Morgunblaðið - 18.02.1997, Side 12

Morgunblaðið - 18.02.1997, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ferðaskrifstofur kynntu sumaráætlanir um helgina og forsvarsmenn segja verð hafa lækkað GERA má ráð fyrir að alls hafi um eða yfir 30 þúsund íslendingar kynnt sér sumaráætlanir ferða- skrifstofa um helgina. Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar, sagðist áætla að 16-20 þúsund manns hefðu komið á skrifstofur Úrvals-Útsýnar á sunnudag, Andri Már Ingólfsson, eigandi Heimsferða, sagði um 2.000 manns hafa mætt á ferða- kynningu fyrirtækisins á Hótel Borg, og hjá Samvinnuferðum- Landsýn fengust þær upplýsingar hjá Kristjáni Gunnarssyni Ijár- málastjóra að um 12 þúsund manns hefðu komið á skrifstofu S-L í Reykjavík um helgina, auk þess sem umboðsskrifstofur á landsbyggðinni hefðu dreift sum- arbæklingum. Fjölskyldur á sólarströnd Talsverður fjöldi hefur pantað utanlandsferðir í sumar og í sam- tölum við talsmenn ferðaskrifstofa kom fram að það væru aðallega fjölskyldur á leið í tveggja til þriggja vikna ferðir til sólarlanda. Af samtölum að dæma má gera ráð fyrir að alls hafi milli tvö og þrjú þúsund manns pantað utan- landsferðir um síðustu helgi. Við- mælendur blaðsins sögðu utan- landsferðir ódýrari í ár en í fyrra og sögðu helstu ástæðuna þá að náðst hefðu betri samningar en í fyrra. „Meginstraumurinn iiggur til landa við Miðjarðarhafið og eru Portúgal og Majorca vinsælustu áningastaðir okkar,“ sagði Hörð- ur Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Úrvals-Útsýnar. „Áherslur í sumarleyfum eru því svipaðar og undanfarin ár, fjölskyldur skipta sumarleyfi sínu gjarnan í tvennt og dvelja á sólarströnd í 2 vikur og á íslandi í aðrar tvær vikur.“ Hörður sagði að áhugi á dvöl í sumarhúsum í Hollandi og Dan- mörku færi vaxandi, enda ódýr valkostur. „Við höfum yfir að ráða fleiri húsum í Hollandi nú en í fyrra, enda gerum við ráð fyrir áframhaldandi áhuga á þeim. Hús- in eru í eins konar skemmtigarði, með leiktækjum, sundlaugum og fleiru, sem íbúar húsanna hafa ókeypis aðgang að.“ Úm sértilboð sagði Hörður að Úrval-Útsýn hefði uppá að bjóða svonefnt stökkpallsverð. „Þessi til- boð hafa vakið mikla athygli. Fólk pantar ferð til Portúgals eða Maj- orca og ákveður lengd ferðarinnar en veit ekki á hvaða gististað það verður. Við úthlutum síðan einum af gististöðum sem auglýstur er í bæklingi okkar. Með þessum hætti er þriggja vikna ferð 10 þúsund kr. ódýrari á mann en ef ferð er pöntuð með gistingu á ódýrasta gististað sem kynntur er í bækl- ingnum. Við höfum um 300 sæti til ráðstöfunar á þessum kjörum og ég reikna með að þau verði fullbókuð í þessari viku.“ Opið til kl. 22 í gærkvöldi „Um 12 þúsund manns komu á skrifstofu okkar í Reykjavík um helgina og fengu bæklinga," sagði Kristján Gunnarsson, fjármála- stjóri Samvinnuferða-Landsýnar. Hann sagði að mikið álag hefði verið á simakerfi skrifstofunnar í gær og því ákveðið að hafa hana opna til kl. 22 í gærkvöldi. Sagðist Kristján telja að um 500 manns hefðu pantað utanlandsferð um helgina, aðallega til sólarlanda. „Vinsælustu ferðir okkar eru til Majorca, Benidorm og Portúgal, en við bjóðum nú í fyrsta sinn ferð- ir á síðastnefnda staðinn. Við höf- um einnig á boðstólum ferðir á nýjan áfangastað, Albir, sem er skammt frá Benidorm.