Morgunblaðið - 03.04.1997, Page 38

Morgunblaðið - 03.04.1997, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU AUGLYS INGA ÍAiXU 'Jl Vinnslustjórar í fiskvinnslu Leitað er eftir 2 vinnslustjórum til starfa í Kampala, Uganda. Góð kunnátta í pökkun og snyrtingu og reynsla í gæða- stjómun eða verkstjórn er nauðsynleg. Miðað er við að gerður verði tveggja ára samningur við starfsmennina. Hvorum starfsmanni verður séð fyrir íbúð, en bíl fá þeir til sameiginlegra umráða. Um er að ræða mjög krefjandi starf í framandi umhverfi. Vinnustaðurinn erfrystihús í Kampala sem vinnur Nílarkarfa úr Viktoríuvatni. Þar starfa um 100 manns á vakt en unnið er á dag- og næturvöktum. Afurðirnar eru seldar í gegnum Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. til Evrópu, Asíu og Ameríku. Stjórnun frystihússins er í höndum íslendinga, en eigandi og aðrir starfsmenn er sinna stjórnun eru Indverjar. Sölumíðstöð hraðfrystihúsanna hf. er stærsti útflytjandi sjávarafurða frá íslandi. Fyrirtækið rekur sölunet sem spannar þrjár heimsálfur með söluskrifstofum og dðtturfyrirtækjum í sex löndum, SH hefur gert samning um markaðssetningu og sölu á Nflarkarfa úr Viktorfuvatni I Afrfku. Yfirstjðrn verkefnisins er í höndurn lcecon sem er dðtturfyrirtæki SH. Umsóknir berist ICECON fyrir 8. apríl til lcecon Aðalstræti 6 101 Reykjavík Sími: 562 2911 Fax: 5621024 icecon ©centrum.is hradfrystihúsanna hf. NORDISKA KULTURFCNDEN Norræni menningarsjóðurinn stydur menningarsamvinnu á Nordurlöndum — samvinnu á sviði menningar, lista og fjöl- miðlunar auk menntunar- og rannsóknar- verkefna sem tengjast menningu — menningarverkefni sem ná milli sviða — menningarsamstarf milli Norðurlanda, grannsvæðanna og annarra svæða Evrópu. Menningarsjódurinn vill — örva nýja markhópa og þátttakendur í nor- rænu samstarfi — styðja þróun nýrra leiða og aðferða í menn- ingarsamstarfinu — auka samstarf frjálsra aðila — efla frumkvæði í strjálbýli og á jaðarsvæð- um á Norðurlöndum Markmid studningsaðgerðanna er að — auka gæði í norrænu menningarsamstarfi — taka mið af breyttum þörfum og þróa nýjar hugmyndir — efla þekkingu, skapa nýjan vettvang fyrir menningarsamstarf Að öðru jöfnu þurfa þátttakendur að vera a.m.k. frá þremur Norðurlandanna til þess að verkefni kom til greina um styrkveitingu. Umsóknarfrestur 1997 Umsóknarfrestur í ár ertil 15. apríl (vegna stjórnarfundar í júní) og 15. september (vegna stjórnarfundar í desember). Umsóknareyðublöð og leiðbeingar. Nordiska kulturfonden Store Strandstræde 18 DK-1255 Kobenhavn K Sími 00 45 33 96 02 00 (símatími mánud.—föstud. 9—12.) Bréfsími 00 45 33 93 35 72. „Au pair" í Noregi Fjölskylda með 3 börn óskar eftir au pairfrá 1/5 '97 til 15/8 '98. Búum í stóru, nýju húsi á vesturlandinu. Sérinngangur, herbergi og bað. Bíll til afnota og mjög góð laun. Upplýsingar í síma: 00 47 52 71 1339. Skrifstofustörf 1. Skrifstofustarf hjá útgáfufyrirtæki í Reykjavík. Um er að ræða starf innan áskriftar- deildar og felst í ýmsum verkefnum, s.s. inn- heimtu, skráningu, viðhaldi skráa o.fl. Framtíð- arstarf í spennandi og lifandi starfsumhverfi. Vinnutími kl. 9-17. 2. Símavarsla hjá útgáfufyrirtæki í Reykjavík. Starfið felst í símavörslu og móttöku viðskipta- vina. Leitað er að hressum og þjónustulunduð- um aðila í gottframtíðarstarf. Vinnutími kl. 9-17. 3. Bókhaldsstarf hjá heildverslun í Reykjavík. Starfið felst í umsjón með bókhaldi, gerð tolla- pappíra, verðútreikningum o.fl. Um er að ræða framtíðarstarf hjá góðu fyrirtæki. Vinnutími kl. 13-17. Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Lidsauka, sem opin er kl. 9—14. Fólk og þekking M Lidsauki ehf. Skipholt 50c, 105 Reykjavík, sími 562 1355, fax 562 1311. Dalvíkurskóli Lausar eru til umsóknar kennarastöður í eftir- töldum greinum: Hannyrðum, tónmennt og almennri bekkjarkennslu. Einnig er laus staða við bókasafn skólans. í skólanum eru um 280 nemendur í 1.