Morgunblaðið - 05.02.1997, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 41
I
I
)
V
>
>
>
)
I
J
*
I
I
:
,
I
f
_________________________FRETTIR
Hjálparstarf Rauða kross íslands erlendis
Hjálpargögn send til
flóttamanna í Vojvodina
VETRARFATNAÐUR, skór,
skólavörur og lopi fóru á fimmtu-
dag í gámi til Vojvodina héraðs í
Júgóslavíu og er sendingin svar við
hjálparbeiðni sem Rauða krossi Is-
lands barst frá Rauða krossi Serb-
íu. Hjálpargögnin eru framlag
fyrirtækja og einstaklinga og
skólabarna á Vestfjörðum og á
Akranesi.
„Vojvodina er nyrsta hérað Serb-
íu. Fjölmargir flóttamenn búa þar
við illan kost, atvinnuleysi er mikið
og skólastarf er örðugt vegna þess
að börnin hafa ekki nauðsynleg
kennslugögn, svo sem skriffæri,
stílabækur og fleira. Rauði kross
Islands og deildir hans ákváðu því
að efna til skyndisöfnunar á skóla-
vörum meðal grunnskólabarna á
Vestfjörðum og á Akranesi og
brugðust skólar, nemendur og for-
eldrar frábærlega við hjálparbeiðn-
inni.
Sem fyrr segir er talsvert magn
fatnaðar í gámnum. Um er að
ræða vetrarfatnað sem safnast hef-
ur meðal almennings og fatnað sem
Skjala-
stjórnun
og upplýs-
ingalög
NÁMSKEIÐIÐ Inngangur að
skjalastjórnun verður haldið dagana
10. og 11. febrúar kl. 13-16.30
báða dagana í Gamla stýrimanna-
skólanum við Öldugötu í Reykjavík.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim er
áhuga hafa á skjalastjórnun og vilja
auka þekkingu sína á þessu sviði.
„Kynnt verður undirstöðuatriði
skjalastjórnunar, lífshlaup skjals.
Helstu hugtök verða skýrð; upplýs-
ingaúttekt, skjalaáætlun, skjala-
lykill o.fl. Rætt verður um skjala-
stjórnun sem altækt átak við að
taka á skjalavanda fyrirtækis eða
stofnunar.
Fylgt verður hugmyndinni um
lífshlaup skjals við að útskýra
hvernig koma megi á alhliða skjala-
stjórnun á vinnustað. Sérstök
áhersla er á að kynna hlutverk
skjalastjórnunar við framkvæmd
upplýsingalaga, sem tóku gildi um
sl. áramót.
Skipulag og skjöl standa fýrir
námskeiðinu og munu Alfa Krist-
jánsdóttir, bókasafnsfræðingur og
Sigmar Þormar, samfélagsfræðing-
ur kenna. Námskeiðsgjald er
11.000 kr. Námskeiðsgögn, þar á
meðal bókin Skjalastjórnun ásamt
kaffi og meðlæti báða dagana eru
innifalin í námskeiðsgjaldi,“ segir í
fréttatilkynningu.
Fundur um
aukið frjálsræði
HEIMDALLUR, félag ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, leitar
svara við þeirri spurningu hvort,
og þá hvað, sé að gerast í átt að
auknu frjálræði á íslandi í dag.
Frummælendur fundarins verða
þeir Guðmundur Magnússon, pró-
fessor við viðskipta- og hagfræði-
deild Háskóla íslands, Óli Björn
Kárason, ritstjóri Viðskiptablaðsins
og Steingrímur Ari Arason, aðstoð-
armaður fjármálaráðherra.
Fundurinn verður í Valhöll og
hefst kl. 20.30. Hann er opinn og
eru allir áhugasamir velkomnir.
Þessi fundur er sá fyrri af tveimur
sem haldnir eru í tilefni af sjötíu
ára afmæli Heimdallar um þessar
mundir.
