Morgunblaðið - 28.02.1997, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
FRÁ æfingii nemenda Menntaskólans að Laugarvatni á Kabarett.
Sýning
Nönnu
Ditzel
SÝNINGAR á húsgögnum,
skartgripum og textílum eftir
danska listhönnuðinn Nönnu
Ditzel verður opnuð í Ráðhúsi
Reykjavíkur í dag kl. 16.
Sendiherra Danmerkur,
Klaus 0. Kappel flytur ávarp.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri opnar sýninguna,
en henni lýkur 23. mars.
Sunnudaginn 2. mars held-
ur Nanna Ditzel fyrirlestur
um verk sín í Ráðhúsinu kl.
16.00
Danska sendráðið og Nor-
ræna húsið standa að sýning-
unni. Eyjólfur Pálsson og
Stefán Snæbjörnsson önnuð-
ust undirbúning og útlit sýn-
ingarinnar í samvinnu við
Nönnu Ditzel.
K ARL AK V ARTETTINN
Út í vorið.
Út í vorið á
Hvolsvelli
KARLAKVARTETTINN Út í
vorið heldur söngtónleika í
félagsheimilinu Hvoli á morg-
un, laugardag, kl. 16.
Efnisskráin mótast af þeirri
hefð, sem ríkti meðal ís-
lenskra karlakvartetta fyrr á
öldinni og hefur einkum verið
sótt í sjóði Leikbræðra og MA
kvartettsins s.s. Haf, blikandi
haf, Capríljóð, Óli lokbrá,
Kveldljóð, Mansöngur og Ó,
Pepíta. Þar er einnig að finna
dæmi um útsetningar Carls
Billich, sem hann gerði fyrir
MA kvartettinn, á dægurlög-
um eftir Schubert fyrri ára.
Þá hefur Bjarni Þór Jónatans-
son útsett iög fyrir kvartett-
inn og verða nokkur þeirra
flutt á tónleikunum. Einnig
eru lög eftir Bellmann á efnis-
skrá. Loks má nefna útsetn-
ingar Magnúsar Ingimarsson-
ar á lögum sem vinsæl voru
fyrir nokkrum áratugum.
Kvartettinn skipa Einar
Clausen, Halldór Torfason,
Þorvaldur Friðriksson og Ás-
geir Böðvarsson, sem allir
hafa verið félagar í Kór Lang-
holtskirkju. Við hljóðfærið er
Bjarni Þ. Jónatansson, sem
jafnframt er aðal þjálfari og
leiðbeinandi kvartettsins,
raddþjálfari er Signý Sæ-
mundsdóttir.
Menntskæl-
ingar að
Laugarvatni
sýna Kabarett
HÓPUR nemenda í Menntaskól-
anum að Laugarvatni hafa und-
anfarin misseri unnið að uppsetn-
ingu söngleiksins Kabaretts eftir
Joe Masteroff með tónlist eftir
Fred Ebb.
I kynningu segir að mikill
fjöldi nemenda hafi lagt metnað
sinn í að gera sýninguna sem
glæsilegasta með hjálp leikstjór-
ans, Ingunnar Jensdóttur og tón-
listar- og söngstjórnendanna
Hilmars Arnar Agnarssonar og
Hjartar Hjartarsonar.
Sýningar hópsins verða sem
hér segir:
Frumsýning verður á árshátíð
menntaskólans laugardaginn 1.
mars kl. 18. Onnur sýning 2.
mars í sal gamla íþróttahússins á
Laugarvatni. 7. mars í Félags-
heimilinu Brún í Borgarfirði. 8.
mars í Félagsheimilinu Þingborg
í Hraungerðishreppi, tvær sýn-
ingar 9. mars í Félagsheimilinu
Gunnarshólma, A-Landeyjum, 11.
mars á Hótel Flúðum, Hruna-
mannahreppi, tvær sýningar 14.
mars í Félagsheimili Kópavogs
og 15. mars í Félagsheimilinu
Leikskálum, Vík í Mýrdal.
