Morgunblaðið - 24.04.1997, Síða 10

Morgunblaðið - 24.04.1997, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Einka- klúbbur um heilsurækt HEILSULINDIN Planet pulse verður opnuð á Hótel Esju hinn 14. maí næstkomandi. Að sögn Jónínu Benediktsdóttur íþrótta- fræðings er um að ræða einka- klúbb og hann er ætlaður fólki sem hefur lítinn tíma og kann að meta góða þjónustu. Starfsemin verður ekki auglýst en hefur verið kynnt væntanleg- um viðskiptavinum undanfarna daga með boðsbréfi og viðtali. Klúbbfélagar eru nú 60-70. Heilsuræktin er rekin í sam- vinnu við Flugleiðir og er áhersla lögð á vellíðan og æfingaáætlun sem sniðin er að þörfum hvers og eins. Húsnæðið er um 400 m2 og verða á staðnum fullkomnustu líkamsræktartæki sem völ er á að Jónínu sögn. Jónína segir hægt að þjóna 400 manns á ári og því sé verð hærra en gengur og gerist á líkams- Morgunblaðið/Golli JÚLÍA Þorvaldsdóttir móttöku- sljóri, Jónína Benediktsdóttir forstjóri og Vésteinn Hafsteins- son framkvæmdastjóri. ræktarstöðvum. Jafnframt þurfa klúbbfélagar að skuldbinda sig í eitt ár. Yfirlýsing frá sjálfstæð- ismönnum í Garðabæ MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing: „í fréttatíma Stöðvar 2 þriðju- daginn 22. apríl sl. var haft eftir bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins í Garðabæ, Einari Sveinbjörnssyni, að flokksvél Sjálfstæðisflokksins hafi staðið fyrir því að knýja fram kosningar í Garðaprestakalli. I tilefni þeirra ummæla þykir undirrituðum rétt að lýsa því yfir að Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ hefur á engan hátt, hvorki beint né óbeint, haft afskipti af prests- kjöri eða fyrirhuguðum prestskosn- ingum í Garðaprestakalli. Fullyrð- ingar og dylgjur Einars Svein- björnssonar í máli þessu eru honum til vansa og er enn eitt dæmið um þau ógeðfelldu og ómálefnalegu vinnubrögð sem hann hefur tileink- að sér á stuttum ferli á vettvangi bæjarmálefna í Garðabæ. Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ hefur um áratuga skeið notið trausts meginhluta bæjarbúa. Því gefur auga leið að þegar safnað er undirskriftum hjá um 2.200 bæj- arbúum, hljóta fjölmargir þeirra að vera úr röðum Sjálfstæðisflokksins til þess að knýja fram prestskosn- ingar. Afl Sjálfstæðisflokksins í kosningum felst í því að beita nafni og krafti flokksins á skýran hátt málefnum til framdráttar. Það var ekki gert til þess að knýja fram prestskosningu í Garðaprestakalli og hefur það raunar aldrei í tíð undirritaðra komið til umræðu í sjálfstæðisfélögunum í Garðabæ, hvort og hvernig standa eigi að kjöri eða ráðningu presta. Undir yfirlýsinguna rita: Bene- dikt Sveinsson bæjarfulltrúi, Erling Ásgeirsson bæjarfulltrúi, Halldór Ingólfsson, formaður Sjálfstæðisfé- lags Garðabæjar, Laufey Jóhanns- dóttir bæjarfulltrúi, Andrés B. Sig- urðsson bæjarfulltrúi og Sigurður Guðmundsson, formaður Hugins, félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ. VW í Bandaríkj uniun spyr um Audi A6 VOLKSWAGEN í Bandaríkjunum hefur sent Heklu hf., umboðsaðila VW og Audi, bréf þar sem sagt er frá Audi A6-bíl sem fluttur var inn til íslands eftir að hann hafði lent í árekstri úti. Samkvæmt bréfinu var bíllinn afar illa farinn, hægri hliðin var öll skemmd og bíllinn „leit út eins og banani", eins og segir í bréfinu. Forsvarsmenn VW í Bandaríkjunum furða sig á því að bíllinn skyldi hafa verið fluttur