-10. bekk. Við auglýsum eftir metnaðarfullu og áhuga- sömu fólki sem vill vinna með okkur að þróun- ar- og uppbyggingarstarfi. Starfsfólki skólans gefst kostur á að sækja námskeið innanlands og utan. í skólanum ríkir góður starfsandi, starfsaðstaða er góð og vel er tekið á móti nýju starfsfólki. Umsóknarfrestur ertil 21. apríl. Upplýsingar um stöðurnar, húsnæði o.fl. gefur skólastjóri í símum 466 1380 (81) og 466 1162. DALVÍKURSKDU Aðstoðarfólk á bókasafn Opinber stofnun óskar eftir að ráða starfsfólk á bókasafn stofnunarinnar í eftirtalin störf: 1. Starf aðstoðarmanns við útlán, afgreiðslu og þjónustu við gesti. Stúdents- próf æskilegt. 2. Starf aðstoðarmanns við frágang, roðun og umhirðu tímarita, frágang bóka o.fl. Um er að ræða fjölbreytt framtíðarstörf í áhugaverðu og spennandi umhverfi. Leitað er að samviskusömum og þjónustulunduðum einstaklingum, sem eiga auðvelt með mannleg samskipti. Reyklaus vinnustaður. Vinnutími kl. 8-16. Umsóknarfrestur ertil og með 11. apríl nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofu Liðsauka, sem opin er kl. 9-14. Fólk og þekking Lidsauki ehf. 10 Skipholti 50c, 105 Reykjavík, sími 562 1355, fax 562 1311. Flugmálastjórn . Flugmálastjórn/slökkvilið óskar að ráða þrjá slökkviliðsmenn til afleysingastarfa í sumar á Reykjavíkurflugvelli. Umsækjendur skulu fullnægja eftirtöldum skil- yrðum sbr. reglugerð um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna nr. 195/1994. 1. Vera á aldrinum 20-28 ára, reglusamir og háttvísir. 2. Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og lík- amlegt heilbrigði, hafa góða sjón og heyrn. 3. Hafa aukin ökuréttindi til að stjórna vörubif- reið. 4. Hafa iðnmenntun, sem nýtist í starfi slökkvi- liðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu. Laun skv. launakjörum opinberra starfsmanna. Umsóknum, ásamt gögnum um menntun og reynslu skal skilað á skrifstofu Flugmálastjórn- ar eigi síðar en 18. apríl 1997. Nánari upplýsingar veitir starfsmannahald Flugmálastjórnar, sími 569 4100. Öllum umsóknum verður svarað. Forvörður — málverkaviðgerðir Óskum eftir að ráða forvörð til starfa. Vinsamlegast hafið samband við Gallerí Borg í síma 552 4211 kl. 12-18 virka daga. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 5 = 178438 = Dd Landsst. 5997040319 VII I.O.O.F. 11 = 178438 = 3.H. Enskunám á Englandi Bournemouth International School er viöurkenndur skóli á suðurströnd Englands fyrirfólk á öllum aldri. Hagstætt verö. Löng reynsla fyrir góöa kennslu og þjónustu. Upplýsingar hjá Sölva Eysteins- syni, Kvisthaga 3, Reykjavík, síma 551 4029. íslandsgangan fslandsgangan fer fram laugar- daginn 5. apríl í Bláfjöllum. Skráning og upplýsingar eru í síma 557 5971, einnig verður skráð í Borgarskálanum í Blá- fjöllum til kl. 12.00. á mótsdegi. (slandsgangan er 20 km almenn- ingsganga. Einnig verða gengnir 10 km og 5 km. Skíðaráð Reykjavikur. Aðalstöðvar KFUM og KFUK, Holtavegi 28 Almenn samkoma og barna stundir í dag kl. 17.00. Ræðumaður: Leif Andersen. Matsala eftir samkómuna. Allir eru hjartanlega velkomnir. Konur takið eftirl Edda Swan, formaður Landsstjórnar Aglow á íslandi, verður gestur okkar á Aglow-fundinum í kvöld, 3. apríl, kl, 20, á Háaleitisbraut 58-60 (Kristniboðs- salnum, norðurenda, 3. hæð). Allar konur eru hjartanlega velkomnar. Mætum fullar eftirvæntingar. Guð er fullríkur fyrir okkur allar. Stjórn Aglow Reykjavik. æK Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 £ I kvöld kl. 20.30, Gospelkvöld í umsjá unga fólksins. Allir hjartanlega velkomnir. KFUM Aðaldeild KFUM, Holtavegi. v Viðeyjarferð (kvöld. Brottför frá Sundahöfn kl. 19.30. Frásögn: Sr. Þórir Stephensen. Hugleiðing: Sr. Ólafur Jóhanns son. Góðtemplarahúsið, Hafnarfirði Félagsvist í kvöld, fimmtudags kvöldið 3. apríl. Byrjum að spili kl. 20.30 stundvíslega. Allir velkomnir. Hallvcigarstig 1 • sínti 561 4330 Myndakvöld 3. aprfl í kvöld mun Árni Johnsen sýna myndir sem Sigurgeir Jónasson, Ijósmyndari frá Vestmannaeyj- um, hefur valið. Sýningin hefsl kl. 20.30 i Fóstbraeðraheimilinu Hlaðborð kaffinefndar innifalið aðgangseyri. Aðgangseyrir kr. 600. Dagsferð 6. apríl kl. 10.30: Úlfarsfell í Mosfellssveit. Létt fjallganga fyrir alla. Helgarferð 12.-13. aprfl kl. 8: Þingvellir-Hlöðufell-Laugar- vatn. Gönguskíðaferð. Helgarferð 12.-13. aprfl kl. 8: Jeppaferð í Setrið. Lágmarks dekkjastærð 33" fyrir létta bíia, 35" fyrir aðra. Netslóð http://www.centrum.is/utivist - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.