♦ ♦ ♦----
Síðasta sýning-
arhelgi Olivurs
MÁLVERKASÝNINGU færeyska
listmálarans Olivurs við Neyst, sem
undanfarið hefur staðið yfir í bak-
sal Gallerís Foldar við Rauðarár-
stíg, lýkur sunnudagir.n 2. mars. Á
sama tíma lýkur kynningu á verk-
um Elínar G. Jóhannsdóttur í kynn-
ingarhorni gallerísins.
Gallerí Fold er opið daglega frá
kl. 10-18, laugardaga frá kl.
10-17 og sunnudaga frá kl. 14-17.
Finnskar og álenskar
bókmenntir kynntar
BÓKAKYNNING á vegum norrænu
sendikennaranna og bókasafns
Norræna hússins verður áfram
haldin 1. og 2. mars í Norræna
húsinu. Að þessu sinni verða finnsk-
ar og álenskar bækur til umfjöllun-
ar.
Laugardaginn 1. mars kl. 16 mun
Marianne Bargum, útgáfustjóri og
framkvæmdastjóri hjá útgáfunni
Söderström & Co. í Helsingfors
fjalla um bókaútgáfuna í Finnlandi
á síðastliðnu ári. Gestur á kynning-
unni verður finnski rihöfundurinn
OIli Jalonen. Hann segir frá verkum
sínum og les upp á sænsku.
Olli Jalonen er fæddur 1954.
Hann er með próf í þjóðfélagsfræð-
um, og hóf snemma að skrifa. Hann
er sagnaskáld sem gjarnan veltir
fyrir sér siðfræðilegum spurning-
um.
Hann sendi frá sér fyrstu bæk-
urnar 1978, smásögur undir heitinu
Unien tausta og skáldsöguna
Sulkaturkki. Hann hefur verið iðinn
við pennann og sent frá sér næstum
árlega bækur af ýmsum toga:
skáldsögur, barnabók og vísindarit.
Skáldsagan Isáksi ja tyttáreksi
(Faðir og dóttir), sem kom út 1990
færði honum Finnlandia-verðlaun-
in 1991 og var bókin tilnefnd til
bókmenntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs 1993.
Síðasta bók Jalonens sem kom
út 1996 heitir Kenen kuvasta kerr-
ot. Nokkrar bóka hans hafa verið
þýddar á norsku og sænsku.
Marianne Bargum, sem ætlar að
segja frá bókmenntaárinu 1991 í
Finnlandi og á Álandseyjum, starf-
aði lengi sem blaðamaður, en síð-
asta áratug hefur hún haft með
höndum að kynna finnskar bók-
menntir utan Finnlands. Hún var
ráðin sem bókmenntaráðunautur
Oli Jalonen
Leo Löthman
1991 hjá finnsk-sænska útgáfufyr-
irtækinu Söderström og Co., og frá
1996 hefur hún verið framkvæmda-
stjóri og útgáfustjóri hjá Söd-
erström.
Sunnudaginn 2. mars kl. 16
verða álenskar bókmenntir kynntar
og annast Marianne Bargum einnig
þá kynningu, og gestur verður rit-
höfundurinn Leo Löthman.
Löthman er fæddur 1948 í Ábo,
en fluttist ungur að árum til Marie-
hamn á Álandseyjum. Hann hefur
fengist við mörg störf um ævina,
m.a. unnið með geðsjúkum, fengist
við skipasmíðar, fiskirækt, skógar-
vörslu, sérkennslu og verslun svo
eitthvað sé nefnt. Hann byijaði
seint að skrifa. Fyrsta bók hans
kom út 1992, skáldsagan Varför
inte Tile og vakti athygli. Hann
hlaut viðurkenningu og styrk fyrir
skáldsöguna frá Nordisk Minist-
errád, einnig frá Sænska menning-
arsjóðnum og landstjórn Álands-
eyja. Önnur bók hans H.C. Damö
kom út 1994 og hann vinnur nú
að þriðju skáldsögunni.
Bók hans, Varför inte Tile, hefur
verið lýst sem nútíma skelmissögu,
sem er blönduð hálu háði.
