Morgunblaðið - 24.04.1997, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1997
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ
Fréttastofa Sjónvarps - ginn-
ingarfífl eða handbendi?
FYRIR nokkru varð ég þess heiðurs
aðnjótandi að tvær sjónvarpsstöðv-
ar gerðu embættisfærslu mína að
umtalsefni, en umtalið var þó ekki
ætlað mér til heiðurs. Með því að
blanda saman óskyldum þáttum
máls tókst þeim í samhljómi að láta
líta svo út sem umboðsmaður al-
þingis hefði sakfellt mig sem vond-
an embættismann og þar að auki
vondan mann sem hefði níðst á
saklausum útlendingi og fjölskyldu
hans. í sömu viku stóð fyrir dyrum
rektorskjör í Háskóla Islands, og
var ég einn af þeim sem sóttust
eftir kjöri. Varla er hægt annað en
sjá samband þama á milli, og spum-
ingar vakna um vinnubrögð og til-
gang fréttamanna sem um málið
fjölluðu. Ég vona að mér verði virt
til vorkunnar þótt mér þyki nokkm
varða að gera grein fyrir málinu,
eins og það horfir við mér, og ég
ígeld að ekki verði hjá því komist
að spytja spuminga um þá frétta-
mennsku sem þama er á ferðinni
og er svo sem ekki einsdæmi.
Lektor sagt upp störfum
I 11. grein laga um Háskóla Is-
lands segir að engan sé heimilt að
skipa lektorj dósent eða prófessor
við Háskóla Islands nema að undan-
gengnum hæfnisdómi. Þetta hefur
einnig verið látið ná til ótímabund-
innar ráðningar með þriggja mán-
aða uppsagnarfresti, sem nú er að
leysa skipun af hólmi. í tímabundn-
ar lektorsstöður er ekki ráðið til
Iengri tíma en sex ára, og að þeim
loknum getur lektorinn ekki fengið
ótímabundna ráðningu nema hann
hafi áður fengið metna hæfni til
að vera dósent. Rétt er að taka fram
að hingað era ráðnir sendikennarar
sem stundum eru metnir af stjórn-
völdum í heimalandinu en stundum
af háskóladeild hér. Fyrr á áram
bar það við að menn væru ráðnir í
lektorsstöður án auglýsingar frá ári
til árs, en frá því um 1990 hefur
heimspekideild gengið skipulega að
því að auglýsa slíkar stöður, og
hafa þá þeir sem áður gegndu þeim
orðið að sækja um þær og keppa
við aðra. Stefna Háskólans er að
menn eigi að keppa þar um allar
kennarastöður og að þeir einir fái
ótímabundna ráðningu sem metnir
hafi verið hæfír. Um þetta allt gilda
reglur, og það er skylda deildarfor-
seta og annarra stjómenda að sjá
til að þær gangi jafnt yfir alla.
Frá haustmisseri 1984 til ársloka
1990 var Aitor Eyþór
Yraola ráðinn lektor í
spænsku við heim-
spekideild án auglýs-
ingar og án hæfnismats
frá ári til árs. Greiddi
spænska ríkið þriðjung
launa hans en Háskól-
inn tvo þriðju. Á árinu
1990 lá fyrir að þeim
ráðningarhætti yrði
ekki haldið áfram, enda
hafði Aitor þá sótt um
framgang í dósents-
stöðu. Heimspekideild
átti um það að velja að
láta starfí hans Ijúka
þá strax eða samþykkja
að hann fengi ótímabundna ráðn-
ingu í lektorsstöðu í spænsku meðan
metið væri hvort hann hefði dósents-
hæfni. Rétt þótti að bíða hæfnis-
mats, og í byijun árs 1991 fékk
Aitor Eyþór ótímabundna ráðningu
sem lektor með þriggja mánaða
uppsagnarfresti með skírskotun til
bókunar í kjarasamningi um rétt
starfsmanna til ótímabundinnar
ráðningar eftir ákveðinn tíma í tíma-
bundnu starfí. Niðurstaðan af hæfn-
ismatinu varð, skv. dómnefndaráliti
29. júlí 1991, að Aitor Eyþór hefði
ekki dósentshæfni. Formaður dóm-
nefndar var prófessor B.W. Ife, for-
seti spænskudeildar King’s College
í London.