Hagkaup gaf. Skórnir í gámnum
eru einni framlag Hagkaups. Þá
er talsvert magn af lopa í gámnum
og munu flóttamennirnir framleiða
fatnað úr honum. Heildverslun
Björns Kristjánssonar gaf tölur og
hnappa til framleiðslunnar og veitti
verulegan afslátt af pijónum. Þess
ber einnig að geta að Samskip
flytja gáminn frá Reykjavík til
hafnar í Evrópu án endurgjalds.
Formaður Rauða kross íslands
heimsótti Rauða kross Serbíu í
desember síðastliðnum og kynntist
hinni miklu neyð sem ríkir meðal
flóttamanna og stórs hluta almenn-
ings í landinu í kjölfar langvarandi
stríðsátaka. Neyðarbeiðnin barst
Rauða krossi íslands i kjölfar heim-
sóknarinnar og taldi félagið ástæðu
til að bregðast skjótt við.
Rauði kross íslands hefur tekið
þátt í öflugu hjálparstarfí Alþjóða
Rauða krossins í lýðveldum gömlu
Júgóslavíu undanfarin ár. Á síðasta
starfsári varði félagið tæplega 50
milljónum króna til aðstoðar við
stríðshijáða íbúa gömlu Júgóslavíu
Opel Astra
Extreme á
markaðinn
BÍLHEIMAR bjóða nýja útfærslu
af Opel Astra, svokallaða Extreme
útfærslu.
Extreme er búinn samlitum stuð-
urum og speglum, samlitu vind-
skeiði aftan á bílnum með bremsu-
ljósi, álfelgum og vetrardeklqum,
aurhlífum að aftan og framan og
fjarstýrðum samlæsingum. Ex-
treme búnaðurinn ætti að kosta
146.000 kr. væri hann keyptur sem
aukabúnaður en verðmunurinn á
Extreme og öðrum sambærilegum
útfærslum er einungis 50.000 kr.,
segir í frétt frá Bílheimum.
Opel Astra Extreme fæst þriggja
dyra, fjögurra og fimm dyra auk
þess sem hægt er að fá skutbíl.
Sala á Opel Astra Extreme hefst í
þessari viku en um takmarkað
magn er að ræða.
Myndir frá
Skotlandsferð
Útivistar
ÚTIVIST verður með myndakvöld
fimmtudaginn 6. febrúar þar sem
sýnt verður frá Skotlandsferð sem
félagið fór sumarið 1996. Mynda-
kvöldið hefst kl. 20.30 og er haldið
í Fóstbræðraheimilinu við Lang-
holtsveg.
Hópur Útivistar samanstóð af 30
manns og í ferðinni var farið um
alla áhugaverðustu staði skosku
hálandanna, m.a. var gengið á Ben
Nevis, hæsta fjall Stóra-Bretlands.
Meðal gististaða í ferðinni má nefna
Tomintoul sem stendur hæst allra
þorpa í Skotlandi. Hluti ferðarinnar
lá um hina sögufrægu leið „The
Malt Whiskey Trail“ þar sem ferða-
löngum stóð til boða að fræðast um
hinar ævafornu aðferðir við viskí-
bruggun.
Aðgangseyrir er 600 kr. og er
hlaðborð kaffinefndar innifalið. All-
ir velkomnir.
TVEIR starfsmenn Rauða
kross íslands ganga frá send-
ingu sem fara á til ríkjanna
í Júgóslavíu fyrrverandi.
auk þess sem fimm sendifulltrúar
félagsins störfuðu á svæðinu,“ seg-
ir í frétt frá Rauða krossinum.
Fyrirlestur
um pólun og
höfuðbeina- og
spjaldhryggs-
meðferð
SCOTT Zamurut, sem er varafor-
maður bandaríska pólunarfélagsins
og meðlimur í breska höfuðbeina-
og spjaldhryggsmeðferðarfélaginu,
heldur fýrirlestur um pólun (Polar-
ity) og höfuðbeina- og spjald-
hryggsmeðferð (Crania Sacral
Therapy) í Bolholti 4, 4. hæð, í
kvöld miðvikudaginn 5. febrúar kl.
20.30.