inn til landsins og spyija hvort bíll- inn hafi verið skráður og honum ekið hérlendis. í bréfinu segir einnig að gefið hafi verið út vottorð í Michigan, svokallað „scrap certificate", um að bíllinn hafi verið ónýtur og mætti aðeins selja hann sem vara- hluti. Sigurður Pálmason, sem flutti bílinn inn, segir að hann hafi vissu- lega verið skemmdur en ekki meira en gengur og gerist með marga aðra bíla sem lenda í tjónum hér- lendis og eru gerðir upp. Hann seg- ir að bíllinn hafi verið skráður sem tjónabíll og hefði aldrei fengið skráningu hér á landi nema fram- vísað hefði verið burðarvirkismæl- ingu og faglega hefði verið staðið að viðgerð hans. Með ólíkindum að bíllinn komist á skrá hérlendis Sagt var frá þessum bíl í Morg- unblaðinu 9. mars síðastliðinn. Þar kom ekki fram að um tjónabíl hefði verið að ræða en það er tekið fram í skráningarskírteini bílsins. Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu, segir að þegar bílar lenda í miklu tjóni í Bandaríkjunum séu þeir af- skráðir. „Bíllinn hefur skemmst það mik- ið að þeirra mati að það átti bara að setja hann á öskuhaugana eða selja kannski hluta úr honum sem eru heillegir. Mér finnst það með ólíkindum að bíll sem er farinn af skrá í einhveiju landi skuli komast á skrá hér á Islandi," segir Sigfús. Hann segir að kaupverð á þessum tiltekna bíl hafi verið gefið upp 10 Auglýsendur athugið breyttan skilafrest á atvinnu-, rað- og smáauglýsingum sem eiga að birtast í sunnudagsblaðinu Auglýsingatexta og/eða tilbúnum atvinnu-, rað- og smáauglýsingum sem eiga að birtast í sunnudagsblaðinu, þarf að skila fyrir kl. 12 á föstudögum. Auglýsingadeild Sími 569 11 11 * Símbréf 569 11 10 « Netfang: augl@mbl.is þúsund dollarar í tolli, þ.e. kaup- verð bílsins úti. Sigurður Pálmason segir að for- saga bílsins liggi frammi fyrir þá sem hefðu hug á því að kaupa hann. Hann er skráður sem tjónabíll og verðið á honum sé í samræmi við það, 4,6 milljónir kr. Nýr kosti slík- ur bíll rúmar sex milljónir króna. Hann segir að sölustjóri Heklu hafi gefið út að hann hafi sett upp sann- gjarnt verð fyrir bílinn og sölustjór- inn hafi vitað að bíllinn var skemmdur þegar hann kom hingað til lands. Sigurður segir að bíllinn hafi verið skemmdur á hlið eftir árekst- ur. „Báðar hurðar og hurðastafur- inn kýldist inn. En mál þetta allt snýst í mínum huga um viðbrögð Heklu við innflutningi á bílum sem fer ekki í gegnum fyrir- tækið. Það var gert við bílinn hér á landi á við- urkenndu verkstæði. Bíllinn hefði aldrei fengist skráður öðru- vísi. Hann var ekkert “““““ meira skemmdur en gengur og ger- ist með bíla sem lenda í tjónum hérlendis," segir Sigurður. Mun leita réttar míns Hann segir að bíllinn hafi kostað sig rúmar ijórar milljónir króna. Þar með talið sé innkaupsverð, gjöld og viðgerðarkostnaður hérlendis. „Ef Hekla ætlar að halda því fram að þetta sé ónýtur bíll þá mun ég leita réttar míns. Það er frjáls innflutningur hingað til lands á bíl- um eins og annarri vöru svo þeir hafa engan rétt til þessa. Ef þessu fer ekki að linna af hálfu Heklu, sem mér sýnist ekki vera, þá leita ég réttar míns. Á þeim tímum sem fijáls er hér innflutningur og ég fer eftir öllum lögum og reglum þá Iít ég á þetta sem hreinan rógburð og ég sætti mig ekki við -------------- það,“ sagði Sigurður. Helgi Bjömsson hjá Bifreiðaskoðun segir að í skráningarskírteinum allra