Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 MGRGUNBLAÐIÐ A _ Oþekktir Pólveijar Evrópumeistarar EVRÓPUMEISTARARNIR Kierznowski og Lukaszewicz sigurglað- ir með Anderz Orlow formann pólska bridssambandsins á milli sín. BRIDS II a a g, II o 11 a n d i EVRÓPUMÓTIÐ í TVÍMENNINGI Evrópumótíð í tvímenningi fór fram í Haag, Hollandi, 17.-22. mars. Vestur ♦ Á92 VK65 ♦ 1075 *KD98 Norður 4K54 V ÁG432 ♦ 942 ♦ Á3 ÞRJÚ íslensk pör tóku þátt í Evr- ópumótinu í tvímenningi sem hald- ið var í síðustu viku. Ekkert þeirra náði í aðalúrslit mótsins, tvö kom- ust í B-úrsIit en enduðu þar neðan við miðju. Evrópumeistarar urðu Roman Kierznowski og Krzysztof Lukaszewicz frá Póllandi. Evrópumeistararnir nýbökuðu eru óþekktir utan heimalands síns. Kierznowski er fimmtugur skrif- stcfumaður og Lukaszewicz 35 ára rafeindaverkfræðingur. Þeir hafa spilað saman í 7 ár. íslensku pörin voru Bragi Hauksson og Sigtryggur Sigurðs- son, Helgi Sigurðsson og Sigurður B. Þorsteinsson og Hjördís Sigur- jonsdóttir og Ragnheiður Nielsen. í undankeppni voru Bragi og Sig- tryggur mjög nálægt því að kom- ast í undanúrslit en þeir og Sigurð- ur og Helgi náðu síðan í B-úrslit þar sem kepptu 157 pör. Þar end- uðu Bragi og Sigtryggur í 121. sæti og Sigurður og Helgi í 128. sæti. Hjördís og Ragnheiður komust ekki í B-úrslitin og tóku þess í stað þátt í uppbótartvímenningi og enduðu þar í 56. sæti í hópi 64 para. Hollensk þvingun í aðalúrslitunum spiluðu 56 pör. Þar tóku Svíamir Magnus Lind- kvist og Peter Fredin snemma for- ustu, en þeir félagar voru í sigur- sveit Svía á Norðurlandamótinu í fyrra. í lokaumferð úrslitanna gáfu Svíamir eftir og Frakkarnir Quant- in og Abecassis náðu forustunni um tíma en enduðu loks í 2. sæti en Svíarnir duttu í það þriðja. Quantin náði svonefndri hol- lenskri þvingun í þessu spili: Suður ♦ DGl08763 TD ♦ ÁK63 ♦ 2 Austur ♦ - ¥ 10987 ♦ DG8 ♦ G108754 Vestur Norður Austur Suður Abec. Quantin - pass 1 spaði pass 2 hjörtu pass 2 spaðar pass 4 spaðar pass 4 grönd pass 5 laúf pass 6 spaðar/ Quantin gaf ekkert eftir í sögn- um en eftir að vestur spilaði út laufakóng var útlitið ekki gott því tapslagur var yfirvofandi á tígul til viðbótar við spaðaásinn. Quantin drap með ás, trompaði lauf og spilaði spaðadrottningu sem fékk að halda slag. Hann spil- aði næst hjartadrottningu og vest- ur lagði kónginn á. Enn spilaði Quantin spaða á gosa og nú drap vestur með ás og spilaði meiri spaða á kónginn í blindum. Þar sem vonlaust var að fría hjartalitinn ákvað Quantin að skilja hann eftir í blindum og vona að andstæðingarnir gerðu mistök. Hann fór heim á tígulás og tók ölltrompin. í þriggja spila endastöðu átti blindur eftir D43 í hjarta og Quant- in átti heima K63 í tígli. Austur taldi sig þurfa að gæta hjartalitar- ins og henti því tveimur tíglum. Og vestur hélt að Quantin ætti 98 eftir í hjarta og austur ætti hjarta- tíuna staka. Til að upplýsa ekki hjartastöðuna henti vestur því einnig tveimur tíglum og hélt eftir 65 í hjarta En nú átti Quantin þrjá síðustu slagina á tígul. Þetta er kölluð hollensk þvingun því Hollendingurinn Bob Slaven- burg er talinn hafa spilað upp á svona stöðu fyrstur manna. Guðm. Sv. Hermannsson ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-13 frá mánudegi til föstudags Netfang: elly@mbl.is Vandræði með bréfsíma VELVAKANDA barst eftirfarandi bréf: „Hjá fyrirtækinu sem ég starfa hjá eru send mörg símbréf til útlanda á degi hveijum og sömuleiðis fáum við mörg símbréf frá útlöndum. Er bréfsíminn mikið þarfaþing. Undanfarið hefur hins vegar háttað svo til að nokkrum fyrirtækjum, að- allega þýskum, hefur ekki tekist að senda okkur sím- bréf. Við verðum greini- lega vör við að þau eru að reyna en símbréfið kemst ekki í gegn. Það hefur hins vegar verið vandræðalaust fyrir okkur að senda sömu fyrirtækjum símbréf. Ég kvartaði yfir þessu við seljanda bréfsímans (Póst og síma hf.) og fékk þau svör að ekkert væri við þessu að gera. Bréfsími sendandans „passaði illa við“ okkar bréfsíma. Eina ráðið væri að hinn erlendi aðili eða við skiptum um bréfsíma. Mér þætti vænt um að fá að vita hvort fleiri not- endur bréfsíma eigi í svip- uðum vandræðum eða hvort okkar reynsla er ein- stök. Einar Örn Thorlacius forstjóri, Ásvallagötu 7, Rvík. ÉG FÉKK heiftarlega mjaðmagrindargliðnun á meðgöngu. Ég leitaði því til Arnars Haukssonar kvensjúkdómalæknis. Hann