Morgunblaðið - 03.04.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 21
íslenskt ívaf á
Charlottenborg
Fimm íslenskir listamenn eiga um þessar
mundir verk á sýningum í og við
Kaupmannahöfn og sá sjötti er Dani, bú-
settur á Islandi. Sigrún Davíðsdóttir
staldraði við á vorsýningunni á Charlotten-
borg- og seffir frá íslenska listafólkinu þar
og verkum þeirra.
VORSÝNINGIN á Charlottenborg
er einn helsti listaviðburður Kaup-
mannahafnar og hefur verið í
meira en eina öld. Allir geta sent
inn verk, sem dómnefnd velur úr
og þar komast snöggtum færri að
en vilja. í ár eiga þrír íslendingar
verk á sýningunni, þau Guðlaug
Eiríksdóttir, Steinunn Helga Sig-
urðardóttir og Þórhallur Sigurðs-
son. Hinn 4. apríl verður svo opn-
uð einkasýning á verkum Stein-
unnar Helgu í North-Gallery í
Norregade. Á norrænni glerlista-
sýningu sýna þau Pía Rakel Sverr-
isdóttir, Sigrún Einarsdóttir og
Soren S. Larsen, sem býr á Is-
landi. Hjá Galleri 8 í Hróarskeldu
sýnir Pétur Gautur málverk, að
ógleymdri sýningu Rúríar í Ga-
lerie Bossky við Strikið.
Vorsýningin: 240 verk valin
úr 4.059 verkum
Vorsýningin á Charlottenborg
laðar að sér athygli allra þeirra,
sem hafa einhvern snefil af mynd-
listaráhuga og þar gefst tækifæri
til að sjá verk nýgræðinga í listum.
Listaakademían danska hefur ver-
ið til húsa í Charlottenborgarhöll
við Kóngsins nýja torg síðan 1753
og það var í tengslum við hana,
sem vorsýningin komst á laggirn-
ar. Sökum tengslanna við Lista-
akademíuna og að dómnefnd valdi
verkin var hugtakið „Charlotten-
borgarmálari“ á síðustu öld notað
sem gæðahugtak af listaverkasöl-
um og sýndi að viðkomandi málari
hafði náð því að sýna í Charlotten-
borg. Charlottenborg er enn sýn-
ingarsalur, en Listaakademían er
að flytjast út í Hólmann eins og
fleiri listaskólar.
Charlottenborgarmálararnir eru
margir hveijir gleymdir, en að-
streymi verkanna sýnir að ekki er
síður eftirsóknarvert en áður að
fá að taka þátt í Vorsýningunni. í
ár sendu ríflega 900 listamenn inn
4.059 verk, sem skiptast í eftirfar-
andi flokka: Málverk, höggmyndir/
innsetningar, grafík, listhandverk,
ljósmyndir og myndbönd og bygg-
ingarlist. Af verkunum 4.059 eru
sýnd 240 verk eftir 123 listamenn,
þar af sýna 84 í fyrsta skipti.
Vorsýningin er opin til 6. apríl.
Áhorfandinn þarf að
leggja sitt fram
Guðlaug Eiríksdóttir útskrifað-
ist úr Myndlista- og handíðaskó-
lanum 1993, flutti þá til Danmerk-
ur og var síðan 1 'h ár á Listaaka-
demíunni sem gestanemandi. Eftir
ferðalög hefur hún nú komið sér
fyrir á Austurbrú í Kaupmanna-
höfn og hefur vinnustofu. Verkið
á Vorsýningunni er fyrsta verkið
sem hún sýnir eftir að hún lauk
námi og hún og segist rétt vera
að byrja að sýna á eigin vegum.