Þegar dómnefndarálit lá fyrir, hóf
Aitor Eyþór gegnum lögfræðing
sinn ákærar á heimspekideild fyrir
að hafa staðið rangt að skipun dóm-
nefndar og vefengdi dómnefndar-
álitið. Háskólinn taldi rétt að bíða
með uppsögn meðan kæramál hans
væra óafgreidd. Kæramálum vegna
dómnefndarinnar var svarað og vís-
að frá af heimspekideild og háskóla-
ráði, og hefur þáverandi forseti
heimspekideildar, prófessor Þór
Whitehead, gert nákvæma grein
fyrir allri meðferð málsins í bréfí,
dags. 21. jan. 1994, til lögfræðings
Háskóla Islands, Gests Jónssonar
hrl.
Þegar sýnt þótti að ekkert tilefni
væri til málshöfðunar og ekkert
mundi verða úr henni, var málið
rætt í deildarráði heimspekideildar,
og var þar full samstaða um að
ekki væri um annað að ræða en
að segja Aitor Eyþóri upp þar sem
hann hefði aldrei keppt um stöðu
sína og aldrei fengið dóm um það
að hann væri hæfur til að gegna
henni. í samráði við starfsmanna-
Vésteinn Ólason
BJÓDDU EKKIINNBROTS
ÞJÓFUNUM HEIM!
ELFA-GRIPO þjófavarnar- og öryggiskerfi fyrir heimili, stofnanir og fyrirtæki.
ELFA-GRIPO kerfin hafa hlotið hin eftirsóttu Ideal Home verðlaun og eru
samþykkt af viðurkenndum eftirlits- og tæknistofnunum i Evrópu.
Við bjóðum þráðkerfi frá kr. 11.610, þráðlaus kerfi frá kr. 22.100, úti- og
innisírenur, reykskynjara, blikkljós, símhringibúnað, fjarstýringar o.m.fl.
Leitið upplýsinga, við veitum tækniráðgjöf og önnumst uppsetningu.
Söluaðilar: Póllinn Isafirði • Ljósgjafinn, Akureyri • Öryggisgæslan, Höfn
stjóra og lögfræðing
Háskólans var honum
skrifað uppsagnarbréf,
dags. 6. febrúar 1995,
og tekið fram að
starfslok yrðu 1. ágúst
s.á. Þessum tveimur
lögfræðingum bar
saman um að forseti
heimspekideildar, þ.e.
undirritaður, ætti að
skrifa undir bréfið, og
minnist ég að hafa sér-
staklega spurt um það.
Samkvæmt eindregn-
um tilmælum Gests
Jónssonar voru ekki
gefnar skýringar á
uppsögninni í bréfinu.
Aitor Eyþór var í rannsóknaleyfí
á vormisseri 1995, en rétt er að
taka fram að kennari í rannsókna-
leyfí er í vinnu, hvort sem hann
dvelst á vinnustað eða erlendis, og
hvorki hafði deildarforseti fengið
neina tilkynningu um þetta leyfi
né dvalarstað starfsmannsins fyrr
en eftir að ákvörðun um uppsögnina
hafði verið tekin og skorarformaður
tjáði honum að kennarinn væri
staddur erlendis. Tekið var fram í
uppsagnarbréfinu að kennaranum
væri heimilt að sækja um stöðu við
deildina sem fljótlega yrði auglýst
og væntanlega veitt frá 1. ágúst.
