Morgunblaðið - 03.04.1997, Side 44
44 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Sævar Bjarnason sigr-
aði í áskorendaflokki
KEPPNI í áskorenda- og opnum
flokki á Skákþingi íslands fór fram
dagana 22.-29. mars sl. Stjórn
Skáksambands Islands samþykkti
að breyta fyrirkomulagi mótsins í
því skyni að fækka mótsdögum og
fella út „fermingardaga11 sem oft
hafa skapað vandamál við mótshald-
ið, einkum fyrir yngri kynslóðina.
Fyrirkomulagið var þannig að fyrst
voru tefldar ijórar umferðir eftir at-
skákfyrirkomulagi allar á sama degi,
en síðan fímm umferðir með hefð-
bundnum umhugsunartíma á jafn
mörgum dögum. Jafnframt var síðari
hluti mótsins í áskorendaflokki, þ.e.
skákir með hefðbundinn umhugsun-
artíma, teknar til útreiknings alþjóð-
legra skákstiga sem er jákvætt skref
í þá átt að fjölga útreiknuðum skák-
um íslenskra skákmanna.
í áskorendaflokki tryggðu Sævar
Bjarnason og Arnar Þorsteinsson sér
þátttökurétt í landsliðsflokki á Skák-
þingi Islands sem haldið verður á
Akureyri í haust. Sævar sigraði
reyndar nokkuð örugglega á mótinu
og hlaut 7 'h vinning af níu möguleg-
um. Sævar varð í öðru sæti á áskor-
endaflokki á síðasta ári og í sjöunda
sæti í landsliðsflokki það sama ár.
Hann er þrautreyndur og öflugur
og sterkur skákmaður þannig að
árangurinn kemur ekki óvart.
Frammistaða Arnars er óvæntari en
hann hafði betur í baráttu við Tóm-
as Björnsson um sætið í landsliðs-
flokki og verður fróðlegt að sjá
hvernig honum gengur á heimavelli
en Arnar er uppalinn fyrir norðan.
Opinn flokkur er öllum opinn og
þar tryggðu Einar Þorgrímsson og
Grétar Ass Sigurðsson sér þátttöku-
rétt í áskorendaflokki að ári nokkuð
örugglega.
Skákþing Islands, áskorenda-
flokkur: 1. Sævar Bjarnason Vh
vinningur af 9 mögulegum, 2. Arnar
Þorsteinsson 7 vinningar, 3. Sigur-
björn Bjömsson 6V2 v., 4.-6. Tómas
Bjömsson 6 v., 4.-6. Hrannar Bald-
ursson 6 v., 4.-6. Bragi Þorfinnsson
6 v., 7.-11. Björn Þorfinnsson 5 v.,
7.-11. Arnar E. Gunnarsson 5 v.,
7.-11. Magnús Ö. Úlfarsson 5 v.,
7.-11. Jóhann H. Ragnarsson 5 v.,
og 7.-11. Baldur Möller 5 v. Þátt-
takendur voru 28.
Skákþing íslands, opinn flokkur:
1. Einar Þorgrímsson 8V2 vipningur
af 9 mögulegum, 2. Grétar Áss Sig-
urðsson l'h v., 3. Guðjón H. Val-
garðsson 6V2 v., 4. Guðni S. Péturs-
son 6 v., 5.-6. Ingi Þór Einarsson
5‘/z v., 5.-6. Harpa Ingólfsdóttir 5‘/2
v., Þátttakendur voru 26.
FRÁ afhendingu lyftitækisins.
Gáfu lyftitæki á Biarkarás
FÉLAGAR úr Kiwanisklúbbnum
Heklu í Reykjavík komu færandi
hendi föstudaginn 14. mars á
Bjarkarás, æfingarstöð Styrktar-
félags vangefinna við Sljörnugróf
í Reykjavík. Gáfu þeir stöðinni
Samson lyftitæki sem auðveldar
allar tilfærslur hreyfihamlaðra
vistmanna.
Kiwanisklúbburinn Hekla er
elsti Kiwanisklúbbur á íslandi og
hefur starfað af krafti í 33 ár og
komið víða við í styrktarverkefn-
um, segir í fréttatilkynningu. Sl.
haust bættist Heklu góður liðsauki
með sameiningu við Kiwanis-
klúbbinn Viðey. Fráfarandi heims-
forseti Kiwanis, Eyjólfur Sigurðs-
son, er einn af stofnfélögum Heklu
og á næsta starfsári mun umdæ-
misstjóri Íslands-Færeyja koma úr
röðum Heklu-manna.
