Morgunblaðið - 25.03.1997, Side 36

Morgunblaðið - 25.03.1997, Side 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Orkuverð í Reykjavík og víðar VIÐ afgreiðslu á breyttum lögum um Landsvirkjun varð snörp umræða um orkumál á Alþingi sem vakti athygli lands- manna á stöðu þeirra mála. Mikill tími fór í að ræða þá aðferðarfræði sem notuð var til að meta framlög eigenda til Landsvirkjunar og hvemig þau hafa orðið til. Nokkuð bar á því að þingmenn og sumir umsagnaraðilar rugl- uðust á Marshallað- stoð og lántökum til Sogsvirkjana sem Reykjavíkurborg lagði til Landsvirkjunar við stofnun hennar. I grein í Morgunblaðinu 15. febr. gerir Aðalsteinn Guðjohn- sen rafmagnsstjóri mjög vel grein fyrir þessu. Bendir hann á að Raf- magnsveita Reykjavíkur byggði virkjanir við Sogið fyrir lánsfé og greiddi þau. Rafmagnsveita Reykjavíkur lagði borginni til þau peningaframlög sem Reykjavík hefur lagt til Landsvirkjunar og því gangi arðgreiðslur, þegar þær hafa verið greiddar, til Rafmagn- sveitu Reykjavíkur en ekki borgar- sjóðs. Framlög Reykjavíkurborgar til Landsvirkjunar koma frá raforku- sölu til viðskiptavina Rafmagns- veitu Reykjavíkur sem búa í Reykjavík og einnig í sveitarfélög- unum Kópavogi, Garðabæ, Seltjamar- nesi og Mosfellsbæ. Ætti því væntanlegur arður af rekstri Lands- virkjunar að koma fram í lækkun á raf- orkuverði Rafmagn- sveitu Reykjavíkur. Fram kom að millj- arðar hafi komið frá höfuðborgarsvæðinu til verðjöfnunar raf- orku á landinu og að lánayfirtökur vegi þar þyngst. I greininni kom fram að verðjöfnunar- gjald af raforku sem lagt var á alla raforkusölu í smá- sölu var 13.825 mkr. á áranum 1965-1987. Þetta gjald var lagt á með ákveðnum hundraðshluta á kwst. þannig að þeir notendur rafveitna sem voru með hátt raforkuverð greiddu hærra verðjöfnunargjald sem látið var ganga til RARIK og síðan Orkubús Vestfjarða, þetta var því óréttlát leið til verðjöfnunar og var hætt 1987. Bent var á að 12.567 mkr. hafi ríkissjóður yfirtekið að lánum RA- RIK, OV og Rafveitu Sigluíjarðar. Ég varð upp með mér f.h. Rafveitu Siglufjarðar að sjá að sú litla raf- veita var sett upp við hliðina á þessum stóru. Ég mótmælti árlega frá setn- ingu laganna um verðjöfnunar- Ríkissjóður á að kaupa hlut sveitarfélaga í Landsvirkjun, segir Sverrir Sveinsson, o g breyta á RARIK í hlutafélag. gjaldið álagningu þess á raforku- sölu Rafveitu Siglufjarðar, vegna þess að rafveitan sá sjálf um orku- öflun, flutning, rekstur varaafls og dreifingu orkunnar til notenda. Framreiknað vora þessar greiðsl- ur 300-400 mkr. og við afgreiðslu fjárlaga 1991 var gefin heimild til að yfirtaka lán frá árinu 1987 sem var veitt í tengslum við niðurfell- ingu verðjöfnunargjaldsins þá kr. 15 mkr. í uppgjöri 40 mkr. Þetta var því sú fjárhæð sem rann til Rafveitu Siglufjarðar. Yfirtaka ríkissjóðs á lánum vegna Byggðalína og Kröflu 8.531 mkr. var sá kostnaður sem ríkis- sjóður tók á sig til að orkuverð til almenningsveitna hækkaði ekki meira en um 10% til notenda við yfirtöku Landsvirkjunar á þessum eignum ríkissjóðs. Aðgerðir ríkissjóðs með yfirtöku lána