Fyrirlesturinn er haldinn á veg-
um Atlas, félags höfuðbeina- og
spjaldhryggsjafnara, og í fréttatil-
kynningu frá samtökunum kemur
fram að Zamurut muni í fyrirlestr-
inum rekja sögu þessara meðferðar-
tegunda og varpa ljósi á það hvern-
ig þær skarast og geta hvor gagn-
ast annarri.
Fyrirlesturinn er öllum opinn á
meðan húsrúm leyfir. Aðgangur
kostar kr. 500 og eru kaffiveitingar
innifaldar.
——— _
Talsimagjoia
til útlanda
Sjálfval, 24,5% vsk. innifalinn
LÖND UTAN EVRÓPU
Dagtaxti Míndtu- ðjald, kr. Nætur- taxti frá kl. 23
Ástralfa 95,00 71,50
Bandaríkin 71,00 53,50
Brasilía 180,00 135,001
Japan 95,00 71,50
Kanada 71,00 53,50i
Kína 180,00 135,00
Kúba 210,00 157,50|
Mexíkó 140,00 105,00
Nýja-Sjáland Suður-Afríka 95,00 140,00 71,50 105,00
Suður-Kórea 140,00 105,00
VUla í korti
KOMIÐ hefur í ljós að meinleg villa
var í korti sem birtist hinn 14. des-
ember sl. um talsímagjöld til út-
landa. í töflu um talsímagjöld til
landa utan Evrópu stóð að nætur-
taxti hæfist klukkan 21 en hið rétta
er að næturtaxtinn hefst klukkan
23. Um leið og taflan birtist rétt
biðst blaðið velvirðingar á þessum
mistökum.
Skemmtiganga
á Þorra
í MIÐVIKUDAGSKVÖLDGÖNGU
Hafnargönguhópsins, 5. febrúar,
verður ýmislegt sér til gamans gert
og gönguhraði við allra hæfi.
Farið verður frá Hafnarhúsinu
kl. 20 og gengið um Tjarnarsvæðið
og Háskólahverfíð suður í Skeija-
fjörð og snúið við þar sem hver er
staddur eftir 45 mínútur þannig að
allir geta ráðið sínum gönguhraða
og komið samtímis „í höfn“ kl. 21.30
og tekið upp nestið sitt, gjarnan
þorramat. Boðið verður upp á sýru-
drykk og kaffísopa. Þórður kemur
með nikkuna. Allir velunnarar Hafn-
argönguhópsins og þeir sem alltaf
hafa ætlað að koma í ferð með hópn-
um er velkomið að slást í hópinn
við Hafnarhúsið kl. 21.30.
Málþing um
Sagnir
RITSTJÓRN Sagna - tímarits um
söguleg efni hefur bryddað upp á
því nýmæli að halda málþing um
blaðið fimmtudaginn 6. febrúar kl.
20 í húsakynnum Sögufélagsins,
Fischersundi 3. Tímaritið er gefið
út árlega af sagnfræðinemum í
Háskóla íslands og er það vettvang-
ur þeirra til að koma rannsóknum
sínum á framfæri.
Á þinginu verða fræðimenn fengn-
ir til að fjalla um einstakar greinar
sagnfræðinema í 17. árgangi Sagna.
Greinahöfundum gefst tækifæri til
að fá málefnalega umræðu um ný-
birt ritverk sín. Jafnframt fer fram
umræða um ritstjórnarstefnu blaðs-
ins, framtíð þess og fræðigildi.
Sorg og
sorgarviðbrögð
FYRIRLESTUR hjá Nýrri Dögun
verður haldinn í Gerðubergi fímmtu-
daginn 6. febrúar kl. 20. Irma Sjöfn
Óskarsdóttir, aðstoðarprestur í Sel-
jakirkju mun fjalla um sorg og sorg-
arviðbrögð.
Þetta er mál sem varðar alla því
öll upplifum við sorgina einhvern
tíma í lífínu og þá getur verið gott
að vita hvað eru eðlileg viðbrögð,
segir í fréttatilkynningu frá samtök-
unum.
Allir eru velkomnir.
