Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.03.1997, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Reuter Músin stöðvar fílinn Lausnargjald boðið í Lima? Lima. Reuter. Gátu valið um að lifa eða deyja Quebec-borg. Reuter. ÞRÍR táningar sluppu við dauða er fimm liðsmenn sértrúarsafnaðarins Musteri sólarinnar frömdu sjálfs- morð í Kanada á laugardag. Þeim var boðið að velja sjálfum um líf eða dauða. Unglingarnir, sem eru á aldrinum 13-16 ára, komu skjögrandi út úr fylgsni sínu er slökkviliðsmenn börð- ust við eld í húsi því sem liðsmenn sértrúarsafnaðarins frömdu sjálfs- morð. Var felustaður þeirra skammt frá húsinu. Unglingarnir eru böm hjóna sem voru meðal hinna fimm látnu. Sögðu þeir að þeim hefði verið boðið að velja um að deyja og „hverfa þannig til nýrrar tilveru“ en ákveðið að flýja úr húsi. Virtust unglingarnir í lyfja- vímu og kváðust hafa tekið inn svefnlyf til að deyfa hryggð sína. Sjálfsmorðinu svipaði til fyrri sambærilegra ráðstafana. Gastank- ar voru á jarðhæð og bensíni hafði verið skvett á gólf og veggi til að hraða útbreiðslu bálsins. Fjórir hinna látnu mynduðu kross á rúmi en lík móður barnanna fannst á sófa á jarðhæð og var plastpoki vafinn um höfuð hennar. ------».♦ ■■♦----- Fangelsis- flótta afstýrt Belfast. Reuter. VERÐIR í rammgerðasta öryggis- fangelsi Norður-írlands, Maze-fang- elsinu, fundu á sunnudag göng, sem verið var að grafa út úr því. Göngin lágu út úr álmu sem geymir 95 af 297 liðsmönnum Irska lýðveldishersins (297) sem afplána dóma í fangelsinu. Þau voru raflýst en engum hefur tekist að komast um þau út úr fangelsinu enda náðu þau enn ekki út fyrir múra þess. Uppgötvunin hefur valdið hörðum pólitískum viðbrögðum. Leiðtogar mótmælenda kröfðust þess að at- hafnafrelsi IRA-manna innan fang- elsisins yrði takmarkað og þeim, sem ábyrgð bæru á gangnagerðinni, yrði hart refsað. Árið 1983 tókst 38 glæpamönn- um, sem allir áttu aðild að IRA, að stijúka úr Maze-fangelsinu. STARFSMENN Renault-verk- smiðjanna í Belgiu lögðu áherslu á mótmæli sín við lokun verk- smiðjanna með því að hindra för Eurostar-lestarinnar til Lundúna RÚSSNESKI rithöfundurinn Alex- ander Solzhenítsyn sagði á sunnu- dag að Rússland gæti talist til landa þriðja heimsins á næstu árum vegna þess að ráðamenn í Moskvu van- ræktu menntakerfið og vísindin. „Skólarnir okkar og vísindastofn- anir eru að grotna niður. Eftir tvö eða þijú ár verður Rússland eins og annars flokks Afríkuríki," sagði Solzhenítsyn í viðtali við rússneska sjónvarpið NTV. „Það er geigvæn- legur klofningur í samfélaginu ... í Brussel í gær. Það gerðu þeir með því að stilia barnavagni upp fyrir framan eimreið lestarinnar og má segja að þar hafi músin stöðvað fíl. við stöndum nú frammi fyrir mik- illi hættu.