Morgunblaðið - 03.04.1997, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 41
1
I
:
i
í
i
í
:
<
PÁLL Á. Jónsson fyrrverandi formaður TFÍ veitti Jónasi Guð-
laugssyni viðurkenningu fyrir störf í þágu félagsins.
Unnið að sögii tækni-
fræðinnar á Islandi
AÐALFUNDUR Tæknifræðingafé-
lags íslands var haldinn föstudaginn
21. mars. í skýrslu formanns, Páls
Á. Jónssonar, kom meðal annars
fram að rekstur félagsins gekk vel
síðastliðið ár, samstarf við VFÍ og
SV væri orðið mikið og gengi vel. Á
4 fundinum var Jónasi Guðlaugssyni
rafveitustjóra veitt viðurkenning
fyrir mikil og vel unnin störf í þágu
{ félagsins.
Jónas hefur meðal annars starfað
að menntunarmálum innan TFI í 35
ár og verið óþreytandi við að afla
sér upplýsinga um menntun tækni-
fræðinga hérlendis sem erlendis.
Gerður hefur verið samningur við
Iðnsögu íslands um ritun og útgáfu
á sögu tæknifræðinnar á Islandi sem
.< hluta sögu iðnfræðslunnar á íslandi.
Samhliða útgáfu bókarinnar er
ráðgert að gefa út sögu Tæknifræð-
<
I
I
(
I
I
í
’63 árgangur
úr Breið-
holts-
skóla hittist
ÁRGANGUR 1963 úr Breið-
holtsskóla ætlar að halda upp
á 20 ára fermingarafmæli sitt
í Óperukjallaranum 19. apríl
nk. kl. 19.30.
í fréttatilkynningu segir að
hægt sé að nálgast miða í
Skífunni, Laugavegi 96, fyrir
10. apríl og að miðaverð sé
1.900 kr. Þar segir að innifal-
ið í verði sé fordrykkur, matur
og skemmtiatriði og að frítt
sé inn fyrir maka eftir kl. 23.
Myndakvöld
Utivistar
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist
stendur fyrir myndakvöldi í
kvöld, fimmtudagskvöld. Þar
mun Árni Johnsen sýna mynd-
ir sem Sigurgeir Jónasson,
ljósmyndari frá Vestmanna-
eyjum, hefur valið.
Sýningin hefst kl. 20.30 í
Fóstbræðraheimilinu. Hlað-
borð kaffinefndar er innifalið
í aðgangseyri sem er 600 kr.
Allir velkomnir.
Opinber
fyrirlestur í
guðfræði-
deild
PRÓFESSOR Tryggve N.D.
Mettinger frá Lundi heldur
opinberan fyrirlestur föstu-
daginn 4. apríl á vegum guð-
fræðideiidar Háskóla íslands í
kapellu Háskólans, „The Al-
mighty in a World of Suffer-
ing: Towords the Decons-
truction of God in the Book
of Job“. Fyrirlesturinn hefst
kl. 10.15 og er öllum opinn.
ingafélagsins. Gert er ráð fyrir að
bókin kom út í byijun ársins 1998.
Unnið er að gerð nýs kjarasamn-
ings við ríki og Reykjavíkurborg,
auk þess sem viðræður standa yfir
við launanefnd sveitarfélaga.
Á fundinum var Jóhannes Bene-
diktsson kosinn nýr formaður félags-
ins auk þriggja meðstjórnenda. Til
setu í stjórn til tveggja ára voru
kosnir Haukur Óskarsson og Henry
Þór Granz. Til setu í eitt ár var
kosinn Gústaf Adolf Hjaltason. Aðr-
ir í stjórn eru Sigurður Sigurðarson,
Eiríkur Rósberg fulltrúi STFÍ og
Bergþór Þormóðsson fulltrúi KTFI.
Nokkur umræða var á fundinum um
sameiningu Verkfræðingafélags ís-
lands og Stéttarfélags verkfræðinga
og kom fram almennur stuðningur
við slíkar hugmyndir. Félagsmenn
eru um 700.
Morgunblaðið/Kristinn
FYRSTU skóflustunguna að
bygingu björgunarstöðvar-
innar á Seltjarnarnesi tók
Guðjón Jónatansson. Hjá hon-
um stendur Árni Kolbeins.
Björgunar-
stöð á Sel-
tjarnarnesi
NÝLEGA VAR tekin fyrsta skóflu-
stungan að nýrri björgunarstöð á
Seltjarnarnesi. Að byggingunni
standa björgunarsveitin Albert
ásamt unglingadeild sveitarinnar og
kvennadeild Slysavarnafélags ís-
lands. Gert er ráð fyrir að húsið
verði tilbúið til innréttingar með
haustinu.
