Morgunblaðið - 25.03.1997, Síða 32

Morgunblaðið - 25.03.1997, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. KJARASÁTT Á VINNUMARKAÐI •• OLL ÞJOÐIN hefur vafalaust andað léttar, þegar þau tíðindi spurðust út í gærmorgun, að heildarkjarasamn- ingar væru í burðarliðnum. Stöðvun mjólkursölu og benzíns á höfuðborgarsvæðinu var þegar farin að valda almenningi óþægindum og allsheijarverkfall hafið. Þau hefðu leitt til lömunar atvinnulífsins og margs konar erfiðleika fólks. Ómælt tjón hefði hlotizt af víðtækum verkföllum og mikil hætta á, að efnahagslegur ávinningur þjóðarinnar á þjóðar- sáttartímanum, sigurinn yfir óðaverðbólgunni, hefði farið forgörðum. Með nýjum heildarkjarasamningum á almennum vinnumarkaði eru nú hins vegar horfur á því, að framund- an séu tímar bættra lífskjara allra landsmanna, kaupmátt- araukning, stöðugleikinn verði varðveittur og verðbólga lítil. Nýju kjarasamningarnir sýna, að verkalýðshreyfingin náði fram meginkröfu sinni um 70 þúsund króna lágmarks- laun. Sú krafa virðist njóta almenns stuðnings og einnig meðal margra vinnuveitenda, enda sanngjörn krafa. Hins vegar stóð rimma um, hversu fljótt á samningstímanum markinu verður náð og þessi ásteytingarsteinn leiddi m.a. til þess að snurða hljóp á samningsþráðinn hjá Dags- brún/Framsókn og landssamböndunum. Samningstilboð vinnuveitenda að kvöldi sunnudags hjó á þennan hnút. Það tryggir, að þeir, sem ekki ná 70 þúsund króna markinu nú nái því með mánaðarlegum eingreiðslum frá næstu ára- mótum. Helztu atriði nýju samninganna fela í sér nær 13% kaup- hækkun á samningstímanum, sem er þrjú ár, til febrúar- loka árið 2000. Kaup hækkar um 4,7% við undirritun, um 4% 1. janúar 1998 og um 3,65% 1. janúar 1999. Aðilar eru sammála um, að náist markmið samninga ekki eru þeir uppsegjanlegir með fjögurra mánaða fyrirvara. Mörg ný- mæli eru og í samningunum, m.a. um nýtt taxtakerfi, sem miðar að því að færa kauptaxta nær greiddu kaupi. Þá er opnað fyrir möguleikann á fyrirtækjasamningum og sveigj- anlegri vinnutíma. Miklar kjarabætur felast og í sérkjara- samningum. Mikilvægur þáttur í nýrri kjarasátt á vinnumarkaði er ákvörðun ríkisstjórnarinnar um skattalækkanir á næstu þremur árum, þær mestu sem hér hafa orðið um langt árabil. Kostnaður ríkisins við skattabreytingarnar eru 4,5 milljarðar og sveitarfélaga 500 milljónir. Staðgreiðsluhlut- fallið lækkar úr 41,98% í 37,98%. Reiknað er með því, að kaupmáttur aukist um allt að 10% fram að aldamótum gangi þessir samningar eftir og kemur það til viðbótar 8% kaupmáttaraukningu sl. tvö ár. Þá er vinnufriður tryggður í þrjú ár, sem gerbreytir starfs- umhverfi atvinnulífsins til hins betra. SINNULEYSI ÞAÐ GETUR varla flokkazt undir annað en sinnuleysi að íslenzk stjórnvöld skuli enn ekki hafa fullgilt al- þjóðasáttmálann um bann við framleiðslu, geymslu og notk- un efnavopna. Samningurinn gengur í gildi 29. apríl næst- komandi. ísland var á meðal fyrstu ríkja, sem undirrituðu samning- inn fyrir rúmum ljórum árum, og má furðu sæta að þing- legri meðferð hans skuli ekki vera löngu lokið. Langflest vestræn ríki hafa nú þegar fullgilt efnavopnasáttmálann og jafnframt mörg smáríki, sem hafa jafnvel enn fámenn- ari stjórnsýslu en ísland. Með þessari seinkun er í