“ Solzhenitsyn ræddi einnig verk- föllin sem boðuð hafa verið á fimmtudag til að mótmæla lang- vinnum töfum á launa- og lífeyris- greiðslum ríkisins. Hann sagði að stjómin gæti ekki staðið í skilum þar sem ríkissjóður væri tómur eft- ir að rússnesk ríkisfyrirtæki hefðu verið seld á gjafverði í einkavæðing- unni eftir hrun kommúnismans. Solzhenítsyn hlaut bókmennta- MARXÍSKU skæruliðunum, sem hafa haldið 72 gíslum í Lima í rúma þijá mánuði, kann að verða boðið lausnargjald og hæli á Kúbu eða Dóminíska lýðveldinu fallist þeir á að láta gíslana lausa, að sögn dagblaðsins La Republica í Perú í gær. Blaðið sagði að nokkr- um félaga skæruliðanna kynni einnig að verða sleppt úr fangelsi. Að sögn blaðsins er þetta á meðal tillagna þriggja manna nefndar, sem er skipuð fulltrúum Páfagarðs, Rauða krossins og Kanada og hefur haft milligöngu um viðræður stjórnarinnar við skæruliðana. Tillögurnar verða bornar undir skæruliðana á næstu dögum. Blaðið sagði að skæruliðamir myndu fá „nokkrar milljónir dala“ um leið og þeir færu úr bústað japanska sendiherrans í Lima þar sem þeir hafa haldið gíslunum í 97 daga. Gert væri ráð fyrir að peninganna yrði aflað með fram- verðlaun Nóbels árið 1970 og sov- éskir kommúnistar sendu hann í útlegð 1974 fyrir ritið Gúlag- eyjarnar þar sem hann lýsti heimi fangabúðanna í Sovétríkjunum. Hann var í útlegð í Bandaríkjunum í 20 ár og sneri aftur heim 1994. Síðan hefur hann gagnrýnt rúss- neska ráðamenn harkalega, sagt að Rússland sé forystulaust vegna þess að öllum viðteknum gildum á sviði rússneskrar siðfræði og menn- ingar hafi verið varpað fyrir róða. lögum frá stjórn Japans og fyrir- tækjum þeirra kaupsýslumanna sem eru í haldi skæruliðanna. Hluta fjárins kann að verða dreift meðal fátækra íbúa Lima og nokkurra héraða en stjómin mun vera andvíg því þar sem hún vill ekki að litið verði á skærulið- ana sem „Hróa Hetti nútímans". Nefndin leggur ennfremur til að skæruliðunum í Lima verða veitt sakaruppgjöf. -------» ♦ »------ Reyna að stöðva Albana Róm, París, Butrint. Reuter. SAMKOMULAG náðist á fundi forsætisráðherra Ítalíu og Albaníu, Romanos Prodi og Bashkims Fino, í gær um að ítalski flotinn haldi uppi eftirliti upp við strendur Al- baníu í þeim tilgangi að stöðva fólksflótta þaðan á sjó. Jafnframt hétu Ítalír því að senda aukna neyðarhjálp og matvæli til Albaníu. Mörghundruð albanskra flótta- manna komu til Ítalíu í gær á skip- um og bátum og hafa þá um 12.000 manns flúið þangað sjóleið- ina frá 13. mars. Strandgæsluskip gerði tilraun til þess að draga burt bát með um 100 manns innan- borðs, sem það tók í tog við hafnar- borgina Brindisi, en þá var skotið á skipið frá bátnum. Siglingin var stöðvuð og snúið til borgarinnar þar sem vopnaður bátsvetji var tekinn fastur og færður á bak við lás og slá. Sali Berisha, forseti Albaníu, hélt því fram í viðtali við franska blaðið Le Monde í gær, að röð og regla væri smám saman að kom- ast á í landinu en ugglaust tæki langan tíma að endurheimta vopn, sem numin hefðu verið úr geymsl- um hers og lögreglu. Solzhenítsyn gagnrýnir ráðamenn í Moskvu Rússar gætu talist til þriðja heimsins Moskvu. Reuter. Við hjá BT. Tiílvum höhim ákvEÖið að leggja hönd á plóg í samningaviðræðum stétta landsins. Af því tilafni munum við slá 8000 krónur ai íermingartilboði okkar í mars. Ef tilboðið hmtar ekki þörfum þinum mun starfsíólk okkar veita þér vandaða ráðgjöf við val á töhm sem hentar þér og þinum og það sem meira er að þú munt örugglega ná samningum. Gjafahrél fyrir tnhmáhugnmanninn fást i BT. Tnhmm íntal triton móöurborð Verð 103.9D0.