Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 17
'I MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 17 VIÐSKIPTI Hraðfrystihús Eskifjarðar skilaði 312 milljóna króna hagnaði í fyrra Hagna ðurinn jókst um 72% HAGNAÐUR Hraðfrystihúss Eski- fjarðar hf. á árinu 1996 nam um 312 milljónum króna eftir reiknaða skatta að fjárhæð tæplega 126 milljónir. Þetta er um 72% meiri hagnaður en árið 1995 þegar hann nam um 181 milljón. Heildarvelta félagsins nam 3.846 milljónum, en að teknu tilliti til afla til eigin vinnslu var veltan 3.106 milljónir og hafði aukist um tæp 52% milli ára. Hagnaður af rekstri, þ.e. án tillits til fjármagnsliða, nam alls 543 milljónum, en var 284 millj- ónir árið áður. Hagnaður fyrir skatta nam 438 milljónum, en nán- ari upplýsingar um rekstur og fjár- hags félagsins er að finna á með- fylgjandi yfirliti. Bókfært eigið fé félagsins var 845 milljónir í árslok 1996 eða um 26% af heildareignum, borið saman við 503 milljónir árið áður. Heildarfjárfestingar félagsins á árinu 1996 námu alls 763 milljónum króna. Gott útlit á þessu ári Magnús Bjamason, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að þennan góða hagnað félagsins megi fyrst og fremst rekja til veiði á uppsjávarfiskum og hás verðs á mjöli og lýsi. Um afkomu félagsins á yfirstandandi ári segir Magnús að hún sé heldur betri en á sama tíma í fyrra. „Við höfum tekið við heldur meira magni til bræðslu heldur en í fyrra eða tæpum 74 þúsund tonnum og fryst 4.300 tonn af loðnu eftir áramótin. Þetta lítur vel út og verð á afurðunum er gott,“ sagði hann. Stærsta fjárfesting fyrirtækisins á þessu ári eru breytingar á Jóni Kjartanssyni. Skipt verður um brú á skipinu, settur á það hvalbakur og lagfæringar gerðar á íbúðum. Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. »-4 i^-. Ur ársreikningi 199 6 _La» L— Rekstrarreikningur Muijónir króna 1996 1995 Breyt. Rekstrartekjur 3.106 2.046 +51,8% Rekstrarqjöld 2.384 1.632 +46,1% Hagnaður fyrir afskriftir 722 415 +74,0% Afskriftir 179 130 +37,7% Fjármagnsgjöld 109 107 +1.9% Hagnaður af reglulegri starfsemi 438 181 +142,0% Hagnaður ársins 312 181 +72.4% Efnahagsreikningur 31. des.: 1996 1995 I Eianir: I Milliónir króna Veltufjármunir 466 585 -20,3% Fastafjármunir 2.800 2.021 +38,5% Eignir samtals 3.266 2.606 +25,3% I Skuidir on oiaið fð: I Milliónir króna Skammtímaskuldir 636 728 -12,6% Langtímaskuldir 1.558 1.297 +20,1% Tekjuskattsskuldbinding 227 78 +191,0% HHHIHHWÉHHHHi 845 503 +68,0% þar af hlutafé 346 +25,3% Skuldir og elgið fé samtals wwvn 2.606 Kennitölur 1996 1995 Eiginfjárhlutfall 25,9% 19.3% <|jM^j Arðsemi eigin fjár 62,0% 46,0% Veltufé frá rekstri, milljónirkr. 539,0 269,0 +100,4% Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir FRÁ aðalfundi Kaupfélags Héraðsbúa. Hagnaður hjá KHB Egilsstaðir. Morgunblaðið. Jarðboran- ir hækka um 21,5% HLUTABRÉF í Jarðborunum hækkuðu mikið í verði í við- skiptum á Verðbréfaþingi í gær 5 kjölfar frétta af stórum samn- ingi fyrirtækisins við Lands- virkjun um boranir við Kröflu. Gengi hlutabréfa í fyrirtækinu í lok viðskipta fyrir helgi var 3,95, en við lok viðskipta í gær hafði gengið hækkað í 4,80, sem jafngildir 21,5% hækkun Viðskipti með hlutabréf í Jarðborunum voru mjög lífleg og seldust hlutabréf fyrir rúmar tvær milljónir króna að nafn- virði eða fyrir um 10 milljónir króna að söluvirði. Samanlögð viðskipti með hlutabréf á Verð- bréfaþingi og Opna tilboðs- markaðnum námu um 38 millj- ónum króna í gær, en auk Jarð- borana seldist talsvert af hluta- bréfum í SR-mjöli og Fóður- blöndunni. Þá seldist einnig talsvert af spariskírteinum á Verðbréfa- þingi í gær eða sem nemur rúm- um 70 milljónum króna. Ávöxt- unarkrafa á 10 ára skírteinum hækkaði lítið eitt eða um 0,02 prósentustig, en á lengri skír- teinunum var hún óbreytt. HAGNAÐUR Kaupfélags Hér- aðsbúa nam 71,4 milljónum króna á síðasta