Morgunblaðið - 03.04.1997, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Brúðuleikhúsið
er lykill að veröld
fantasíunnar
Morgunblaðið/Ásdís
HALLVEIG Thorlacius segir að íslendingar ættu að taka Slóv-
ena til fyrirmyndar um þá virðingu sem þeir sýna brúðuleikhús-
inu. Brúðuleikrit eftir Hallveigu hefur verið sýnt í Slóveníu við
mikla aðsókn siðan í febrúar.
BRÚÐULEIKRIT Hallveigar
Thorlacius, Þrettándi jólasveinninn,
hefur verið sýnt við góðar undir-
tektir í Brúðuleikhúsinu í Ljubliana
i Slóveníu frá því í febrúar. Brúðu-
leikhúsið í Ljubliana tekur á milli
400 og 500 gesti og hefur aðsóknin
að leikritinu verið afar góð, að sögn
Hallveigar sem nýlega var viðstödd
sýningar í Ljubliana.
„Ég leik þetta vanalega ein en
þau settu þetta upp með þremur
leikurum og mun stærri leikmynd
en ég hef verið með þótt hugmynd-
in á bak við hana sé sú sama. Sag-
an byggist á íslenskum þjóðsögum
og aðalpersónurnar eru Grýla, Stúf-
ur og Jólakötturinn. Ein af skýring-
unum fyrir vinsældum leikritsins í
Ljubliana er að það fyallar um þess-
ar séríslensku persónur en ísland á
hug og hjörtu Slóvena eftir að við
vorum fyrst til að viðurkenna sjálf-
stæði þeirra.“
Það er slóvenska skáldkonan,
Svetlana Makarovich, sem þýðir
leikritið en hún hefur einnig þýtt
það á bók og gefið út myndskreytt.
Svetlana dvaldi hér á Jandi í boði
Rithöfundasambands íslands um
nokkurt skeið á síðasta ári og komst
þá í kynni við Hallveigu. „Hún hafði
kynnt sér íslenskar þjóðsagnaper-
sónur áður en hún kom hingað,“
segir Hallveig, „og hafði áhuga á
Alda sýnir á
Austurlandi
Neskaupstað. Morgunblaðið.
ALDA Ármanna Sveinsdóttir stóð
á dögunum fyrir myndlistarsýn-
ingu í Þórsmörk í húsi Listasmiðju
Norðíjarðar. Á sýningunni sem
nefndist „Konan og landið“ sýndi
Alda 53 myndir.
Alda er fædd á Barðsnesi við
Norfjörð 1936. Hún lauk námi frá
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1987.
Alda hefur haldið 20 einkasýn-
ingar auk þess sem hún hefur tek-
ið þátt í fjölda samsýninga. Sýning
Öldu, sem var vel sótt, verður
næst sett upp á Homafirði.
að kanna hvort þær leyndust ein-
hvers staðar í þjóðfélaginu. Og hún
fann þær í leikhúsinu hjá mér. Hún
varð mjög glöð við fundinn en þeg-
ar hún fór að kynnast því hvernig
er búið að brúðuleikhúsi hér á landi
varð hún bálreið."
Brúðuleikhús eins og
sundlaugar
Það er löng og mikil hefð fyrir
brúðuleikhúsi í Slóveníu eins og
flestum fyrrum austantjaldsríkjum,
að sögn Hallveigar. „Og viðhorfið
er þar af leiðandi allt annað en við
eigum að venjast," bætir Hallveig
við. „Það þykir jafn sjálfsagt að
hvert bæjarfélag í Slóveníu eigi
brúðuleikhús og íslensk bæjarfélög
eigi sundlaug. Þegar keyrt er inn í
Ljubliana er komið á stórt torg. Ég
hélt í fyrstu að þetta væri ráðhú-
storgið en við það stendur stór og-
reisuleg bygging. En þótt ótrúlegt
megi virðast er húsið sem þarna
blasir við brúðuleikhús borgarinnar.
í því eru margir salir en sá stærsti
þeirra tekur á milli 400 og 500
gesti.
Viðhorf fjölmiðla til brúðuleik-
hússins í Slóveníu er líka allt annað
en hér. Þótt hér sé verið að frum-
sýna nýtt brúðuleikrit er ekki bein-
línis verið að hlaupa upp til handa
og fóta. Þama úti fær frumsýning
fer með sýningu sína frá
Norðfirði til Hornafjarðar.
á brúðuleiriti hins vegar jafn mikla
athygli og frumsýning annarra leik-
verka.“
í heimi fantasíunnar
Aðspurð hvort íslendingar gætu
ekki lært eitthvað af Slóvenum um
brúðuleikhús segir Hallveig: „Við
ættum að taka þá til fyrirmyndar
um þá virðingu sem þeir sýna þessu
listformi. Ég las nýlega í grein eft-
ir uppeldisfræðing að fyrir utan
öryggið væri það mikilvægast börn-
um að fá að njóta lista.
