Morgunblaðið - 18.02.1997, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 33
MENIMTUN
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
SESSELJA Björnsdóttir myndlistarkennari (önnur frá hægri) ásamt nokkrum
nemendanna sem unnu að listaverkinu.
skeiðina verið tekin út úr Fræðslu-
skrifstofu og verði framvegis í hönd-
um Félags íslenskra myndlistar-
kennara. „Það er greinilega ekki
nægur skilningur fyrir því hjá
fræðsluyfirvöldum að mjög lær-
dómsríkt er fyrir krakkana að sjá
teikningu, sem fæðist inni í kennslu-
stofu, verða að framleiðslu."
Viðmiðunarstundaskrá
Sesselja segir að nú séu háværar
kröfur hjá foreldrum um að fara
verði eftir viðmiðunarstundaskrá.
Hún segist óttast að verði það gert
bitni það meðal annars á gæðum
myndlistarkennslu. „Viðmiðunar-
stundaskrá gerir ráð fyrir að börnin
fái tvo tíma á viku allan veturinn
en víða í Reykjavík er bekkjum skipt,
þannig að þau fá einungis myndlist-
arkennslu hálfan vetur. Foreldrar
halda að verið sé að svíkja nemend-
ur um hluta af náminu, en ef þeir
vissu muninn á því sem fram fer
með hálfum eða heilum bekk myndu
þeir ekki fara fram á þessa breyt-
ingu,“ útskýrir Sesselja. Hún telur
einnig fullvíst að með því að kenna
heilum bekkjum muni draga úr fjöl-
breytni kennslunnar, þar sem suma
vinnu sé ekki hægt að láta nemend-
ur vinna í svo fjölmennum hópum.
Á fundi í Félagi íslenskra mynd-
listarkennara fyrir skömmu kom
fram, að sögn Sesselju, að myndlist-
arkennarar um allt land eru mjög
kvíðnir ef af þessu verður. Hún seg-
ir einnig frá könnun, sem formaður
félagsins, Gunnhildur Ólafsdóttir,
gerði á afköstum nemenda á sama
aldri, annars vegar þeim sem voru
í heilum bekk allan veturinn og hins
vegar skiptum bekk hálfan veturinn.
„Þegar upp var staðið gerði heili
bekkurinn tveimur verkefnum fieira
yfir allan veturinn en verk þeirra
voru hins vegar mun verr unnin.“
JÓHANNA Þ. Ingimarsdóttir myndlistarkennari (önnur frá
vinstri) með nokkrum nemendanna við fullbúið listaverkið, sem
unnið er úr pappír.
Þróunarsjóður framhaldsskóla
20 milljónir króna
til ráðstöfunar
í LÖGUM um framhaldsskóla,
sem tóku gildi á miðju ári 1996,
er kveðið á um að árlega skuli
veita fé á fjárlögum til Þróunar-
sjóðs framhaldsskóla, sem heyrir
undir menntamálaráðherra. Sam-
kvæmt upplýsingum frá mennta-
málaráðuneyti er gert ráð fyrir
að sjóðurinn taki til starfa frá og
með upphafi næsta skólaárs og
að hann hafi til ráðstöfunar um
20 milljónir króna á þessu ári.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja
áhugaverð verkefni á sviði skóla-
starfs, s.s. sérstök tilraunaverk-
efni, nýbreytni í skipulagi náms,
kennsluháttum og mati á skóla-
starfi. Einnig verkefni á sviði
tölvunotkunar við kennslu, gerð
kennsluforrita og fjarkennslu og
verkefni á sviði fullorðinsfræðslu
og símenntunar.
Forsendur þess að verkefni
geti hlotið styrk úr sjóðnum verða
skilgreindar í reglum, sem settar
verða um sjóðinn. Auglýst verður
eftir umsóknum um styrki, sam-
kvæmt upplýsingum ráðuneytis-
ins, og fer úthlutun fram í sam-
ræmi við ákvæði í áðurnefndum
reglum.
Síðasti bekkurinn
byrjar í kvöld...
í kvöld byrjar síðasti bekkur vetrarins í skemmtilegasta
skólanum í bæmun, Sálarrannsóknarskólanum.
Efþig langar að vita flestallt sem vitað er um líf eftir dauðann,
hvemig miðlar starfa og hvemig þessir vœntanlegu handanheimar
okkar líklegast eru, íþœgilegum skóla eitt kvöld í viku eða eitt
laugardagssíðdegi í viku fyrir hófleg skólagjöld, þá áttu líklega
samleið með okkur. Hringdu ogfáðu allar nánari upplýsingar
um mest spennandi skólanum í bœnum sem í boði er í dag.
Svarað er í síma skólans alla daga vikunnar kl. 14 til 19.
SálarrannsóknarskóHnn
- „Skemmtilegastl skóllnn í bænum" -
Vegmúla 2,
símar 561 9015 og 588 6050.
^ýefnherberghT
w ætti alltaf að vera unaðsreitur heimilisins. w
Komdu og skoðaðu Broyhill húsgögnin og ™
★ búðu til þitt draumasvefnherbergi með 4
vönduðu og rómantisku ívafi. ^ yf
ÞÚ FINNUR ÞINN STÍL HJÁ OKKUR • HVERGI MEIRA ÚRVAL
Teg: Carlson Farm:
Höfðagafl Queen íszcm kr. 18.680,* Kíng 193cm kr. 38.240,*
Náttborð kr. 26.500,- Þreföld kommóða kr. 55.740,-
Spegill kr. 19.130,- 5 sk. kommóða kr. 49.980,-
Serta ameríska íúxusdýnan kostar
frá kr. 47.670,- í Queen stærð
með dýnurammanum.
o Veái fdkonin I
V/SA
HÚSGAGNAHÖLLIN
Bíldshöfði 20-112 Rvík - S:587 1199
•f