Morgunblaðið - 03.04.1997, Side 56
Q3>
AS/400 er...
...mest selda
fjölnotenda
viðskiptatölvan í dag
ttgnnflribifeito
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI 1
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Lífeyrisfrumvargi
breytt að ósk ASI
RÍKISSTJÓRNIN breytti í gær
frumvarpi um skyldutryggingu líf-
eyrisréttinda og starfsemi lífeyris-
sjóða. Að sögn Steingríms Ara
Arasonar, aðstoðarmanns fjár-
málaráðherra, hefur breytingin í
för með sér fullt forræði verkalýðs-
hreyfingar og samtaka atvinnurek-
enda á 10% lágmarksiðgjaldi í líf-
eyrissjóði.
í drögum að frumvarpi, sem sent
var hagsmunaðilum til umsagnar
fyrir páska, var gert ráð fyrir að
10% lífeyrisiðgjaldi yrði skipt í
tvennt, í lágmarksiðgjald og viðbót-
ariðgjald. Viðbótariðgjald var skil-
greint sem sá hluti iðgjaldsins sem
var umfram 10.000 krónur á mán-
uði og þeim hluta átti launamaður
að ráðstafa sjálfur ef hann kaus
að gera það.
Forystumenn ASÍ lýstu harðri
andstöðu við þetta ákvæði og töldu
að með því væri verið að vega að
lífeyriskerfi almennu lífeyrissjóð-
anna. Þeir vísuðu í yfirlýsingu for-
sætisráðherra frá 24. mars, þar sem
heitið er að gera ekki grundvallar-
breytingar á lífeyrissjóðakerfínu.
A fundi ríkisstjórnarinnar í gær
var frumvarpinu breytt þannig að
lágmarksiðgjald var ákveðið 10%
og skal það að öllu leyti renna til
samtryggingar i almenna lífeyris-
sjóði. Verkalýðshreyfingunni og at-
vinnurekendum er hins vegar heim-
ilt að semja um viðbótariðgjald og
að það renni í séreignarsjóði. 10.000
króna markið var fellt út úr frum-
varpinu.
Frumvarpið var lagt fram í þing-
flokki Framsóknarflokksins í gær
og samþykkt. Það verður tekið fyr-
ir í þingílokki Sjálfstæðisflokksins
í dag.
Beitir NK aflahæstur
FJÖGUR loðnuskip fengu meira
en 40 þúsund tonna afla á loðnu-
vertíðinni sem hófst hinn 1. júlí
í fyrra. Alls hafa 53 skip veitt
loðnu á tímabilinu og er Beitir
NK frá Neskaupstað aflahæstur
með 47.522 tonn. Eskifjarðarskip-
in Jón Kjartansson SU og Hólma-
borg SU koma næst, Jón Kjart-
ansson hefur fengið 46.422 tonn
og Hólmaborg 43.683 tonn en
Víkingur AK frá Akranesi hefur
fengið 41.605 tonn, samkvæmt
upplýsingum frá Fiskistofu.
Heildarveiði á timabilinu er
nú rúmar 1,2 milljónir tonna og
eru alls 43.813 tonn eftir af
heildarkvótanum.
Um 35 mílljóna
skipulögð fjársvik
FIMM menn sitja í gæsluvarðhaldi
vegna rannsóknar á umfangsmiklu
fjársvikamáli þar sem talið er að
um 35 milljónir króna hafi verið
sviknar út með skipulegum fjár-
svikum. 10 manns, á aldrinum
20-60 ára, hafa verið handteknir
vegna rannsóknarinnar, og hafa
margir þeirra ekki áður komið við
sögu lögreglu.
Að sögn Harðar Jóhannessonar,
yfirlögregluþjóns hjá RLR, kom
málið upp þegar tveir menn voru
handteknir þann 22. mars eftir að
grunur féll á þá um að gefa út
vafasamar ávísanir. Málið vatt upp
á sig og daginn eftir voru tveir
menn til viðbótar handteknir þegar
þeir voru á leið úr landi og úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald til 4.
apríl.
Tíu handteknir
vegna málsins
Síðan hafa þrír menn til viðbótar
verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald
en í gær hafnaði héraðsdómur
Reykjavíkur kröfu um gæsluvarð-
hald yfir sjötta manninum.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins voru svik mannanna
framin með þeim hætti að þeir
gáfu út ávísanir, víxla og skulda-
bréf og stofnuðu til skuldbindinga
í nafni félaga sem ekkert stóð á
bak við.
Mennirnir stofnuðu félög og
fengu fyrir þau kennitölur hjá Hag-
stofu íslands. Síðan hófu þeir við-
skipti í nafni þessara félaga eins
og um væri að ræða fyrirtæki með
rekstur og keyptu og tóku út vörur
á nafni þeirra. Brúnir er nafn þess
félags sem mest var notað í við-
skiptum þeirra, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins.
Átti bara kennitölu
• Brúnir hefur kennitölu sem hefur
verið skuldbundin fyrir milljónum
króna en félagið hefur þó enga
starfsemi og hvorki tekjur né „eign-
ir“ en kennitölu frá Hagstofu ís-
lands.
Skuldbingingarnar sem menn-
irnir stofnuðu til voru þær, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins, að keyptar voru t.d. byggingar-
vörur, bílar, fasteign og margs
konar varningur sem þeir nýttu sér
eða komu í verð með einhveijum
hætti.