Verkið á Charlottenborg kallar
Guðlaug „Gangur". Það er nokk-
urs konar kassi með gægjugati^
þar sem sér inn í dimmuna. I
fyrstu greina augun lítið, en með
því að rýna áfram mótar fyrir
gangi, þar sem eina vísbendingin
um ganginn er dauflegt ljósið, sem
berst eins og úr aðliggjandi her-
bergjum. Guðlaug segir verkið
framhald af verkum, sem hún
hefur áður unnið og fæst hún þar
við hið dularfulla og viðbrögð
áhorfandans. „Eina leiðin til að
finna út hvað þarna er,“ segir
hún, „er birtan, sem kemur utan
að. Verkið krefst þess af áhorf-
andanum að hann gefi sér tíma
til að skynja verkið.“
Guðlaug hafði gaman af að
fylgjast með ólíkum viðbrögðum
áhorfenda við verki sínu daginn,
sem sýningin var opnuð. Sumir
rétt litu inn um gatið en þorðu svo
ekki að gefa sér tíma, þegar augun
námu ekkert við fyrstu sýn. Aðrir
voru forvitnari og héldu áfram að
rýna inn, þar til augun greindu
ganginn.
Minningar og arfur - og
sýning í vændum
Verk Steinunnar Helgu heitir
„Þyrnikóróna Krists" og er teiknað
beint á vegginn eftir teikningu úr
gömlu íslensku teiknibókinni í
Árnasafni frá 15. öld. Á miða við
hlið verksins stendur að eftir sýn-
inguna verði verkið þvegið af
veggnum og eftir verði aðeins
minningin um verkið. „Ég vinn
með minningar, minningar mínar,
arf minn“, stendur að lokum.
Steinunn Helga býr í Lejre, sem
kallast Hleiðra í gömlum ritum,
skammt frá Hróarskeldu. Hún var
í nýlistadeild Myndlista- og hand-
íðaskólans, flutti síðan út og þá
var nærtækt að fara til Danmerk-
ur. Undanfarin þijú ár hefur hún
verið nemandi á listaakademíunni
í Dússeldorf hjá Jannis Kounellis.
Hún segir verkið vera frekari þró-
un hugmynda, sem hún hafi unnið
með lengi. „Hugmyndirnar þróuð-
ust frá útsaumsmynstrum
langömmu minnar," segir Stein-
ÞÓRHALLUR Sigurðsson:
Ibúðin sem atburður (líkanið).
unn Helga. „Þær byggja á sögu
íslands, minningum mínum og
missinum, sem ég upplifi við að
flytja frá ísland. Vísast hefði ég
aldrei farið að huga að þessu ef
ég hefði ekki flutt burtu.“
Við vinnuna með gömlu teikni-
bókina hefur Steinunn Helga hlotið
góða hjálp sérfræðinga bæði á
Árnastofnun í Kaupmannahöfn og
á íslandi og einnig nýtt sér bók
Björns Th. Bjömssonar um ís-
lensku teiknibókina, sem talin er
gerð sem nokkurs konar kennslu-
bók af 4-5 listamönnum. Hinn 4.
apríl verður einkasýning á verkum
Steinunnar Helgu opnuð í North-
Gallery að Norregade 7C, skammt
frá Strikinu. Þar sýnir hún þrettán
verk, þar sem innblásturinn kemur
einnig frá teiknibókinni og hug-
myndirnar snúast um minningar
og arf.
íbúðin sem atburður
Þórhallur Sigurðsson er arkitekt
frá dönsku Listaakademíunni.
Verkið á Charlottenborg, „Bebo-
elsen som hændelse“, eða „íbúðin
sem atburður", er í þremur hlutum,
tvær teikningar og líkan. Það hef-
ur hann unnið með félaga sínum
Adam Wingstrand með styrk frá
„Statens Kunstfond" og er grund-
vallað á lokaverkefni þeirra frá
Listaakademíunni. Verkefnið vann
þriðju verðlaun í samkeppni og þá
fengu þeir félagar styrk frá danska
listasjóðnum til að útfæra það nán-
Lóttu ekki minniháttar lýti
veroð d5 stóru vnndamóli.
MARBERT
ANTI - COUPEROSE EFFECT:
Sérstök meðferð sem vinnur
gegn roða og háræðasliti.
Með reglulegri notkun
styrkjast haræðarnor
og húðin fær eðlilegan litarhátt.
ANTI - COUPEROSE EFFEU
skilar undraverðum órangri.
