Morgunblaðið - 03.04.1997, Side 4

Morgunblaðið - 03.04.1997, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Eldur í þak- skeggi Morgun- blaðshússins ELDUR kom upp í þakskeggi Morgunblaðshússins við Kringl- una um miðjan dag í gær og varð talsverður reykur af þeim sökum. Starfsmenn blaðsins réðust að eldinum fljótlega eftir að hans varð vart og innan skamms komu slökkviliðsmenn tii aðstoðar, en þeim bárust boð um eld gegnum sjáifvirkt kerfi. Tókst að hefta útbreiðsiu eldsins þannig að minna varð úr en á horfðist í fyrstu. Tveir dælubilar og körfubill voru hafðir til taks, auk þess sem varalið slökkviliðs var kaliað út, á meðan gengið var úr skugga um að eldur hefði ekki borist inn undir þakið. Eldsupptök eru í rannsókn, en grunur ieikur á að eldinn megi rekja til snjóbræðslu- kerfis í þakinu. RLR rannsakar málið. Skattrannsóknír skiluðu 555 milljónum í fyrra SKATTRANNSÓKNIR hafa á uhdanförnum fjórum árum leitt til hækkunar opinberra gjalda um 1.168 milljónir króna. Tæplega helmingur þeirrar hækkunar, eða 555 milljónir króna, varð í fyrra. Samsvarandi tala fyrir árið 1995 var 236 milljónir króna. Árangur skattrannsókna hefur aukist hratt frá árinu 1993 þegar skipu- lagsbreytingar voru gerðar í skattamálum og sérstakt embætti skattrannsóknarstjóra var stofnað. Þetta kemur fram í svari fjármálaráð- herra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur al- þingismanns. Verktaka- og bygging- arfyrirtæki rannsökuð sextíu sinnum Fjárveitingar til skattaeftirlits auknar Breytingar á opinberum gjöldum vegna skattaeftirlits, sem einkum felst í endurskoðun framtala fyrir og eftir álagningu, hefur á sama tíma farið lækkandi. Árið 1993 voru fjárveiting- ar til skattaeftirlitsins auknar og náðist þá veru- leg hækkun á opinberum gjöldum, eða um 1.619 milljónir króna. í fyrra var talan komin niður í 685 milljónir. Flestar rannsóknir skattrannsóknarstjóra hafa beinst að byggingar- og verktakastarf- semi, eða 61, og eru þá ekki talin mál sem varða bein vanskil opinberra gjalda. Um verslunar-, veitinga- og hótelrekstur var fjallað í 54 skýrsl- um, um iðnaðarstarfsemi í 31, þjónustustarfsemi í 27, útgerðarfyrirtæki í ellefu og flutningastarf- semi í fimm skýrslum og er í öllum tilvikum ótalin bein vanskil. Rannsóknir vegna beinna vanskila á opinber- um gjöldum voru 53 á tímabilinu og námu sam- tals 451 milljón króna. Flestar beindust þær að verktakastarfsemi, eða 14, og voru vanskilin alls 154,9 milljónir króna í þeim málum. Útgerð- arfyrirtæki voru tekin til rannsóknar í 13 tilfell- um og var vanskilaupphæðin þar nokkuð hærri, eða samtals 159 miiljónir króna. Veitingastarf- semi var rannsökuð í níu tilfelium og voru van- skilin 44,2 milljónir króna. 49 mál til héraðsdóms Á tímabilinu komu 49 skattsvikamál til kasta héraðsdóms og voru refsingar dæmdar í 47 málum. Hæstiréttur fékk tólf mál til meðferðar og dæmdi refsingar í öllum nema einu. í árslok 1996 var 251 mál óafgreitt hjá skatt- rannsóknarstjóra. Miðað við fyrri reynslu má búast við að tvö hundruð mál leiði til gjaldabreyt- inga eða annarra aðgerða skattrannsóknar- stjóra. Gjaldabreytingum var um áramótin ólok- ið í 74 málum sem send höfðu verið ríkisskatt- stjóra frá skattrannsóknarstjóra. Búast má við að þau skili um hálfum milljarði í hækkun opin- berra gjalda. Morgunblaðið/Ásdís STARFSMENN Morgunblaðsins réðust til atlögu við eldinn sem í gær kom upp í þakskeggi Morgun- blaðshússins fljótlega eftir að hans varð vart og þar til slökkviliðsmenn komu til bjargar. Tekjumark lífeyris hækkað HEILBRIGÐIS- og tryggingamála- ráðherra ákvað í gær með reglu- gerð að tekjumark lífeyrisþega til að geta átt rétt á frekari uppbót verði hækkað úr 75.000 kr. í 80.000 kr. á mánuði. Hækkun þessi gildir frá síðustu áramótum og jafnframt hefur verið ákveðið að tekjumarkið hækki hér eftir í réttu hlutfalii við hækkun bóta. Samkvæmt útreikningum Trygg- ingastofnunar ríkisins