Morgunblaðið - 24.04.1997, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 1997 47
er það aðeins flutningur á milli
staða, því við lifum áfram hinum
megin. Það er vissa mín og trú að
vel hafi verið tekið á móti þér þarna
hinum megin. Því við uppskerum
jú eins og við sáum.
Vertu sæl, elsku vina, og megi
góður Guð leiða þig í ljósið eilífa.
Hafðu þökk fyrir allt og allt. Við
biðjum eiginmanni þínum, börnum
og öllum ástvinum blessunar í sorg-
inni og söknuðinum. Með þakklæti
fyrir samveruna frá Magnúsi, Reyni
og laugardagsbekknum.
Hólmfríður Zophoníasdóttir.
Mig langar til að minnast móður-
systur minnar, Dagmarar Gunn-
laugsdóttur, sem lést 16. apríl sl.
Fyrst og fremst minnist ég henn-
ar sem atorkukonu sem gustaði af
hvert sem hún fór. Alltaf á hrað-
ferð og með mörg járn í eldinum.
Full af orku glaðværð og jákvæðni.
Hún var á ferð og flugi á milli landa
að heimsækja Aðalheiði systur sína
í Danmörku, Gunnlaug bróður sinn
í Ástralíu eða börn og barnabörn
sín í Bandaríkjunum. Við heimkom-
una skutust ættingjar í heimsókn
til að fá fréttir af frændfólki og
skoða myndir. Dagmar var alltaf
með myndabunka með sér í veskinu
og andlit hennar ljómaði af gleði
þegar hún sýndi okkur myndir af
barnabörnunum og frændsystkin-
um. Þannig hélt Dagmar utan um
alla stórfjölskylduna og litu allir á
hana sem höfuð ættarinnar.
Þegar Dagmar var tvítug og
nýbytjuð búskap létust foreldrar
hennar með skömmu millibili. Dag-
mar var elst fímm systkina, en
móðir mín, Sólveig, var yngst, að-
eins 11 ára. Dagmar og eiginmaður
hennar heitinn, Ólafur Pálmi, tóku
þá móður mína að sér og bjuggu
henni gott heimili þar til hún hóf
sjálf búskap. Þegar við systkinin
fæddumst bar hún mikla umhyggju
fyrir okkur og hafði skoðun á upp-
eldi okkar. Var hún þá í senn stóra
systir og amma. Þegar Dagmar
kom frá útlöndum var hún ávallt
með gjafir handa okkur og hana
munaði ekkert um að kaupa föt á
okkur fyrir mömmu eða kjóla á vin-
konurnar, enda með eindæmum
greiðvikin.
Á afmælisdaginn minn hringdi
Dagmar frænka og óskaði mér til
hamingju - það brást aldrei. Eftir
að börnin mín fæddust hringdi hún
á afmælisdögum þeirra. Já, hún
frænka mín mundi eftir öllum í fjöl-
skyldunni. Hún vakti yfir velferð
allra í stórfjölskyldunni með reisn
ættarhöfðingjans.
Dagmar var formaður Kvenfé-
lags Bústaðakirkju um árabil. Oftar
en einu sinni þegar ég hringdi í
hana var hún að útbúa 100 manna
brauðtertur fyrir kvenfélagið, en
hringingar trufluðu hana ekki, hún
dansaði bara um eldhúsið með sím-
ann á öxlinni.
Dagmar veiktist af krabbameini
fyrir 5 árum og virtist hún hafa
unnið bug á því meini. Fyrir rúmu
ári veiktist hún aftur. Hún lét eng-
an bilbug á sér finna og var staðráð-
in að sigrast á þessum vágesti.
Bjartsýni og jákvætt lífviðhorf
fylgdi henni alla leið, þar til lífsand-
ann þraut.
Eg kveð móðursystur mína með
söknuði og þakka henni samfylgd-
ina. Manni hennar, Henning, börn-
um, tengdabörnum, barnabörnum
og barnabarnabarni sendi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur og bið
góðan guð að veita þeim styrk í
sorg þeirra.
„Sorgin er gríma gleðinnar. Og
lindin, sem er uppspretta gleðinnar,
var oft full af tárum. Og hvernig
ætti það öðruvísi að vera? Þeim
mun dýpra sem sorgin grefur sig í
hjarta manns, þeim mun meiri gleði
getur það rúmað ...
Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú
ert glaður, og þú munt sjá, að að-
eins það, sem valdið hefur hryggð
þinni, gerir þig glaðan.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoð-
aðu þá aftur huga þinn, og þú
munt sjá, að þú grætur vegna þess,
sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran.)
Sigríður Einarsdóttir.