Norskar bókmenntir verða á dag-
skrá laugardaginn 8. mars og þá
verður rithöfundurinn Kjell Askild-
sen gestur á kynningunni.
Burtfararpróf frá Nýja
tónlistarskólanum
KATLA Björk Rannversdótt-
ir lýkur prófi sínu með opin-
berum tónleikum í Gerðu-
bergi, á sunnudaginn kl. 16.
Katla, sópran, hóf nám í
Tónlistarskólanum í Kópa-
vogi, lærði þar á fiðlu og
píanó. Katla söng í kór
Menntaskólans í Kópavogi
og einnig í Söngsveit Fil-
harmoníu.
Katla hóf söngnám hjáEl-
ínu Sigurvinsdóttur, en sl. fimm ár
hefur hún verið í Nýja tónlistarskól-
anum, en aðalkennari hennar þar er
Signý Sæmundsdóttir. Katla hefur
komið fram sem einsöngvari, bæði
innan og utan skólans, m.a. söng hún
hlutverk Papagenu í uppfærslu skól-
Katla
ans á Töfraflautunni eftir
W.A. Mozart. Nú æfír Katla
hlutverk Hannerl í söng-
leiknum Meyjarskemmunni
eftir þá Fr. Schubert og
Berté, en söngleikurinn
verður sýndur í lok marz-
mánaðar í tilefni tveggja
alda fæðingarafmælis Schu-
berts.
Björk Viðfangsefni á tónleik-
unum eru ma. aríur eftir
Purcell, MoZart, Donizetti og fl. Ljóð
eftir m.a. Schubert, Schumann,
Britten og Bizet og Lög handa litlu
fólki, eftir Þorkel Sigurbjörnsson.
Píanóleikari á tónleikunum verður
Vilhelmina Ólafsdóttir, píanókenn-
ari.
Gömlu þýsku meistararnir
HELGA Þórarinsdóttir víólu-
leikari og Miklós Damay píanó-
leikari halda tónleika í Lista-
safni Islands á morgun, laugar-
dag, kl. 17. Helga er í árs leyfi
frá störfum við Sinfóníuhljóm-
sveit íslands þar sem hún er
fyrsti víóluleikari. Miklós er
Ungveiji, búsettur á íslandi.
Hann hlaut Tónvakaverðlaun
Ríkisútvarpsins fyrr í vetur.
Helga hefur verið búsett í
Minnisóta í vetur og hefur leik-
ið fyrir þarlenda áheyrendur
sömu verk og hún mun flytja á
tónleikunum í Listasafninu.
„Þetta eru gömlu þýsku meist-
ararnir; Bach, Schumann, Beet-
hoven og Brahms. Þessi efnis-
skrá er mjög þægileg og létt
áheyrnar, enda var mér sagt
úti í Minnesóta að það þýddi
ekkert annað en að hafa hana þann-
ig. En um leið og þetta eru áheyri-
leg verk þá eru þau öll í miklu uppá-
haldi hjá mér.“
MIKLÓS Dalmay og Helga Þórarins-
dóttir leika saman á píanó og víólu í
Listasafni íslands á morgun.
Leikin verðuir Sónata nr. 3 í g-
moll eftir Bach. Verkið var samið
fyrir gömbu og sembal eins og tvær
aðrar sónötur sem tónskaldið samdi
á árunum 1717 til 1723. „Það
hefur verið mjög í tísku undan-
farin ár,“ segir Helga, „að spila
þessi verk og önnur frá barokk-
tíma á upprunaleg hljóðfæri en
ég held að það sé að breytast
svolítið aftur. Fólk er búið að
fá svolitla leið á kennimennsk-
unni. Gamban og harpsikordin
hafa þynnri tón en þau hljóð-
færi sem við erum að nota núna
og gefa ekki jafn mikla mögu-
leika á blæðandi túlkun.“
Eftir Schumann verða leiknar
Ævintýramyndirnar sem hann
samdi árið 1851. Hafí tónskáldið
haft ákveðin ævintýri í huga
þegar hann samdi verkið þá lét
hann aldrei uppi hver þau væru.
