Morgunblaðið - 03.04.1997, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 35
KRISTINN TH.
HALLGRÍMSSON
+ Kristinn Theod-
ór Hallgríms-
son var fæddur að
Reykhúsum í
Hrafnagilshreppi i
Eyjafirði 12. maí
1905. Hann andað-
ist á Kristneshæli í
Eyjafirði 20. mars
siðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Hallgrímur Krist-
insson (1876-1923),
fyrsti forstjóri
Sambands ísl. sam-
vinnufélaga, og
kona hans, María
Jónsdóttir (1874-1954). Systkini
Kristins eru: 1) Jón Hallgrims-
son, bóndi að Reykhúsum
(1903-1993). 2) Sigríður Hall-
grímsdóttir (f. 1907). 3) Páll
Hallgrímsson, fyrrv. sýslumað-
ur (f. 1912).
Kristinn stundaði nám í Sam-
vinnuskólanum í
Reykjavík 1921-
1923. Hann starfaði
hjá Sambandi ísl.
samvinnufélaga í
Reylqavík 1924-
1925 og á skrifstofu
þess í Leith 1925-
1927. Frá 1927 til
1948 starfaði Krist-
inn aftur hjá Sam-
bandinu í Reykja-
vik, lengst af sem
féhirðir. Frá 1948
til 1962 var hann
bókari og gjaldkeri
á skrifstofu Sam-
bandsins í Leith og gegndi
sömu störfum á skrifstofu þess
í London frá 1962 til 1966. Frá
1966 til 1976 sinnti hann ýmsum
störfum á skrifstofu Sambands-
ins í Reykjavík.
Útför Kristins var gerð frá
Grund í Eyjafirði 1. apríl.
Við fráfall Kristins Hallgríms-
sonar rifjast upp fyrir mér þeir sum-
ardagar á árinu 1959, þegar ég hóf
störf á skrifstofu Sambandsins í
Leith. Kristinn hafði þá starfað þar
sem bókari og gjaldkeri frá árinu
1948, en framkvæmdastjóri skrif-
stofunnar á þessum tíma var Sigur-
steinn Magnússon og hafði hann
gegnt því starfi allt frá árinu 1930.
kristinn hafði raunar starfað tvö
ár á Leith-skrifstofu hjá fyrirrenn-
ara Sigursteins, Guðmundi Vil-
hjálmssyni, sem síðar varð forstjóri
Eimskipafélags íslands. Það var á
árunum 1925 til 1927, en skrifstof-
an var sett á stofn árið 1920.
Kristinn var flestum hnútum
kunnugur um starfsemi skrifstof-
unnar og viðskiptahætti og reyndist
mér, nýliðanum frá íslandi, afar vel
í alla staði. í febrúar 1962 var skrif-
stofan flutt til London eftir rúmlega
fjögurra áratuga starfsemi í Leith.
Vorum við þrír sem fluttumst „suð-
ur á land“ með starfseminni: Krist-
inn, John S. Leishman og sá sem
þessar línur ritar. John Leishman
var hinn ágætasti maður, skoskrar
ættar, sem vann Sambandinu mest-
an hluta starfsævi sinnar á skrif-
stofum þess í Leith og London.
Hann eyddi síðustu árum sínum i
Edinborg, þar sem hann lést fyrir
allmörgum árum.
Kristinn Hallgrímsson var jafnan
léttur í lund og kunni vel að segja
frá. Hann hafði upplifað mikla
umbrotatíma í tveimur þjóðlöndum
og margt af því, sem fyrir hann
hafði borið varð honum tilefni til
heimspekilegra hugleiðinga um lífið
og tilgang þess. Kristinn var gædd-
ur ágætri kímnigáfu og því varð
honum oft tíðrætt um þá þætti til-
verunnar sem honum þóttu
skemmtilegir eða spaugilegir. I frá-
sögnum af þessum tagi var hans
eigin persóna hvergi undanskilin.
Vera má að þeim sem ekki þekktu
Kristin hafi fundist hann hijúfur
við fyrstu kynni, en þeir voru fljót-
ir að komast að raun um að maður-
inn var einkar ljúfur í umgengni.
Ég held að ríkustu þættir í fari
hans hafi verið einlægni og sam-
viskusemi. Kristinn var greiðvikinn
og hjálpsamur svo af bar og hafði
sérstakt yndi af, gæti hann fært
til betri vegar eitthvað það sem
úrskeiðis hafði farið hjá vinum hans
og kunningjum. Af frásögnum hans
mátti ráða að hann hafði tekið
dijúgan þátt í félagslífi starfs-
manna Sambandsins, áður en hann
hvarf öðru sinni til starfa erlendis.
Samstarfsmaður hans frá þessum
löngu liðnu árum, Björn Guðmunds-
son, lengi deildarstjóri hjá Sam-
bandinu, minnist hans með þökk
og virðingu og hefur sérstaklega á
orði dugnað Kristins við að koma
upp skála starfsmanna í Skamma-
dal í Mosfellssveit.
Eftir að við hjónin fluttum til
Hamborgar, en Kristinn þá enn við
störf í London, dvaldi hann ein jól
með okkur í Þýskalandi. Þessi heim-
sókn er okkur hjónum eftirminnileg
og þá ekki síður börnum okkar, en
Kristinn átti afar létt með að um-
gangast böm. Ræddi hann margt
við syni okkar, ekki hvað síst um
smíðar, sem voru honum löngum
hugleikið umræðuefni.
Þegar Kristinn varð sextugur var
hann enn við störf í London. Hittist
þá svo á að ég var staddur austan
við járntjaldið og tókst mér ekki
að ná við hann símasambandi. Ég
hvarf þá að því ráði að senda honum
tvær vísur í símskeyti og brá nú
svo merkilega viuð að þær komst
nokkurn veginn óbrenglaðar til
skila. Sú fyrri var svona:
Eyðast þér dagar
ættjðrð fjarri,
fykur í feðra slóð.
