Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 47
FRÉTTIR
Fyrirlestur um lög-
mannsstörf og konur
Skiptinemar frá öllum heimshornum
*
Vildu kynnast Islandi en
finnst málfræðin erfið
Morgunblaðið/Ásdís
HÓPUR nemenda frá ýmsum löndum sem hér dvelst á vegum
Rotaryhreyfingarinnar. í röðinni vinstra megin eru: Marcela
Judith Folco frá Argentínu (fremst), Katarina Hastings frá Ástr-
alíu, Pa Baumann frá Þýskalandi Og César de Almeida Braga
frá Brasilíu. í hægri röð eru: Mariamalia Giraldeli Chiuchi frá
Brasilíu, Kathleen Bailey frá Kanada, Megumi Konno frá Jap-
an, Stephen Ruffalo og Bryon Panaia, báðir frá Bandaríkjunum.
CLAIRE Ann Smearman lögmaður
mun halda fýrirlestur um lög-
mannsstörf og konur í Bandaríkjun-
um í dag kl. 12 að Skála Hótel Sögu.
Claire Ann Smearman hefur að
mestu unnið við lögmannsstörf á
annan áratug og sérhæfir sig sviði
heimilisofbeldis og sifjaréttar,
þ.m.t. erfiðra skilnaðarmála. Hún
starfar nú á lögmannsstofu Gordon,
Feinblatt, Rothman, Hoffberger &
Hollander í Baltimore, auk þess sem
hún tekur þátt í lögmannavöktum
þar í landi. Ennfremur hefur hún
skrifað, kennt og flutt fyrirlestra á
ofangreindum sviðum lögfræðinn-
ar, auk stjórnskipunarréttar.
Clair Anna Smearman flytur
FERÐAFÉLAG íslands efnir til
margra ferða um bænadaga og
páska. 27.-29. mars verður ferð í
Óræfasveit og Skaftafell þar sem
skoðuð verða ummerki Skeiðarár-
hlaups, farið í Skaftafell í vetrarbún-
ingi o.fl. Gisting er að Hótel Skafta-
felli, Freysnesi og er fararstjóri
Kristján M. Baldursson.
27.-30. mars er skíðaganga í
Landmannalaugar með dvöl þar í
sæluhúsinu. Farangur verður fluttur
í Landmannalaugar. Farið verður í
Hrafntinnusker ef aðstæður leyfa.
Gisting í sæluhúsinu Laugum. Þetta
er 4 daga ferð. Fararstjóri er Ólafía
Aðalsteinsdóttir. 27.-31. mars er í
boði skíðaganga um „Laugaveginn“
frá Sigöldu um Landmannalaugar
Opið hús
hjá Heima-
hlynningu
HEIMAHLYNNING verður með
samverustund fyrir aðstandendur í
kvöld, þriðjudaginn 25. mars, kl.
20-22 í húsi Krabbameinsfélags ís-
lands, Skógarhlíð 8.
Gestur kvöldsins er sr. Bragi
Skúlason, sjúkrahúsprestur. Hann
ræðir um foreldramissi, sérstaklega
um missi og sorg fullorðinna bama,
þ.e. 20-40 ára. Kaffi og meðlæti
verður á boðstólum.
Margir söfn-
uðir saman
hjá Fíladelfíu
SAMEIGINLEG samkoma fjöl-
margra kristinna safnaða og sam-
taka verður í Fíladelfíu, Hátúni 2.
Samkoman hefst kl. 20. Ræðumað-
einnig í dag fyrirlestur kl. 17.15
sem nefnist Lög gegn heimilisof-
beldi á vegum Rannsóknastofu í
kvennafræðum, Kvennréttindafé-
lags íslands og lagadeildar Háskóla
íslands í stofu 101 í Odda og er
hann öllum opinn.
í fyrirlestrinum fjallar hún um
réttarúrræði sem reynd hafa verið
í Bandaríkjunum til að taka á heim-
ilisofbeldi og ber þau saman við
íslenskar aðstæður. Meðal þess sem
hún mun fjalla um er skilgreining
afbrotsins heimilisofbeldi, rann-
sóknarúrræði, saksókn heimilisof-
beldismála, nálgunarbann, úrlausn
við skilnað hjóna og forsjá barna.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
til Þórsmerkur. Fararstjóri Kristján
Bollason. 26.-31. mars er svo skíða-
gangan, Miklafell, Laki, Skaftárdal-
ur. Gist verður í gangnamannahús-
um og er farangur fluttur milli staða.
Fararstjóri Gestur Kristjánsson.
29.-31. mars er þriggja daga ferð-
in: Þórsmörk-Langidalur. Farið
verður í gönguferð um Mörkina og
gist í sæluhúsinu Skagfjörðsskála.
Fararstjóri Hermann Valsson.
Þingvallaferð (gamlar götur) og
skíðagönguferð á Mosfellsheiði eru
kl. 10.30 á skírdag. Á föstudaginn
langa er farið á Skógasand og að
Eyjafjöllum kl. 10.30 og annan í
páskum er ferð á Skeiðarársand kl.
8., skíðaganga á á Hellisheiði kl.
10.30 og óvissufjallganga.
ur verður dr. Tissa Weerasingha frá
Sri Lanka.
Weerasingha hefur stofnsett um 50
kirkjur út frá móðurkirkjunni í
Colombo og hefur auk þess skrifað
margar bækur. Hann er mörgum
vel kunnur því hann hefur áður
komið hingað til lands og tekið þátt
í sameiginlegu átaki samfélaganna.
Samkomurnar eru öllum opnar
og er aðgangur ókeypis.
LEIÐRÉTT
Bragi unglingamódel 1997
í FYRIRSÖGN í sunnudagsblaðinu
kom fram rangt nafn á sigurvegara
í keppninni Unglingamódel 1997.