-kr í vélinni fyrir framtíðar stækkunarmöguleika orgjorvi sem flýtir fyrir við nám og störf í innra minni minni til að geta verið með mörg forrit opin í einu 64 shjákort m/2mb í minni hraðvirkt skjákort sem flýtir fyrir í leikjum og margmiðlun lággeisla litaskjár góóur skjár sem vsmdar augun þegar álagið er mikið Ouantum harður diskur *qj|p>iikið geymslupláss fyrir vinnugögnin þin ,12 hruða geisladrii - Hraðvirkustu geisladrifin í dag sem eru frábær í leikjum og margmiðlun 16 hiia hljáðkort - Kristaltær hljómur við tónlistarhlustun eða leikjaspilun 25 watta hátalarar - Góðir hátalarar með hljómstyrks- og bassastillingum Windows 95 stýrikerfið uppsett og á goisladisk - Vinsælasta stýrikerfi heims fylgir með á geisladisk og uppsett í vélinni 102 hnai ippa lyklahorð og 3 hnappa yklaborð frá Digital og straumlínu Geniu mús Wtpy/wwwJUhdmri BJaTölvúr Grensásvagur 3 -108 Raykjavik Simi: 588 5900 Fax : 588 5905 Opnunartími virka daga : 10:00 -19:00 Opnunartimi laugardaga : 10:00 -16:00 Fidel Castro ræðir ástina og konur SPÆNSKA timaritið ABC hefur birt ást- arbréf sem Fidel Castro, forseti Kúbu, skrifaði Nataliu Revuelta, þegar hann var í fangelsi á árunum 1953-54. „Er eilíf- lega hug- fanginn af konum“ Havana. Reuter. FIDEL Castro, forseti Kúbu, segist „eilíflega hugfanginn af konum“ og eiga enn auðvelt með að verða ástfanginn en það sé þó alltaf „lostalaus og andleg ást“. Þetta kemur fram í viðtali við Castro í kúbverska dag- blaðinu Juventud Rebelde. Castro, sem er sjötugur, hefur hingað til verið mjög tregur til að tjá sig um einkalíf sitt en í viðtalinu er hann óhræddur við að ræða viðhorf sín til ástarinn- ar og kvenna. „Mönnum líður oftast vel þegar einhver elskar þá, en ég kýs frekar að vera sá sem elsk- ar því þegar einhver var ást- fangin af mér vissi ég ekki hvernig ég átti að bregðast við, mér fannst þær heija á mig eða sitja um mig,“ sagði hann. Opinberar heimildir sýna að Castro var kvæntur á árunum 1949-55 og þegar hann var spurður hvort það væri rétt svaraði hann að svo hefði ekki verið „í borgaralegum skiln- ingi“. Eiginkona Castros ól honum son árið 1950 og vitað er að hann átti nokkur börn utan hjónabands. Eitt þeirra, Alina Fem- andez Revuelta, sem býr nú í Miami, seldi nýlega sex ástarbréf sem Castro skrifaði móður hennar, Na- taliu Revuelta, þeg- ar hann var í fang- elsi á árunum 1953-54 fyrir tilraun til að steypa einræð- isstjórn Fulgencio Batista hershöfð- ingja. I einu bréfanna tjáir Castro konunni eilífa ást sína. „Skynsemin er köld, eins og ís; tilfinning- in heit eins og hraun ... Þú ert hugrökk; það líkar mér. Eg loga.“ Castro sagði í við- talinu að bréfin til Nataliu hefðu verið skrifuð í „ástríðu fjarlægðarinnar“. „Fjarlægðin magnar ástina.“ Forsetinn ráðlagði ennfrem- ur ástsjúkum konum að sýna ekki mönnunum, sem þær elska, of mikla ást því það kynti undir drambsemi þeirra. „Tóm- læti er mesti drifkraftur ástar- innar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.