Þegar lögfræðingur hans óskaði
eftir skýringum, gaf ég þær, enda
var ég frá upphafi ósáttur við að
senda uppsagnarbréfíð skýringa-
laust. Háskólinn greiddi ferðakostn-
að Aitors Eyþórs til og frá íslandi
til að auðvelda honum að undirbúa
umsókn sína.
Þegar staðan var auglýst og
dómnefnd skipuð var þess vandlega
gætt að skilgreining stöðunnar yrði
ekki Aitor Eyþóri í óhag. Meirihluti
dómnefndar var skipaður í samráði
við forstöðumann deildar
rómanskra mála við Kaupmanna-
hafnarháskóla. Tveir umsækjendur
vora dæmdir hæfir af dómnefnd án
þess að gert væri upp á milli þeirra,
Margrét Jónsdóttir MA og dr. Aitor
Eyþór Yraola. Leitað var álits skor-
ar rómanskra mála, og var það
samhljóða niðurstaða hennar að
mæla með Margréti. Deildarfundur
ijallaði síðan um málið, og í leyni-
legri atkvæðagreiðslu fékk Margrét
meirihluta atkvæða. Lögmaður dr.
Yraola kærði málið til Háskólaráðs,
m.a. á þeirri forsendu að forseti
heimspekideildar hefði ekki mátt
segja upp starfsmanni sem ráðinn
hafði verið af menntamálráðherra.
Kæru þessari var vísað frá Háskól-
tii
'StS Einar
Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 tr 562 2901 og 562 2900
Biddu um Banana Boat
ef þú vilt spara 40-60%
Þegar þú kaupir Aloe Vera gel.
□ Hvers vegna aS borga 1200 kr. fyrir kvartlítra af Aloe geli
þegar þú getur fengið sama magn af Aloe Vera geii frá
Banana Boat á um 700 kr eða tvöfalt meira magn af Banana
Boat Aloe Vera geli á 1000kr.
O Hvers vegna aö bera á sig 2% af rotvarnarefnum þegar þú
getur fengið 99,7% (100%) hreint Banana Boat Aloe Vera gel?
□ Banana Boat næringarkremið Brún-án-sólar i úðabrúsa eóa
með sólvöm 18.
O Stýrðu sólbrúnkutóninum með t.d. hraðvirka Banana Boat
dökksólbrúnkuoliunni eða -kreminu eða Banana Boat
Golden oliunni sem framkallar gyllta brúnkutóninn.
□ Hefur þú prófað Naturica húðkremin sem allir eru að rala um,
uppskrift Birgittu Klemo, eins virtasta húðsérfæðings
Norðurtanda ? Naturica Ört-krám og Naturíca Hud-krám.
Banana Boat og Nalurica lást i sólbaðsstofum, apótekum,
snyrtiv. verslunum og öllum heilsubúðum utan Reykjavíkur.
8anana Boat E-gelið fæst lika hjá Samtökum psoriasis-og
exemsiúklinqa.__________________________________
Heilsuval - Barónsstíg 20 n 562 6275
Varla getur nokkur
maður verið svo skyni
skroppinn, segir Vé-
steinn Olason, að sjá
ekki að fréttaflutningur
Sjónvarpsins og Stöðvar
2 hafði það að markmiði
að skaða mig í rektors-
kosningum.
aráði sem taldi að rétt hefði verið
staðið að málinu. Kæran var þá
send til menntamálaráðuneytis, sem
18.9. 1995 úrskurðaði að rétt hefði
verið staðið að uppsögninni, og
skrifar Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra undir þann úrskurð.
Uppsögnin var þannig gerð í sam-
ræmi við ráð lögfræðings Háskól-
ans og aðferðin samþykkt á öllum
stigum stjórnkerfisins, þ.á m. af
æðsta yfirmanni menntamála.
Málið var þá kært til Umboðs-
manns Alþingis sem í bréfi sínu 20.
mars sl. lýsir gangi þess rækilega.