Þó munu enn
sé eftir leitað
leynast þar lítil spor.
í þessu vísukorni fólst ef til vill
hógvær áminning til afmælisbarns-
ins um að nú væri mál til komið
að hann sneri aftur heim til fóstur-
jarðarinnar. Um það bil ári síðar lét
Kristinn útivist sinni lokið og sinnti
hann ýmsum störfum hjá Samband-
inu í Reykjavík meðan starfsaldur
entist. Kristinn var sæmdur gull-
merki Sambandsins fyrir 45 ára
starf, en alls urðu starfsárin 52.
Síðustu sporin, eins og þau fyrstu,
átti hann í Eyjafirði. Mörg hin síð-
ustu ár var hann vistmaður á Krist-
nesi. Var útför hans gerð frá Grund
í Eyjafirði þriðjudaginn 1. apríl sl.
Að leiðarlokum þökkum við Inga
hinum látna heiðursmanni vináttu
hans og liðnar samverustundir.
Systkinum hans og öðru ættfólki
sendum við samúðarkveðjur.
Sigurður Markússon.
t
Ástkaer faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ERLENDUR J. SÆMUNDSSON,
Hátúni 10,
Reykjavík,
lést á heimili sínu aðfaranótt 30. mars.
Útförin auglýst síðar.
Vfkingur A. Erlendsson, Hugrún Högnadóttir,
Sæmundur E. Erlendsson,
Guðjón P. Eriendsson,
Guðmundur Kr. Erlendsson, Þórdís Hjörvarsdóttir,
barnabörn og aðrir aðstandendur.
t
Faðir okkar,
STEFÁN ÞORSTEINSSON
frá Ólafsvík,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
1. apríl.
Þorsteinn Stefánsson
og systkini.
t
MAGNUS SIGURÐSSON
bifreiðastjóri
frá Efstadal,
sem lést föstudaginn 28. mars, verður
jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 4. april kl.
13.30.
Böm, tengdabörn og barnabörn.
t
Föðurbróðir okkar, frændi og vinur,
GUÐMUNDUR JÓHANNESSON
frá Saurum,
síðast til heimilis
f Silfurtúni, Búðardal,
lést á Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn
31. mars síðastliðinn.
Útför hans fer fram frá Fljarðarholtskirkju,
Dalasýslu, laugardaginn 5. apríl nk. kl. 14.00.
Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni ( Reykjavík kl. 9.00 sama dag.
Fyrir hönd vandamanna,
Melkorka Benediktsdóttir,
Guðbrandur Ingi Hermannsson,
Jóhannes Benediktsson,
Þorsteinn Hermannsson,
Jófrfður Benediktsdóttir.
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir og tengda-
sonur,
MAGNÚS M. BRYNJÓLFSSON,
Búlandi 15,
Reykjavík,
andaðist mánudaginn 24. mars.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
4. apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeir,
sem vilja minnast hins látna, láti Minningarsjóð Sveins Más Gunnars-
sonar njóta þess.
Skrifstofa Foreldrafélags misþroska barna, Bolholti 6, annast sölu
minningarkorta, sími 568 0790 og einnig Blómaverkstæði Binna og
Stefánsblóm, Skipholti.
Sigrún Guðmundsdóttir, Magnús Magnússon,
Guðmundur Kr. Halidórsson.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, tengdasonur, bróðir og afi,
EINAR THORLACIUS HALLGRÍMSSON,
Fífumóa 3,
Njarðvík,
er lést á dvalarheimili Sjálfsbjargar, Hátúni 12,
á páskadag, verður jarðsunginn frá Ytri-
Njarðvíkurkirkju föstudaginn 4. apríl kl. 15.00.
Valgerður Helgadóttir,
Elin B. Einarsdóttir, Ómar Kristjánsson,
Laufey Einarsdóttir, Magnús G. Jónsson,
Ólöf Einarsdóttir, Guðjón Skúlason,
Ólöf Bjarnadóttir,
systkini og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
AUÐUNN ÞORSTEINSSON
húsgagnasmíðameistarí,
Lönguhlfð 23,
Reykjavfk,
lést á heimili sínu að kvöldi annars páskadags.
Jarðarförin auglýst síðar.
Svava Kristjánsdóttir,
Kristján Auðunsson, Anna Friða Bemódusdóttir,
Margrét Auðunsdóttir, Konráð Þórísson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Móðir okkar,
SIGRÚN INGÓLFSDÓTTIR
fyrrum skólastjórafrú,
Hólum, Hjaltadal,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 1. apríl.
Ingólfur Kristjánsson,
Karítas Kristjánsdóttir,
Karl Krístjánsson,
Guðbjörg Krístjánsdóttir,
Freyja F. Sigurðardóttir.
t
Ástkær eiginkona m(n og móðir okkar,
SIGRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR
frá Glæsibæ f Sléttuhlfð,
Skagafirði,
lést aðfaranótt miðvikudagsins 26. mars
Hún verður jarðsungin frá Þorlákshafnarkirkju
laugardaginn 5. april kl. 14.00.
Pétur Jóhannsson,
Margrét Pétursdóttir,
Guðríður Pétursdóttir,
Jóhann Pétursson.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
EIRÍKUR EYLEIFSSON,
Nýlendu 2,
Sandgerði,
lést á Vífilsstöðum þriðjudaginn 1. apríl.
Jóna Guðrfður Arnbjörnsdóttir,
böm, tengdasynir, barnabörn og barnabamaböm.
■ar