Morgunblaðið - 03.04.1997, Síða 1
80 SIÐUR B/C/D
74. TBL. 85. ÁRG. FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Jihad-
menn
hand-
teknir
Gaza. Reuter.
PALESTÍNSKA lögreglan hefur
handtekið um 30 félaga í íslömsku
Jihad, hreyfíngu sem Israelar segja
að hafi gert misheppnaða tilraun
til að drepa gyðinga á Gaza-svæð-
inu í fyrradag.
Palestínsk yfirvöld sögðu að
mennimir hefðu verið handteknir í
nokkmm ahlaupum lögreglunnar í
fyrrinótt. ísraelar saka hreyfinguna
um að hafa sent tvo Palestínumenn
til að gera sjálfsmorðsárásir á
byggð gyðinga á Gaza-svæðinu.
Mennirnir biðu báðir bana í spreng-
ingum en enginn ísraeli særðist.
Palestínskir embættismenn
höfðu eftir sjónarvottum að annar
mannanna hefði beðið bana eftir
að sprengju hefði verið kastað úr
ísraelskum herjeppa. Talsmaður
Jihad sagði ekkert hæft í ásökunum
Israela og kvað ísraelsku leyniþjón-
ustuna hafa staðið fyrir árásunum
til að draga athyglina frá umdeild-
um byggingarframkvæmdum ísra-
ela við Austur-Jerúsalem, sem hafa
valdið óeirðum meðal Patestínu-
manna í tvær vikur. Hann kvaðst
ekki vita til þess að mennirnir hefðu
stutt Jihad.
Netanyahu
hvikar hvergi
Talsmaður Benjamins Netan-
yahus, forsætisráðherra ísraels,
sagði í gær að hann myndi hvergi
hvika frá áformunum um að reisa
6.500 íbúðir fyrir gyðinga við jaðar
Austur-Jerúsalem á fyrirhuguðum
fundi sínum með Bill Clmton
Bandaríkjaforseta á mánudag. ísra-
elsstjórn setti það skilyrði fyrir frek-
ari viðræðum við leiðtoga Palestínu-
manna að þeir gerðu ráðstafanir til
að binda enda á hryðjuverk araba.
Morgunblaðið
LEIÐANGURSMENNIRNIR ganga yfir hengibrú sem liggur yfir á í hlíðum Everestfjalls.
KLIFJUM hlaðnir Everestfararnir feta sig eftir hlíðum hæsta fjalls
í heimi, sherparnir fremst, en íslendingarnir fyrir aftan þá.
Sáu á tind
Everest
EVERESTFARARNIR sáu á tind
fjallsins í fyrsta skipti í gær, en
þeir eru núna í 5.170 metra hæð.
I dag koma þeir í aðalbækistöðvar
sínar, sem eru í 5.300 metra hæð.
Ferðin hefur gengið vel fram að
þessu.
Everestfararnir, Björn Ólafs-
son, Einar K. Stefánsson og Hall-
grímur Magnússon og aðstoðar-
menn þeirra, Hörður Magnússon
og Jón Þór Víglundsson, komu í
gær til staðar sem heitir Goraks-
hep, en það er síðasta byggða
bólið sem leiðangursmenn fara um
á leið sinni á tindinn. Það sem
vakti helst athygli þeirra í Goraks-
hep var verð á vöru og þjónustu.
Gisting í einu af fjórum húsum í
þorpinu kostar 35 krónur, en hins
vegar kostar bjórflaskan 300 krón-
ur og kókið 200 krónur.
Ferðalangarnir voru í talsvert
mikilli snjókomu í gær þegar
Morgunblaðið talaði við þá. Þeir
gengu einungis í tvo til þrjá tíma.
Hörður sagði að menn hlökkuðu
til að komast í aðalbækistöðvarn-
ar og væru ánægðir með að þess-
um hluta ferðarinnar væri að
verða lokið.
Mestur hluti búnaðarins, sem
fjallgöngumennirnir ætla að nota
við gönguna á tindinn, tafðist í
tolli og sagðist Hörður búast við
að hann kæmi til þeirra eftir 3-4
daga. Þetta myndi hins vegar
ekki tefja þá við undirbúning
ferðarinnar á fjallið. Meginverk-
efnið núna væri að koma sér fyr-
ir í aðalbækistöðvunum og halda
áfram að venja líkamann við hæð-
ina og þunna loftið. Menn myndu
því ganga upp og niður eftir Ever-
est næstu daga i samræmi við
upphaflega ferðaáætlun.
