Morgunblaðið - 28.02.1997, Page 1

Morgunblaðið - 28.02.1997, Page 1
72 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 49. TBL. 85. ARG. FÖSTUDAGUR 28. FEBRUAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Irar geta loks sótt um lög- skilnað Dyflinni. Reuter. ÍRSK hjón gátu í gær sótt um lögskilnað í fyrsta sinn frá því írland fékk sín fyrstu stjórnlög árið 1920, en alla tíð síðan hef- ur hinum kaþólsku íbúum ír- lands verið meinað að slíta hjónabandi. Lög sem heimiluðu hjónaskilnaði voru samþykkt með naumum meirihluta í þjóð- aratkvæðagreiðslu árið 1995, en lögin gengu ekki strax i gildi. Gert er ráð fyrir, að um 1/4 þeirra 45.000 hjóna, sem skilin eru að borði og sæng, muni sækja um lögskilnað. I gær nýttu sér þó aðeins nokkur hundruð þeirra sér þennan ný- fengna rétt. Það kann þó að taka langan tíma áður en hjónaböndum þessa fólks verður slitið. Tafir á afgreiðslu skilnaðarumsókn- anna eru fyrirsjáanlegar vegna vandkvæða í dómskerfínu, sem tengjast öflugum þrýstingi sem andstæðingar hjónaskilnaða beita dómstólana, en vandamál- ið er ekki sízt takmarkað fram- boð á dómsölum, sem setja því hömlur hve mörg skilnaðarmál er unnt að leiða til lykta á þann veg sem lög gera ráð fyrir. Reuter. Major í minnihluta BEN Chatman, frambjóðandi brezka Verkamannaflokksins, greiðir atkvæði i aukakosningum sem fram fóru í gær í kjördæm- inu Wirral South á NV-Englandi. Mikil kjörsókn var í þessum síð- ustu aukakosningum áður en allir Bretar ganga til þingkosninga í vor. Samkvæmt síðustu kosning- aspám áður en blaðið fór í prent- un benti allt til öruggs sigurs Chatmans. Verkamannaflokkur- inn hefur aldrei áður unnið þing- sæti í Wirral South. Þótt sljórn íhaldsflokksins tapaði þar með þingmeirihluta sínum hefur Sam- bandsflokkur Norður-íra heitið að veija hana falli. Reuter. ÍSRAELSKIR hermenn halda aftur af palestínskum mótmælendum, sem söfnuðust saman við hæðir í Austur-Jerúsalem, þar sem ísraelsk stjórnvöld ætla að byggja nýtt íbúðarhverfi fyrir 25.000 gyðinga. Stefna Israels harðlega gagnrýnd Jerúsalem, Nablus, París. Reuter. ÁKVÖRÐUN ríkisstjómar ísraels um að byggja skuli nýtt íbúðarhverfí fyrir gyðinga í austurhluta Jerúsalem, var harkalega gagnrýnd af ríkis- stjórnum víða um heim í gær. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, fordæmdi ákvörðunina, og sagði hana brot á samþykktum Sameinuðu þjóð- anna og á Hebron-samkomulaginu, sem Bandaríkin hefðu gengizt í ábyrgð fyrir. Bill Clinton Bandaríkjaforseti harmaði þetta skref ísraelsstjórnar. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, Nicholas Burns, sagði að „Bandaríkin hefðu kosið að þessi ákvörðun hefði ekki verið tekin.“ 25% sjö ára barna í megrun ÞRIÐJUNGUR sænskra barna á sjö ára aldri vill grennast og fjórðungur þeirra hefur þegar farið í megrun, ef marka má nýlega rannsókn í Svíþjóð, að sögn Svenska Dagbladet. „Við komumst að því að jafnvel sjö ára börn reyna að grennast," hafði blaðið eftir Birgittu Edlund, sem hefur skrifað doktorsritgerð um af- stöðu barna og unglinga til megrunar. Megrun eykst með aldri Samkvæmt rannsóknum, sem ritgerðin er byggð á, hafa 25% sjö ára barna farið í megr- un og hlutfallið nær þrefaldast meðal barna á aldrinum sjö til fjórtán ára. 60% stúlkna á aldrinum tíu til sextán ára sögðust hafa farið í megrun og 17% drengj- anna í sama aldurshópi. Hervé de Charette, utanríkisráð- herra Frakklands, sagði ákvörðun- ina „mjög alvarlegt vandamál". Einnig gagnrýndu Sýrland, Egypta- land, Bretland, Ítalía, Kína og Japan ákvörðunina