Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 27
26 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 27
LISTIR
LISTIR
Gríðarstórt anddyri bylgjast um sali hússins rétt eins og Norðurljós. Norðurljósin hafa efalaust farið á kostum, þegar menningar húsið
var vígt, en til hátíðabrigða var boðið upp á flugeldasýningu.
Húsið sem slær
taktinn í menn-
ingarlífinu
Á laugardag var opnað grænlenskt menningarhús í Nuuk á Græn-
landi. Þar með eignast Grænlendingar loks stóran hátíðarsal þar
sem hægt er að bjóða upp á ýmsa menningarviðburði, auk þess
sem vonast er til að húsið verði einn af miðpunktunum í bæjarlíf-
inu. Urður Gunnarsdóttir var viðstödd opnunarhátíðina.
LÍKLEGA getur vart lengri
opnunarhátíðar en þegar
menningarhúsið í Nuuk á
Grænlandi var opnað á laugardag.
Boðið var upp á tæplega hálfan
sólarhring af skemmtiatriðum og
ræðuhöldum, sem um 500 gestir,
frá Finnlandi í austri til Kanada í
vestri, sóttu. Var dagskránni sjón-
varpað beint um gjörvallt Græn-
land. Fulltrúi íslands á hatíðinni
var Sinfóníuhljómsveit íslands,
sem lék með þjóðarkór Grænlands
og flutti einnig hátíðarmars eftir
Pál ísólfsson. Húsið Ieysir brýna
þörf fyrir sal þar sem hægt er að
halda sýningar, tónleika og mót-
tökur, sýna leikrit og kvikmyndir
en ekkert slíkt hús var í Nuuk.
Húsið heitir Katuaq sem þýð-
ir trommukjuði og er hugs-
unin að baki-því sú að
hann slái taktinn í grænlensku
menningarljfi. Það var vel við hæfi
að boðið var upp á trommudans
við opnunarhátíðina en grænlensk
menning er meira en trommudans;
leikverk og dans, rokktónlist,
kristileg tónlist, kórsöngur og
harmónikkuspil voru á meðal þess
sem boðið var upp á á laugardag.
Á meðal tónlistarmannanna sem
fram komu var ein vinsælasta
söngkona inúíta, Susan Aglukark,
sem er frá Kanada en nýtur geysi-
legra vinsælda á norðurslóðum,
m.a. í Nuuk, enda flykktust aðdá-
endur hennar að henni að tónleik-
um loknum. Sunnudag var boðið
upp á unglingaleikhús, tónleika
þjóðarkórs Grænlands og bæj-
arhljómsveitarinnar í Nuuk og
sóttu hundruð bæjarbúa þá tón-
leika, og fengu sér kaffi og kökur
í boði hússins.
Sunnudagskvöld lék Sinfóníu-
hljómsveit Islands á hátíðatónleik-
um í menningarhúsinu og í gær
og dag voru haldnir tónleikar fyrir
öll skólabörn í Nuuk, um 2.500
talsins, sem fæst hafa nokkurn
tíma séð eða heyrt sinfóníuhljóm-
sveit. íslenska sinfóníuhljómsveitin
fór í tónleikaferð til Grænlands
árið 1987 og var þá fyrsta sinfóníu-
hljómsveitin sem það gerði. Engin
hljómsveit hefur fetað í fótspor
hennar á þeim áratug sem liðinn
er og segir Jan Klövstad, forstjóri
menningarhússins, Grænlendinga
ákaflega þakkláta íslendingum
fyrir að leggja fé til ferðar hljóm-
sveitarinnar til Grænlands.
Margar góðar gjafir bárust hús-
inu á opnunardaginn, rúmar 13
milljónir ísl. kr. í gjöfum hvað-
anæva, m.a. frá Reykjavíkurborg,
sem færði menningarhúsinu rúma
1 milljón ísl. kr. að gjöf og styttu
eftir Asgrím Sveinsson, Veðurspá-
manninn, sem Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri færði
menningarhúsinu með þeim orðum
að hér færi táknræn gjöf þar sem
styttan kallaðist „Maður sem gáir
til veðurs". í landi þar sem veður
spilar enn stærri þátt í daglegu lífi
fólks en á íslandi, er það líklega
vel við hæfi. Af öðrum íslenskum
gjöfum má nefna framlag Seyðis-
fjarðar, sem var einna fyrst til að
senda menningarhúsinu í Nuuk
framlag, upp á 100.000 ísl. kr.
Eins og áður segir voru rúmlega
500 gestir viðstaddir; menningar-
mála- og samstarfsráðherrar
Norðurlandanna, ráðherra norður-
héraðanna í Kanada, embættis-
menn frá Norðurlandaráði, fjöldi
norrænna og grænlenskra stjóm-
málamanna og ráðamanna, svo og
hundruð grænlenskra listamanna.
