Morgunblaðið - 18.02.1997, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 55
MINIMINGAR
ar: Hrólfi, Auði og Sveinbirni litla,
sem hafa nú misst afa sinn. Syst-
urnar þrjár sem kveðja nú kæran
bróður og hún amma mín Róshilð-.
ur sem misst hefur drenginn sinn
langt fyrir aldur fram.
Eitt veit ég þó að þar sem Svein-
björn frændi vaknar, þar verður
fyrir honum grösugur dalur, hóf-
lega beittur feitum sauðum. Þar
verður rauðblesóttur hestur sem
hann mun stíga á bak og saman
munu þeir skoða fugla himinsins,
stóra og smáa, og sjálfsagt verður
þar ýmislegt sagt á hebresku og
grísku. Guð geymi þig, elsku
frændi minn.
Benedikt Erlingsson.
Skilafrest-
ur minn-
ingar
greina
Eigi minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í
sunnudagsblaði ef útför er á
mánudegi), er skilafrestur
sem hér segir: í sunnudags-
og þriðjudagsblað þarf grein
að berast fyrir hádegi á föstu-
dag. í miðvikudags-, fimmtu-
dags-, föstudags- og laugar-
dagsblað þarf greinin að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virk-
um dögum fyrir birtingardag.
Berist grein eftir að skila-
frestur er útrunninn eða eftir
að útför hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi.
EINAR MATTHÍAS
KRISTJÁNSSON
+ Einar Matthías
Krisljánsson
fæddist í Reykjavík
2. október 1926.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur í
Fossvogi 4. febrúar
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Digraneskirkju í
Kópavogi 13. febr-
úar.
Elsku afi okkar er
dáinn. Það er mjög
erfitt að sjá á eftir
þér. Það er skrýtið að
hugsa til þess að afi í Mosó, eins
og við kölluðum þig alltaf, sé ekki
lengur með okkur og sárt að hugsa
til þess að við fáum ekki að njóta
oftar samvista með þér.
En við huggum okkur við allar
góðu minningarnar um þig enda
er svo margs að minnast. Þú og
amma sem létuð ykkur aldrei vanta
þegar eitthvað stóð til hjá okkur.
Allar skemmtilegu útilegumar sem
við fórum í saman og allar yndis-
legu stundirnar sem við áttum hjá
ykkur í Markholtinu.
Þú varst besti afi sem hægt var
að hugsa sér. Alltaf svo góður og
skemmtilegur, með þetta sérstaka
hlýja bros, sem kom okkur ávallt
i gott skap. Við þökkum þér fyrir
öll árin og allar þær stundir sem
við áttum saman. Við vitum að þér
líður vel núna þar sem þú ert. Við
munum aldrei gleyma þér.
Blessuð sé minning þín.
Jónína, Guðbjörg Sigríður og
Einar Matthías, Selfossi.
í bernskuminningu
stendur Einar Krist-
jánsson fyrir hug-
skotssjónum, hávax-
inn og mikill, skelli-
hlæjandi og frískur að
fást við starf sitt —
að rækta rósir.
Garðyrkjumaður-
inn Einar var kvæntur
föðursystur okkar,
Guðbjörgu, og við eig-
um erfitt með að
muna, að það hafi
nokkurn tímann verið
einhver skil á milli
umhyggju hans fyrir
okkur og fyrir sinni eigin fjöl-
skyldu. Einar hafði auga með okk-
ur á floti í lífsins ólgusjó, fylgdist
vel með og lagði sitt til málanna
með þeirri kímni sem honum var
eðlislæg og nægði til þess að eftir
var tekið. Barnafjöldi sem af okk-
ur er kominn minnist Einars með
mikilli hlýju.
Hann stundaði í raun og veru
alla tíð ræktunarstarf. Störf hans
að félagsmálum, málefnum leikfé-
lagsins í Mosfellssveit, sem þá
hét, og síðan áratuga starf með
börnum og unglingum við skólann
og sundlaugina í Mosfellsbæ muna
allir og finna fyrir áhrifum hans,
nú þegar hann er á braut.
Við erum svo sem engar rósir,
bræðurnir, en við erum þakklátir
fyrir að hafa fengið að vera hluti
af ræktunarstarfi Einar Kristjáns-
sonar í þessu lífi.