Hann tekur enga afstöðu til þess
hvort uppsögnin hafi verið réttmæt
eða hvort kærandanum hafi verið
gert rangt til við ráðningu í þá stöðu
sem auglýst var frá 1. ág. 1995.
Hann telur hins vegar að skoðun
stjórnkerfisins á því hver eigi að
undirrita uppsagnarbréf sé röng og
að menntamálaráðherra hefði átt
að undirrita bréfið. Ef menn vilja
finna einhvern sökudólg í þessu
máli, hlýtur það að vera lögfræðing-
ur Háskólans og lögfræðingar
Menntamálaráðuneytis. Þetta kem-
ur mjög skýrt fram í bréfi Umboðs-
manns til háskólarektors sem undir-
ritað er 20. mars 1997. Hvorki
háskólarektor, Sveinbjöm Björns-
son, né núverandi forseti heimspeki-
deildar, Páll Skúlason, sem fékk
afrit af því frá rektorsskrifstofu,
sáu ástæðu til að senda mér afrit
af bréfí umboðsmanns né kynna
mér efni þess, og hafa því væntan-
lega ekki talið að sakir væru þar
bornar á mig persónulega.
Engum yfirmanni er ljúft að segja
upp starfsmanni. Ég hafði engin
persónuleg kynni haft af Aitori Ey-
þóri og hafði engar ástæður til að
íþyngja honum á nokkurn hátt.
Ákvörðun deildarráðs um að auglýsa
stöðu hans var gerð í framhaldi af
samþykkt deildarráðs 20. jan. 1990
og samþykkt ráðningarnefndar
deildarinnar í janúar 1993, báðar
gerðar áður en ég varð deildarfor-
seti. Þessi stefna deildarinnar, sem
ég framfylgdi með uppsagnarbréf-
inu, er byggð á lögum um Háskóla
íslands og á jafnræðisreglu. Það
hlýtur að vera hagur Háskólans og
stúdenta hans að hæfni allra kenn-
ara sé metin með sambærilegum
hætti. í meðferð stöðumálsins, sem
á eftir fylgdi, reyndi ég að gæta
þess að ekki væri hallað á Aitor
Eyþór á nokkurn hátt, en deildarfor-
seti getur ekki haft áhrif á atkvæða-
greiðslu í deild og á ekki að gera það.
Fréttahaukar ranka við sér
Ekki virðist bréf umboðsmanns
hafa vakið mikla athygli fréttamiðla
fyrsta hálfa mánuðinn eftir að það
var sent, en 13. og 14. apríi, örfáum
dögum fyrir rektorskjör, tóku frétta-
stofur sjónvarpsstöðvanna heldur
betur við sér. Bylgjan og Stöð 2
hömuðust á málinu mánudaginn 14.
apríl - e.t.v. lengur, ég fylgist ekki
vel með á þeim bæjum - og frétta-
stofa Sjónvarps fjallaði um það í
áttafréttum 13. og 15. apríl. í sím-
tali fréttamanns sjónvarps við mig
13. apríl hafði hún meiri upplýsingar
en koma fram í bréfí umboðsmanns,
þ.á m. rangar staðhæfíngar um van-
hæfí þess umsækjanda sem fékk
tímabundna lektorsstöðu í spænsku
haustið 1995. Yfírleitt er það eftir-
tektarvert hve mikill .samhljómur er
i þeim upplýsingum sem báðar
fréttastofumar birta umfram það
sem kemur fram í bréfí umboðs-
manns.
Kristínar þáttur
Þorsteinsdóttur
Seinnihluta dags sunnudaginn
13. apríl, nálægt kl. 4 að mig
minnir, hringdi heim til mín Kristín
Þorsteinsdóttir frá fréttastofu sjón-
varps og óskaði eftir að fá að koma
og taka við mig viðtal um bréf
umboðsmanns. Ég sagði, sem satt
var, að ég hefði ekki séð bréfið, bað
um að fá það sent og sagðist þá
skyldi koma í viðtal daginn eftir.