Fyrirsögnin átti að vera: Valgerður
og Bragi unglingamódel 1997. Beð-
ist er velvirðingar á þessu.
Nafni ofaukið
ÞAU mistök áttu sér stað þegar
stjórn listamannalauna sendi frá sér
yfirlit yfir listamenn sem hlutu
starfslaun fyrir árið 1997, að nafni
Sigfúsar Bjartmarssonar skálds var
ofaukið. Listinn birtist í Morgun-
blaðinu sl. sunnudag. Sigfús hlaut
ekki úthlutun að þessu sinni.
ÍSLENSK málfræði er erfið, var
nokkuð sameiginleg yfirlýsing frá
níu manna hópi skiptinema frá
ýmsum Iöndum sem hefur dvalið
hér á landi síðustu mánuði á veg-
um Rotaryhreyfingarinnar. Hóp-
urinn býr hjá fjölskyldum vítt og
breitt um landið og hefur eytt
síðustu dögunum saman við gagn
og gaman í höfuðborginni, m.a.
heimsókn til Morgunblaðsins og
fleiri fyrirtækja.
Af tiveiju varð Island fyrir val-
inu? Ég gat valið milli Ekvador
og íslands og vissi að það yrði
alltof heitt í Ekvador svo Island
varð ofan á, sagði Kathleen Bailey
frá Kanada og hún kvaðst geta
haldið íslenskunni eitthvað við
með því að hitta heima fyrir fólk
sem tali málið, m.a. í Gimli. Ég
vissi lítið um ísland nema að það
er mjög ólíkt Japan og vildi kynn-
ast því, sagði Megumi Konno frá
Japan og sagði hún fáa Japani
kynnast landinu. Má segja að
svörin séu nokkuð einkennandi
fyrir hópinn, menn fýsti að vita
meira um Iandið. Við munum
halda sambandi hingað eftir að
heim kemur, voru þau sammála
um en flest hafa þau dvalið hjá
þremur til fimm fjölskyldum til
að kynnast sem mest ólíku fólki
og viðhorfum.
Jón Ásgeir Jónsson, sem er
Rotaryfélagi í Hafnarfirði, er
annar umsjónarmanna hópsins en
þessi nemendaskipti eru eitt af
stærstu verkefnum hreyfing-
arinnar. Milli 8 og 10 þúsund ung-
menni hleypa heimdraganum á
ári hverju á vegum hreyfingar-
innar til að kanna ný lönd og seg-
ir Jón oft erfitt að fá islenskar
fjölskyldur til að taka að sér þá
8 til 9 gesti sem hingað sæki ár-
lega en það gangi nú alltaf að
lokum.
Vinna og
skoða sig um
Hópurinn sem hér hefur dvalist
hittist fljótlega eftir að hann kom
til landsins og settist saman á
íslenskunámskeið. Síðan hafa þau
hist aftur og nú stendur ferðalag
fyrir dyrum. Fjölskyldur sumra
þeirra hafa getað tekið þau með
í skoðunarferðir og sum hafa
unnið í jólafríinu eða stefna að
því að vinna í nokkrar vikur áður
en halda skal heim. Hvenær er
Þórsmörk? spurði Bryon Panaia
frá Bandaríkjunum og hafði
greinilega hugmynd um að
framhaldsskólanemar hafa
síðustu árin hóað sig saman í
helgarferð þangað snemma í júlí.
Hafði hópurinn áhuga á að
fylgjast með hvernig
verslunarmannahelgin gengur
fyrir sig hjá íslenskum
ungmennum, en Jón Ásgeir taldi
líkur á að þau yrðu send úr landi
áður!
Eftir innlit hjá Morgunblaðinu
var ætlunin að líta á kaffihús í
Kringlunni og heimsækja síðan
meðal annars Granda, Reykjalund
og Ríkisútvarpið og á sunnudag
verður hópnum boðið í
Háskólabíó.
Páskaferðir Ferða-
félagsins
PÍONEER PIÓNEER PIOl
R frÓklEER PIÓKlEÉk PIÓNEE
HÖKlEÉR PIÖNÉERTigfl
ÞióNttk þioMBIW
NS 60
Magnarí: 2x30w (RMS, 1kHz, 611)
Útvarp: FM/AM,
30 stöðva minni _______________
Geislaspilari: liBfTffrT.lf!)'/.1! I
Segulbandstæki: Tvöfalt I
Hátalarar: Tvískiptir
30w (DIN)
N-760
Magnari: 2x1 OOw (RMS, 1kHz, 811) • Útvarp: FM/AM, 24 stöðva minni
Geíslaspilari: Tekur frMíiMffjl • Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B
Hátalarar: Prískiptir 100w (DIN)
N-260
Magnari: 2x70w (RMS, 1kHz, 611)
Útvarp: FM/AM, 24 stöðva minni • Geislaspilari: Einfaldur „Slot ln“
Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B • Hátalarar: Tvlskiptir 70w (DIN)
Priggja diska
Umbobsmenn um land allt
Reykjavík: Byggt og Búið Voeturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi.BlómsturvBllir, Hellissandi. Guóni Hallgrlmsson. Grundarfirói. Ásubúð.Búðardal Vestflrðlr: Geirseyrarbúðin. Patrekslirði Rafverk Bolungarvlk Straumur ísafirði
Norðurland: Kl. V-Hún„ Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Verslunin Hegri. Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. Kf. Þingeyinga, Húsavlk. Austurland: Kf. Héraösbua, Egilsslððum. Verslunin Vlk, Neskaupstaö. Suðurlend: Árvirkinn Selfossi
Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn.Keflavík. Rafborg, Grindavík. •_______________