Böm skilja ekki veruleika hvunn-
dagsins en þau koma í heiminn með
þann eiginleika að geta fótað sig í
heimi fantasíunnar. Þau skilja fanta-
síuna og þrá hana. Lykillinn að þess-
ari veröld ímyndunar og leiks er að
mínu viti brúðuleikhúsið; í því geta
börn og fullorðnir átt samleið.
Við eigum ekki sífellt að draga
börnin inn í okkar heim heldur
reyna að stíga niður af stallinum
og fara með þeim inn í hugarheim
þeirra; og við eigum að hjálpa þeim
að viðhalda honum sem lengst. Við
vöknum nefnilega oft upp við vond-
an draum þegar börnin okkar eru
búin að missa þennan eiginleika að
geta skapað sér sinn eigin heim og
förum að reyna að kenna þeim það
í skólum. Væri ekki skynsamlegra
að leyfa þeim að þroska þennan
eiginleika frá bytjun?“
Brúðuleikhúsið í Ljubliana kemur
hingað til lands í maí með hóp lista-
manna og setur upp tvö verk; leik-
rit Hallveigar og verk sem hefur
komist í Heimsmetabók Guinness
fyrir flestar sýningar.
Soffía Bjarna-
dóttir sýnir
í Skotinu
NÚ STENDUR yfir sýning Soffíu
Bjamadóttur í Skotinu, félagsmið-
stöð aldraðra í Hæðargarði 31.
Soffla hefur málað með olíu og
vatnslit í nokkur ár og fékk um
tíma leiðsögn hjá Hring Jóhannes-
syni. Undanfarið ár hefur hún nýtt
sér aðstöðu á vinnustofu félags-
miðstöðvarinnar.
Á sýningunni eru 18 vatnslita-
myndir unnar á síðustu mánuðum
og kallast fimmtán þeirra „Blóm“
og þijár „eða ekki blóm“. Sumar
myndanna eru gerðar með vatnslit-
uðum pappír og upplímdum á
pappírsflöt en meirihlutinn er
hreinar vatnslitamyndir.
Sýningin stendur til 18. apríl og
er opin frá mánudegi til föstudags
kl. 10—16. Lokað er um helgar í
félagsmiðstöðinni.
Galleríkeðjan Sýnirými
NORSKI listamaðurinn Morten
Kildevæld Larsen opnar sýningu í
gallerí Sýniboxi við Vatnsstíg 3,
laugardaginn 5. apríl, hann sýnir
verk sín einnig á matstofunni „Á
næstu grösum“ um þessar mundir.
í gallerí Barmi sýnir Stefán Jóns-
son verk er ber heitið „Útbrot",
þ.e. illa rakaður og fangelsaður
plastkarl reynir að bijótast út um
rimla á galleríinu, berandi er Yean
Fee Quay starfsmaður í listasafni
Singapore.
í gallerí Hlust verður að þessu
sinni flutt verk eftir Halldór Bjöm
Runólfsson listfræðing. Yfírskrift
verksins er „Simple Simon Says“
og em flytjendur þess Halldór Björn
og „The Paper Dolls“. Þetta er
Grimmhildur feldskeri
KYIKMYNPIR
Sambíóin
101 DALMATÍUHUNDUR
„101 Dalmatians“ ★ ★ Vi
Leikstjóri: Stephen Herek. Hand-
rit: John Hughes. Aðalhlutverk:
Glenn Close, Jeff Daniels, Joley
Richardson, Joan Plowright, Hugh
Laurie, The Walt Disney Company.
1996.
AMERÍSKU gamanhasar-
myndimar eru yfirleitt eins og
kvikmyndaðar teiknimyndir og
því kemur ekki á óvart að Disney-
fyrirtækið er farið að kvikmynda
sínar teiknimyndir með lifandi
leikurum. 101 Dalmatíuhundur
er ein af ástsælustu gömlu teikni-
myndum fyrirtækisins og þessi
nýja kvikmyndaútgáfa hennar er
næstum alfarið eins og teikni-
myndin i frásagnarstíl og útliti
og ekki síst leikrænum tilþrifum
Glenn Close í hlutverki hinnar
dæmigerðu Disneynornar.
Ung hjón, sem Jeff Daniels og
Joely Richardson leika, eiga svo-
kallaða Dalmatíuhunda en fata-
hönnuðurinn og feldskerinn
Grimmhildur Grámann gimist
mjög feldi litlu hvolpanna sem
þeir eignast og heimskuleg hand-
bendi hennar ræna þeim og fara
með upp í sveit og bæta þeim í
safn annarra þjófstolinna Dalma-
tíuhunda. Hyggst fatafríkið
Grimmhildur feldskeri, sem sam-
kvæmt fréttum hér í blaðinu ber
íslenska hárkollu, gera úr þeim
fallega og mjúka, doppótta kápu.
Ekki gengur það andskotalaust
fyrir sig eins og nærri má geta.
Handritið skrifar hinn afar
atorkusami John Hughes. Hann
gerði áður nokkuð þekkilegar
unglingamyndir („The Breakfast
Club“) áður en hann snéri sér
að metsölugamanmyndum eins
og „Home Alone“, sem eru jafn-
vel ennþá meiri teiknimyndir en
sjálfar Disneyteiknimyndirnar.
