Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ KJARASAMIMIIMGAR UNDIRRITAÐIR Forstjóri Þjóðhagsstofnunar um áhrif nýrra samninga Viðskiptahalli og aukin verðbólga Talið er að 2% halli verði á þjóðar- búskapnum Verkefni stjórnvalda að draga úr verðbólgunni „Það má segja að þetta sé ekki óviðunandi niðurstaða þegar alls er gætt, þótt vita- skuld hefði verið æskilegra að halda verðbólgunni á svipuðu róli og í viðskiptalöndum okkar og ná jafnvægi á viðskiptunum við útlönd. Það er í þessu eins og svo mörgu öðru, enginn er himinlifandi," segir hann. Hann leggur á það áherslu að það sé verkefni stjórnvalda að reyna að draga úr viðskiptahallanum og verðbólgunni. „A móti þessu kemur einnig að verið er að semja til langs tíma og það hefur væntanlega í för með sér áframhaldandi stöðugleika. Það gefur fyrirtækjunum tíma og færi til að ná árangri í að auka framleiðni og dregur úr þenslu- áhrifum samninganna,“ segir forstjóri Þjóðhagsstofnunar. Grípa þarf til aðgerða í peningamálum „Það er grundvallaratriði að koma í veg fyrir að þenslan nái að grafa um sig. Til þess þarf að beita aðgerðum í peninga- málum,“ segir Þórður um hugs- anlegar mótvægisaðgerðir. Spurður um vaxtahækkanir segir hann að þær þurfi ekki endilega að verða og bendir á að vextir hér séu háir. Hins vegar væri ljóst að vextir verði hærri en þeir hefðu ella orðið. Þá segir hann mikilvægt að reynt verði að halda eins mikið aftur af ríkisútgjöldum og unnt væri, sérstaklega á meðan þungi framkvæmda við virkjan- ir og byggingu stóriðjuvera væri mestur. UM 2% halli verður á þjóðarbú- skapnum og verðbólga hálfu til einu prósenti meiri en í helstu viðskiptalöndum, verði almennt samið á þeim nótum sem vinnu- veitendur sömdu í gær um við landsambönd og nokkur félög innan Alþýðusambands íslands. „Þetta stefnir í einhverskon- ar jafnvægi óánægjunnar. Allir hafa þurft að gefa eitthvað eft- ir,“ sagði Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, síðdegis í gær um áhrif samn- inganna. „Það liggur í augum uppi að menn eru að teygja sig ansi langt.“ Ráðstöfunartekjur aukast meira en ráð var fyrir gert Þórður segir að samningam- ir og tillögur ríkisstjórnarinnar í skattamálum feli í sér að ráð- stöfunartekjumar aukist í heild meira en gert hefur verið ráð fyrir. Það þýðir að þjóðarút- gjöld aukast meira en gert var ráð fyrir og jafnframt halli á viðskiptum landsmanna við út- lönd. Það hefur stefnt í að jöfn- uður næðist á viðskiptin en eft- ir þessa samninga gerir Þjóð- hagsstofnun ráð fyrir að hallinn verði 2%, þegar dregin hafa verið frá áhrif vegna fram- kvæmda við virkjanir og stór- iðjuver. Samningarnir fela það einnig í sér að verðbólga verður 2'h til 3% til jafnaðar á samnings- tímabilinu en að vísu nokkuð mismunandi milli tímabila. Að óbreyttu hefði verðbólgan orðið 2% eða svipuð og í helstu við- skiptalöndum Islendinga. Verð- bólgan verður því hálfu til einu prósenti meiri en nú. Morgunblaðið/Ámi Sæberg SAGA Dögg var í afdrepi verkfallsvarða með pabba sínum, Þresti Sigurðssyni. Verkfallsverðir höfðu á orði að hún yrði tilbúin í slaginn með þeim næst þegar samningar yrðu lausir, svo langur væri gildistími nýrra samninga. Verkfallsverðir Dagsbrúnar ósáttir við kjarasamning „Ekki hægt að samþykkja svona rugl“ „STJÓRN félagsins er sú eina sem er sátt við þennan samning. Við getum ekki sætt okkur við að ná ekki fram grundvallaratr- iðum, eins og 70 þúsund króna lágmarkstaxta. Núna er talað um að lægstu laun verði komin 170 þúsund um næstu áramót, en það verður gert með ein- hverjum bónusum og sporslum. Taxtinn verður ekki hækkaður í 70 þúsund því þar með þyrfti að hækka ýmsar bætur sem miðast við lágmarkslaunin. Þetta þýðir að yfirvinna og næt- urvinna, sem reiknast sem hlut- fall af taxtanum, hækkar ekki. Það er ekki hægt að samþykkja svona rugl.“ Þetta sögðu verkfallsverðir Dagsbrúnar, sem sátu í húsnæði verkamannafélagsins í Skipholti skömmu fyrir hádegi í gær. Við- mælendur Morgunblaðsins voru þeir Gýmir Guðlaugsson, Jón Ingvarsson og Eyþór Þorgríms- son. Þeir áttu von á að fá um það boð á hverri stundu, að forusta félagsins væri búin að skrifa undir nýja kjarasamninga. Um 30-40 manns hafa sinnt verk- fallsvörslunni, en í gærmorgun bættust margir í þann hóp, til dæmis starfsmenn Reykjavíkur- borgar, enda var þá allsheijar- verkfall Dagsbrúnar og Fram- sóknar skollið á. „Þetta hefði farið að blossa upp núna. Hingað streymdu menn, enda sáu þeir fram á að nú fyrst færi að reyna fyrir alvöru á verkfallsvörsluna. Við höfum að vísu þurft að passa töluvert upp á sum fyrirtæki, til dæmis Skeljung og Eimskip og sums staðar þurft að vera með sólarhringsvakt.