Morgunblaðið - 28.02.1997, Síða 10

Morgunblaðið - 28.02.1997, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Umræður um stöðu aldraðra á Alþingi Ellilífeyrir fylgi verð- breytingum Morgunblaðið/Þorkell ELDRI borgarar fjölmenntu á áheyrendapalla til að hlusta á utandag- skrárumræðu um stöðu þeirra í skatta- og almannatryggingakerfinu. Búnaðarbanki íslands Eðlileg krafa Kaup- mannasamtakanna FRIÐRIK Sophusson ú'át'málaráð- herra segir eðlilegra að ellilífeyrir taki mið af verðlagsbreytingum en launum. Hann segir að engu að síður verði lífeyririnn tekinn til endurskoðunar í kjölfar kjara- samninga. Þetta kom fram í um- ræðum utan dagskrár á Alþingi í gær um stöðu eldri borgara í skatta- og almannatryggingakerf- inu. Félag eidri borgara í Reykjavík hefur bent á það að jaðarskattar hafi mikil áhrif á kjör aldraðra. Sýnt hefur verið fram á að tíu þúsund króna hækkun lífeyris- sjóðstekna leiði í raun til tekju- missis þegar tekið sé tillit til jaðar- áhrifa. Tekjutrygging og heimilis- uppbót lækka og ef tekjur fara yfir 75 þúsund krónur fellur niður lyijauppbót og undanþága frá af- notagjöldum sjónvarps og útvarps. Agúst Einarsson, þingmaður Þingflokks jafnaðarmanna, og málshefjandi, tók jaðaráhrifin til umræðu á þingi í gær og spurði hvort fjármálaráðherra myndi beita sér fyrir því að dregið yrði úr tekjutenginu bóta og lífeyris. Hann benti á að haft hefði verið eftir Ingibjörgu Pálmadóttur heil- brigðisráðherra fyrir skömmu að hún væri hlynnt þvi að ellilífeyrir yrði að nýju tengdur almennum launakjörum. Ágúst spurði einnig hvort gert væri ráð fyrir að aldrað- ir fengju að taka þátt í tillögugerð um endurbætur á skattakerfinu, eins og aðilar vinnumarkaðarins. Loks nefndi Ágúst að ellilífeyrir væri hér á landi 2,32% af lands- framleiðslu en í Svíþjóð væri hlut- fallið um 10%. Hann sagði að Þing- flokkur jafnaðarmanna myndi kalla eftir frekari upplýsingum um stöðu eldri borgara hér á landi og í nágrannalöndunum. Aldraðir fá ekki fulltrúa í jaðarskattanefnd Fjármálaráðherra sagði að ekki væri ráðgert að eldri borgarar fengju fulltrúa í jaðarskattanefnd, en að ýmis samtök þeirra hefðu komið sjónarmiðum sínum á fram- færi við formann hennar. Hann benti á að starfandi væri nefnd á vegum heilbrigðisráðherra við að endurskoða lög um almannatrygg- ingar og í henni ætti fulltrúi Landssamtaka aldraðra sæti. Nefndinni væri ætlað að einfalda bótakerfið og að nýta betur fjár- magnið til þeirra sem mest þurfa á því að halda og rætt hefði verið um jaðaráhrif í því sambandi. Frið- rik tók undir það að jaðaráhrif í bótakerfínu væru mikil og gætu orðið mun meiri en í skattkerfinu. STEFÁN Pálsson bankastjóri Bún- aðarbanka íslands telur eðlilegt að Kaupmannasamtökin skori á kaup- menn og smásala að krefjast fram- vísunar debetkorta þegar greitt er með ávísunum. „Áður var bankakort án myndar notað og við vissum af því að það tryggði ekki að viðkomandi væri sá sem hann sagðist vera. Með út- gáfu debetkorta með mynd er slíkt skilríki orðið sönnun. Mér finnst mjög eðlilegt að þeir sem taki við tékkum vilji að þeir sem greiði með þeim sanni hverjir þeir eru,“ sagði Stefán. Stefán sagði að bankarnir ábyrgðust allir allt að tíu þúsund krónum í formi ávísana ef framvís- að væri debetkorti. Tvenns konar debetkort eru tii. Annars vegar kort með tékkaábyrgðarnúmeri og hins vegar án þess. Debetkort án tékkaábyrgðarnúmers gefur til kynna að handhafi slíks korts eigi ekki að hafa tékkhefti. Ranghermt var í Morgunblaðinu að íslandsbanki ábyrgðist ávísanir að flárhæð 10 þúsund krónur, án þess að framvísa þyrfti debetkorti. Ragnar Önundarson, framkvæmda- stjóri hjá íslandsbanka, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að bankinn hefði hætt að ábyrgjast slíkar