fyrsta lagi tekin sú óþarfa áhætta að íslenzkur efnaiðnaður verði beittur viðskipta- þvingunum vegna þess að ísland er ekki aðildarríki sáttmál- ans. í öðru lagi - og það skiptir ekki minna máli - verður hryllingurinn, sem fylgir efnahernaði, ekki stöðvaður nema með samstilltu átaki ríkja heims. Miklu skiptir því að öll ríki, stór og smá, eigi aðild að hinni nýju stofnun um bann við efnavopnum (OPCW). Allra sízt mega vestræn lýðræðis- ríki skorast undan þátttöku, burtséð frá því hvort þau hafa framleitt slík vopn eða ekki. Clinton, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir eftir leiðtoga- fundinn í Helsinki á föstudag að hann myndi beita sér fyrir því að efnavopnasáttmálinn yrði samþykktur á bandaríska þinginu og Bandaríkin yrðu stofnríki OPWC. Jeltsín Rúss- landsforseti hét því sömuleiðis að þrýsta á samþykkt samn- ingsins heima fyrir. íslenzk stjórnvöld ættu að stefna að því að ljúka þinglegri meðferð efnavopnasáttmálans á yfirstand- andi þingi, þannig að ísland verði í hópi stofnríkjanna. KJARASAMIUINGAR UIUDIRRIl MORGUNBLAÐIÐ ræddi við forystumenn vinnuveitenda og launþega að lokinni und- irskrift samninffa í Karphúsinu í ffærkvöldi. Halldór Björnsson Galli að 70 þús. nást ekki strax „ÞETTA er góður samningur í sjáifu sér en hefur þann galla að 70 þúsund króna markmiðið næst ekki að fullu strax,“ sagði Halldór Björnsson, for- maður Dagsbrúnar. „Þótt 70 þúsund krónur sjáist í næstum því hverjum flokki ná neðstu tölurnar ekki 70 þúsund fyrr en um áramót. Ef maður skoðar þann árang- ur fyrir þá sem nú hafa 50 þúsund króna laun þá hefði það einhvern tím- ann þótt sæmilegt." Halldór sagðist telja að það væru 5-6% félagsmanna sem fengju hækk- un á fyrrgreindu bili með þessum samningum. Halldór hefur átt við andstreymi að búa innan félagsins undanfarna viku. Fyrst felldi stóra samninganefnd félagsins samning sem hann hafði gert fyrir viku, í fyrrinótt óku Dags- brúnarmenn að Karphúsinu og þeyttu bílflautur í óánægjuskyni við yfirvof- andi samninga. Halldór sagði að- spurður að slík togstreita í félaginu reyndi á menn. „En þetta er eitthvað sem þú verður að reikna með þegar þú ert í forsvari fyrir stéttarfélag. Félagið er „aggressíft“ vegna þess að við höfum unnið vel úti í félaginu, við höfum vakið félagið og það er vel vakandi." Um það hvað hefði áunnist frá því stóra samninganefndin felldi fyrri samninginn þar til nú og hvort sú ákvörðun hefði verið réttmæt að feng- inni niðurstöðunni í gær, sagði Hail- dór að þetta hefði verið lýðræðisleg niðurstaða nefndarinnar á sínum tíma, „og ég sætti mig við það og þeir sem að þeirri ákvörðun stóðu og þeir sem eru að mótmæla þessu núna þurfa nú að una lýðræðislegri niðurstöðu." Hann sagði að á þessari viku hefðu komið fram ýmsar góðar breytingar á samningnum, upphafshækkunin hefði hækkað úr 4,2 í 4,7% og þetta hefði haft áhrif á alla þá sérsamninga sem búið var að gera. Halldór hefur tekið þátt í samning- um fyrir Dagsbrún síðan um 1960 og sagðist telja að þetta yrðu sínir síð- ustu samningar. Hann væri að vísu nýtekinn við formennsku í félaginu en hefði aldrei ætlað að vera lengi í þessu embætti. Þórarinn V. Þórarinsson Farið inn á nýj- ar brautir „ATVINNUREKSTURINN kemur til með að þola þennan samning. Þetta er