“ Svefnlausir og léttgeggjaðir Verkfallsverðirnir töldu þær fréttir, sem þeir höfðu haft af samningum, benda til að samningamenn væru „svefnlausir og léttgeggjaðir", eins og þeir komust að orði. „Ég hélt að þeir hefðu lært lexíuna sína á þriðjudaginn, þegar samningar voru kolfelldir. Núna skrifa þeir upp á samning sem felur í sér 0,2% í viðbót við þann kolfellda, samningurinn á að gilda í þijú ár og það eru engin almennileg, rauð strik í honum. Samt erum við strax farin að sjá hækkanir, til dæmis hjá Myllunni, Samsölunni og Vífilfelli." Þeir eru sannfærðir um að fólk hafi verið tilbúið að beijast fyrir betri samningum. „Það má vera að forustan nái þessu í gegn, en það verður nú engin yfirburðakosning. Stjórnin hafði 90% fundarmanna með sér á stóra fundinum í Bíóborginni og þeir fá aldrei annan eins stuðning eftir þessa frammistöðu.“ Rjúkum ekki í vinnuna Verkfallsverðir töldu þrátt fyrir þetta að samningurinn yrði samþykktur ef forustan legði á það áherslu. Hins vegar væri ekki víst að forustan héldi velli. „Menn linast í afstöðunni ef því er haldið fram að það hafi ekki verið hægt að ná lengra. En við eigum nú eftir að sjá hvenær verður skrifað undir. Þá þurfum við að funda um málið, svo líklega förum við nú ekkert að ijúka strax í vinnuna.“ Formenn BSRB og BHM um nýgerðan kjarasamning aðila vinnumarkaðarins Varla samnings- grundvöllur FORMAÐUR samninganefndar ríkisins sagði í gær að samningar vinnuveitenda við landssambönd og einstök verkalýðsfélög væru í anda þeirra tillagna sem samn- inganefnd ríkisins hefði lagt fyrir alla viðsemjendur sína. Forystu- mönnum BSRB og BHM leist hins vegar þunglega á að þessir samn- ingar gætu orðið samningsgrund- völlur hjá félögum innan þeirra raða. Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, sagði að ríkið hefði lagt áherslu á að draga úr sjálfvirkum hækkunum, fækka flokkum og einfalda samninga. Þegar rætt var við Gunnar voru viðræður samninganefnda ríkis og Reykjavíkurborgar við Verka- mannasambandið, Samiðn, Dags- brún og Framsókn á lokastigi. „Þeir samningar sem nú er verið að leggja lokahönd á eru í þeim anda,“ sagði hann. Tekur hann fram að áherslur einstakra félaga innan BSRB og BHM séu afar mismunandi og viðræðum við þau verði haldið áfram til að reyna að finna sameiginlegan flöt til lausnar málinu. Greidd laun frekar viðmiðunin „Ég geri ráð fyrir að greidd laun í aimenna kerfinu séu frekar við- miðun fyrir félögin innan BHM en þessir kjarasamningar. Ég sé ekki að samningarnir breyti neinu hjá þeim hópum sem félögin miða sig við,“ sagði Martha Hjálmarsdóttir, formaður BHM, í gær. Hún lagði á það áherslu að fé- lögin hefðu sjálfstæðan samnings- rétt og væru óbundin af öðrum samningum. „Það hefur verið yfir- lýst stefna ríkisins að semja ekki við þessi félög fyrr en samningum á almenna vinnumarkaðnum væri lokið. Það er ábyrgðarleysi hjá vinnuveitanda að semja ekki við starfsmenn sína og kostar félags- menn mikið, nema samningarnir gildi aftur í tírnann," sagði Mart- ha. Kvaðst hún vonast til að nú kæmist skriður á samningana. Vaxandi óþolinmæði „Ég efast ekki um að ríkið býr yfir þeirri óskhyggju að þessir samningar verði grundvöllur samninga við félög innan BSRB. Það er hins vegar ljóst að með slíka samninga myndi ekki ríkja ánægja,“ sagði Ögmundur'Jónas- son formaður BSRB. Hann tók það fram að hann hefði ekki séð samn- ingana en byggði álit sitt á fréttum úr Karphúsinu. „Þeir virðast vera að semja allt of langt fram í tím- ann án uppsagnarákvæða." Ögmundur sagði að það væri vaxandi óþolinmæði í róðum opin- berra starfsmanna og mikil reiði yfir því að fjármálaráðuneytið og Reykjavíkurborg skuli hafa látið þessi félög bíða á meðan verið væri að gera samninga við aðildar- félög ASÍ. „Við spyijum að því hvort þetta sé beinlínis gert til að þæfa samningana," sagði Ög- mundur. Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar, sagði að kröfur félagsins væru á allt öðrum nótum en Reykjavíkurborg væri að semja um við félög innan ASÍ. „Kröfur okkar liggja hvergi undir 80 þúsund krónum og að samið verði til tveggja ára,“ sagði Sjöfn og taldi að umræðan um 70 þúsund kr. lágmarkslaun ætti ekki heima í samningaviðræðum þeirra við borgina. „Þetta er fáránleg um- ræða og innan okkar raða er vax- andi umræða um það hvort það sé virkilega svo að ekki sé farið að tala við fólk fyrr en það er komið í verkfallshugleiðingar,“ sagði Sjöfn. Hún vildi ekkert fullyrða um þróun mála á næstunni, en viður- kenndi að umræðu um verkfalls- boðum yxi fiskur um hrygg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.