orkufyrirtækjanna vora liður í því að landsmenn byggju við við- unandi öryggi og verð á raforku og vora afgreiddar í mikilli sátt á Alþingi þegar það var gert. Sverrir’ Sveinsson En vora aðrar leiðir til? Ég man að Magnús Kjartansson fyrrverandi iðnaðarráðherra setti fram þá hugmynd um 130 kV hringtenginguna að menn ættu að meðhöndla hana sem þjóðveg ork- unnar um landið og veita til fjár- magni árlega svipað og til vega- gerðarinnar. Ef sú leið hefði verið farin þyrfti ekki að draga fram í umræðuna að orkuflutningskostnaður Lands- virkjunar er mismunandi hár til hinna 23 afhendingarstaða, sökum þess hve mislangt þeir era frá virkjunum. í 13. gr. laga um Landsvirkjun er kveðið á að sama verð skuli vera á afhendingarstöðum á raf- orku hvar sem er á landinu. Vissu- lega fer þar fram nokkur verðjöfn- un en fyrirtækið er nú einu sinni Landsvirkjun og verður að standa undir nafni. En það er ekki sama „hveijir virkja og hvar“ eins og ég hef áður bent á. Aðalsteinn segir frá hugmynd sinni um skipulag orku- framleiðslu og dreifingu sem hann setti fram á orkuþingi 1991. Þar era myndaðar fimm orku- veitur sem yfirtaka starfandi orku- veitur í viðkomandi landshlutum. Þessi hugmynd gengur þvert á það sjónarmið að breyta RARIK í hlutafélag eins og fyrrverandi iðn- aðarráðherra var búinn að láta vinna frumvarp að, og dagaði uppi í stjómkerfinu. Gerð er tillaga að skipta Lands- virkjun í tvö fyrirtæki og stofna nýtt fyrirtæki um allar flutn- ingslínur. Er þetta nauðsynlegt til að ná fram þeirri bestun sem allir vilja sjá í orkuframleiðslu og dreifingu? Ég tel svo ekki vera. Hver kannast ekki við ályktun sem flestir stjórnmálaflokkarnir setja títt fram á sínum flokksþing- um eitthvað þessu líkt „stefnt skal að lækkun raforkuverðs til upphitunar" og e.t.v. fiskvinnsl- unnar, ylræktar ofl. Sjaldan er eytt tíma í að fara ofan í málin og ræða hvað sé til ráða. Og vegna óánægju í héraði flytja einstaka landsbyggðarþingmenn tillögur um að auka skuli niðurgreiðslur til upphitunar íbúðarhúsnæðis,' lækka verð til frystingar, ylræktar ofl. svo nokkuð sé nefnt svo lands- menn búi við sem líkast raforku- verð. Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra er að vinna að breyttri skip- an orkumála eftir að nefnd sem hann skipaði um „Famtíðarskipan orkumála" lagði fram tillögur að því í október sl. Meðan hann hefur ekki látið fram koma opinberlega hvemig hann sér þessi mál fyrir sér í fram- tíðinni langar mig að setja fram eftirfarandi sjónarmið. 1. Ríkissjóður verði látinn kaupa hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrar þannig að Landsvirkjun verði virkjun allra landsmanna án eignaraðildar einstakra sveitarfé- laga. Hyrfi þá sú augljósa mismun- un sem er nú milli sveitarfélaga og sá vandi sem á var bent við umræðuna um breytt lög um Landsvirkjun og tengdist arð- greiðslu og raforkuverði. 2. Rafmagnsveitum ríkisins verði breytt í hlutafélag. 