Kynning ISÖNDRU fimmtudag
og föstudag.
Glæsilegur kaupauki.
'Ti
NÐRA
AVÍKURVEGI50, S. 5553422
w*m**v\
■ ......
■
GUÐLAUG Eiríksdóttir: Gangur.
STEINUNN Helga Sigurðardóttir:
Þyrnikóróna Krists.
ar og síðan var það sýnt í danska
skálanum á arkitektatvíæringnum
í Feneyjum.
Verkið er að sögn Þórhalls unn-
ið fyrir samkeppni, þar sem stefnt
var að uppgjöri við hugmyndir frá
því fyrr á öldinni um hvernig íbúð
eigi að vera og sem enn ríki að
miklu leyti. „í verkinu sköpum við
hugmyndafræðilegan bakgrunn
fyrir búsetu," segir Þórhallur.
„Þarna myndum við frumgerð fyr-
ir þau fjögur rými, sem eru mikil-
vægust fyrir einstaklinginn og
göngum út frá eldi, vatni, minning-
um og íhugun."
Þórhallur hefur tekið þátt í
ýmsum samstarfsverkefnum. Með-
al annars hefur hann unnið verk-
efni um Berlín ásamt ungum
dönskum rithöfundi, sem var liður
í samstarfi Listaakademíunnar og
Rithöfundaskólans. í janúar vann
hann samkeppni ásamt danskri
vinkonu sinni um hugmynd að
göngu- og reiðhjólabrú í Næstved.
Nú hafa þau tvö stofnað arkitekta-
stofu til að vinna frekar
að brúnni, en hvort og þá
hvenær brúin verður
byggð er enn ekki ljóst.
Það er því bæði hin hag-
nýta og listræna hlið bygg-
ingarlistar sem Þórhallur
fæst við og hann segist
ekki geta hugsað sér ann-
að en að teygja sig yfír
allan skalann. Hann tók
innanhúss-arkitektúr á
Danmarks Design Skole
áður en hann fór á Lista-
akademíuna, svo hann hef-
ur allt, sem byggingarlist
viðkemur á takteinunum.
Hann ætlar sér að dvelja
áfram í Kaupmannahöfn
og láta það verða, sem
verða vill.
Gler og málverk
Úti í Holte, norðan Kaupmanna-
hafnar, hefur undanfarið staðið
yfir norræn glerlistasýning á verk-
um tuttugu listamanna. íslenska
framlagið er frá Sigrúnu Einars-
dóttur og Soren S. Larsen, sem
reka glerverkstæðið í Bergvík á
Kjalarnesi og svo frá Píu Rakel
Sverrisdóttur, sem starfar í Dan-
mörku. Á sýningunni eru verk eft-
ir flesta kunnustu glerlistamenn
Norðurlanda og þar gefur því að
líta það sem hæst þykir bera í
norrænni glerlist þessi árin.
„Ung kunst godt pá vej“ er heiti
á sýningu hjá Galleri 108 í Hróars-
keldu, þar sem þrír ungir listamenn
eru kynntir. Einn þeirra er Pétur
Gautur, sem fluttist til Danmerkur
eftir nám í Myndlista- og handíða-
skólanum og hefur haldið nokkrar
sýningar í galleríum hér. Pétur
Gautur fæst við málverk í hefð-
bundnum stíl og myndefnin eru
iðulega uppstillingar. Sýningin
stendur til 6. apríl.
NY VERSLUN
EG SKRIFSTOFUBÚNAÐUR
kynnir „tölvumiðstöð" heimilisins
Loksins er nú fáanleg atsherjar lausn á tölvuumhverfi heimilisins.
Tölvumiðstödin er úr beyki og á hjólum með
útdraganlegri plötu með plássi fyrir lyklaborð
og mús; Hún er rúmgóð hirsla þar sem vel fer
um öll helstu tæki og fylgihluti tölvuheimilisins. ; Stærð:
lengd 80sm.
dýpt 45sm.
hæð 85sm
EG Skrifstofubúnaður ehf.
Ármúla 20 sími 533 5900 fax 533 5901