GUÐRÚNINGI-
BJÖRGSÓLVEIG
STEFÁNSDÓTTIR
+ Guðrún Ingi-
björg Sólveig
Stefánsdóttir
fæddist á Sleðbrjót
í Jökulsárhlíð 14.
júni 1913. Hún lést
á hjartadeild
Sjúkrahúss
Reykjavíkur 11.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Björg Sig-
mundsdóttir hús-
freyja og Stefán
Sigurðsson, hrepp-
stjóri og bóndi á
Sleðbijót. Var
Guðrún næstyngst af fjórum
börnum þeirra, og er Geir
yngsti bróðir hennar sá eini,
sem er á lífi af systkinunum,
en látin eru Magnhildur og Sig-
urður. Einnig átti Guðrún tvö
fóstursystkini, Frímann Jak-
obsson, sem er látinn, og Ingu
Pétursdóttur, sem býr í Seattle.
Guðrún giftist árið 1943
Karli Gunnarssyni frá Fossvöll-
um í Jökulsárhlíð, d. 30.4.1988.
Þau hófu búskap á Fossvöllum,
þar sem Karl var bóndi á föður-
leifð sinni en fluttu árið 1944
að Hofteigi á Jökuldal, þar sem
þau bjuggu í 38 ár. Guðrúnu
og Karli varð sex barna auðið:
Elsta barn þeirra, sonur, dó í
frumbernsku, en hin börn
þeirra eru talin í aldursröð: 1)
Björg félagsráðgjafi í sambúð
Ég var aðeins átta ára þegar
amma og afi fluttu frá Hofteigi á
Jökuldal til Reykjavíkur. Ég á því
fáar minningar þaðan. Þó er skýrt
í huga mér hve afa og ömmu var
annt um velferð okkar bamabarn-
anna og vorum við ætíð hlaðin gjöf-
um. Einnig er mér minnisstæður
góði sveitamaturinn hennar ömmu
og hvemig hún síaði mjólkina úr
kúnni Búbót á frumstæðan hátt
gegnum viskustykki. Ég man líka
vel eftir betri stofunni í Hofteigi
sem var svo fín og snyrtileg.
Reglulega sendu amma og afí
stóran kassa fullan af góðgæti og
gjöfum suður til Reykjavíkur og
hlakkaði ég aldrei meira til en þeg-
ar von var á þeim í heimsókn.
Þegar amma og afí fluttu til
Reykjavíkur saknaði ég Hofteigs,
sveitarinnar minnar, en mikið var
gott að fá þau heim.
Amma hafði yndi af skák og stóð
sig vel á því sviði. Hún kenndi börn-
um sínum að tefla og var seinna
dugleg að tefla við bamabörnin.
Mér þótti fátt skemmtilegra en að
taka skák við ömmu mína.
Árið 1988 dó afí. Þau höfðu ver-
ið svo samrýnd. Þau hjálpuðust að
við allt og lásu hvort fyrir annað.
Amma saknaði hans sárlega öll
þessi ár. Veikindi fóru smám saman
að hijá hana. Hún var þó skýr fram
með Baidri Her-
mannssyni eðl-
isfræðingi, og eiga
þau einn son, Her-
mann. 2) Ragnheið-
ur, doktor í uppeld-
isfræði og kennir við
Háskólann í Þránd-
heimi, gift Þórarni
Stefánssyni verk-
fræðingi og eiga þau
tvær dætur, Önnu
og Sólveigu. 3) Stef-
án sljórnmálafræð-
ingur og guðfræð-
ingur, kennari við
Menntaskólann við
Hamrahlíð, kvæntur Sigrúnu
Sigmarsdóttur hjúkrunarfræð-
ingi, og eiga þau þrjú börn:
Guðrúnu Ingibjörgu, Sigmar
Karl og Ulfar Frey. 4) Gunnar
flugstjóri hjá Atlanta, kvæntur
Unni Armannsdóttur, sem vinn-
ur á saumastofu, og eiga þau
einn son, Karl. Af fyrra hjóna-
bandi á Gunnar eina dóttur,
Auði Völu. 5) Guðlaug Berg-
þóra hjúkrunardeildarstjóri,
gift Arnbimi Arnbjörnssyni
lækni, og eiga þau eina dóttur,
Aðalheiði. Af fyrra hjónabandi
á Guðlaug Bergþóra einn son,
Benedikt. Guðrún og Karl
fluttu til Reykjavíkur árið 1982
og bjuggu í Eyjabakka 30.
Bálför hennar hefur farið
fram í kyrrþey að hennar eigin
ósk.
á seinasta dag og fylgdist vel með
daglegu lífi okkar unga fólksins.
Amma var mjög nútímaleg og
fylgdist með nýjustu straumum og
stefnum í tískunni. Henni var um-
hugað um að við værum vel til fara.