Búskapur
og vist á
norðurslóð
FRÆÐSLUFUNDUR um „búskap
og vist á norðurslóð", verður haldinn
á vegum Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins og Bændasamtaka ís-
lands föstudaginn 4. apríl kl. 13 í
Borgartúni 6, Reykjavík. Tilefni
fundarins er útkoma 10. heftis
fræðiritsins Búvísinda, sem tileinkað
er dr. Sturlu Friðrikssyni og störfum
hans, en í ritinu munu birtast 15
fræðigreinar auk tveggja greina um
störf dr. Sturlu og ritverk.
Greinarnar eru um fjölbreytileg
efni á sviði erfðafræði, landbúnaðar,
vistfræði, veðurfræði og jarðfræði.
Meðal höfunda eru Stefán Aðal-
steinsson, Tryggvi Gunnarsson, Ól-
afur Jensson, Grétar Guðbergsson,
Áslaug Helgadóttir, Kesara Anamt-
hawat-Jónsson, Hólmgeir Björnsson,
Páll Bergþórsson, Guðni Þorvalds-
son, Bjarni E. Guðleifsson, Friðrik
Pálmason, Sigurður Greipsson, Ólaf-
ur R. Dýrmundsson, Guðmundur
Halldórsson, Borgþór Magnússon og
Sveinn P. Jakobsson.
Ritið verður kynnt á fundinum og
flutt níu stutt erindi úr greinum þess.
Dr. Sturla Friðriksson, sem ný-
lega varð 75 ára, hóf störf hjá búnað-
ardeild atvinnudeildar Háskólans,
síðar Rannsóknastofnun landbúnað-
arins, árið 1950. Þar var hann deild-
arstjóri jarðræktardeildar og starf-
aði óslitið á stofnuninni til ársins
1992. Dr. Sturla kom víða við á ferli
sínum og stundaði m.a. rannsóknir
á sviði jurtakynbóta og jarðræktar,
mannerfðafræði og vistfræði. Hann
hefur fylgst náið með landnámi lífs
í Surtsey ailt frá því eyjan reis úr
sæ og verið þar í forystu um rann-
sóknir. Dr. Sturla hefur látið nátt-
úruvernd til sín taka bæði á innlend-
um og alþjóðlegum vettvangi. Hann
hefur verið afkastamikill við ritstörf
0g liggur eftir hann fjöldi fræði-
greina auk bóka um vistfræði ís-
lands og þróun lífríkis í Surtsey.
Fyrirlestur um
vinamissi
NÝ DÖGUN, samtök um sorg og
sogarviðbrögð, verða með fyrirlestur
fimmtudaignn 3. apríl kl. 20 í Gerðu-
bergi. Þar mun Guðfinna Eydal, sál-
fræðingur, fjalla um vinamissi.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
aðgangur ókeypis.
I DAG
SKÁK
Umsjón Margeir
Pctursson
STAÐAN kom upp á rúss-
neska bikarmótinu í Perm,
fyrr á þessu ári. Vyac-
heslav Ikonnikov (2.540)
hafði hvítt og átti leik, en
Kalin var með
myndi hvítur svara með því
að bera riddarann fyrir
skákina á bl.
Um helgina: Helgarat-
skákmót Hellis hefst föstu-
dagskvöld kl. 20 og lýkur á
laugardag. Verðlaun sam-
tals 30 þús. krónur.
Teflt hjá Helli í Þöngla-
bakka 1 í Mjóddinni í Breið-
holti.
svart.
20. Dxh6! og
svartur gafst
upp. Eftir 20.
- gxh6 21.
Hxh6 gætu
lokin orðið 21.
- Bxf6 22.
gxf6+ - Kf8
23. Hh8 mát,
en svartur
getur auðvitað
tafið mátið
með því að
skáka með
drottningu
sinni á al. Því
HVÍTUR mátar í sjötta leik.
Með morgunkaffinu
ÉG veit allt um alla í RÚMIÐ þitt verður til-
nágrenninu. Maðurinn búið eftir augnablik.
minn er gluggaþvotta-
maður.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hvar er hreinlætið?
VELVAKANDA barst eftirfarandi athugasemd frá
konu sem vinnur í matvælaiðnaði: „Mér fannst mjög
skuggalegt að sjá hjá Lakkrísgerðinni Skugga á
Akureyri í sjónvarpinu um daginn. Þar var enginn
með höfuðfat og enginn með hanska. Hvar er heil-
brigðiseftirlitið á Akureyri? Er það kannski flutt á
Hvolsvöll?"
Tapað/fundið
Kvenmannsveski tapaðist
SVART lakkveski tapaðist á Café Romance laugar-
daginn 8. mars. Skilvís finnandi vinsamlega hafi
samband í sima 557-9098.
Myndir í óskilum
SVANFRÍÐUR hafði samband við Velvakanda og
var hún með myndir í óskilum sem hún hafði fengið
í framköllun frá Bónus. Flestar myndimar eru af
köttum ásamt hundi, eins og þessi sem birtist hér.
