Morgunblaðið - 25.03.1997, Síða 64

Morgunblaðið - 25.03.1997, Síða 64
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SlMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 25. MA-RZ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Kjarasamningar á almenna vinmimarkaðinum undirritaðir til þriggja ára Verkföllum hefur verið frestað í fjórar vikur SAMNINGANEFNDIR Dagsbrúnar/Framsóknar, Verkamannasambands- ins, Samiðnar, Landssambands verslunarmanna og vinnuveitenda undirrit- uðu nýja kjarasamninga á tíunda tímanum í gærkvöldi. Yfirstandandi verkföllum Dagsbrúnar, Framsóknar, Hlífar í Hafnarfirði og járniðaðar- manna hjá skipafélögum og boðuðum verkföllum nokkurra verkalýðsfé- laga, sem hefjast áttu 3. apríl, var frestað frá sama tíma til 23. apríl. Kjarasamningarnir gilda frá und- irritun til 15. febrúar árinu 2000 og er lágmarkshækkun launa 12,86% á samningstímanum. Frá undirskrift- ardegi hækka laun um 4,7%, þann 1. janúar 1998 um 4% og 1. janúar 1999 um 3,65%. Frá 1. janúar á næsta ári eiga lágmarkstekjur fyrir fulla vinnu að vera 70.000 kr. á mánuði og skal greiða mánaðarlega uppbót á laun starfsmanna sem ná ekki þessum tekjum. Þá er samið um að færa kauptaxta nær greiddu kaupi. Forystumenn ASÍ fullyrtu í gær að í þessum samningum væri stigið eitt stærsta skref í sérstakri hækkun lægstu launa sem stigið hefði verið árum saman. Engar breytingar gerðar á vaxtabótakerfi Við undirritun samninganna birti ríkisstjórnin yfirlýsingu þar sem seg- ir að forræði almennu lífeyrissjóð- anna á 10% sameiginlegu framlagi vinnuveitenda og launþega verði tryggt í þeirri löggjöf sem nú er í undirbúningi. Ríkisstjórnin fellur frá fyrirhugðum tillögum um breytingar á vaxtabótakerfinu en aðrar tillögur í skattamálum eru óbreyttar frá þeirri yfirlýsingu sem ríkisstjórnin gaf 10. mars. Þá er áréttuð sú yfír- lýsing að bætur í tryggingakerfinu muni hækka um þá meðalhækkun launa sem verði í kjarasamningum að _mati ríkisstjórnarinnar. I kjarasamningnum er opnunar- ákvæði þess efnis að aukist kaup- máttur ráðstöfunartekna ekki í sam- ræmi við þróun í helstu viðskipta- löndum, sé hægt að segja samning- unum lausum með fjögurra mánaða fyrirvara, nái samningsaðilar ekki saman um aðgerðir til að bregðast við frávikum. Morgunblaðið/Þorkell STARFSMENN Skeljungs voru að dæla bensíni á tanka bensín- stöðvar vlð Miklubraut laust fyrir miðnætti í gærkvöldi. Nóg bensín en lítil mjólk STRAX og búið var að skrifa undir nýja kjarasamninga í gær- kvöldi hófst dreifing á bensíni á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn Thomasar W. Möller, fram- kvæmdastjóra markaðssviðs Ol- ís, er reiknað með að búið verði að dreifa á flestallar bensín- stöðvar um hádegið í dag. Erfitt verður hins vegar fyrir neytend- ur að nálgast mjólkurvörur í dag vegna verkfalls mjólkur- fræðinga sem skall á í nótt. Þegar verkfalli Dagsbrúnar og Framsóknar var frestað í gær var bensínlaust á öllum bensínstöðvum frá Ferstiklu í Hvalfirði til Hafnar í Horna- firði. Sjö olíubílar Olís og Olíufé- laginu hófu að dreifa bensíni á höfuðborgarsvæðinu um kl. ell- efu í gærkvöldi. I nótt bættust sjö bílar af Suðurlandi og Suður- nesjum við. Thomas sagðist gera ráð fyrir að hægt yrði að fá bensín á öllum stærstu bensín- stöðvum á höfuðborgarsvæðinu þegar þær yrðu opnaðar kl. 9.30. Leysist verkfall mjólkur- fræðinga ekki í nótt eru horfur á að áfram verði mjólkurskortur á höfuðborgarsvæðinu eins og verið hefur. Guðlaugur Björgvinsson, forsljóri Mjólkursamsölunnar í Reykjavík, sagði að í gær hefði verið pakkað talsverðu af mjólk, en magnið væri mun minna en færi til dreifingar frá Mjólkursamsölunni á veiy'ulegum