“ Samvinnuferðir Landsýn aug- lýsti raðgreiðslur til allt að þriggja ára og sagði Kristján aðspurður að enn væri ekki ljóst hvort við- skiptavinir hefðu áhuga á að nýta Um 30 þúsund manns fengu sér bæklinga íslendingar virðast vera famir að skipuleggja sumarleyfí sín betur en áður, sérstaklega fjölskyldufólk. Þetta sögðu talsmenn þriggja ferðaskrifstofa þegar Brynja Tomer spurðist fyrir um sumarleyfi landsmanna í ár. Henni var einnig sagt að utanlandsferðir væru margar hveijar ódýrari nú en í fyrra. Morgunblaðið/Kristinn ALLS komu milli 16 og 20 þúsund manns á skrifstofu Úrvals-Útsýnar um síðustu helgi. UM 12 þúsund manns náðu í sumarbæklinga hjá Samvinnuferðum-Landsýn um siðustu helgi. FULLTRÚI Heimsferða dreifir bæklingum til vegfarenda hjá Hótel Borg, þar sem kynning skrifstofunnar var. sér greiðsludreifingu í svo langan tíma. „Við vildum fyrst og fremst vekja athygli fólks á því að ef það fer í sólarlandaferð á þriggja ára fresti þarf það ekki að leggja út nema 4.700 krónur á mann á mánuði, miðað við tveggja vikna ferð fjögurra manna fjölskyldu til Albir.“ Benidorm hefur til þessa verið vinsælasti áfangastaður Sam- vinnuferða-Landsýnar og sagðist Kristján gera ráð fyrir að svo yrði einnig i ár. „Við fljúgum þangað vikulega í sumar og gerum ráð fyrir að um 7.000 manns fari þangað á vegum okkar í ár. Við reiknum með að um 4.000 manns fari til Majorca og um 2.000 til Portúgal.“ Kynningartilboð Samvinnu- ferða-Landsýnar fela í sér að ef ferð er gerð upp fyrir 10. mars næstkomandi er gefinn afsláttur. „Þá skiptir ekki máli hvort ferð er greidd með peningum eða sam- ið um greiðsludreifingu með kred- itkorti. Áhugi á sólarlandaferðum hefur verið minni í júlí en öðrum mánuðum, því þá virðast íslend- ingar frekar vilja vera á heima- slóðum. Þess vegna höfum við ákveðið að bjóða sérstakan afslátt á þessum tíma, 10 þúsund krónur á mann.“ Aðaláherslan á Costa del Sol „Costa del Sol var útnefnd hrein- asta strönd Evrópu í fyrra og hafa yfirvöld breytt og fegrað ásýnd allrar strandlengjunnar," sagði Andri Már Ingólfsson, eigandi Heimsferða. Sumarbæklingur Heimsferða var kynntur á Hótel Borg um helgina og sagði Andri að um tvö þúsund manns hefðu komið þangað. „Um 100 manns pöntuðu utanlandsferðir um helg- ina, talsvert fleiri en við gerðum ráð fyrir. Við bjóðum viðskiptavin- um okkar sérstakan afslátt næstu þijár vikurnar, í tilefni af fimm ára afmæli okkar. Ljóst er að fólk vildi nýta sér afsláttakjörin og panta ferð strax.“ Andri sagðst gera ráð fyrir að um 1.500 íslendingar færu á veg- um Heimsferða til Costa del Sol, enda hefði aðbúnaður þar aldrei verið betri. „Þetta verður aðal- áfangastaður okkar í ár. Þarna er búið að gera göngubraut meðfram allri strandlengjunni og hjarta kvöldlífsins slær við snekkjuhöfn- ina, en þar eru meðal annars veit- ingahús, verslanir, barir og diskó- tek. Við fljúgum í leiguflugi með Air Europa, sem er stærsta leigu- flugfélag Spánar og gerum ráð fyrir að hafa íslenska flugfreyju um borð.“ Auk Spánarferða nefndi Andri Cancun í Mexíkó og París sem dæmi um áfangastaði Heimsferða í sumar. „Á afmælistilboði okkar er í boði flugsæti til Parísar fyrir um 20 þúsund krónur ef tveir ferð- ast saman. Þeir sem kaupa að auki gistingu í viku greiða um 31 þúsund krónur á mann. Margir taka bílaieigubíl í París og ferðast um suðurhluta landsins, sem er afar fallegur og gefur fólki kost á að gista á litium sveitahótelum og kynnast annarri hlið Frakklands en þeirri sem París sýnir.“ Andri sagði að Parísarferðir væru einna vinsælastar hjá ungu fólki og hjónum, en Spánarferðir væru vinsælli meðal fjölskyldu- fólks með börn. Spurður hvort mikill áhugi væri á greiðsludreif- ingu sagði Andri að til þessa hefðu Heimsferðir boðið raðgreiðslur í allt að tíu mánuði, sem sumir hefðu notfært sér. „Mér finnst ekki jákvæð þróun að skipta greiðslum vegna sumarleyfis á lengri tíma, eða allt að þrjú ár, því neyslumynstur fólks hefur verið að breytast á síðustu árum og ég sé ekki betur en fleiri vilji frekar njóta góðra kjara gegn staðgreiðslu og ferðast þegar þeir hafa ráð á því.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.