Því virðist hann réttur maður á
réttum stað og setur í Disneysög-
una hið sársaukafulla gaman sem
myndir hans eru frægar fyrir,
þar sem smákrimmar ganga í
gegnum þvílíkar raunir að
Tommi bæði og Jenni gætu vor-
kennt þeim sárlega. Helmingur
myndarinnar fer í að sýna útreið-
ina sem Gimmhildur Grámann
og tveir aulalegir samverkamenn
hennar fá hjá dýrum og mönnum
í misheppnaðri tilraun til að kom-
ast yfir hvolpana. Það nákvæm-
lega sama gerðist í „Home Al-
one“ myndunum nema þar var
aðeins einn hvolpur, Macaulay
Culkin.
Hughes og leikstjórinn Step-
hen Herek tekst að gera 101
Dalmatíuhund að ágætri
skemmtun með þessari aðferð.
Close er stórkostlega kvikindis-
leg í hlutverki nornarinnar De
Vil; ef nornin í Mjallhvíti væri
hálft eins slæm og hún hefðu
dvergamir sjö orðið að litlum
handtöskum. Daniels og Richard-
son eru nákvæmlega eins væmin
og hægt er að hugsa sér, hund-
amir eru krúttlegir og bófamir
hlægilegir. Skemmtilegar leik-
myndirnar auka á gamanið.
Altso, prýðileg fjölskyldu-
skemmtun.
Arnaldur Indriðason
þrautakóngur og að sögn Halldórs
snýst verkið um eftirfarandi þema:
„Hinn íslenski listheimur hefur sér-
kennilega tilhneigingu til að færa
sjálfan sig í spennitreyju; fullkom-
lega að nauðsynjalausu. Mörgum
íslenskum listamanninum fínnst
sem yfir honum vofi einhver ósýni-
leg listalögga sem neyði hann til
að gera svona og svona en ekki
þannig né þannig. Þetta er ekki
ólíkt hinni sjálfskipuðu málfars-
löggu sem alltaf er að hnýta í al-
menning fyrir druslulegt málfar.
Árangurinn verður sjálfs(rit)skoðun
og sauðsháttur - allir fylgja ímynd-
uðum þrautakóngi - sem gerir ís-
lenska list fátæklega, „safe“, sjálfs-
meðvitaða og drepleiðinlega.
Þorvaldur
Þorsteins-
son í Ing-
ólfsstræti 8
ÞORVALDUR
opnar í dag í
Þorsteinsson
Þorsteinsson
Ingólfsstræti 8
sýningu
sína, sem
hann nefnir
íslensk
myndlist, en
hana hefur
hann unnið í
samvinnu við
fréttastofu
sjónvarpsins.
í kynn-
íngu segir:
„Á stuttum ferli hefur Þorvald-
ur verið afkastamikill myndlist-
armaður og hafa verk hans
verið kynnt víða í Evrópu og á
Norðurlöndum. Þá sinnir hann
einnig ritstörfum, einkum fyrir
leiksvið, útvarp og sjónvarp.
Fyrir skömmu hlaut Þorvald-
ur viðurkenningu úr sjóði Ric-
hards Serra sem Listasafn ís-
lands hefur yfírumsjón með.“
Sýningin stendur til 27. apríl
og er opin fimmtudaga til
sunnudaga frá kl. 14-18 og
er aðgangur ókeypis.
Steingrímur
sýnir á Egil-
stöðum
í GÆR opnaði Steingrímur St.
Th. Sigurðsson málverkasýn-
ingu á í Café
Nielsen,
Vallarbraut
1 á Egilstöð-
um
Sýnir
hann 28 nýj-
ar myndir,
nokkrar
þeirra mál-
aðar á Akur-
eyri og í A-
Húnavatns-
Steingrímur
St. Th.
Sigurðsson
sýslu.
Þetta er 83. sýning Stein-
gríms heima og erlendis. Sýn-
ingin er opin daglega kl.
11-23.30 og stendur til þriðju-
dagsins 8. apríl.
Síðasta sýn-
ingarhelgi
Braga Ás-
geirssonar
SÝNINGU Braga Ásgeirssonar
í Listþjónustunni lýkur nú um
helgina, sýningin hefur staðið
síðan 8. mars.
Á sýningunni eru 13 teikn-
ingar af fyrirsætum unnar á
árunum 1949-1959 auk sjálfs-
myndar frá árinu 1948.
Sýningin er opin laugardag
og sunnudag frá kl. 14-18.
Lífið í
götunni
SÝNINGU Guðrúnar Bene-
diktu Elíasdóttur „Lífíð í göt-
unni“ í Listhúsi 39 við Strand-
götu 39 I Hafnarfirði lýkur
mánudaginn 7. apríl.
Á sýningunni eru málverk
sem öll eru frá síðasta ári og
sýna hina margbreytilegu sögu
sem lesa má úr landslagi göt-
unnar. Sprungnum steinum
sem hafa máðst og markast
af lífínu í götunni í gegnum
tíðina.
Opið mánudaga til föstudaga
kl. 10-18, laugardaga kl.
12-18 og sunnudaga kl.
14-18.