Morgunblaðið/Kr.Ben
SKIPVERJAR á Þórshamri GK voru að gera allsheijarhreingern-
ingu eftir loðnuvertíðina í blíðunni í Njarðvikurhöfn í gær.
Verkföll flugvirkja og bankamanna hefjast í nótt náist ekki samningar
Hefðu víðtæk áhrif á sam-
göngur og bankaviðskipti
Telja P&S
vega að
Stöð 2 og
Sýn
LÖGFRÆÐINGUR Fjölmiðl-
unar hf., sem á og rekur Stöð
2 og Sýn, sakar starfsmenn
Pósts og síma hf. (P&S) um að
viðhafa rangar fullyrðingar um
fyrirtækið í fjölmiðlum og að
vega gróflega að viðskiptahags-
munum þess. Þá telur Fjölmiðl-
un hf. að miðlun sjónvarpsrása
um breiðband P&S feli í raun í
sér útvarpsrekstur af hálfu fé-
lagsins í skilningi útvarpslaga
og hefur sent athugasemd um
málið til útvarpsréttamefndar.
í bréfi sem lögfræðingur
Fjölmiðlunar hf. sendi forstjóra
P&S í gær segir að ekki liggi
fyrir að P&S hafí verið veitt
leyfí til útvarpsrekstrar. Hafí
útvarpsréttamefnd hins vegar
veitt slíkt leyfí verði að telja
þessa starfsemi óeðlilega sam-
keppni.
■ Sakar starfsmenn/B2
■ Óþrjótandi/B6
VERKFÖLL hefjast hjá flugvirkj-
um og bankamönnum á miðnætti
í nótt takist ekki samningar. Við-
ræður stóðu yfir á miðnætti í gær
og var þá útlit fyrir að þeim yrði
haldið áfram fram eftir nóttu. Að
sögn Þóris Einarssonar ríkissátta-
semjara var tvísýnt um árangur.
Komi til verkfalla munu þau hafa
mjög víðtæk áhrif á bankaviðskipti
og millilandaflug.
Víðtæk áhrif
af verkföllum
Verkfall flugvirkja raskar strax
flugumferð til og frá landinu, að
sögn Einars Sigurðssonar, aðstoð-
armanns forstjóra Flugleiða. Milli-
landaflug myndi stöðvast á fyrsta
sólarhring kæmi til verkfalls.
Flugvirkjar vinna ákveðin verk við
brottför flugvéla í Keflavík og
þess vegna hefur verkfallið strax
áhrif á millilandaflug. Innanlands-
flug truflast ekki nema flugvélar
bili.
Verði af verkfalli bankamanna
næði það til rösklega 3.000 félags-
manna í Sambandi íslenskra
bankamanna. Það myndi lama alla
starfsemi banka og sparisjóða í
landinu og raska þjónustu greiðslu-
kortafyrirtækja.
Samkvæmt tilkynningu frá
Sambandi íslenskra viðskipta-
banka og Sambandi íslenskra
sparisjóða verður hægt að nota
debetkort undir ábyrgðarmörkum
bæði innanlands og utan en ekki
verður hægt að nota debetkort,
sem merkt eru án ábyrgðar, t.d.
unglingakort.
Fram kemur í tilkynningunni að
tölvuvædd kassakerfi í mörgum
verslunum geti tekið við debet-
kortafærslum nánast endalaust
þrátt fyrir verkfall en svonefndir
posar taki hins vegar við takmörk-
uðum fjölda færslna og stöðvist
þegar hámarkinu er náð. Það sama
gildi um kreditkort og verður unnt
að „strauja" kreditkort eins og
áður.
Erlendis verður hægt að nota
Eurocard-kreditkort með venjuleg-
um hætti og einnig verður unnt
að nota Visa-kreditkort erlendis
en úttektarmöguleikar byggjast
ekki á heimildargjöf frá Greiðslu-
miðlun hf. (Visa íslandi) eins og
undir venjulegum kringumstæðum
heldur viðmiðunarmörkum sem
sett eru af Visa International.
Tvísýn staða
í kjaradeilunum
Ríkissáttasemjari sagði í gær-
kvöldi að staðan í kjaradeilunum
væri tvísýn. Við upphaf fundar í
gær hefðu menn vonað að ágrein-
ingur bankanna og bankamanna
væri að leysast en hugmyndir
hefðu komið fram um að leysa
ágreining um samningstíma með
því að semja til tveggja og hálfs
árs. Þegar á reyndi hefði hins veg-
ar komið í ljós að ágreiningur var
um fleiri atriði.
Verkfall hefst einnig hjá Mat-
vís, landssambandi matvæla- og
veitingasambands íslands, á mið-
nætti í nótt takist ekki samningar
fyrir þann tíma. Verkfallið nær
til u.þ.b. 1.000 manna á landinu
öllu. Það mun lama starfsemi veit-
ingahúsa, kjötvinnslna og bakar-
ía. Ennfremur raskast starfsemi
verslana þar sem kjötiðnaðarmenn
starfa við kjötborð. Samninga-
nefndir deiluaðila sátu á fundi hjá
sáttasemjara fram yfir miðnætti
í nótt.