Umhyggja hennar fyrir börnum sín-
um og bamabörnum var hennar líf
og yndi og ekkert gladdi hana meira
en að vita að öllum vegnaði vel.
Fjölskyldan kom oft saman á heim-
ili ömmu í Breiðholtinu og var þá
hlátur og gleði þegar rifjaðar voru
upp minningar frá Hofteigi. Amma
sat ávallt og hlustaði á samræðum-
ar og átti hún erfitt með að stilla
sig um að skella ekki upp úr. Gest-
ir fengu ávallt góðar móttökur hjá
ömmu og stóðu þeim ætíð tertur
og ýmislegt góðgæti til boða.
Fyrir nokkrum dögum lagðist
amma inn á sjúkrahús í rannsókn.
Mig óraði aldrei fyrir að hún kæmi
ekki heim aftur. Á meðan á sjúkra-
húsvistinni stóð versnaði henni
skyndilega. Hún dó stuttu seinna
og þurfti ekki að þjást lengi. Nú
eru þau saman aftur, amma Gunna
og afi Kalli.
Kærar þakkir fyrir allt, amma
mín. Ég mun geyma þig í minningu
minni.
Þín,
Guðrún Ingibjörg
Stefánsdóttír.
+
Hjartans þakkir til allra, þeirra sem sýndu okk-
ur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
unnustu minnar, dóttur okkar, systur og
barnabarns,
ÖRNU RÚNAR HARALDSDÓTTUR,
Hléskógum 3,
Reykjavík.
Sigurður Oddur Einarsson,
Sigurveig Úlfarsdóttir, Haraldur Á. Haraldsson,
Elfa Huld Haraldsdóttir,
Úlfar Gauti Haraldsson.
Bjarndfs K. Guðjónsdóttir, Úlfar Magnússon,
Ágústa Sigurðardóttir.
+
Kæru ættingjar og vinir. Innilegar þakkir færum
við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR KRISTÓFERS
GEORGSSONAR,
Túngötu 24,
Álftanesi,
Bessastaðahreppi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahjúkrunar Krabbameinsfélags
(slands fyrir frábæra umönnun og stuðning.
Jóanna Sæmundsdóttir,
Steinn Sævar Guðmundsson,
Guðmundur Georg Guðmundsson, Heiga Haraldsdóttir,
Jóhann Arngrímur Guðmundsson, Katrín Ingibergsdóttir,
Ásdís Harpa Guðmundsdóttir, Kristinn A. Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem veitt hafa
okkur ómetanlegan stuðning og styrk við
fráfall
ÞORGEIRS LOGA ÁRNASONAR,
Keilufelli 35,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til allra vinanna, sem sýnt
hafa einstakan hlýhug.
Einnig til þeirra, sem að björguninni stóðu.
Ingunn Erna Stefánsdóttir,
Stefán Árni Þorgeirsson, Auður Rán Þorgeirsdóttir,
Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, Björn Óiafur Gunnarsson,
Hallfríður Bjarnadóttir,
Haraldur Árnason, Guðríður Kristjánsdóttir,
Ingibjörg Árnadóttir, Guðmundur F. Baldursson.
+
Alúðarþakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vináttu vegna andláts
móður okkar, fósturmóður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSTU ÁSBJÖRNSDÓTTUR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
sem andaðist þann 23. mars síðastliðinn.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu í Hafnarfirði.
Sverrir Sigfússon,
Baldur Sigfússon,
Jóhanna Sigfúsdóttir,
Magnús Sigfússon,
Ásbjörn Sigfússon,
Hólmfríður Sigfúsdóttir,
Hólmfríður Jónasdóttir,
barnabörn og
Sólveig Þórðardóttir,
Elsa Hanna Ágústsdóttir,
Björn Helgi Björnsson,
Auðdís Karlsdóttir,
Jóhanna Björnsdóttir,
Björn Þór Egilsson,
Sigurður Guðjónsson,
barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
HULDU GUÐMUNDSDÓTTUR
hjúkrunarkonu,
Vogatungu 41,
Kópavogi.
Hjálmar Guðmundsson,
Gunnlaugur Hjálmarsson, Guðný Andrésdóttir,
Sjöfn Hjálmarsdóttir, Sigurjón Arnlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
A
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar sambýlismanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
KRISTJÁNS ÞÓRIS ÓLAFSSONAR
fyrrv. vörubílstjóra,
Erluhrauni 3,
Hafnarfirðí.
Branddís Guðmundsdóttir,
Sigríður Kristjánsdóttir, Erlingur S. Haraldsson,
Kristófer Kristjánsson, Kolbrún D. Jónsdóttir,
Kristján Þór,
barnabörn og barnabarnabörn.