Morgunblaðið - 05.02.1997, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 45
I
I DAG
BRIPS
llmsjón Guómundur Páll
Arnarsun
LEIKUR Dana og Indónesa
í undanúrslitum ÓL var
sögulegur í ýmsum skiln-
ingi. Þegar síðasta spilið
var að hefjast í opna saln-
um leit út fyrir öruggan
sigur Dana. Það var búta-
spil, sem gat ekki skapað
stóra sveiflu, en samkvæmt
útreikningi í sýningarsaln-
um höfðu Danir þá 11 IMPa
forystu. Mikil fagnaðarlæti
brutust út meðal dönsku
stuðningsmannanna — svo
mikil að þau heyrðust inn
í opna salinn þar sem kepp-
endur voru hálfnaðir með
lokaspilið. Ályktunin var
augljós: leiknum var raun-
verulega lokið með dönsk-
um sigri. í gleðivímu missti
danski sagnhafinn einbeit-
inguna og fór óþarflega
marga niður í bút. Sem
hefði engu máli skipt, ef
forskot Dana hefði verið
11 IMPar. En svo var ekki,
þegar betur var að gáð.
Töflustjórar höfðu fært
eina tölu ranglega og for-
skotið var aðeins 6 stig.
Bútaspilið kostaði Dani 6
IMPa, og því voru liðin jöfn
að stigum eftir 96 spila
viðureign. Þá var framlengt
um 8 spil. Eftir sjö spil í
framlengingunni leiddu
Danir með 7 IMPum. En
þá dundi ógæfan yfir þá,
enn eina ferðina:
Austur gefur; allir
hættu. Norður ♦ G9852 ¥ Á943 ♦ DG ♦ 62
Vestur Austur
♦ 3 ♦ D106
¥ KG102 llllll * 1)8765
♦ 106 111111 ♦ 93
♦ ÁDG1073 * 954
Suður
♦ ÁK74
¥ -
♦ ÁK87542
♦ K8
Á öðru borðinu spiluðu
Indónesar fjóra spaða í NS
og unnu slétt. Á hinu borð-
inu fóru Danir í slemmu:
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 tígull
2 lauf Dobl * Pass 3 lauf
Pass 3 tíglar Pass 3 spaðar
Pass 4 spaðar Pass 4 grönd
Pass Pass 5 lauf 6 spaðar Pass Allir pass 5 tíglar
Slemman er í réttri
hendi, en það dugði ekki
til, því vörnin fékk slag á
laufás og tromp. Einn nið-
ur og 13 IMPar til Indó-
nesa.
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ættar-
mót o.fl. lesendum sínum
að kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja
afmælistilkynningum
og eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma
569-1100, sent í bréfsíma
569-1329 eða sent á net-
fangið:
gusta@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Dagbók
Morgunblaðsins,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Arnað heilla
p'/AÁRA afmæli. í dag,
Ol/miðvikudaginn 5.
febrúar, er fimmtugur
Björn Sigurðsson, útibús-
stjóri Búnaðarbanka Is-
lands, Hellu. Hann og eig-
inkona hans Vilborg Sig-
urðardóttir taka á móti
gestum laugardaginn 8.
febrúar í veitingahúsinu
Laufafelli, Hellu, frá kl. 18
til 21.
pT/AÁRA afmæli. í dag,
V/miðvikudaginn 5.
febrúar, er fimmtugur Karl
Sigurbjörnsson, sóknar-
prestur í Hallgríms-
prestakaili, til heimilis á
Þórsgötu 18A, Reykjavík.
Eiginkona hans er Kristín
Guðjónsdóttir, bankarit-
ari. Þau eru að heiman á
afmælisdaginn.
SILFURBRÚÐKAUP. í dag, miðvikudaginn 5. febrúar,
eiga tuttugu og fímm ára hjúskaparafmæli hjónin Lísa
Kjartansdóttir og Hallur Hallsson.
Farsi
,/ ókrltib qB ÖLL t/i<ísk/f>óa£amb(y\c{
þtfí' óbcUL ve-rrx, cb /VlaM&rhck, "
COSPER
ÉG skil ekki það sem hann er að tala um, hann segir
að kistan sé tilbúin.
STJÖRNUSPA
*
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert hugmyndaríkur, fróð-
leiksfús og kærleiksríkur.
Hrútur
(21. mars - 19. april)
Þú ert ekki í skapi til að
erfiða í dag en reyndu að
gera það sem ætlast er til
af þér. Iðjusemi borgar sig.
Naut
(20. apríl - 20. maí) (ffö
Vinur þinn er dularfullur,
stjórnsamur og ætti skilið
að falla fyrir eigin bragði.
Þú hefur ekki tíma fyrir flfla-
gang í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú talar meira og fram-
kvæmir minna. Láttu ekki
reka á reiðanum í vinnunni.
Kvöldið verður rómantískt í
góðra vina hópi.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí) >"$0
Þú átt erfitt með að taka
ákvarðanir og ættir að hlusta
á skoðanir annarra. Vertu
umhyggjusamur við aðra.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Það er auðvelt að vinna með
þér svo framarlega sem þú
ert ekki of kröfuharður. Það
er bjart framundan í áhuga-
málunum.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) á*
Vertu ekki of afskiptasamur
við þína nánustu. Njóttu þín
í góðra vina hópi. Fjárhagur-
inn er á uppleið.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Vegna anna getur þú ekki
gefið fjölskyldunni þann
tíma sem þú hefðir viljað.
Vertu á verði í fjármálum.
Sporödreki
(23. okt. - 21. nóvember) 9K0
Láttu það ekki fara í taug-
arnar á þér þig þó eitthvað
gangi á afturfótunum í dag.
Það gengur bara betur næst.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) éO
Tímanum er betur varið með
góðum vinum, fremur en
metnaðarfullum viðskiptafé-
lögum, því sumir eru ekki í
skapi til að hlusta á þig.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar) m
Þér gengur vel í viðskiptum
í dag. Taktu mark á góðum
ráðum sem þú færð. Þeir sem
ferðast í dag ættu að passa
að eyða ekki um of.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú gætir lent í ósætti vegna
fjármála í dag, en þrátt fyrir
það ertu sammála ástvini
þínum og þið njótið góðra
samvista.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þetta er góður dagur til að
gera góð viðskipti, en vertu
ekki of kröfuharður við sjálf-
an þig og hvíldu þig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ektí á traustum
grunni.
XVÖFALDUR
POTTUR
i Vt1ci«g«lott<ÍÍMu!
Hvad mundir þú gera
ef þú ynnir 100 milljónir
á midvikudaginn?
K I IV G A
æss^ ■ mmáUSk
Til mikils að vinna!
AUa miðvikudaga fyrir kl. 17.00.