Eftir Beethoven verður flutt
Rómansa í F-dúr, opus 50 sem
samin var árið 1802. Og eftir
Brahms verður flutt Sónata í Es-
dúr, opus 120, nr. 2. Verkið er sam-
ið árið 1894, þremur árum fyrir
dauða Brahms.
Frátekið
borð
TVÆR sýningar verða um
helgina á einþáttungnum Frá-
tekið borð eftir Jónínu Leós-
dóttur. í Borgarieikhúsinu verð-
ur sýning kl. 16 á laugardag,
og á Hótel Örk í Hveragerði
kl. 21 á sunnudag.
Frátekið borð er örlagaflétta
í einum þætti um tvær konur
sem setjast við sama borð á
veitingastað. Þær þekkjast ekki
en eiga samt sitthvað sameigin-
legt. Leikarar eru Bryndís Petra
Bragadóttir, Saga Jónsdóttir og
Soffía Jakobsdóttir. Leikstjóri
er Ásdís Skúladóttir.
Galleríkeðjan
Sýnirými
kynnir sýn-
ingar í mars
ÞÓRARINN Blöndal opnar sýn-
ingu í gallerí Sýniboxi við
Vatnsstíg. í gallerí Barmi mun
skáldið Margrét Lóa Jónsdóttir
sýna ljóðasafn sitt „Úrval“ sem
er úr fimm bókum hennar frá
1985 til 1996. Vegna smæðar
gallerísins er hér um afar smáa
bók að ræða og eflaust minnsta
Ijóðasafn sem gert hefur verið
hérlendis. Sýningin verður opn-
uð í þætti Hemma Gunn á laug-
ardagskvöldið og mun Hemmi
Gunn sjálfur bera galleríið
þennan mánuð. I símsvaragall-
eríinu Hlust (s:551 4348) verð-
ur frumflutt símaleikritið „Pa-
perdog“ eftir Sigtrygg Magna-
son. Leikendur eru: Jón Ingi
Hákonarson, Álfhildur Þórðar-
dóttir og Sigtryggur Magnason.
Hinn 8. mars kl. 16 hefur
göngu sýna nýtt sýnirými sem
ber heitið 20m2, það er staðsett
á Vesturgötu lOa og er 20 fer-
metrar að stærð og í umsjón
Helga Hjaltalín Eyjólfssonar.
Fyrstu sýningu í 20m2 heldur
Hannes Lárusson og ber hún
heitið „Svart-hvítt“.
Feðg’in sýna
FEÐGININ Bjöm Halldórsson
gullsmiður og Gæflaug Bjöms-
dóttir opna sýningu í Listasetr-
inu Kirkjuhvoli, Akranesi, á
laugardag.
Bjöm sýnir myndir sem hann
teiknaði þegar hann var við
nám í Iðnskólanum í Reykajvík
árin 1946-1948. Hann sýnir
einnig listmuni úr tré, silfri og
gulli.
Gæflaug sýnir myndir sem
hún hefur unnið með mismun-
andi aðferðum. Hún hefur lokið
námskeiðum í Myndlistaskóla
Reykjavíkur og lýðháskóla í
Danmörku.
Sýningin stendurtil 16. mars
og verður Listasetrið opið virka
daga frá kl. 19-21 og frá kl.
15-18 um helgar.
Sýningn
Helg’u í World
Class að ljúka
MYNDLISTARSÝNINGU
Helgu Sigurðardóttur í líkams-
ræktarstöðinni World Class,
lýkur nú um helgina.
í kynningu segir m.a. að við-
fangsefni sýningarinnar sé mik-
ilvægi meðvitaðrar sameiningar
líkama og sálar. Helga hefur
unnið við gerð „vemndar-
mynda“ til margra ára og kallar
list sína „List sálarinnar".
Sýningin er opin alla daga
til kl. 17, og til kl. 19 laugar-
dag og sunnudag.
I tengslum við sýninguna
hafa verið gefín út kort um
talnaspeki, en frummyndimar
eru m.a. á sýningunni.