Morgunblaðið - 15.05.1997, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Hvín í tind-
unum ofan
við okkur
HALLGRÍMUR Magnússon, einn
leiðangursmanna í Everestleiðangr-
inum, segir að veður sé enn slæmt
efst í Everest og það hvíni í tindun-
um fyrir ofan þá. Hallgrímur, Björn
Ólafsson og Einar K. Stefánsson eru
nú í þriðju búðum í um 6.400 metra
hæð. Þeir vonast eftir að geta verið
á toppnum á sunnudag eða mánu-
dag, en þá er spáð þokkalegu veðri.
„Þetta vonda veður sem mikið er
talað um er í 8.000 metra hæð, en
við erum staddir í um 6.400 metra
hæð. Það hvín í öllum tindum hér
ofan við okkur. Veðrið hjá okkur er
heldur ekki gott. Það er strekkings-
vindur, en hér hefur ekki snjóað í
2-3 daga. Það buldi talsvert sterkur
vindur á tjöldunum í nótt, en við
erum vanir hvössum vindum og sváf-
um þokkalega. Við vöknuðum að
vísu í nótt þegar veðrið var sem
verst,“ sagði Hallgrímur.
Sæmilegt veður á sunnudag
„Samkvæmt veðurspá er útlit fyr-
ir þokkalegt veður 18. maí og við
sjáum hann sem mögulegan upp-
ferðardag. Við þurfum að eiga einn
þokkalega góðan dag til að komast
í efstu búðir. Við fáum veðurspá á
morgun og munum taka ákvörðun
um ferðaáætlun okkar á grundvelli
hennar."
Hallgrímur sagði að þeir myndu
leggja af stað upp í fjórðu búðir
þegar veður skánaði og sofa þar eina
nótt en sfðan yrði haldið áfram upp
strax daginn eftir. Menn myndu
ekki taka sér hvíldardag í fjórðu
búðum nema í neyð.
„Við tökum það rólega hér í þriðju
búðum, lesum góðar bækur og bara
slökum á. Á morgun reiknum við
með að fara í léttan göngutúr í
kringum svæðið okkur til hressing-
ar. Við erum allir við hestaheilsu og
tilbúnir að takast á við tindinn,“
sagði Hallgrímur.
Hörður Magnússon kom í grunn-
búðir í gær, en hann fór í fimm
daga gönguferð á nálæg fjöll. Hann
sagði að ferðin hefði gengið vel.
Á nærklæðum eftir þvottinum
Jón Þór Víglundsson, kvikmynda-
tökumaður sjónvarpsins, hefur verið
í grunnbúðum og sagði hann að þar
hefði verið hvásst í nótt. Hann hefði
t.d. þurft að hlaupa út í nótt á nær-
klæðum á efír þvottinum sem tekinn
var að fjúka.
Hann sagðist hafa heyrt haft eft-
ir fólki sem var neðar í dalnum að
það hefði lagt vindstrók frá toppi
fjallsins og að hann hefði verið nán-
ast láréttur út frá fjallinu. Það færi
ekki á milli mála að veðrið þarna
efst væri afar vont.
■ Everestsíða Morgunblaðsins
http://www.mbl.is/everest/
-------------------------------
Barist gegn
brjósta-
krabba-
meini
STÚLKURNAR sem taka þátt
í Fegurðarsamkeppni Islands
heimsóttu Krabbameinsfélag-
ið í Skógarhlíð í gær og
fræddust um krabbamein og
leitarstarf félagsins. Stúlk-
urnar ætla að vera í Kringl-
unni milli kl. 13 og 15 á laug-
ardag og dreifa þar bæklingn-
um „Berðu heilsu þína fyrir
brjósti“ til kvenna. Um leið
auglýsa þær sérstaka boli, sem
seldir eru til styrktar barátt-
unni gegn brjóstakrabba-
rneini.