Þjónusta
Ríkisútvarpsins
á netinu
RÍKISÚTVARPIÐ hefur á undan-
förnum mánuðum aukið netþjónustu
sína. Ágrip hádegisfrétta og kvöld-
frétta frá fréttastofu Útvarps er nú
lesið alla daga á netinu til notenda
um allan heim. Einnig er vikuleg
15 mínútna samantekt innlendra
frétta um alnetið. Fréttayfírlitið er
vistað í sjö daga á netinu og geta
hlustendur hlustað á það hvenær
sem er á því tímabili.
Fyrirtækið Intís sér um samband
við netið vegna fréttasendinganna,
sem fara fram með svokallaðri
„RealAudio“-tækni. Daglega eiga
sér stað rúmlega 400 tengingar til
að kalla fram fréttayfírlitið og þeim
fjölgar stöðugt eftir því sem vitn-
eskjan um þjónustuna breiðist út.
Hægt er að kalla fréttalesturinn
fram á vefsíðum Ríkisútvarpsins
http://www.ruv.is og á slóðinni
http://this.is./ruv.
Styrkur úr
Sagnfræðisjóði
dr. Björns
Þorsteinssonar
ÁKVEÐIÐ hefur verið að veita
styrk úr Sagnfræðisjóði dr. Björns
Þorsteinssonar fyrir árið 1997, 300
þúsund kr.
I 4. grein skipulagsskrár stend-
ur: Tilgangur sjóðsins er að styrkja
með fjárframlögum stúdenta við
nám undir kandídatspróf í sagn-
fræði og kandídata í sömu grein
til að rannsaka og vinna að ritun
um sérstök verkefni er varða sögu
íslands eða efni því nátengd. Veita
má manni styrk til sams konar
verkefna er eigi hefur verið í Há-
skóla íslands og er sérstakar
ástæður mæla með þvi að mati
stjórnar og öll stjórnin er sammála
þar um.
Umsóknum ber að skila á skrif-
stofu heimspekideildar Háskóla ís-
lands í Árnagarði við Suðurgötu
eigi síðar en 5. mars nk.
LEIÐRÉTT
Nýsköpunarverðlaun
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær
um afhendingu Nýsköpunarverð-
launa forseta íslands var sagt að
Sigrún Erla Egilsdóttir hefði hlotið
fyrstu verðlaun fyrir verkefnið
„Erlent ferðafólk í náttúru ís-
lands". Hið rétta er að Erla Hlín
Hjálmarsdóttir hlaut verðlaunin en
Sigrún hlaut sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir verkefnið „Falleg borg
sem hefur allt sem þú þarfnast“.
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
Sat inni að degi,
ekki nóttu
EKKI reyndist nákvæmlega farið
með þann tíma, sem ungur fíkni-
efnaneytandi sat í fangageymslum
lögreglunnar við Hverfisgötu og
skýrt var frá í Morgunblaðinu í
gær.
I fréttinni sagði að pilturinn,
sem er 16 ára og þarfnaðist aðstoð-
ar þar sem hann náði ekki andan-
um vegna hassreykinga, hefði ver-
ið fluttur á lögreglustöðina og gist
þar um nóttina. Hið rétta er, að
piltur var handtekinn skömmu eft-
ir hádegi og færður í klefa númer
1, þar sem hann var geymdur þar
til víman var runnin af honum.
Síðdegis var hann yfirheyrður og
síðan sleppt, svo hann eyddi degin-
um hjá lögreglu, ekki nóttinni. Pilt-
ur er beðinn velvirðingar á þessum
mistökum.
[22313 DÖS
nszt
ixt T
JVI A
Ekki reyna of mikið á þig
Það er lítill ávinningur af því
að reyna of mikið á sig.
Þú mátt taka á, en ekki þannig
að það verði óþægilegt.
i£s
/ Faxafeni • Langarima • Skipholti
Safnaóu 5 hollráóum og þú færó 1000 kr.
afslátt af þriggja mánaöa kortum í Mætti'
og Gatorade brúsa og duft frá Sól hf.
t
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför
CAMILLU D. SVEINSDÓTTUR,
Mávahlfð 35.
Fyrir hönd vandamanna,
Ólafur Finnbogason.