Iðnaðarmennirnir voru að fram
á síðustu stundu við að gera
húsið klárt fyrir opnunarat-
höfnina en það er einkar glæsileg
bygging. Kostnaður við hana var
91 milljón danskar krónur, tæpur
milljarður ísl.kr. í landi þar sem
atvinnuleysi og gífurleg húsnæði-
sekla eru stærstu vandamálin, var
bygging hússins vissulega um-
deild.„Eg veit ekki til þess að
menningarhús hafi nokkurn tíma
verið byggt án þess að um það
hafi verið deilt og sú var einnig
raunin hér. En mótvindurinn hefur
smám saman breyst í meðvind og
það er mikill áhugi hér fyrir menn-
ingarhúsinu,“ segir Norðmaðurinn
Jan Klövstad, forstjóri þess. Hann
segir það staðreynd að húsið sé í
raun fyrsta kvikmyndahúsið í
Nuuk og því hafi unga kynslóðin
fagnað. „Fyrsta sýningin verður
28. febrúar og þá verður sýnd
mynd Bille Augusts, „Lesið í snjó-
inn“ sem fjallar um Grænlending-
inn Smillu. Það reyndist þjóðráð,
nú þegar hafa verið seldir yfir
4.000 miðar á sýningamar,“ segir
Klövstad. Agnethe Davidsen, borg-
arstjóri í Nuuk, fagnaði því sér-
staklega í ræðu sinni á opnuninni
að nú loks gætu Grænlendingar
upplifað þá einstöku tilfinningu að
sitja í myrkvuðum bíósal og halda
í hönd þess sem maður elskar.
Klövstad hóf störf fyrir rúmu
ári en hann var áður for-
stjóri Norræna hússins í
Þórshöfn í Færeyjum um 4 ára
skeið. „Munurinn á þessu húsi og
norrænu húsunum í Þórshöfn og í
Reykjavík er sá að þetta er fyrst
og fremst grænlenskt hús. Græn-
lendingar greiða stærstan hluta
kostnaðarins við húsið, um 58%,
Norðurlandaráð greiðir um 28%
og afganginn greiða einkaaðilar.
Húsið er rekið af grænlensku
Sinfóníuhljómsveit
íslands lék með
þjóðarkór Grænlands.
heimastjórninni og bæjarstjórninni
í Nuuk.“
Klövstad segir að sú stóra
ákvörðun að byggja menningarhús
þrátt fyrir þrýsting um að veita fé
í önnur verkefni, svo sem að byggja
húsnæði, sem mikill skortur er á,
veiti mönnum mikið aðhald. Nota
verði það fé vel sem til hússins
rennur í landi þar sem skortur er
á svo ótalmörgu. Klövstad segir
að hinar fjölmörgu gjafir og sá
velvilji sem verkefninu hafí verið
sýndur, sé þó sönnun þess að um
rétta ákvörðun hafi verið að ræða
er ákveðið var að ráðast í bygg-
ingu hússins. „Það er ákaflega
mikilvægt að hafa hús sem þetta.
Það mætir mikilli þörf fyrir sal þar
sem hægt er að halda tónleika,
flytja leikverk og sýna kvikmyndir.
Húsið gefur grænlenskum lista-
mönnum tækifæri til að koma fram
og gestum möguleika á að heim-
sækja Grænland. En húsið er ekki
upphaf og endir alls, það er mjög
mikilvægt að fara með sýningar
úr húsinu og til minni bæja og
sveitarfélaga, segir Klövstad.
Spurningin um hvað grænlensk
menning sé, hefur hvað eftir annað
stungið upp kollinum í samtölum
við menningarfrömuði og stjórn-
Morgunblaðið - símamynd/Rax
málamenn. „Grænlensk menning
er annað og meira er trommudans.
Menningarmiðstöð er ekki safn,
heldur á að leggja áherslu á lif-
andi list“ segir Jonatan Motzfeld,
fyrrverandi formaður landsstjórn-
arinnar en hann situr nú á Lands-
þinginu, og undir þetta taka fleiri.
„Það verður aldrei of mikið af
trommudansi en hingað til hefur
of lítil áhersla verið lögð á list-
greinar á borð við leiklist og þar
þurfum við að vinna upp mikinn
tíma,“ segir Lars Emil Johansen,
formaður Landsstjórnarinnar.
„Menningarhúsið verður vonandi
gluggi okkar út í heim, og gluggi
heimsins að grænlenskri menn-
ingu. Þá vonum við ekki síður að
það verði einn af miðpunktum
bæjarlífsins, að fólk komi hingað
til að fá sér kaffi og hittast."