Stúlkurnar voru einmitt í
slíkum bolum í heimsókn sinni
til Krabbameinsfélagsins í
Þrír menn úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald
Karlmaður lést eftir
árás á veitingastað
TUTTUGU og sex ára
gamall maður, sem
varð fyrir hörkulegri
árás á skemmtistaðn-
um Vegas á mánu-
dagskvöld, lést á
Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur á miðnætti á þriðju-
dag. Hann hét Sigurð-
ur Sigurmundarson,
til heimilis að Búðar-
stíg 16a á Eyrar-
bakka. Sigurður var
ókvæntur og barn-
laus.
Lögreglan handtók
í fyrrakvöld tvo menn
til viðbótar þeim
Sigurður
Sigurmundarson
manni sem handtek-
inn var fyrr sama dag
og eru þeir grunaðir
um að bera ábyrgð á
árásinni.
Mennirnir
á sakaskrá
Mennirnir voru úr-
skurðaðir í gæsluvarð-
hald í gær til 4. júní,
en Rannsóknarlög-
regla ríkisins hafði
gert kröfu um 44 daga
gæsluvarðhald.
„Árásarmennirnir
veittust að manni á
skemmtistaðnum með
þeim afleiðingum að slagsmál
brutust út og hann lá óvígur eft-
ir. Hann fékk áverka og höfuð-
högg sem drógu hann síðan til
dauða, Við erum að rannsaka
þessa árás sem leiddi til dauða
hans, en of snemmt er að segja
til um aðdragandann eða hvernig
atlagan var,“ segir Hörður Jó-
hannesson, yfirlögregluþjónn
RLR.
Mennirnir þrír eru á aldrinum
25 til 35 ára og hafa allir komið
ítrekað við sögu lögreglu, þar á
meðal vegna kynferðisbrota, lík-
amsárása, innbrota, fíkniefna-
neyslu og frelsissviptingar, svo
eitthvað sé nefnt.
gær.
Fjölskyldufaðir missti atvinnuleysisbætur vegna veikinda
Fær 20 þúsund kr. á
mánuði til framfærslu
„ÉG ÞEKKI dæmi af fjölskylduföður
sem missti vinnuna og fékk þá um
50 þúsund krónur á mánuði í at-
vinnuleysisbætur. Þegar hann
greindist með kransæðastíflu og fór
á biðlista eftir aðgerð missti hann
atvinnuleysisbæturnar og fékk í
staðinn sjúkradagpeninga, sem eru
um 20 þúsund á mánuði og væru
ijórðungi lægri nema af því að hann
er með eitt barn á framfæri. Hann
getur reiknað með að eiga í veikind-
unum í 11 mánuði og þetta eru einu
greiðslurnar sem hann fær úr kerfi
almannatrygginga. Menn eru ekki
metnir til örorku nema veikindi
þeirra standi lengur en í eitt ár,“
sagði Ásta R. Jóhannesdóttir, þing-
flokki jafnaðarmanna, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Ásta nefndi ofangreint dæmi í
stjórnmálaumræðum á Alþingi. Hún
sagði að maðurinn hefði starfað sem
verktaki og ætti ekki annan rétt en
í almannattyggingakerfínu. Hefði
hann verið launþegi hefði hann haldið
launum einhvem tíma og getað leitað
til sjúkrasjóðs verkalýðsfélags sins.
Öfugsnúin viðhorf
„Ég hef margoft bent á þessa
gloppu í kerfínu, að menn detti út
af atvinnuleysisskrá af því að þeir
eru óvinnufærir sjúklingar, en um
leið eru bætur þeirra til framfærslu
skertar stórlega. Tillögur til úrbóta
eru hins vegar alltaf svæfðar í nefnd.
Það er óskiljanlegt, því þrátt fyrir
að allnokkur hópur fólks lendi í að-
stæðum sem þessum, eru það þó
ekki svo margir að nokkru munaði
að leiðrétta þetta.