benti mér á að leita til Kínveijans á Skóla- vörðustíg sem er með nátt- úrulegar lækningaaðferðir. Ég fór þangað fjórum sinn- um og hann sagði alltaf að þetta væri bijósklos sem leiddi verk niður í mjaðma- grind. Sumar konur fá verki í lífbeinið, sagði hann. Honum tókst að lækna mig af verk sem ég hef haft í eitt ár. Mig lang- ar til að benda fólki á, sem er með bijósklos eða grind- argliðnun, endilega að leita til hans. Halldóra. Tapað/fundið Gleraugu töpuðust GYLLT gleraugu í svörtu hulstri með merkinu Kisuro töpuðust í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardags 22. mars. Skil- vís finnandi vinsamlegast hringi í síma 564-1107 sem fyrst eða skili þeim til lögreglunnar. Trúlofunarhringur fannst SILFURLITAÐUR trúlof- unarhringur fannst á Austurgötu í Hafnarfirði laugardaginn 22. mars. Eigandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 565-4324. Úlpur fundust v/Rauðavatn 2 ÚLPUR, karlmannsúlpa svört og gul og unglings- úlpa blá með gráu og svörtu í, fundust við Rauðavatn laugardaginn 22. mars. Upplýsingar í síma 567-1196. Gullarmband tapaðist STUTT fíngerð þreföld gullarmbandskeðja hefur tapast. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í síma 554-6737. SNJ ÓLISTAVERK Yíkveiji skrifar... ER HÆGT að fá eitthvað ókeypis? Hingað til hafa menn ekki getað fundið hvað það er, nema vera skyldi þeir, sem hafa fengið úthlutað ókeypis kvóta sem er að sjálfsögðu á kostnað ann- arra. Nú er hægt að safna punktum út um allt. Flugleiðir eru með vild- arkort. Þar safna menn punktum yfirleitt út á farseðla, sem aðrir greiða, þ.e. vinnuveitendur við- komandi. Olíufélagið er með svo- kölluð safnkort. Flugleiðir og Visa gefa út ný kort, sem safna punkt- um. Mesta athygli hefur vakið hið svokallaða fríkort, sem nokkur fyr- irtæki standa að. Dettur einhveijum í hug að þessi punktasöfnun sé ókeypis? Halda einhveijir að þessi fyrirtæki séu allt í einu svo gjafmild að þau vilji gefa viðskiptavinum ókeypis ferðir hingað og þangað, ókeypis máls- verði á veitingahúsum o.s.frv.? Auðvitað ekki. Allt er þetta borgað af viðskiptavinunum sjálfum með einum eða öðrum hætti. Sölumennska tekur á sig margar myndir. Sú nýjasta er þessi; að safna punktum út um allt. Á endanum kann sá, sem fær einn ókeypis farseðil til Parísar eftir 14 mánuði að hafa borgað hann sjálf- ur með því að beina viðskiptum sínum til fyrirtækja, sem selja vör- ur á hærra verði en keppinautar og meira tii. xxx SÍÐUSTU daga hafa nokkur orðaskipti orðið hér í blaðinu á milli Einars S. Einarssonar, framkvæmdastjóra Visa, og Frið- berts Traustasonar, formanns Sambands ísl. bankamanna, um það, hvort greiðslukort, bæði kred- itkort og debetkort, verði nothæf ef til verkfalls bankamanna kem- ur. Hinn fyrrnefndi heldur því fram, að svo sé. Hinn síðarnefndi, að svo sé ekki. Það er óþolandi fyrir almenning að hafa ekki öruggar upplýsingar um, hvort kortin séu nothæfir greiðslumiðlar, ef til verkfalls bankamanna kemur. Þess vegna verða bankarnir og stjórnendur Visa að gefa út yfirlýsingu, sem hafið er yfir allan efa, að sé rétt, þar sem fram kemur, hvort og að hve mikiu leyti greiðslukort eru nothæf, bæði heima og erlendis í hugsanlegu verkfalli bankamanna. NÚ HAFA starfsmenn trésmiðju ákveðið að kæra til mannrétt- indanefndar Evrópu mál, sem varðar skylduaðild að lífeyrissjóði. Þeir voru skyldaðir til að greiða í lífeyrissjóð stéttarfélags síns sem er Sameinaði lífeyrissjóðurinn en vildu greiða í Frjálsa lífeyrissjóðinn. Þeir töpuðu málinu bæði fyrir héraðsdómi og Hæstarétti. Eitt skýrt dæmi má nefna um hvað mikið er í húfi. Lífeyrisgreiðslur í Fijálsa lífeyrissjóðinn leggjast á reikning, sem er séreign sjóðfélaga. Ef hann deyr eignast erfingjar hans, maki og böm rétt til þeirrar fjárhæð- ar, sem á reikningi hans er. Þegar um er að ræða greiðslur i Sameinaða lífeyrissjóðinn fær maki greiddan líf- eyri í 36 mánuði og 50% lífeyris í 24 mánuði til viðbótar. Síðan ekki krónu meir. Greiðsla í lífeyrissjóð er hluti af heildarkjörum starfsmanna. Trésmið- imir máttu sem sagt að mati undir- réttar og Hæstaréttar ekki gæta líf- eyrishagsmuna maka sinna heldur vom þeir dæmdir til að skilja þá eft- ir tekjulausa nokkmm ámm eftir andlát þeirra sjálfra. Það er skiljan- legt að mennirnir kæri svona dóma til mannréttindanefndar Evrópu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.