Morgunblaðið - 05.02.1997, Side 37

Morgunblaðið - 05.02.1997, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 37« verið var að siða mann til held ég að það hafi gert mér gott. Allaveg- ana er ég nú þakklátur fyrir allar þær lífsreglur og annað því skylt. Áður en Gógó fór upp á spítala bað hún mig um að halda öllum systkinunum saman, passa upp á að við ræktuðum öll samskipti, hringdum og fleira í þeim dúr. Ég gerði mér ekki grein fyrir því þá að hún hafði grun um hvert stefndi. Það var svo sterkt í mér að ekkert gæti komið fyrir Gógó. Hún var amma dætra minna og átti að vera það áfram næstu tutt- ugu til þrjátíu árin að minnsta kosti. Ránargrundin var ömmuhús og voru grautardagar sem hún var oft með hávaðasamir og skemmtilegir því börnin voru orðin svo mörg og er enn að fjölga. Gógó var svo hreinskilin að hún átti ekki erfitt með að siða bömin til, og kunna öll böm í fjölskyldunni reglurnar hennar ömmu Gógóar um hvemig skal gengið um á Ránar- grundinni. Hlynur og böm, Guð blessi ykkur og hjálpi að kveðja „mömmu“. Ingimundur. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (K. Gibran.) Nú þegar hátíð ljóssins er rétt mnnin framhjá, nýtt ár hafið og maður horfir björtum augum fram á vorið og til framtíðar, er skyndi- lega eins og ekkert hafí tilgang lengur. Allt þetta veraldlega vafstur verður svo hlægilega ómerkilegt. Ég sit hljóð og hálfdofin, þetta er eitthvað svo óraunvemlegt og erfitt að meðtaka það að hún Gógó sé farin, sofnuð burt frá okkur hinum, sem stöndum eftir og verðum að vaka og horfast í augu við kaldan vemleikann. Dauði Gógóar kom sem reiðarslag, svo allt of .fljótt á ævi, sem hefði átt að vera miklu lengri. Mér finnst ég hafa þekkt hana Gógó alla ævi, en í raun ná kynni okkar níu ár aftur í tímann. Aðstæð- ur höguðu því svo að ég og fyrrver- andi sambýlismaður minn vomm á Ránargrundinni þegar þau dvöldu erlendis. í rúmt ár bjuggum við svo með Gógó. Frá þeim tíma á ég mjög dýrmætar minningar, við sitjandi í eldhúsinu yfir kaffibollum og klein- um, þar sem málin vom skoðuð ofan í kjölinn, við að vinna að handa- vinnu, við saman á námskeiði, við borðandi poppkorn fyrir framan sjónvarpið. Seinna þegar samvistum mínum við bróður hennar lauk, hélt hún sínu sambandi við mig. Þá tóku við símhringingar og heimsóknir. Alltaf var Gógó til staðar og tók á móti öllum opnum örmum. Kærleikurinn og hlýjan, sem geislaði .frá henni, gleymist seint þeim sem hana þekktu. Hún mátti ekkert aumt sjá og var alltaf tilbúin að setjast niður og hlusta eða bara spjalla um lifið og tilganginn með því. Ef vandamál komu upp var gott að tala við hana, því það var öruggt að þegar út í bíl var komið, voru allar áhyggjur og svartsýni farin lönd og leið. Já, stóri, stóri faðmurinn hennar Gógó- ar rúmaði alla í einu. Persónuleiki Gógóar einkenndist, að mínu mati, af hreinskilni, já- kvæðni, glettni og kærleika. Eftir að hafa umgengist hana kemur upp í hugann sú ósk að ég geti að ein- hveiju leyti tekið upp hennar aðals- merki, þ.e. að láta umhverfí mitt vita af umhyggju minni og innileg- um kærleik til náungans. Þú varst mér það, sem vatn er þyrstum manni, þú varst mitt frélsi’ í dimmum fangaranni og vængjalyfting vona bami lágu og vorsól ylrík trúarblómi smáu. (Ó. Andrésdóttir.) Ég sendi aðstandendum Gógóar mínar dýpstu samúðarkveðjur. Ég óska þess af heilum hug að Guð gefi ykkur styrk til að takast á við framtíðina, þar sem góðar minning- ar um dóttur, eiginkonu, móður, ömmu og systur verða ykkur leiðar- ljós. Guð geymi minningu minnar kæru vinkonu. