Morgunblaðið - 03.04.1997, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 27
ADSENDAR GREINAR
Hörmuleg
andleg leti
, „HVAÐ ERTU, Gunn-
' laugur, að skrifa í blöð
um kvótann, sem þú
veist ekkert um!“ sagði
maður einn við mig um
daginn. Þá kemur og
fyrir, að fólk segi við
mig, að það skilji ekki
í mér að nenna að skrifa
um kvótann, sem er svo
erfítt að átta sig á, að
það hirði ekki um að
lesa þess konar skrif.
Auðvitað breytir litlu,
þótt sumir nenni ekki
að láta sig varða þjóðar-
hag. Andleg leti er aftur
á móti of algeng með
þjóðinni, sem er um-
hugsunarefni. Það má aldrei gleym-
ast, að hagur íslensku þjóðarinnar
er að mestu leyti byggður á því
hvemig til tekst um sjávarútveginn.
Einmitt þar hefur þekking á meðferð
stjórnvalda á þeim málum meginþýð-
ingu. Fólk þyrfti að vita nokkur deili
á sjávarútveginum, bæði út frá efna-
hagslegu og lögfræðilegu sjónarmiði.
Kvóti er lögvarinn skipulagning
fískveiða, en getur ekki talist til at-
vinnuréttinda, sem 75. gr. stjóm-
Eins og mörg önnur lög
voru úthafslögin hvað
eftir annað, segir Gunn-
laugur Þórðarson, af-
greidd án mikillar yfir-
vegunar á Alþingi.
arskrár tekur til og getur ekki talist
eign, en fískurinn í sjónum er þjóðar-
eign. Alþingi getur hvenær sem er
lagt kvótann niður bótalaust og má
jafna því til 100% fymingar á einu ári.
Segja má, að kvótinn sé í megin-
atriðum tvenns konar. í fyrsta lagi
kvóti, sem tekur til afmarkaðra
svæða eða vissra fisktegunda, t.d.
karfakvótinn á Reykjaneshrygg og
rækjukvótinn á Flæmska hattinum.
í öðru lagi kvóti innan lögsögu, sem
fylgir skipi og byggist á þeirri
áhættu, sem útgerðir tóku á sig og
skópu sér kvóta með, sem miðast í
rauninni við þetta 10-15 og allt að
50 ára veiðireynslu. ís-
lensk-norski stofninn,
er enn í einni púliu.
Samkvænt úhafs-
veiðilögunum em skil-
yrði fyrir að kvóti yrði
lagður á væri þriggja
ára veiðireynsla. Veiði
á íslensk-norska síldar-
stofninum hefur aðeins
staðið í tvö ár. Það er
eftirminnilegt að sjáv-
arútvegsnefnd Alþingis
stöðvaði sjávarútvegs-
ráðherra, þegar hún
ætlaði að setja líka þar
kvóta og varð að gefa
þá veiði fijálsa. Utan-
ríkisráðherra sagðist
ekki hafa skilið þau ákvæði laganna,
þegar hann samþykkti þau. Vildi
hann líka láta úthluta kvótum á ís-
lensk-norsku síldina umsvifalaust, en
fékk því ekki framgengt. Það er
tæpast furða, að utanríkisráðherra
hafí áttað sig hvað hann hefði sam-
þykkt á Alþingi, þegar þess er gætt,
að á tæpu undanförnu ári hefur Al-
þingi breytt þeim lögum tvisvar og
höfðu þær lagabreytingar í för með
sér mikilvægar breytingar varðandi
úthafsveiðina, í þrígang.
Eins og mörg önnur lög voru út-
hafslögin hafa eftir annað afgreidd
án mikillar jrfirvegunar á Alþingi.
Annars mátti það teljast merki-
legt, að ekki skyldi, þrátt fyrir
ákvæði laga, hafa verið úthlutað
kvótum á íslensk-norska stofninn
eins og hinn „harðduglegi agitator
LÍÚ“ virðist ráða miklu í útvegsmál-
um þjóðarinnar.
Það eru mikil vandræði, að stjóm-
völd skuli geta úthlutað slíkum rétt-
indum sem í kvótanum felast. Nú
ku verið að úthluta rækjukvótum á
Flæmska hattinum að verðmæti kr.
1,6 milljarðar og kvótanum á Reykja-
neshrygg fyrir 10 milljarða, sem út-
gerðaraðilar geta notað eða leigt út
án áhættu. Það er segin saga, að
allri úthlutun fylgir spilling. Auðvitað
ber, þegar þar að kemur, að selja
kvóta úr íslensk-norska síldarstofn-
inum á fijálsu uppboði og sama gild-
ir um kvótann í Smugunni.
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
Gunnlaugur
Þórðarson
Þann 17. maí býður Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar beint leiguflug til hinnar
fornfrægu og fallegu borgar Prag. Heimflug til Islands er síðan þann 24. maí.
Fjöldi hagstæðra ferðamöguleika er í boði, meðal annars getum við boðið
flug og hótel í eina vikL í Prag frá 49.900 krónum á mann og er þá innifalinn
flugvallarakstur, morgunverður, flugvallarskattur, skoðunarferð um borgina og íslensk fararstjóm.
Einnig getum við boðið flug og bíi frá krónum 32.260 miðað við 4 fullorðna f bfl
og gefst þá kostur á að skoða ýmsa staði sem ekki er hægt að heimsækja á bflum,
sem leigðir eru á vestlægari slóðum.
Leitið nánari upplýsinga hjá utanlandsdeild okkar.
<3
FcrAaskrifstota
GUDMUNDAR JÓNASSONAR HF.
Borgartúni 34, simi 511 1515.
Er Karphúsið í Kópavogi’
Tcycta Ccrclla
á sérstöku
tilbcðóverði
í 1C daga
Við bjóðum hinn sívinsæla fjölskyldubíl,
Toyota Corolla Sedan, árgerð 1997, á frábæru
verði dagana 3. -13. apríl. Takmarkaður íjöldi
bfla svo að nú er að bregðast fljótt við.
Aðeim
1.394.CCC lcr.
Toyota Corolla Sedan '97
• Þaulreyndur við íslenskar aðstæður
• Lipur og skemmtilegur í akstri
• Loftpúði fyrir ökumann og farþega
• Vökva- og veltistýri
• Samlæsingar á hurðum
• Rafmagnsrúður
• Útvarp og segulband og 4 hátalarar
• Fjarstýrðir speglar
• Snúningshraðamælir
• Forstrekkjari á öryggisbeltum
• Hæðarstilling á öryggisbeltum
• 4 höfuðpúðar
• Stilianleg bílstjóraseta
• Styrktarbitar í hurðum
• Samlitir speglar og hurðahúnar
• Samlitir stuðarar og hliðarlistar
• 420 lítra farangursrými
• Skott og bensínlok opnanlegt innanfrá
<$) TOYOTA
Tákn um gœði
Nýbýlavegi 8, Kópavogi, sími 563 4400