ávísanir 1. janúar 1995 og hvetti viðskiptavini sína eindregið til notkunar debetkorta. Búnaðarþing Bændur ósáttir við álver KJARAMÁL, umhverfismál, af- nám kjarnfóðurgjalds, endurskoð- un verðlagsgrundvallarins og jarð- hitaréttindi voru meðal þess sem rætt var á búnaðarþingi í gær. Kjaramálaályktun var afgreidd til annarrar umræðu og í ályktun um álver sem einnig var samþykkt til annarrar umræðu segir að stað- setning álvers á Grundartanga geti ekki talist viðunandi. Fjölmargir búnaðarþingsfull- trúar úr einstökum landshlutum hafa ályktað og lagt fyrir búnaðar- þing drög að ályktunum um kjara- mál. Sammerkt er með tillögunum að í þeim er lagt til að kjör bænda verði könnuð. Þannig eru Bænda- samtökin hvött til að kanna hvem- ig reka megi öfluga kjarabaráttu og búnaðarþing hvatt til að taka kjaramálin til umræðu og móta stefnu. í ályktun um álver á Grundar- tanga segir að marka þurfi skýra stefnu við uppbyggingu stóriðju á íslandi sem hafí það að leiðarljósi að henni sé valinn staður þar sem hún trufli sem minnst þá atvinnu sem fyrir er. Krefst þingið þess að bestu mengunarvarnir séu nýtt- ar og að staðsetning álvers við Grundartanga geti ekki talist við- unandi með tilliti til hreinleika og ímyndar í landbúnaði þar sem í Hvalfirði sé bæði að finna land- búnað og ferðaþjónustu. Stefnt er að því að störfum búnaðarþings Ijúki á morgun. Ráðgert er að spara 60 milljónir á þessu ári í rekstri sjúkrahúsanna á landsbyggðinni Menn að falla á tíma varðandi niðurskurðinn Fundur verður í dag um tillögur um 160 millj. kr. niðurskurð í rekstrí sjúkrahúsa á landsbyggðinni. Á fundinum munu takast á sjónarmið fulltrúa landsbyggðarinnar og sveitarféiaganna og stjómvalda. Áætlaður niðurskurður á framlögum til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni 1997-1999 Milljónir kr. skv. frumvarpi 1997 Áætlaður niðurskurður, milljónir kr. Stofnun í/á 1997 1998 1999 Hlutf. ’99 Stykkishólmi 114,5 3,4 6,9 9,2 8% ísafirði 218,8 5,0 10,1 13,5 6% Patreksfirði 76,6 4,5 9,1 12,1 16% Sauðárkróki 291,1 9,2 18,5 24,6 8% Siglufirði 141,2 6,3 12,6 16,9 12% Blönduósi 128,3 5,0 9,9 13,3 10% Hvammstanga 94,1 3,6 7,2 9,7 10% Húsavík 247,2 7,8 15,7 20,9 8% Neskaupstað 177,6 0,9 1,9 2,5 1% Egilsstöðum 110,8 1,9 3,8 5,0 5% Seyðisfirði 91,3 8,0 16,0 21,4 23% Vestmannaeyjum 189,3 4,1 8,2 11,0 6% SAMTALS 1.881,0 60,0 120,0 160,0 9% LANDSHLUTASAMTÖK sveitar- félaga hafa boðað til fundar með sveitarfélögum í landinu vegna fyr- irhugaðs 160 milljóna króna niður- skurðar fjárveitinga til næstu þriggja ára til tólf sjúkrahúsa á landsbyggðinni. Til fundarins eru boðuð stjórnvöld heilbrigðismála, yfirmenn sjúkrahúsa og þingmenn viðkomandi landshluta. Mikil óánægja er meðal sveitarstjórnar- manna og stjórnenda sjúkrahús- anna með niðurskurðartiílögurnar. Kristján Erlendsson, skrifstofu- stjóri heilbrigðisráðuneytisins og formaður verkefnastjórnar um nið- urskurðartillögur, segir að menn séu að falla á tíma varðandi niður- skurðinn fyrir þetta ár sem sam- kvæmt tillögum verkefnastjórnar- innar átti að vera 60 milljónir króna. Kristján segir að fundað hafi verið með fulltrúum allra sjúkra- stofnana sem þetta kemur til með að snerta í lok janúar. „Svör hafa borist frá þeim og ber mikið á því að talað sé um að- för að sjúkrahúsunum. Það sem gerist næst er að við munum halda fundi á hveijum stað og fara yfir rekstrarþættina í marsmánuði. Að því loknu munum við koma með tillögur. Áður hafa aðeins komið fram ákveðnar hugmyndir um það hvernig mætti skipta niðurskurðin- um niður á stofnanirnár og ákveðin svæði. Tölurnar voru reiknaðar út frá ákveðinni formúlu sem byggðist á landsmeðaltali, hvað þyrfti mörg almenn sjúkrarúm á hveija þúsund íbúa og hjúkrunarrými miðað við hve margir yfír