bíla sem eru flutt- ir inn sem tjónabílar sé . þess getið að um tjónabíla sé að ræða. „Starfsmaður Bifreiðaskoðunar skoðar alla bíla við komuna til landsins. Tjónabílar em tollaf- greiddir sem tjónabílar. Þeir koma með erlend skráningarskírteini sem bera það með sér að bíllinn sé tjóna- bíll úti. Okkur ber að skrá inn í íslenska skráningarskírteinið sömu upplýsingar og eru í erlenda skrán- ingarskírteininu," segir Helgi. Gert við bílinn á viðurkenndu verkstæði hér á landi Ekkert skráð um bíla sem lenda í tjónum hérlendis Helgi segir að málum sé öðru- vísi háttað með bíla sem hafa lent í tjóni hérlendis. Ekkert sé um það að finna í skráningarskírteini bíls- ins. Þá sé eina leiðin til þess að komast að hinu sanna að kanna ferilskrá viðkomandi bifreiðar og hvort hún hafi verið í eigu trygg- ingafélaga. Helgi segir að komi það fram í skráningarskírteini innflutts bíls að hann sé tjónabíll þá sé ljóst að burð- arvirki hans hafi skemmst. Ef að- eins er um útlitstjón að ræða sé þess getið í skráningarskírteini og einnig ef bíllinn hefur lent í vatns- tjóni. Slík skráning hefur nú farið fram um eins árs skeið hérlendis. Helgi segir að bílar með „scrap certificate“-vottorð fáist ekki skráðir í Bandaríkjunum nema þeir séu teknir út á ný. Þar þurfa bílar að uppfylla svokallaðan FMVS- staðal (Federal Motor Vehicle Standard) til þess að fá skráningu á ný og segir Helgi að það sé afar kostnaðarsamt. Hann segir að tryggingafélög í Banda- ríkjunum reyni yfirleitt ekki að fá bíla skráða aftur sem hafi tjón á yfirbyggingu sem hafi áhrif á akst- urseiginleika bílsins. Hægt sé að kaupa þessa bíla af bílapartasölum eða á uppboðum tryggingafélag- anna. Útilokað að bíll sé skakkur þegar hann er skráður hér Umræddur Audi A6-bíll hafði samkvæmt skráningu Bifreiðaskoð- unar orðið fyrir það miklu tjóni að burðarvirkið var skemmt. „Til þess að fá þennan bíl skráð- an þurfti að leggja inn til okkar grindarmælingu sem segir til um að undirvagninn sé réttur, vottorð um hjólastillingu, ljósastillingu og --------- fleira. Ella hefði hann ekki fengið skráningu," segir Helgi. Hann segir að ein- ungis einstök verkstæði hafi leyfi til þess að gefa út burðarvirkis- og Bílgreinasambandið mælingar veiti þær heimildir. „Bílarnir eru settir upp í sér- stakan bekk og verksmiðjan gefur út punkta sem gengið er út frá í mælingunni. Bíllinn verður að standast þessa punkta til þess að fá vottorð um að grindarvirkið sé í lagi í bílnum. Það á því að vera algjörlega útilokað að bíllinn sé skakkur þegar hann er skráður á ný,“ segir Helgi. Eyrarbakki - Eyrargata 6 Snoturt 80 fm 2ja herb. forskal- að timburhús ásamt 25 fm bíl- skúr á góðum stað. Eignin er á tveimur hæðum auk kjallara. Gólfefni eru góö. Efri hæð húss- ins er nýbúið að taka í gegn, einangra o.fl. Skemmtilegt hús með ýmsa möguleika. Verð: 3,3 millj. Áhv. 1,3 millj. Upplýsingar veita Lögmenn Suðurlandi, Austurvegi 3, Selfossi, sími 482-2988. Fiesta vMgerðarefm Nú loksins far?verð og gæði samai Eitt af vinsælustu víngerðarefnum á Norðurlöndum er nú komið til íslands. Verðdæmi: Rósavín 1.700 • Hvítvín 1.700 • Vermouth 1.900 %\ Ath. 30 f löskur úr éínlji lögn \/|Mc4iaÍ M 1 Höfurrreinnig víngerðarefgi fyrir . rauóvín, sérrtcrg púrtvín. |_%ieri£jLím í póstkröfu Vínstofan Laugamesvegi 52, " / sími 533 1888, FAX, 5:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.