að gefa sér það
áður en viðræður hefjast. Stjórn-
endur sjúkrahúsa og allt lands-
byggðarfólk á það ekki skilið að
gáleysislega sé ijallað um þætti
sem miklu varða um líðan og ör-
yggi íbúanna. Einungis umræðan
hefur haft skaðvænleg áhrif fyrir
landsbyggðina. Nógur vandi hefur
steðjað að henni þótt ekki sé geng-
ið fram af forsjárlausu kappi í því
að koma mönnum í skilning um
að þeir búi á vitlausum stöðum á
landinu.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisfiokksins á
Norðurlandi vestra.
Hjálmar Jónsson
Þorsteinn Erlingsson
og Hvalfjörðxu*
I
ÁRIÐ 1937 kom út
í Frakklandi bók um
smáríki Evrópu: „Les
petits états d’Europe",
og var þetta íslands-
heftið. Höfundur Duc
Astraudo. Fallegar
myndir prýða íslands-
heftið. Skógafoss,
Gullfoss, Geysir, Hvít-
serkur, Mývatn o.s.frv.
Á þessum árum var
ísland lítt þekkt og oft
talað um það í lítils-
virðingu: „Litla landið
með langa þjóðsöng-
inn.“ Þó voru alltaf þó
nokkrir sérvitringar, sem kusu að
heimsækja eitt af örfáum löndum,
sem ekki höfðu verið lögð undir
stóriðju og verksmiðjurekstur með
tilheyrandi mengun. Heimsstyijöld-
in fyrri (1914-18) bjargaði okkur
frá áformum Titan hf., sem var um
það bil að hefja virkjun Þjórsár við
Búrfell, þegar hinn serbneski stúd-
ent Princip hleypti af hinu örlaga-
ríka skoti í Sarajevo og heimsófrið-
urinn hófst (28. júní 1914).
II
Það lagðist illa í mig, þegar
ákveðið var að reisa jámblendiverk-
smiðju á Grundar-
tanga. Það hvarflaði
jafnvel að mér að bjóða
landeigendum í Hval-
fírði aðeins meira fýrir
jarðir þeirra, en vissi
sem var, að þá yrði
verksmiðjunni bara
valinn staður annars
staðar. Vegna bú-
rekstrar að Alftanesi á
Mýrum á árunum
1957-63 átti ég leið
um Hvalfjörð ca. 100
sinnum á þessu tíma-
bili. I Rabbi, er ég reit
í Lesbók Mbl. taldi ég
að í aðeins tvö skipti
af hundrað, hefði veður
verið svo slæmt, að enga fegurð
var að sjá í Hvalfírði. í hin 98 skipt-
in var sinfónía litanna við völd. Því
er það ekki sársaukalaust, að nú
hafí verið skipulagðar fímm stór-
iðjulóðir við Hvalfjörð á Grundart-
angasvæðinu, nr. 2 er í burðarliðn-
um, en þijár eru eftir. Það skulu
menn muna og muna vel. Þetta er
aðeins byijunin.
III
Þorsteinn Erlingsson er á heim-
leið frá Danmörku eftir 12 ára dvöl
erlendis. Þá yrkir hann kvæðið:
Erlendir auðhrinfflr vilja
nú gera ísland að ösku-
haug heimsins. Leifur
Sveinsson hvetur fólk
til að sameinast um að
svo verði ekki.
„Vara þig Fljótshlíð". I lok kvæðis-
ins yrkir hann svo:
„Þá manstu að hann Hvalfjörður áleitinn er
þó ást okkar gæti’ hann ei slitið.
En það segi jeg, hvert sem það flýgur og fer,
að fátt hef jeg prúðara litið.
Jeg sá þetta glitrandi bláQallabað
í brosheiði skínandi daga,
en jeg slapp nú yfrum hann alt fyrir það
og óskemmdur norður á Draga.“
IV
Erlendir auðhringar vilja nú gera
ísland að öskuhaug heimsins. Telja
ekki ná neinni átt, að 270.000
manns byggi 103.000 ferkílómetra
lands.
í minningu Þorsteins Erlingsson-
ar skulum við sameinast um það,
að svo megi aldrei verða.
Höfundur er lögfræðingur.
Leifur Sveinsson