Hægt er að fylgjast með leið-
angrinum á alnetinu, en slóðin er:
http://www.mbl.is/everest
Djúpblá
með
mannlega
þáttinn
Yorktown Heights. Reuter.
IBM-tölvan Djúpblá hefur
skorað öðru sinni á Garrí
Kasparov, heimsmeistara í
skák, og verður einvígið haldið
dagana 3. til 11. maí. Þykist
hún vera
betur undir
það búin nú
en þegar
fundum
þeirra bar
saman í
fyrra því
þótt enginn
efist um of-
urmannlega reikningskunn-
áttu hennar, hefur skort nokk-
uð á „hið mannlega innsæi“.
Nú hefur verið úr því bætt.
I einvíginu í fyrra, sem var
sex skákir, sigraði Kasparov
en Djúpblá náði þó að vinna
eina skák og gera tvö jafn-
tefli. Nægði það til að skjóta
heimsmeistaranum verulegum
skelk í bringu en hann kvaðst
óttast, að bráðum yrði vélin
manninum fremri.
Meiri tilfinning
Tölvufræðingarnir hjá IBM
og stórmeistarinn Joel Benja-
min hafa að undanfömu unnið
að því að hressa upp á Djúp-
blá, sem er nærri tveggja
metra há og með 16 örgjörva,
en auk þess að bæta minnið
og hraðann, hún getur metið
hundruð milljóna staðna á sek-
úndu, hafa þeir lagt áherslu á
að auka skákþekkingu hennar
og tilfínningu fyrir hlutfalls-
legu gildi taflmannanna í alls
konar stöðum.
Einvígið í maí verður einnig
sex skákir og fær sigurvegar-
inn tæpar 50 milljónir ísl. kr.
í sinn hlut og sá sem tapar
tæpar 30 millj.
Reuter
ELLEFU ísraelskir hermenn slösuðust þegar rúta þeirra valt
niður brekku og brann eftir að bensinsprengju var kastað á hana
nálægt palestínskum flóttamannabúðum á Vesturbakkanum í gær.
Samið um ríkjasamband Rússlands og Hvíta-Rússlands
Sj álfstæðissinnar
mótmæla í Minsk
Minsk, Moskvu. Reuter.
LÖGREGLAN í Minsk, höfuðborg
Hvíta-Rússlands, barðist í gær við
sjálfstæðissinna sem efndu til mót-
mælagöngu eftir að forseti landsins,
Alexander Lúkasjenkó, og Borís
Jeltsín Rússlandsforseti undirrituðu
stytta útgáfu af samningi um að
ríkin tvö stofnuðu með sér ríkjasam-
band.
Þótt almennt sé talið, að í hvor-
ugu ríkinu fari mikið fyrir andstöðu
við samruna þeirra, efndu um 4.000
andstæðingar slíkrar þróunar til
háværra mótmæla í Minsk. Mót-
mælagangan var friðsamleg þar til
um 2.000 manns héldu í átt að
rússneska sendiráðinu. Lögreglan
beitti þá kylfum til að aftra fólk-
inu frá því að ráðast að sendiráð-
inu og nokkrir í hópi mótmælenda
hófu að kasta gijóti.
Að sögn vitna voru a.m.k 100
þátttakendur í mótmælagöngunni
handteknir. Að minnsta kosti þrír
blaðamenn voru á meðal hinna hand-
teknu.
Kommúnistar fagna
Markmið Lúkasjenkós að sameina
fyrrverandi Sovétlýðveldin tvö náð-
ust ekki alveg í samningnum og
hrósuðu umbótasinnar í ríkisstjórn
Rússlands happi yfir því. Þeir óttast
afleiðingar þess að vandamál Hvíta-
Rússlands bætist við þau vandamál,
sem Rússland sjálft á við að etja.
Hvíta-Rússland er orðið einangrað á
alþjóðavettvangi vegna stefnu ríkis-
stjórnar Lúkasjenkós, sem sökuð er
um mannréttindabrot, og efna-
hagsumbætur ganga mjög hægt í
landinu.
Kommúnistar og þjóðernissinnar
á rússneska þinginu fögnuðu undir-
ritun samningsins, þótt hann gengi
ekki eins langt og þeir vildu.
■ Umbótasinnar/19