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi okkar og sonur, SVEINBJÖRN BENEDIKTSSON, Gunnarsbraut 40, Reykjavik, lést á Landspítalanum sunnudaginn 2. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 11. febrúar kl. 15.00. Auður Jónsdóttir, Hlin Sveinbjörnsdóttir, Hávar Sigurjónsson, Hrólfur Þeyr Þorrason, Sveinbjörn Hávarsson, Auður Hávarsdóttir, Róshildur Sveinsdóttir. t Maðurinn minn, faðir okkar og bróðir, HUGI PÉTURSSON, Aðallandi 6, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 7. febrúar kl. 15.00. Gróa Herdís Bæringsdóttir, Klara Peterson, Ásgrfmur Peterson, Belinda Peterson og systkini. t Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir, HERMANN GUÐLAUGSSON, Njálsgötu 27, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. febrúar kl. 13.30. Jarðsett verður að Görðum, Álftanesi. Guðrún Finnbogadóttir, Finnbogi Hermannsson, Hansína Garðarsdóttir, Guðlaugur Hermannsson, Ásdís Gunnarsdóttir, Sesselja Hermannsdóttir, Benedikt Skarphéðinsson. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA MAGNEA SIGURÐARDÓTTIR, Meðalholti 14, Reykjavík, verður jarðsungin frá kirkju Fíladelfíu- safnaðarins, Hátúni 2, föstudaginn 7. febrúar kl. 13.30. Sigurlfn E. Magnúsdóttir, Rósinkrans Kristjánsson, Þórir Magnússon, Marfa Jóhannsdóttir, Gunnar H. Magnússon, Sigrún Geirsdóttir, Grétar Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Hverfisgötu 92a, Reykjavík, sem lést á Hvíta bandinu miðvikudag- inn 26. janúar sl., verður jarðsett frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 6. febrúar kl. 15.00. Guðbjörg Helgadóttir Olsen, Svend A. Oisen, Hafdís Helgadóttir, Kristfn Helgadóttir, Einar Torfason, Hulda Elvý Helgadóttir, Ómar Þór Helgason, Klara Guðnadóttir, Guðný Kristánsdóttir, Helgi Helgason, Rós Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR KRISTINN HALLGRÍMSSON frá Felli f Mýrdal, til heimilist f Lönguhlfð 3, Reykjavfk, sem lést þriðjudaginn 28. janúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 7. febrúar kl. 10.30. Ragnhildur Auður Vilhjálmsdóttir, Guðmundur Þór Pálsson, Árni Stefánsson Vilhjálmsson,. Helga Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Alúðar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts ÞORVALDS ÁGÚSTSSONAR, Laugateigi 22, Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Þorvaldsson, Vallý Helga Ragnarsdóttir, Steinunn Kr. Þorvaldsdóttir, Finnur Geirsson. t Þökkum auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar PÁLS EINARS ÁSMUNDSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar. t Útför mannsins míns, föður, tengdaföð- ur, afa og langafa, GUNNARS ÓLAFSSONAR, Skaftahlíð 26, Reykjavfk, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudag- inn 6. febrúar kl. 15.00. Inga S. Björnsdóttir, Hulda Gunnarsdóttir, Sævar Snæbjörnsson, Ingunn Sævarsdóttir, Birna Sævarsdóttir og barnabarnbörn. Ragnheiður Pálsdóttir og fjölskylda. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar BENEDIKTS HAUKSSONAR GRÖNDAL. 4L t Útför föðurbróður okkar, JÓHANNESAR EGILSSONAR frá Laxamýri, verður gerð frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 6. febrúar kl. 15.00. Fyrir hönd ættingja og vina, Gunnar Sigurðsson, Jóhann Sigurðsson. Ólafía Einarsdóttir og systkini hins látna. Lokað Vegna jarðarfarar ÁGÚSTAR BÖÐVARSSONAR, fyrrverandi forstjóra Landmælinga íslands, verður stofnunin lokuð frá kl. 13.00 í dag, miðvikudaginn 5. febrúar. Landmælingar íslands. Sigríður Lind.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.