Jan Klövstad telur alls enga
ástæðu til að óttast að með
tilkomu hússins muni vestræn
menningaráhrif ríða yfir græn-
lenska menningu af enn meiri
þunga en fyrr og ganga af henni
dauðri. „Þessar raddir voru uppi
þegar Norræna húsið í Færeyjum
var opnað en raunin reyndist allt
önnur, þetta hleypti auknum krafti
í menninguna og styrkti hana. Ég
er þess fullviss að það sama gerist
hér.“
Norður
ljós
NORÐURLJÓSIN eru grunn-
hugmyndin að baki bygging-
unni að sögn arkitektanna
þriggja sem teiknuðu hana;
Morten Schmidt, Bjarne Ham-
mer og John Lassen. Þeir eru
danskir, starfa í Árósum, og
unnu samkeppni sem um 220
tillögur bárust í. Húsið er um
3.800 fermetrar að stærð og
einkennist af gríðarstóru and-
dyri sem bylgjast um sali húss-
ins rétt eins og Norðurljós. Lars
Emil Johansen, formaður lands-
stjórnarinnar, lagði út af þessu
í ræðu sinni við opnunina,
kvaðst vona að rétt eins og
norðurljósin endurnýjuðust sí-
fellt, myndi húsið verða til þess
að hleypa nýjum krafti í græn-
lenska menningu og endurnýja
hana.
Schmidt segir þá félaga hafa
lagt út frá andstæðum í náttúr-
unni, svo sem hinu mikla Ijósi
og svarta myrkri, miklu yfir-
borði og hinu samanþjappaða,
hinu breiða og hinu mjóa.
„Svart gólfið skapar andstæðu
við hvíta veggina; hið stóra and-
dyri við minni sali; og sjálft
húsið virðist ýmist breitt eða
langt og mjótt, eftir því hvaðan
horft er á það. Við reynum að
láta húsið falla vel að öðrum
byggingum hér í miðbænum, og
að náttúrunni, t.d. eru engir
stórir gluggar í því. En rétt eins
og í öðrum norrænum bygging-
um skiptir ljósið höfuðmáli og
okkur er engin launung á því
að þar sækjum við áhrif okkar
fyrst og fremst til finnska arki-
tektsins Alvars AIto.“
Ekki verður annað merkt en
að fólk sé almennt ánægt með
húsið, þó að gagnrýnisraddir
hafi verið uppi um það að menn-
ingarhúsið sé ekki grænlenskt,
heldur danskt. Lars Emil Jo-
hansen svarar því til að húsið
sé grænlenskt, það sé byggt
miðað við grænlenskar aðstæð-
ur til að þjóna Grænlendingum
og ekki sé nokkur ástæða til að
hallmæla fallegum hlutum
vegna þess eins hvaðan þeir
komi.
/m
\ SlCKK
x'vKRISTALL-
TILBODSDAQAR
Matar og kaffistdla||Ö/,;;^ |
6 manna matar
-eða Kaffistell:
"BLÁA LAUFIÐ" kr. 2.950,-
"VORIÐ" kr. 3.400,-
"CORTINA" kr. 4.975,-
"PIANO" - sjá mynd..
6 m. matarstell kr. 7.950,-
6 m. kaffjstell kr. 7.500,-
Húsgögn - Hjólaborð - Speglar
Lampar - GIös - Hnífapör
------ . Margt fallegt fyrir
^RKRISTALL heimi,ið Þitt
Kringlunni og Faxafeni
(Líttu í kjallarann þar)
Heimsferðir kynna glæsilega ferðaáætlun í sumar og bjóða þér
hagstæðustu tilboð sumarsins til Costa del Sol. Undirtektirnar hafa
verið hreint ótrúlegar, í gær bókuðu 458 manns sumarferðina sína í
sólina i sumar og nú bjóðum við 250 sæti með 8.000 kr. afslætti i
valdar brottfarir til Costa del Sol i sumar. Bókaðu þig strax og tryggðu
þér heitasta staðinn í sumar.
Ótrúlegar undirtektir.
458 sæti seld í gær.
Vikulegt flug í allt sumar.
Co&ta del Sol
39.532 kr.
Verðdæmi miðað við hjón með 2 börn, 2-11 ára, 21. maí
í 2 vikur á Minerva Jupiter hótelinu - með afmælisafslætti.
51.06
Miðað við 2 í stúdíóíbúð með
afmælisafslætti, 21. maí.
1
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17 • Reykjavík
Sími 562 4600 • Fax 562 4601