getur lífeyr- isþegum sem njóta frekari uppbótar fjölgað um 550 við þessa breytingu og gert er ráð fyrir að kostnaður verði um 30 milljónir króna á þessu ári. í fréttatiikynningu frá heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytinu kemur fram að ákvörðun um hækk- un tekjumarksins hafi verið tekin í framhaldi af viðræðum við fulltrúa samtaka aldraðra og öryrkja, en við setningu reglugerðar 29. apríl í fyrra þar sem m.a. var kveðið á um 75.000 kr. tekjuhámark varð samkomulag um að tekjumarkið yrði endurskoðað að fenginni reynslu. Þá er bent á að lífeyrisþegar geta fengið frekari uppbót ef þeir hafa sérstök útgjöld vegna umönn- unar, sjúkra- eða lyfjakostnaðar sem sjúkratryggingar greiða ekki, eða vegna húsaleigu sem sveitarfé- lag tekur ekki þátt í. Frumvarp til laga um háskóla Fjórir skólar sameinaðir í Kennaraháskóla Menntamálaráðherra boðar tvö frumvörp um háskóla. Annars vegar leggur hann fram á Al- þingi frumvarp að rammalöggjöf um háskóla á íslandi og hins vegar frumvarp til laga um Kenn- ara- og uppeldisháskóla íslands. í síðarnefnda frumvarpinu er gert ráð fyrir sameiningu fjög- urra skóla, sem starfa á þessu sviði, í eina háskólastofnun. Menntapólitísk rök Markmið frumvarpsins um Kennara- og uppeldisháskóla ís- lands er að sameina starfsemi Fósturskóla íslands, íþrótta- kennaraskóla íslands, Kennara- háskóla íslands og Þroskaþjálfa- skóla íslands í eina háskólastofn- un. í fréttatilkynningu ráðuneyt- isins segir að fyrir þessu séu bæði menntapólitísk rök og hag- kvæmnisrök og vegi þau fyrr- gréindu þyngra. „Menntun kennara og annarra uppeldis- og umönnunarstétta á margt sameiginlegt sem auðveld- ara er að efla og samhæfa undir einni yfirstjórn. Gildir það bæði um grunnmenntun þeirra, endur- menntun og framhaldsnám," seg- ir m.a. í frétt ráðuneytisins. Markmið rammalöggjafar um háskólastig er að festa í sessi skipan þess, að því er fram kem- ur í fréttatilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. Dregin eru saman meginskilyrði sem skólastofnun þarf að uppfylla til að geta talist háskóli og veita háskólagráðu í námslok. Gert er ráð fyrir því að lögin geymi ein- ungis einfaldar meginreglur um starfsemi háskóla með því að skilgreina markmið starfseminn- ar, tryggja betur sjálfstæði há- skóla, tryggja möguleika á virk- ara gæðaeftirliti með starfsemi skólanna og opna leið fyrir virka árangursstjórnun. Löggjöf hvers skóla verði síðan endurskoðuð og einfölduð en allar nánari útfærsl- ur á starfseminni verði að finna í sérlögum, reglugerð og starfs- reglum hvers skóla. I frumvarpinu er m.a. ráð fyr- ir því gert að háskólum verði veitt víðtækara umboð til fjár- málaumsýslu. Fjárveitingar til skólanna munu m.a. byggjast á fjölda nemenda og gert er ráð fyrir því að ríkisvaldið semji sér- staklega við hvern skóla til nokk- urra ára í senn. Lagt er til að staða rektorsembætta verði efld. Rektor verði skipaður af ráðherra til fimm ára og hann hafi ráðn- ingarvald yfir öllum undirmönn- um sínum þar sem annað er ekki berum orðum tekið fram í lögum. Þá verði ráðherra bundinn af til- lögu háskólaráðs um veitingu rektorsembættis. Nú er rétti tíminn til: Vetrarúðunar RÁÐGJÖF SÉRFRÆBINGA UM GARÐ- OG GRÖÐURRÆKT Meö því stuölar þú aö eölilegra lífríki plantna og skordýra í sumar. GROÐURVORUR VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANt Smiðjuvogi 5, Kópavogi, síml: 554 321 1 Morgunblaðið/Þorkell Sheehan og Hækkerup í heimsókn | YFIRMAÐUR Atlantshafsher- t stjórnar Atlantshafsbandalags- ins, John J. Sheehan hershöfð- ingi, og varnarmálaráðherra Danmerkur, Hans Hækkerup, komu hingað til lands í óform- lega kurteisisheimsókn í gær. Sheehan og Hækkerup sátu í fyrradag fund varnarmálaráð- herra Norðurlanda á Grænlandi { og snúa aftur til Grænlands í dag. Halldór Ásgrímsson utan- _ _ ríkisráðherra bauð til móttöku í M tilefni af komu þeirra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.