Morgunblaðið - 25.03.1997, Síða 16

Morgunblaðið - 25.03.1997, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ 4 LANDIÐ Tímamóta minnst í Rangárvallahreppi Fundaðá Heklutíndi Hellu - Ráðamenn í Rangárvalla- hreppi boðuðu til blaðamannafund- ar sl. sunnudag á óvenjulegum fundarstað, eða í tæplega 1.500 metra hæð, á hæsta tindi Heklu. Tilefnið var að kynna 70 ára byggð- arafmæli Helluþorps og minnast gossins mikla, sem hófst í Heklu þann 29. mars 1947 fyrir 50 árum. Afmælis- og hreppsnefnd Rang- árvallahrepps bauð til fararinnar sem farin var í blíðuveðri á bílum Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu. Síðasta spölinn voru menn feijaðir á snjóbíl og snjósleðum sveitarinnar sem fóru léttilega alla leið á topp- inn. Oddviti Rangárvallahrepps, Oli Már Aronsson, sagði frá því helsta sem gert verður á árinu í tilefni þess að 70 ár eru liðin frá fyrstu byggð á Hellu. Á staðnum búa rúm- lega 600 íbúar af u.þ.b. 800 íbúum í hreppnum. Byggð má rekja til ársins 1927 þegar Þorsteinn Björns- son setti á fót verslun sem lagði grunn að uppbyggingu á staðnum. Ibúum fjölgaði hægt fyrstu árin en árið 1947 voru íbúar 50 að tölu, en 1977 voru þeir orðnir um 500 talsins. Hella hefur í gegnum tíðina verið miðstöð verslunar og þjónustu fyrir hinar dreifðu sveitir héraðsins, en einnig er þar að finna ýmis iðn- fyrirtæki og annan rekstur. Fjölbreytt dagskrá á afmælisári Á árinu verða ýmsir viðburðir í tengslum við afmælið, s.s. tónleik- ar, kóramót, barna- og fjölskyldu- dagur í grunnskólanum auk veg- legrar dagskrár á 17. júní. í sumar munu verða sýningar á kvikmynd frá Heklugosinu 1947 og alhliða sýning á því sem heimamenn eiga í fórum sínum, s.s. framleiðsluvör- ur fyrirtækja, heimilisiðnaður, list- munir, ritverk, ljósmyndir og mál- Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir HÓPURINN sem fór á blaðamannafund á hæsta tind Heklu, afmælisnefndin, hreppsnefndar- og flugbjörgunarsveitarmenn. I baksýn í fjarska Vestmannaeyjar og Þríhyrningur. verk. Þá er hafinn undirbúningur fyrir sérstæða útilistsýningu sem hraunlistamaðurinn Snorri Guð- mundsson er að hanna og mun setja upp við Heklurætur í sumar. í nóvember verður svo lokahátíð og dansleikur. Afmælisnefndin mun gefa út rit á árinu, þar sem saga þéttbýlis á Hellu verður rak- in, svo og saga barna- og unglinga- skóla í hreppnum. Eitt af mestu gosum á jörðinni á þessari öld Heklugosið 1947 hófst rétt fýrir kl. sjö að morgni 29. mars. Skömmu áður en gosið hófst fannst allharður jarðskjálftakippur, en gosið hófst með mikilli sprengingu og var eins og kollurinn á fjallinu lyftist. Skömmu síðar reis mikill reykjar- mökkur sem náði hæst í um 30 kílómetra hæð. Drunur heyrðust víða um land. Einnig rann hraun frá háfjallinu til austurs og suðurs. Aska barst til suðurs og var ösku- fall mest í byggð í Fljótshlíð og undir Eyjafjöllum. Gosinu lauk í apríl 1948 og hafði þá staðið í 13 mánuði er. alls urðu 98 bæir fyrir tjóni, flestir þó minni háttar. Aðeins tveir bæir fóru alveg í eyði, Rauð- nefsstaðir og Þorleifsstaðir. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdðttir DANSHÓPUR Fiðrildanna sem fara mun til Palma og taka þátt í alþjóðlegu móti í þjóðdönsum. íslenskir þjóð- dansar á Spáni Messur í Hóla- prestakalli HÓLAR í Hjaltadal: Kvöldmáltíðar- guðsþjónusta skírdagskvöld í Hóla- dómkirkju kl.21.00. Á föstudaginn langa koma allir prestar héraðsins saman kl. 14.00 í Dómkirkjunni og lesa úr Passíusálmum fram til kl. 17.00. Þar er og samleikur á alt- flautu og orgel, flytjendur Sveinrún Eymundsdóttir og Sigrún Þórsteins- dóttir. Hátíðarmessur á páskadag í Hólaprestakalli, í Hóladómkirkju kl. 14.00, í Viðvíkurkirkju kl. 15.30 og í Rípurkirkju kl. 21.00. Egilsstöðum - Danshópurinn Fiðrildin á Egilsstöðum heldur á næstunni utan og tekur þátt í al- þjóðlegu móti áhugadansara í þjóðdönsum sem haldið verður í Palma á Mallorca 1.-5. apríl. Um 2.000 dansarar taka þátt í mótinu og koma þeir frá um 40 löndum. Dagskrá mótsins verður fjöl- breytt, m.a. munu allir dansarar mótsins dansa á götum og torgum Palma-borgar á opnunarkvöldi og koma fram á fleiri stöðum eyjunn- ar. Þátttakendur frá Fiðrildunum eru 20 auk harmóníkuspiiara. Fiðrildin hafa dansað saman i um 20 ár, bæði þjóðdansa og gömlu dansana. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson VIÐBYGGING við gömlu flugstöðina. Byggt við gömlu flugstöðina Vogum - Verið er að ljúka framkvæmdum við viðbyggingu við gömlu flugstöðina á Kefla- víkurflugvelli þar sem í dag er þjónað flugumferð á vegum varnarliðsins. Verkið felur í sér byggingu nýs inngangs frá flug- hlaði í gömlu flugstöðina. Kostnaður við þessa fram- kvæmd er 19,4 milljónir króna og er verkinu lokið að undanskil- inni veggklæðningu og utan- hússmálningu sem hvort tveggja verður framkvæmt í vor. habitat KRINGIUNNI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.