ári. Heildarvelta félagsins nam 2.223 millj. kr. og hafði aukist um 8,6% á milli ára. Eigið fé nam í árslok 337,3 milljónum. Á árinu 1996 var ráðist í upp- stokkun á rekstri félagsins með það að markmiði að tryggja framtíðar- rekstur þess, og munu aðgerðir skila sér í bættum rekstri strax þessu ári. Á árinu var frystihús KHB gert að sérstöku hlutafélagi, Kambfelli hf., og er stefnt að því að selja meirihluta sinn í félaginu. Einnig stóð félagið að stofnun Kjöt- kaupa hf., en það félag yfirtók rekstur Austmats hf. og Kjötvinnslu KHB. Stefna félagsins er að beina kröftum þess að rekstri verslana og afurðastöðva. Félagið rekur dag- vöruverslanir á Egilsstöðum, Reyð- arfirði, Seyðisfirði, Borgarfírði eystra og á Eskifírði eftir að það keypti öll hlutabréf í Pöntunarfélagi Eskfirðinga hf. á síðasta ári. Enn- fremur tók félagið á leigu sláturhús Sláturfélags Suðurfjarða sf. á Breiðdalsvík og slátrar nú sauðfé í tveimur húsum. Stjórn félagsins var endurkjörin. Krupp hættir við tilboð í Thyssen Bonn. Reuter. KRUPP samsteypan hefur dregið tilboð sitt í Thyssen AG til baka og fyrirtækin segja að samvinna þeirra geti náð lengra en til sameig- inlegs fyrirtækis, sem þau hyggist koma á fót. „Áður kunngert tilboð er fallið ur gildi og fleiri tilboð um að taka við rekstri Thysxsens verða ekki gerð í framtíðinni," sagði í sameig- inlegri yfirlýsingu frá Fried. Krupp AG Hoesch-Krupp og Thyssen. Eftir fimm daga viðræður hafa fyrirtækin samþykkt að stofna stál- fyrirtæki, sem Thyssen mun sjá um rekstur á vegna þess að framleiðslu- geta Thyssen Stáhl deildarinnar og arðsemi hennar er meiri en Krupp- Hoesch Stáhl að sögn talsmanns Thyssens. „Viðræður Thyssens og Krupps um samruna stálstarfseminnar ganga vel,“ sagði í yfírlýsingunni. „Samningsaðilar telja að slíkur samruni muni gera Þjóðveijum kleift að varðveita foiystuhlutverk sitt á sviði stálframleiðslu og móta heild- arstefnu, sem leiðir til framfara." Eimskip með 600 milljóna skulda- bréfaútboð EIMSKIP hefur samið við Bún- aðarbankann Verðbréf um skuldabréfaútboð að fjárhæð 600 milljónir króna að undan- gengnu útboði á meðal helstu verðbréfafyrirtækja landsins. Skuldabréfin verða boðin í ís- lenskum krónum með verð- tryggingu og eru þau til 6 ára með einni greiðslu í lokin en með vaxtagreiðslum tvisvar á ári, segir í frétt. Stefnt er að skráningu skuldabréfanna á Verðbréfa- þingi íslands og mun Búnaðar- bankinn Verðbréf taka að sér öfluga viðskiptavakt á skulda- bréfunum. Sala skuldabréf- anna hefst þann 3. apríl næst- komandi og verður um opið útboð að ræða. Samhliða sölu skuldabréf- anna gera Eimskip og Búnað- arbankinn Verðbréf með sér skiptasamning þar sem kjörum skuldabréfanna er breytt þann- ig að endanleg kjör sem Eim- skip greiðir miðast við álag á millibankavexti (LIBOR) í er- lendum myntum en Búnaðar- bankinn yfirtekur innlendu skuldbindingarnar. Heildar- fjármögnunarkostnaður sem Eimskip greiðir nemur u.þ.b. 0,5% álagi á LIBOR og eru þau kjör í samræmi við þau kjör sem félaginu bjóðast á erlend- um mörkuðum. Spariskír- teini fyrir 200 milljónir TÆPLEGA 200 milljónir króna seldust í spariskírteinum ríkis- sjóðs í utboði Lánasýslunnar í gær. Ávöxtunarkrafan er í samræmi við ávöxtunarkröfu á Verðbréfaþingi íslands og mjög svipuð og hún var í síðasta útboði fyrir tæpum mánuði. Alls bárust 20 gild tilboð í spariskírteini að fjárhæð 339 milljónir króna að söluverð- mæti. Tekið var tilboðum í skír- teini fyrir 194 milljónir króna og var meðalávöxtun spariskír- teina til 5 ára 5,76% og til 8 ára 5,78%. Ávöxtun á spariskírteinum í áskrift er 5,26% á skírteinum til 5 ára og 5,36% á spariskír- teinum til 10 ára. Aðeins fallegir hlutir til f e r m i n g a r g j a f a - engar málamiðlanir Habitat f Kringlunni er verslun full af húsgögnum og smávörum sem njóta sín vel sem fermingargjöf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.