I björgunarstöðinni verður bæði
til húsa félagsaðstaða sveitanna og
geymsla fyrir tæki og búnað, bíla,
báta og persónulegan búnað björg-
unarsveitarmanna. Húsið er yfir 300
fermetra stálgrindarhús' sem Stál-
bær reisir og er byggingarkostnaður
áætlaður kringum 13 milljónir
króna. Guðjón Guðjónsson, fyrrver-
andi formaður Alberts sem staðið
hefur í undirbúningi verksins, segir
að deildirnar eigi nokkurt fram-
kvæmdafé og styrkir fáist einnig hjá
bæjarstjórn Seltjarnarness og Slysa-
varnafélaginu. Félagsmenn munu
síðan í haust vinna við lagnir og
annan frágang og gerir Guðjón ráð
fyrir að húsið verði mikið til fullgert
næsta vor.
Guðjón sagði húsið verða mikla
lyftistöng fyrir starf þessara sam-
taka, með því að sameina alla þætt-
ina undir sama þaki en áður fór
starfið fram á ýmsum stöðum í
bænum.
FRÉTTIR
Sameining þriggja hreppa á Héraði felld
Urslit í Tungii kærð
KOSIÐ var um sameiningu þriggja
hreppa, Tungu-, Hlíðar- og Jökul-
dalshrepps á Fljótsdalshéraði síð-
astliðinn laugardag. Sameiningin
var samþykkt í tveimur síðar-
nefndu hreppunum en felld með
fjögurra atkvæða mun í Tungu-
hreppi. Tveir sveitarstjórnamenn
hyggjast kæra úrslit kosninganna
þar á þeim forsendum að ekki hafi
verið nægilega vel staðið að auglýs-
ingu kjörfundar. Anna Bragadóttir,
sem á sæti í hreppsnefnd Tungu-
hrepps, hyggst ekki gefa kost á
sér á ný vegna úrslitanna sem hún
túlkar sem yfírlýsingu um að
hreppurinn skuli standa utan við
samstarf, m.a. í skólamálum, við
hina hreppana tvo.
Kári Ólafsson, sem ásamt Önnu
kærir úrslit kosninganna, segir að
hugsanlegt sé að kjörfundur hafi
ekki verið auglýstur. Kári segir að
einn kynningarfundur hafí verið
haldinn í hveijum hreppi og dreifí-
miðar sendir út um að kjörskrá
lægi frammi vegna kosninganna.
„Það voru einungis sendir dreifi-
miðai' á sveitabæina en kjörfund-
urinn var ekki auglýstur. Fólk er
víða búsett, e.t.v. að vinna á Egils-
stöðum eða í fiski á Hornafirði,“
sagði Kári.
Kári segir að menn séu ósáttir
við það að sameining hreppanna
falli með mjög naumum meirihluta
í einu sveitarfélagi. Hann segir að
aðeins 30% þeirra sem greiddu
atkvæði í sveitarfélögunum þrem-
ur hefðu verið á móti sameiningu.
Hann sagði að meirihluti hrepps-
nefndar í Tungu hefði verið fylgj-
andi sameiningu fram að kosning-
um en þá hefði mönnum snúist
hugur.
Sameiningin snerist
um skólamál
Anna staðfesti í samtali við
Morgunblaðið að hún hygðist ekki
gefa kost á sér til áframhaldandi
setu í hreppsnefndinni. „Ég tel
mér ekki fært að gera það. Sam-
einingin snerist um skólamál, að
þessi þijú sveitarfélög reki saman
skóla. 70% af tekjum hreppanna
fara í þennan rekstur. Það er mín
skoðun að það sé ekki hægt að
halda áfram samrekstri skólans.
Skilaboð minnar sveitar eru þau
að við eigum að hætta þessu og
ég vil ekki starfa undir því,“ sagði
Anna.
Landsbókasafn -
Háskólabókasafn fær styrk
ÁSTFRÍÐUR Sigurðardóttir, formaður Matvæla- og næringar-
fræðingafélagsins, afhendir Einari Sigurðssyni, landsbókaverði,
peningagjöf frá félaginu.
NÝLEGA afhenti Matvæla- og nær-
ingarfræðingafélag íslands (MNÍ)
Landsbókasafni Islands - Háskóla-
bókasafni styrk að upphæð 400.000
kr. til eflingar á bókakosti safnsins
og öðrum gögnum á sviði matvæla-
iðnaðar og manneldismála á landinu.
„Árið 1995 var gerð úttekt á veg-
um félagsins á því hvaða gögn væru
til á þessu sviði í bókasöfnum Há-
skóla íslands og helstu rannsóknar-
stofnana landsins. í ljós kom mikil
þörf á að byggja upp gögn Lands-
bókasafns á þessu sviði enda er þró-
un í matvæla- og næringarfræðum
nú hraðari en nokkru sinni fyrr og
mikilvægt að auðvelda nemendum,
kennurum, starfsfólki í matvælaiðn-
aði og öðrum, er að þessum málum
koma, að tileinka sér þá þekkingu
sem fyrir hendi er. Félagið leitaði
til matvælafyrirtækja eftir stuðningi
við þetta átak og voru undirtektir
afar jákvæðar. Eftirfarandi 24 fyrir-
tæki styrktu átakið: Bakki hf., Bol-
ungarvík, Borgey hf., Höfn í Horna-
firði, Emmessís hf., Reykjavík,
Freyja ehf., Kópavogi, Góa-Linda
sælgætisgerð ehf., Hafnarfirði, ísfé-
lag Vestmannaeyja hf., íslensk mat-
væli, Hafnarfirði, Kexverksmiðjan
Frón ehf., Reykjavík, Kjarnafæði
hf., Reykjavík, Mjólkurbú Flóa-
manna, Selfossi, Móna ehf. sælgæt-
isgerð, Hafnarfirði, Nora hf., Stykk-
ishólmi, Nói-Siríus, Reykjavík, Sam-
tök iðnaðarins, Síld og fískur mat-
vælagerð, Hafnarfirði, Skinney hf.