Mér fínnst ákaflega öfugsnúið að
sjúklingar þurfí að leita til félags-
málastofnana sveitarfélaga, sem eru
misjafnlega í stakk búnar til að greiða
styrki og bætur, en á sama tíma er
það látið átölulaust að hátt launaðir
bankastjórar fái 25 þúsund krónur á
dag í dagpeninga, þrátt fyrir að allur
ferðakostnaður þeirra sé greiddur."
Samgönguráðherra um skiptingu Pósts og síma hf.
Útboð á hlutafé hugsanlegt
„Til þess að styrkja samkeppnisstöð-
una er nú í athugun hvort rétt sé
að skipta Pósti og síma hf. upp í tvö
fyrirtæki og í framhaldi af því hlýt-
ur að koma til athugunar hvort rétt
sé að bjóða út nýtt hlutafé, með
mjög dreifðri eignaraðild og sérstöku
tilliti til starfsmanna, en slíka
ákvörðun þyrfti að sjálfsögðu að
leggja fyrir Alþingi," sagði Halldór
Blöndal samgönguráðherra í ræðu
sinni við almennar stjórnmálaum-
ræður á þingi í gærkvöldi.
Ráðherra sagði að Póstur og sími
væri vissulega fyrirferðarmikill í ís-
lensku umhverfi, líkt og Flugleiðir,
en hvorugt þessara fyrirtækja gæti
vaxið né boðið fyrsta flokks þjónustu
til frambúðar nema þau sæktu út
fyrir landsteinana. „Þá verður
heimamarkaðurinn þeim nauðsyn-
legur styrkur; aflið sem til þess þarf
að fara í víking. Yfirleitt sjá menn,
að jafnvel þessi fyrirtæki eru dverg-
ar eða lítil peð í alþjóðlegu um-
hverfi. Þess vegna megum við ekki
krenkja þau á heimamarkaðnum."
Rætt um stafsetn-
ingu á Alþingi
Zetan
verður
ekkijafn-
rétthá
BJÖRN Bjarnason mennta-
málaráðherra telur að ef zeta
væri tekin upp og gerð jafn-
rétthá núverandi stafsetning-
arreglum myndi það valda
óþörfum glundroða í stafsetn-
ingarkennslu. Hann segir þó
að mönnum sé fijálst að nota
zetu á öðrum sviðum en þeim
sem ákvæði núgildandi aug-
lýsingar um íslenska stafsetn-
ingu ná til, en það er skóla-
kennsla, kennslubækur og
embættisgögn. Þetta kom
fram í svari ráðherrans við
fyrirspurn Katrínar Pjeldsted
varaþingmanns.
Katrín spurði ráðherrann
meðal annars hver væri
stjórnskipulegur grundvöllur
auglýsinga mentamálaráð-
herra um íslenska stafsetn-
ingu og hvort hann teldi koma
til greina að setja lög um
hana.
Löggjöf um
stafsetningu hæpin
Varðandi stjórnskipulegan
grundvöll vísaði ráðherrann
aðallega til hefðar fyrir slík-
um auglýsingum, en hann
taldi ekki koma til greina að
lögleiða ákveðna stafsetn-
ingu. „Slík löggjöf væri að
mínum dómi bæði hæpin út
frá almennum sjónarmiðum
um tjáningarfrelsi og afar
torveld í framkvæmd.“
Katrín benti á það að fyrir
danska þjóðþinginu lægi
frumvarp til laga um stafsetn-
ingu og að þar í landi væri
litið á það sem sjálfsagðan
hlut að þingið fjallaði um þessi
mál. Hvatti hún því ráðherr-
ann til að skoða hug sinn
betur til þessara mála.
Björn sagði aðstæður Dana
aðrar en íslendinga, enda
hefðu þeir ekki fylgt hrein-
tungustefnu. Af þessum sök-
um þyrftu þeir að innleiða
mikið af erlendum orðum í
tungu sína og setja reglur um
hvernig laga ætti þær að
dönskum stafsetningarregl-
um.