enginn kollsteypusamningur. Þetta er þvert á móti samningur sem trygg- ir framhald stöðugleikans næstu árin. Því er hins vegar ekki að neita að launahækkanirnar eru snöggtum meiri en við hefðum viljað sjá,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ. „Við erum að horfa hér á kostnað- arauka sem kemur til með að liggja á bilinu 5-7% fyrsta árið eða tvöfalt það sem við erum að sjá í okkar sam- keppnislöndum. Þessa mun sjá stoð, annars vegar í afkomu fyrirtækja í útflutnings- og samkeppnisgreinum og hins vegar í atvinnustigi og verð- lagsmálum hér innanlands. Verðbólg- an verður ekki 2% eins og Vinnuveit- endasambandið hafði sett sér sem markmið fyrir þessa samningsgerð. Hún verður eitthvað meiri til að bytja með en lækkar síðan eftir því sem líður á samningstímann." Þórarinn sagði að í þessum samn- ingum væri farið inn á nýjar brautir í nokkrum atriðum sem vinnuveitend- ur vonuðust eftir að myndu skila já- kvæðum árangri. „í öllum þessum samningum sem við undirrituðum í kvöld er gert ráð fyrir að hægt verði að þróa það sem við köllum fyrir- tækjaþátt samninga, þ.e. samstarf um kjaraatriði innan fyrirtækja. Það er farið afar varlega af stað og af meiri varfærni en við höfðum vonast eftir. Við erum hins vegar sannfærðir um að á þessum þriggja ára samnings- tíma muni menn læra að vinna saman með þessum hætti þannig að í næstu samningalotu sé þess að vænta að stærri hluti af samningsgerðinni eigi sér stað á forsendum fyrirtækjasamn- inga,“ sagði Þórarinn. „í þessum samningum hækkum við lágmarkstaxta í lok samningstímann, 1. janúar 1999 upp í 70 þúsund krón- ur. Til þess að mæta kröfum verka- lýðsfélaganna um að þetta gerist fyrr tökum við inn tekjutryggingu sem færi þeim sem eru undir þessum mörkum hækkun strax á árinu 1998 án þess að hreyfa allt kauptaxtakerf- ið. Ef við hefðum átt að ná þessu marki með því að taka upp taxta- launakerfið hefði það leitt til meiri launabreytinga á öllum launamarkað- inum og það gat ekki orðið án þess að af því hlytist stórslys í okkar efna- hagslífi." Þórarinn sagðist gera ráð fyrir að þessir samningar kæmu til með að hafa áhrif á samninga ríkisins við sína viðsemjendur. Þeir fælu í sér einföldun á launakerfinu, sem væri til eftir- breytni fyrir ríkið. Aðalatriði væri þó að kostnaður ríkisins yrði ekki meiri en atvinnulífsins af samningunum. Björn Grétar Sveinsson Anægður með nýtt taxtakerfi „ÉG ER ánægður með hvernig okkur tókst að byggja upp þetta nýja kaup- taxtakerfi Verkamannasambandsins sem er miklu hærra heldur en það sem fyrir var. Þetta er m.a. byggt upp á þann hátt að það tekur styttri tíma fyrir fólk að komast inn í nýja kauptaxta sem eru miðaðir við starfs- menntun og -þjálfun og það er sú framtíð sem ég sé fyrir verkafólk á íslandi," sagði Björn Grétar Sveins- son, formaður Verkamannasambands íslands. Hann kvaðst einnig ánægður með aukinn orlofsrétt sem náðist með samningnum og hefur verið margra ára barátta hjá hans mönnum. „Síðan náðum við ákveðinni vörn inn í samn- inginn með höfnunarákvæðum ef allt fer úr böndum," sagði hann ennfrem- ur. Aðspurður um kröfuna um krónu- töluhækkun sem ekki náði fram að ganga sagði hann aðeins að því miður hefði því farið sem fór. „Við hjá Verkamannasambandinu vorum ein- faldlega