Þeir sem kannist við þetta eru beðnir að hafa
samband við Svanfríði í síma 553-7286.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
NOKKRIR yndislegir kettlingar fást gefins. Uppl. í
síma 551-9624.
Kötturinn Moli
KÖTTURINN Moli, sem er svartur högni með hvít-
ar loppur og tvískiptan lit í framan, hvarf úr pössun
á Seltjarnarnesi 27. mars. Hann var ólarlaus. Þeir
sem hafa orðið kisu varir vinsamlega hafi samband
í síma 562-0162.
Víkverji skrifar...
SKILTI í anddyri einnar heilsu-
gæslustöðvarinnar á höfuð-
borgarsvæðinu vakti athygli Vík-
veija á dögunum. Þar stóð: „Vissir
þú að hver íslendingur borðar að
meðaltali um 2 kg af sælgæti á
mánuði? Hvernig væri að fá sér
harðfisk, popp, ávöxt eða grænmeti
og drekka vatn, okkar frábæru
náttúruauðlind?" Víkveija finnst
allt að því ótrúlegt að hvert manns-
barn hér á Fróni skuli sporðrenna
2 kg af sælgæti í mánuði hveijum.
Sjálfur smakkar hann nánast aldrei
það sem venjulega flokkast undir
sælgæti og þekkir fleiri slíka, þann-
ig að einhveijir hljóta að vera mjög
duglegir við sælgætisátið. Islend-
ingar ku líka vera heimsmeistarar
í gosdrykkju, eru sagðir innbyrða
eitthvert óhemjumagn af ropvatni
á ári hveiju. Þetta er varla mjög
heilnæmt.
xxx
ABENDINGIN um harðfiskinn
er Víkveija að skapi, enda sú
afurð uppáhalds „sælgæti" hans.
Harðfiskurinn er hins vegar svo dýr
að hann telst til munaðarvöru, sem
íslenskir launamenn geta varla leyft
sér að kaupa mjög oft. Því miður.
Þarf harðfískurinn virkilega að vera
jafn hroðalega dýr og raun ber vitni?
XXX
YÍKVERJI brá undir sig betri
fætinum á dögunum og heim-
sótti fijálsíþróttamenn í Baldurs-
haga í Laugardal. Skemmst er frá
því að segja að aðstaða þeirra þar
hefur tekið miklum stakkaskiptum
til hins betra. Nú er hægt að hlaupa
60 metra sprett innanhúss en áður
var brautin aðeins 50 metrar. Er-
lendis er keppt í 60 metra hlaupi,
þ.ám. á stórmótum. Af þessum
ástæðum hafa íslenskir sprett-
hlauparar þurft að fara til útlanda
hafi hugur þeirra staðið til að ná
lágmörkum í spretthlaupum fyrir
stórmót. Um leið og brautin var
lengd var lagt á hana nýtt gerviefni.
Eitt sá Víkveiji í heimsókn sinni
sem lagfæra verður sem fyrst. Það
er vatnsleki sem kemur ofan úr
stúkunni. Þennan tiltekna dag var
rigning úti og stór pollur þakti þijár
hlaupabrautir á stóru svæði. Verði
ekki gerð bragarbót þar á skemm-
ast brautirnar vafalaust með tíð og
tíma.
KUNNINGI Víkveija - maður
á miðjum aldri en ungur í
anda - hafði orð á því um daginn
hve fallegt lag hann hefði heyrt
með hljómsveitinni Botnleðju. Það
var kosið lag ársins hérlendis en
kunninginn fullyrti að hann hefði
aldrei heyrt það áður. Umrætt lista-
verk hefur eflaust hljómað oft á
útvarpsstöðvum en kunninginn
sagðist nú, þegar hann fór að hug-
leiða málið, hafa áttað sig á því að
hann hlustaði nánast aldrei á út-
varp nema til að heyra fréttir.
XXX
FLEIRI í kunningjahópi Víkveija
hafa sömu sögu að segja: að
þeir hlusti sama og ekkert á út-
varp, nema á fréttatíma ríkisút-
varpsins kl. 12.20 og 19. Getur
verið að fjölmiðlaneysla þjóðarinnar
hafi breyst svona gífurlega hin
seinni ár? Einn vina Víkveija segist
lesa Morgunblaðið daglega, íþrótta-
síðu DV stundum, hlusta á útvarps-
fréttir, horfa á sjónvarpsfréttir, yf-
irleitt tvo útlenda þætti sem ku
vera á dagskrá RÚV á fimmtudags-
kvöldum og Spaugstofuna. Þar með
sé upptalið. Ætli þetta sé algengt?