þriðjudegi. Þetta magn myndi því klárast strax í dag. Morgunblaðið/Kristinn HALLDÓR Björnsson, formaður Dagsbrúnar, undirritar nýjan kjarasamning á tíunda tímanum í gærkvöldi. Til hliðar við Halldór má sjá nokkra forystumenn landssambanda Alþýðusambandsins. í mati Þjóðhagsstofnunar frá í ingum og áformaðar ráðstafanir í en í helstu viðskiptalöndum okkar. gær segir að miðað við þjóðhags- skattamálum megi reikna með að -------------------------------- horfur eins og þær blasa við nú, ráðstöfunartekjur í heild vaxi hrað- ■ Kjarasamningar/10/11/32/33 fyrirliggjandi drög að kjarasamn- ar á samningstímanum hér á landi ■ Kjarasátt/32 Um 50 mál óleyst hjá sáttasemjara „ÞETTA hefur verið mjög flókin og erfið törn. Þarna var um að ræða mörg félög, áherslur oft á tíðum ólíkar og erfitt að fást við þetta verkefni," sagði Þórir Einars- son ríkissáttasemjari eftir að kjara- samningar höfðu verið undirritaðir í gærkvöldi. Kjarasamningarnir, sem gerðir voru í gærkvöldi, ná til talsvert á fjórða tug þúsunda félagsmanna í Alþýðusamþandinu. Samningar náðust fyrir nokkru við tvö lands- sambönd og eitt verkalýðsfélag, sem í er um fjórðungur ASÍ-félaga, og er því búið að semja fyrir mik- inn meirihluta félagsmanna Al- þýðusambandsins. Ósamið er við Sjómannasambandið, nokkur félög sem eiga beina aðild að sambandinu og öll verkalýðsfélög innan Alþýðu- sambands Vestfjarða eru enn með samninga lausa, en viðræður við flest þessara félaga halda áfram hjá sáttasemjara. Þá er ósamið við öll félög opinberra starfsmanna, innan BSRB og BHM. Þórir sagðist í gærkvöldi áætla að um 50 mál væru nú til meðferð- ar hjá sáttasemjara og því ljóst að mikil vinna væri framundan í samn- ingamálunum þrátt fyrir að tekist hefði að semja fyrir stærsta hluta almenna markaðarins. Verkfall Félags mjólkurfræðinga hófst á miðnætti í nótt en sátta- fundi félagsins með vinnuveitend- um var frestað í gær fram yfir miðnætti. Staðan í viðræðunum var óljós í gær. Auk þeirra samninga sem undir- ritaðir voru í gær milli landssam- banda og félaga í ASÍ og vinnuveit- enda voru einnig undirritaðir samn- ingar Dagsbrúnar/Framsóknar við Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ og Seltjarnarnesbæ og verkföllum hjá þessum aðilum frestað. Einnig var undirritaður kjarasamningur milli vinnuveitenda og landssambanda og verkalýðsfélaga vegna virkjun- arframkvæmda Landsvirkjunar. Samningum við ríkið ekki lokið í gærkvöldi stóðu hins vegar enn yfir viðræður þessara verkalýðsfé- laga, Verkamannasambandsins og Samiðnar við ríkið og var þeim ekki lokið þegar Morgunblaðið fór í prentun. Stóð verkfall félags- manna í Dagsbrún og Framsókn sem starfa hjá ríkinu því enn þegar Morgunblaðið fór í prentun. Agreiningur er á milli ríkisins og verkalýðsfélaganna um lögmæti verkfallsaðgerðanna, en fulltrúar ríkisins telja að ekki hafi verið stað- ið löglega að boðun vinnustöðvun- ar, þar sem ekki hafi verið búið að fullreyna að ná sáttum þegar atkvæðagreiðslur fóru fram. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur á enn ósamið við Kefla- víkurbæ og stendur því óbreytt boðun verkfalls, sem samþykkt var í fyrri viku, en það á að hefjast 3. apríl. Mikill verðmunur á lyfjum MIKILL verðmunur reyndist á ýmsum lyfjategundum í verð- könnun sem Samkeppnisstofn- un gerði í 30 apótekum þann 17. mars síðastliðinn. Kannað var verð á 32 algengum lyfjum. Mestur reyndist verðmunur- inn á hæsta og lægsta verði innúðalyfsins Ventoline en hann nam 354%. Þá var 135% munur á hæsta og lægsta verði Kliogest taflna og 157% mun- aði á 10 stykkjum af Parasupp stílum. ■ Allt að 354% verðmunur á Iyfjum/20-21

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.