orðin ein eftir í þessari krónutöluleið, það verður að segjast alveg eins og er. Því miður, segi ég, því ég er krónutölumaður og það erum við hjá Verkamannasambandinu." Arnar Sigurmundsson 7% hækkun hjá fiskvinnslu í ár „FLJÓTT á litið sýnist mér að á þessu ári muni samningarnir auka launa- kostnað fiskvinnslunnar um 600 millj- ónir eða um 7%. Kostnaðaráhrifin á greinina á samningstímanum öllum er um 14%,“ sagði Arnar Sigurmunds- son, formaður Samtaka fiskvinnslu- stöðva. „Með þessum samningi skapast nokkrir möguleikar hjá okkur til að fara í frekari vaktavinnu en nú er og það er einn af ávinningum þessa samnings. Við gerum okkur hins veg- ar grein fyrir því að þetta hefur í för með sér mikil útgjöld og lendir lang- þyngst á hefðbundinni botnfiskvinnslu vegna þess hvað hún er mannfrek. Engu að síður tel ég að þetta hafi verið það skynsamlegasta sem hægt var að gera í stöðunni, þ.e. að gera samning til lengri tíma og tryggja ÞÓRARINN V. Þórarinsson framk að lokinni undirritun kjarasamnin; Ólafur B. Olafsson foi þannig vinnufrið.“ Arnar sagði að allar meðaltalsmæl- ingar á rekstri botnfiskvinnslu sýndu að hún væri rekin með halla. Mörg fyrirtæki hefðu brugðist við þessu með því að fara í fjölbreyttari rekst- ur. Þau myndu án efa halda áfram að leita nýrra leiða í rekstrinum og reyna að hagræða eftir mætti. Aðalsteinn Baldursson Þokkalega ánægður AÐALSTEINN Baldursson, formaður fiskvinnsludeildar Verkamannasam- bands íslands, kvaðst sá,ttur við marga þætti samningsins. „í heildina er ég þokkalega ánægður með flest atriði nema launin, það er sá liður sem ég er óhress með og hefði viljað sjá mun hærri,“ sagði Aðalsteinn. „En ég er ánægður með það sam- komulag sem náðist um ýmis sérmál fyrir hópa innan Verkamannasam- bandsins. Til dæmis fer kauptrygging fiskverkafólks úr níu mánuðum í íjóra en það hefur lengi verið baráttumál. Nú þarf líka að ákveða orlof fisk- verkafólks í apríl ef fyrirtæki ætlar að loka yfir sumarið. Síðan verður tekið á starfsmenntunarmálum fisk- verkafólks, svo eitthvað sé nefnt.“ Aðalsteinn taldi einnig afar mikil- vægt að ná inn þeirri tryggingu að ef verðlagsforsendur myndu bregðast þá yrði hægt að segja samningnum upp. Um skipbrot krónutöluleiðarinnar hefur hann þetta að segja: „Við vorum með það markmið í upphafi að fara krónutöluleiðina en það gekk því mið- ur ekki upp. Við erum enn á því að það hefði átt að fylgja eftir samþykkt- um síðasta Alþýðusambandsþings þar sem var samþykkt að fara krónutölu- leiðina, en því miður brást samstaðan. Verkamannasambandinu var ýtt út í horn og þegar svo var komið gátum við ekki gert annað en að sveigja út af þeirri leið. Auðvitað er engin hrifn- ing með það.“ Ragna Bergmann Meirihluti fær eingreiðslu „ÞAÐ sem hefur áunnist frá því í síð- ustu viku er að við hækkuðum upp- hafshækkunina úr 4,2 í 4,7% og svo er ýmislegt inni í samningnum sem kemur okkar konum til góða sem var ekki inni áður,“ sagði Ragna Berg- mann, formaður verkakvennafélags- ins Framsóknar. Hún vildi ekki tiltaka einstök önnur dæmi um það hvað hefði breyst í samningnum frá því að stóra samn- inganefnd Dagsbrúnar og Framsókn- ar hafnaði fyrri samningi sem samn- ingamenn höfðu undirritað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.