útgerð og fiskvinnsla, Höfn í Horna-
firði, Sláturfélag Suðurlands,
Reykjavík, Sölusamband íslenskra
fiskframleiðenda, Hafnarfirði,
Valdimar Gíslason ehf., Reykjavík,
Vinnslustöðin hf., Vestmannaeyjum,
og Víking hf., Akureyri.
Landsbókasafn íslands - Há-
skólabókasafn kann Matvæla- og
næringarfræðingafélaginu bestu
þakkir fyrir stuðninginn og þakkar
fyrirtækjunum einnig hve vel þau
brugðust við beiðni félagsins," segir
í fréttatilkynningu.
Aðalfundur Mjólkursamsölunnar óánægður
með verkfallsaðgerðir
Mj ólkur samsalan
ítrekaðnotuð
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá aðalfundi
Mjólkursamsölunnar í Reykjavík:
„Aðalfundur Mjólkursamsölunnar
í Reykjavík haldinn 21. mars 1997
lýsir yfír vonbrigðum sínum yfir verk-
fallsaðgerðum Dagsbrúnar í fyrir-
tækinu. Ósanngjamt er að Mjólkur-
samsalan skuli vegna eðiis starfsemi
sinnar, ítrekað vera notuð með þeim
hætti sem raun ber vitni til að auka
verkallsþrýsting Dagsbrúnar. Enda
þótt mjólkurskortur hafi mikil áhrif
á dagíega neyslu landsmanna og
veiti greiðan aðgang að fjölmiðlum
er óþolandi að Dagsbrún skuli með
þessum hætti stöðva rekstur Mjólk-
ursamsölunnar á sama tíma og sam-
keppnisaðilar hennar, gosdrykkja- og
ávaxtaframleiðendur, ísgerðarfyrir-
tæki og ýmsir innflutningsaðilar,
geta stundað óbreyttan rekstur, auk-
ið sölu og styrkt markaðsstöðu sína
með margvíslegum hætti. Verkfalls-
aðgerðirnar eru enn furðulegri í ljósi
þeirrar staðreyndar að fyrir liggur
undirritaður sérkjarasamningur MS
og starfsmanna hennar án þess að
verkfalli hafi verið aflýst.
Tjón mjólkurbænda og sölusam-
lags þeirra er þegar orðið umtals-
vert. Fundurinn bendir á að fáar
stéttir í landinu hafa sýnt verkafólki
meiri samhug í gegnum tíðina en
bændur sem litið hafa á samtök
verkafólks sem sérstaka bandamenn
í baráttu fyrir bættum lífskjörum.
Bændur og fyrirtæki þeirra hafa á
undanförnum árum tekið á sig meiri
kjaraskerðingu en aðrir og um leið
lagt grunn að þeirri þjóðarsátt sem
skapast hefur. Þess vegna veldur
það mjólkurframleiðendum miklum
vonbrigðum að Dagsbrún skuli ítrek-
að velja Mjólkursamsöluna sem
fyrsta skotmai'k í verkfallsaðgerðum
sínum. Tjón vegna tapaðrar sölu
mjólkur verður ekki unnið upp með
meiri neyslu að loknu verkfalli og
hefur því í för með sér varanlegt
og margþætt tap fyrir bændur og
úrvinnsluiðnað þeirra.“
Þrír
veitinga-
staðir opnir
of lengi
VIÐ eftirgrennslan lögreglu
aðfaranótt föstudagsins langa
kom í ljós að þremur áfengi-
sveitingastöðum hafði ekki
verið lokað eftir miðnætti á
skírdag, en samkvæmt ákvörð-
un lögreglustjóra máttu þeir
þjóna viðskiptavinum til 23.30.
Þui-ftu lögreglumenn því að
stöðva reksturinn og vísa gest-
um út. Skýrslur voru ritaðar
um málin og verða þau tekin
fyrir á næstu dögum, sam- (
kvæmt upplýsingum frá lög- j
reglunni í Reykjavík.
Lögreglumenn höfðu einnig I
afskipti af opnum sölutumi við
Tunguveg á föstudaginn langa.
Starfsfólkinu var gert að loka
enda um að ræða brot á helgi-
dagalöggjöfinni sem og ákvæð- |
um samþykktar um afgreiðslu- 1
tíma verslana í Reykjavík. {
Þá var söluturni við Rauðar- (
árstíg einnig lokað á föstudag- i
inn langa.