sjötugt væru á svæðinu. Við mátum þörfina miðað við hvað teldist eðlilegt umfang starfseminnar og síðan settum við á það kostnaðartölur miðað við þær upplýsingar sem við höfðum annars staðar að á landinu," sagði Kristján. Kristján segir að þetta hafi verið hugmyndir til umræðu en ekki föst og klár niðurstaða. Verði hagræð- ingarkröfur til eins sjúkrahúss hins vegar minnkaðar þurfi að auka þær til annars sjúkrahúss eigi að ná þeirri niðurstöðu sem stefnt er að. Kristján segir að með hugmynd- unum sem settar voru fram fari af stað umræða um það hvernig fag- legu þjónustunni verði best fyrir komið. „Það getur vel verið að það verði að fresta eitthvað sparnaðar- tillögunum en það er mjög mikil- vægt að þessi umræða fari af stað,“ sagði Kristján. Hann sagði að heilbrigðisþjónust- an væri að breytast hvarvetna í heiminum. Verið væri að fækka sjúkrarúmum og færa meiri starf- semi inn á dagdeildirnar og þjón- ustu utan spítalanna. Frá 1991 hafi sjúkrarúmum til að mynda fækkað um 90 á handlækninga- deildum stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík og á spítölum suður með sjó. Styttri lega er eftir aðgerðir núna og því ekki þörf á jafnmörgum sjúkrarúmum. Kristján viðurkennir að það hafi hleypt illu blóði í menn að bera til- lögurnar á borð með þessum hætti en það hafi þó alls ekki verið takt- ísk mistök. „Hefðum við boðað menn á fund í haust án þess að hafa neitt í höndunum hefðum við fengið þau svör að ekkert væri hægt að spara. Alþingi hefur falið okkur að ná þessum sparnaði, 160 milljónum á þremur árum og þar af 60 milljónum á þessu ári. Það mætti hins vegar segja að við séum að falla á tíma með sparnaðinn í ár,“ sagði Kristján. Tillögurnar fela í sér byggðaröskun Kristján segir að best sé að ganga í svona aðgerðir í fullu sam- ráði við heimafólk. Það sé mjög viðkvæmt að skera niður starfsem- ina á stórum sjúkrahúsum á tiltölu- lega fámennum stöðum. Þar skipti niðurskurðurinn ekki síður miklu máli út frá atvinnulegu sjónarmiði. Ekki sé hægt að horfa fram hjá byggða- og atvinnuþættinum í þessu sambandi. Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík, segir að auk þingmanna viðkomandi kjördæma hafi verið boðið á fundinn nk. föstudag heil- brigðisráðherra, yfirmönnum sjúkrahúsanna og læknum á lands- byggðinni. Einar segir að mikill hiti sé í mönnum vegna þeirra hugmynda sem verkefnastjórnin hefur lagt fram. „Við höfnum því að hægt sé að skera niður einu sinni enn á þessu sviði án þess að skerða þjónustuna. Skerðist þjónustan frá því sem nú er ógnar það framtíð byggðanna og leiðir af sér byggðaröskun. Ég tel að byggðaröskunin sé jafn óheppileg fyrir þéttbýlið á suðvest- urhorninu eins og hún er fyrir landsbyggðina. Niðurskurðurinn er í sjúkrahúsunum en röskunin snert- ir allt samfélagið. Við mótmælum því einnig að þarna sé um raunveru- legan niðurskurð að ræða þegar lit- ið er til hagsmuna þjóðarinnar allr- ar því kostnaðurinn mun aukast annars staðar í staðinn og heildar- útgjöld ekki minnka,“ sagði Einar. Hann segir nauðsynlegt að fram komi hver sé raunverulegur kostn- aður á hvern íbúa við rekstur sjúkrahúsanna annars vegar á landsbyggðinni og hins vegar á Reykjavíkursvæðinu. Ríkisspítalar og Sjúkrahús Reykjavíkur séu há- tæknisjúkrahús. „Okkur finnst nauðsynlegt að hægt sé að greina kostnaðinn þar við almenna þjónustu, eins og sjúkrahúsin á landsbyggðinni veita. Stóru sjúkrahúsin eru héraðs- sjúkrahús fyrir Reykjavík. Við telj- um að mun hagkvæmara sé að gera ákveðnar aðgerðir á minni sjúkrahúsunum heldur en að flytja sjúklingana til Reykjavíkur og leggja þá inn á stóru sjúkrahúsin. Þar eru fullkomnari skurðstofur en nauðsynlegt er við margar aðgerð- ir,“ segir Einar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.