ísleifur Pétursson, Helgi
Pétursson, Kristinn Pétursson,
GissurPétursson oir fiölskyldur.
t
Þökkum innilega samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSGERÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Grundarfirði.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
við andlát og útför elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
HAFDÍSAR INGVARSDÓTTUR,
Austurströnd 2,
Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir til Heimahlynningar
krabbameinssjúkra.
Aðalheiður Gestsdóttir, Sigurður Þór Sigurðsson,
Hafþór Gestsson, Emma G. Eiríksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu
okkur hlýhug og samúð vegna andláts
og jarðarfarar
JÓNS JÓHANNESAR JÓSEPSSONAR
frá Sámsstöðum,
Dalbraut 6,
Búðardal.
Sérstakar þakkir til læknanna á heilsu-
gæslustöð Búðardals og annarra sem
hjálpuðu okkur.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg M. Jónsdóttir, Kristján G. Bergjónsson,
Sigurður Jónsson, Karen Guðlaugsdóttir,
Eyjólfur J. Jónsson, Sveinbjörg Ólöf Sigurðardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
V V
újdiíu ddj/ra 1-
Með hagræðingu og frábæru samstarfi við viðskiptavini sína hefur
Samvinnuferðum - Landsýn enn einu sinni tekist að koma með ferðatilboð
sem vart á sér hliðstæðu. Við hvetjum til samanburðar á verði og kjörum!
10 kr.
Tveirf 3?m4Gjjg'*-7?fr*'*4 j0n/79s
* Á mann. Fullgreitt með peningum eða
raðgreiðslum fyrir 10. mars nk. Innifalið:
Flug, gisting, akstur til og frá flugvelli
eriendis, fararstjórn, flugvallarskattar og
bókunargjald í alferð og innritunargjald í
Keflavík.
mgSLu kr.
^opioa
A\/i
'enidi
’a.
r
Sttmarleyfi í „áskrift'"!
lfertu áskrifandi að vel heppnuðu sumarleyfi með raðgreiðslum
I 12, 24 eða 36 mánuði.
10.000 kr.
afsláttur!
Greiddu ferðina fyrir
10. mars og þú færð
10.000 kr. afslátt af
Stjörnubrottför. Gerðu
verðsamanburð!
að 19%
verðlækkun á
milli ára á ferðum til
Mallorca ef þú greiðir fyrir
10. mars.
erðlækkun á
milli ára á ferðum til
Benidorm ef þú greiðir fyrir
10. mars.
Sumarleyfisferð fyrir fjögurra
manna fjólskyldu fyrir:
4.700 kr. * á mánuði
*Gildir fyrir 10. mars nk. Miðað við 36 mánuði. Ferð til Albir, 16. júní
1997 í tvær vikur, tveirfullorðnir og tvö börn 2-11 ára. Innifalið er
flug, gisting, aksturtil og frá flugvelli erlendis, fararstjórn, flugvallar-
skattar, bókunargjald í alferð, innritunargjald í Keflavík og allur
kostnaður við raðgreiðslusamning. Ferðakostnaður er 133.620 kr.,
vextir og kostn. v/raðgr. er 35.580 kr. Samtals 169.200 kr.
Nýr glæsilegur sérferðabæklingur
kemur út nk. sunnudag!
r-
SamviiMiiferðir-laiiils ýn
Reykjavik: Austurstræti 12 • S. 5691010 • Slmbréf 552 7796 og 5691095 • Innanlandsferðir S. 5691070
Hótel Sögu við Hagatorg *S. 562 2277 • Símbréf 562 2460 Hafnarfjðrður: Bæjarhrauni 14 • S. 565 1155 • Simbréf 565 5355
Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 421 3400 • Simbréf 421 3490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 431 3386 • Símbréf 4311195
Akureyrl: Ráðhústorgi 1 • S. 462 7200 • Simbréf 461 1035 Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 481 1271 • Simbréf 481 2792
ísafjörður: Hafnarstræti 7 • S.456 5390 • Sfmbréf 456 3592 Einnig umboðsmenn um tand allt ■imiuMMíiHMiiimm