og lýstu áhyggjum af afleiðingum hennar. Leiðtogar Palestínumanna fund- uðu í gær með Arafat í bænum Nablus á Vesturbakkanum. Við komuna þangað sagðist Arafat for- dæma ákvörðunina en sagði ekkert um hvernig hann hygðist bregðast við að öðru leyti. Stjórnmálaskýr- endur telja ólíklegt að hann blási til átaka, einkum með tilliti til þess að hann á að hitta Clinton Banda- ríkjaforseta í næstu viku. Hamas, samtök róttækra Palestínumanna, hótuðu hins vegar hryðjuverkaárás- um á ísrael. Arababandalagið hefur boðað til sérstaks fundar um málið á sunnudaginn. Leynilegt samkomulag? ísraelska dagblaðið Haaretz sagði frá því í gær að Netanyahu og Arafat hefðu gert með sér munn- legt samkomulag um íbúðarbygg- ingarnar. Samkvæmt því hefði Ara- fat heitið því að halda mótmælum Palestínumanna í skefjum vegna ákvörðunarinnar um að í byggingu íbúðanna skuli ráðizt. Netanyahu á að hafa heitið því á móti, að þegar til þess kemur næst að ísraelar dragi sig til baka af hernumdu svæðunum á Vesturbakka Jórdan- ár, muni þeir skila stærra land- svæði en um var samið. Talsmenn beggja fylkinga sögðu ekkert hæft í þessari frétt blaðsins. Höfðar mái/21 Flóð í Þýzkalandi Reuter ÁR flæddu yfir bakka sína í suð- vesturhluta Þýskalands í gær vegna úrhellis og flóðin ollu miklu umferðaröngþveiti í nokkrum bæjum. Loka varð fjölförnum göt- um í miðbæ Heidelberg og umferð um nokkra þjóðvegi lokaðist. Hér sjást slökkviliðsmenn feija íbúa Cochem við ána Mósel milli húsa í vatnselgnum á götum bæjarins. Dirfskulegur flótti frá N-Kóreu Seoul. Reuter. ^ NORÐUR-kóresk kona á þrítugsaldri flúði ber- fætt yfir jarðsprengjubelti og gaddavírsgirðingar til Suður-Kóreu í gær, að sögn varnarmálaráðu- neytisins í Seoul. Konan fór yfir fjögurra km breitt hlutlaust belti milli kóresku ríkjanna og embættismenn ráðuneytisins vildu ekki skýra frá því hvernig hún komst framhjá fjölmennum hersveitum Norður- Kóreumanna við landamærin. „Hún var berfætt og í svartri peysu en við vilj- um ekki veita frekari upplýsingar um hana þar sem við verðum að vernda norður-kóreska flótta- menn,“ sagði talsmaður ráðuneytisins. Hlutlausa beltið var markað í vopnahléssam- komulaginu frá árinu 1953 sem batt enda á Kóreu- Ung kona fór berfætt yfir j arðsprengjubelti stríðið en síðan hafa þúsundir jarðsprengna verið lagðar á svæðinu. Bæði ríkin hafa komið þar fyr- ir fjölmörgum háþróuðum vopnum. Konan fannst nálægt suður-kóreskri varðstöð og kvaðst hafa flúið fátækt í heimalandinu, sem stendur frammi fyrir hungursneyð vegna flóða sem eyðilögðu kornuppskeru landsmanna tvö ár í röð. Suður-kóreskir embættismenn sögðust hafa ákveðið að veita ekki upplýsingar um flóttamenn frá Norður-Kóreu þar sem óttast væri að útsendar- ar kommúnistastjórnarinnar í Pyongyang réðu þá af dögum. Einn flóttamannanna lést á sjúkrahúsi á þriðjudag eftir að hafa fengið skot í höfuðið fyrr í mánuðinum og útför hans fór fram í gær. Talsmaður utanríkisráðuneytisins í Seoul sagði að flótti konunnar myndi ekki hafa áhrif á viðræð- ur Suður-Kóreumanna og Kínveija um Hwang Jang-yop, hæst setta embættismanninn sem hefur flúið frá N-Kóreu. Hwang hefur verið í suður-kór- eska sendiráðinu í Peking frá því hann leitaði þangað til að óska eftir hæli í S-Kóreu 12. febr- úar. Viðræðurnar hófust að nýju á miðvikudag. Talsmaður utanríkisráðuneytisins kvaðst telja að Kínveijum væri umhugað um að ergja ekki banda- menn sína í Pyongyang en myndu þó að lokum fallast á að heimila Hwang að fara til S-Kóreu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.