Fréttamaður sótti fast að fá mig
strax til viðtals en ég neitaði, og
tali okkar lauk þannig að ég taldi
að hún mundi fresta umfjöllun til
næsta dags. Rétt er að taka fram
að gögn í málum þessum eru mikil
að vöxtum og mikilvægt að fara
rétt með öll málsatvik, en augljóst
var að fréttamaður hafði áhuga á
að ræða aðdraganda að uppsögn-
inni og ráðningu nýs lektors ekki
síður en niðurstöðu umboðsmanns.
Mér fannst því nauðsynlegt að búa
mig vandlega undir viðtal um málið.
Ég varð mjög undrandi þegar
Kristin kom með málið í fréttum
sama kvöld. Þar var frá því skýrt
að Vésteinn Ólason hefði sagt upp
spænskum lektor og umboðsmaður
hefði úrskurðað uppsögnina ólög-
lega en síðan vikið að högum dr.
Yraola og fjölskyldu hans. Stutt
símaviðtal var þar einnig við há-
skólarektor. Það má kalla furðulegt
að svo mikið skyldi liggja á að koma
á dagskrá slíku máli, sem þó hafði
beðið umfjöllunar um skeið, að
fréttamaður gat ekki beðið einn dag
eftir viðtali við mig. í fréttinni var
málið túlkað á mjög viilandi hátt,
þótt fréttamaður mætti vita betur
eftir að hafa lesið bréf umboðs-
manns og heyrt svör mín við spurn-
ingum, sem hún bar upp, þótt ég
vildi ekki láta hafa neitt eftir mér
fyrr en ég hefði kannað gögnin.
Seint á mánudegi fékk ég stund
aflögu frá kennslu og fundahöldum
og hringdi þá til fréttastofu til að
biðja um að fá að tjá mig um mál-
ið. Helgi H. Jónsson, sem þá var á
vakt, sagði mér að það væri of seint
þann dag, en skyldi gert daginn
eftir. Þann dag, daginn fyrir rekt-
orskjörið, kom Kristín Þorsteins-
dóttir á skrifstofu mína og svaraði
ég öllum spurningum hennar um
málið. Ég gerði auðvitað ekki ráð
fyrir að allt viðtalið kæmi í frétt-
inni, en mikil var undrun mín þegar
ég sá að hún hafði klippt úr því
kjarna málsins, stuttorðar skýring-
ar mínar á því atriði sem umboðs-
maður gerir ágreining um við
stjórnkerfið. Fréttamaður blandaði
enn vísvitandi saman réttmæti upp-
sagnarinnar og því formsatriði sem
umboðsmaður finnur að og ég get
ómögulega talið mig bera sök á.
Varla getur nokkur maður verið
svo skyni skroppinn að sjá ekki að
fréttaflutningur Sjónvarpsins og
Stöðvar 2 þessa daga hafði það að
markmiði að að skaða mig í rektors-
kosningum. Engin leið er að meta
hvaða árangur það bar, enda skipt-
ir það nú ekki máli. Hitt skiptir
máli að vita hvort fréttamenn Ríkis-
útvarps eða yfirboðarar þeirra
reyna að blanda sér í rektorskosn-
ingar í Háskóla íslands eða láta
nota sig til að ófrægja einstaka
frambjóðendur. Á mig leitar þessi
spurning: Gekk Kristín Þorsteins-
dóttir vísvitandi erinda einhverra
úti í bæ sem töldu sig eiga hags-
muna að gæta, eða hefur hún látið
einhvern slíkan hafa sig að ginning-
arfífli? Ef hún getur gefið aðra
skýringu, þætti mér fróðlegt að sjá
hana.
Höfundur er prófessor við
Háskóla íslands.