3. í ný orkulög komi ákvæði sem banni að frá orkufyrirtækjum verði tekið fjármagn til óskyldra verkefna. Þannig verði orkufyrir- tækin rekin með lágmarksgjald- skrá eins og stendur í reglugerðum þeirra flestra en ekki til þess að verða tekjustofn einstakra sveitar- félaga. Höfundur er veitustjóri á Siglufirði. RAÐALJGLÝSINGAR ATVIMÍMU- AUGLÝSINGAR Vélstjórar 1. vélstjóri óskast á frystitogara. Þarf að geta leyst yfirvélstjóra af. Upplýsingar gefur Sævaldur í síma 460 8115. ÝMISLEGT Kvikmyndaleikstjórinn Margrét Rún langar að kynnast íslendingum, sem kunna lítt þekktar munnmælasögur af Sölva Helgasyni, Sóloni Islandusi. Vinsamlega hafið samband í síma 552 1821. Kæru viðskiptavinir Fótagerðastofa Óskar og Helgu, Háaleitisbraut 58-60 verður lokuð frá mánudeginum 24. mars. Opnum aftur miðvikudaginn 2. apríl. Gleðilega páska. FUIMDIR/ MANNFAGNAÐUR \WRE VF/ÍZ/ Aðalfundur Samvinnufélagsins Hreyfils verður haldinn í félagsheimili Hreyfils þriðjudaginn 8. apríl 1997 kl. 13.30. Dagskrá: 1. Athugað lögmæti fundarins. 2. Skýrsla félagsstjórnar. 3. Reikningar ársins 1996. 4. Kosning í stjórn o.fl. 5. Önnur mál. Stjórnin. LISTMUNAUPPBOÐ Málverk Höfum kaupendur að góðum verkum gömlu meistaranna. Leitum sérstaklega að verkum eftir Kjarval, Kristínu Jónsdóttur og Jón Stef- ánsson. Höfum hafið móttöku á verkum fyrir næsta málverkauppboð. Vinsamlegast hafið samband sem fyrst. Aðalstræti 6, sími 552 4211. Opiðfrákl. 12-18 virka daga. BORG FÉLAGSSTARF Sjálfstæðisfélag Seltirninga Félagsfundur í kvöld, 25. mars, kl. 20.30 á Austurströnd 3. Davíd Oddsson, forsætisráðherra, er gesturfundarins og ræðir horfur í ríkis- búskapnum í ár. Félagar fjölmenniö. Fundurinn er öllum opinn. Stjórnin. TIL SÖLU Landsbanki íslands auglýsir Tilboð óskast í iðnaðarhúsnæði við Austur- veg 21, Reyðarfirði. Á sama stað eru einnig til sölu vélar og tæki til brauðgerðar. Nánari upplýsingar gefur Vigfús Ólafsson, Landsbanka íslands, Reyðarfirði, sími 474 220. SMAAUGLYSINGAR FÉLAGSLIF □ Fjölnir 5997032519 I Frl. FERÐAFELAG ^ ÍSIANDS □ Hlin 5997032519 IV/V - 2. □ EDDA 5997032519 III 1 Frl. ■ Hamar 5997032619 Pf I.O.O.F. Rb.1 « 1463258 - 9.0.* Aðaldeild KFUK Holtavegi í kvöld kl. 20.30; Biblíulestur kyrruviku. Allar konur velkomnar. MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Enn er hægt að panta í páskaferðirnar: Landmannalaugar, skíða- gönguferð 27.-30. mars. Farangur fluttur í Laugar. Góð gisting í upphituðu sæluhúsi. Skíðaganga um „Laugaveg- inn" frá Sigöldu um Laugar til Þórsmerkur 27.-31. mars. Öræfasveit-Skeiðarársandur- Skaftafell 27.-29. mars. Miklafell-Laki-Skaftárdalur, skíðaganga 26.-31. mars. Þórsmörk-Langidalur 29.-31. mars. Brottför kl. 9.00. Gönguferðir. Gist í sæluhús- inu Skagfjörðsskála. Þingvallaferð (gamlar götur) Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Samvera á vegum systrafélags- ins í kvöld kl. 20.30. Allar konur eru velkomnar. og skíðagönguferð á Mos- fellsheiði kl. 10.30 á skírdag. Á föstudaginn langa er farið á Skógasand og að Eyjafjöllum kl. 10.30 og annan í páskum er ferð á Skeiðarársand kl. 8.00, skíðaganga á Hellisheiði kl. 10.30 og óvissuf jallganga. Nánari upplýsingar fást á skrif- stofu Ferðafélagsins í Mörkinni 6.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.