Morgunblaðið - 15.05.1997, Page 57

Morgunblaðið - 15.05.1997, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 57 KRISTRUN SKÆRINGSDÓTTIR + Kristrún Skær- ingsdóttir fæddist í Reykjavík 16. desember 1968. Hún lést í Reykja- vík 3. maí síðastlið- inn. Foreldrar hennar eru Sigríð- ur Vilborg Magnús- dóttir og Skæring- ur Sigurjónsson. Fósturfaðir hennar er Guðmundur Guðmundsson. Systur Kristrúnar eru Borghildur og Brynhildur Guð- mundsdætur, f. 21.11. 1973, og Eyrún Guðmundsdóttir, f. 27.11. 1979. Börn Kristrúnar eru Bjarni Fannar, f. 22.8. 1988; Lilja Dögg, f. 18.4. 1993; Magnús Freyr, f. 23.6. 1994; og Sólveig Rún, f. 17.3. 1997. Útför Kristrúnar hefur farið fram. ________________ Þau ljós sem skærast lýsa þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu, en brenna líka hraðast. En fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðadómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra er skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi þótt burt úr hörðum heimi nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Móður hennar og systr- um votta ég mína dýpstu samúð. Ingunn Sveinsdóttir. Elsku Krissa. Okkur langar til að minnast þín með nokkrum orð- um á kveðjustundu, þó að við vildum heldur hafa þig hérna í húsinu við hliðina á okkur. Alltaf þegar við hittum þig dáðumst við að hversu dugleg þú varst með börnin þín fjögur. Við viljum hugga okkur með því að trúa því að góður guð hafi tekið á móti þér núna og linað þjáningar þínar. Við erum líka viss um að við munum hittast aftur einhvers staðar á góð- um stað. Elsku Bjarni, Lilja, Magnús og Sólveig Rún, okkur langar að segja ykkur það sem þið vitið eflaust nú þegar, mamma elskar ykkur og mun alltaf fylgjast með ykkur og vernda ykkur í gegnum lífið. Elsku Stjáni og aðstandendur, þegar ykkur líður illa reynið þá að ylja ykkur við minningar um Krissu og þær gleðistundir sem þið áttuð saman með henni. Einhvers staðar stendur að sorgin sé gríma gleðinn- ar og að við grátum vegna þess, sem var gleði okkar. Missir skilur alltaf eftir sig tómarúm, en reynið að varast að helgreipar sorgarinn- ar læsi sig um hug ykkar og hjörtu. Sækið kjark í lífið. Megi góður guð styrkja ykkur. Við vitum að á stundu sem þessari eru ekki til nein orð sem geta sefað sorg ykk- ar en tíminn læknar öll sár. Viljum við votta ykkur okkar dýpstu sam- úð. Theódór, Ninja og Elísa Dóra. Elsku Krissa. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Okkur skortir orð til að kveðja þig. Við vonum að góðir hafi tekið á móti þér fyrir handan. Við varð- veitum minninguna um þig að eilífu. Elsku Bjarni Fannar, Lilja Dögg, Magnús Freyr og Sólveig, við biðjum Guð að varðveita ykkur og blessa á þessari sorgarstundu. Þínar systur, Borghildur, Brynhildur og Eyrún. Með þessum orðum langar mig til að minnast hennar frænku minnar sem lést 3. maí sl. Í barn- æsku vorum við mikið saman þar sem við vorum í pössun hjá ömmu á meðan mæður okkar voru að vinna. Ég var árinu eldri og frekar alvarleg og þung í skapi en Krist- rún glaðleg, gjafmild og vildi allt fyrir alla gera. Enda þegar sendast átti fyrir ömmu var hún jafnan fyrri til að bjóða fram hjálp sína. Þó ólíkar værum kom okkur ágætlega saman og áttum við ynd- islegar stundir hjá ömmu og afa. Ég man sérstaklega eftir því þegar amma lagði sig í sófann og við hreiðruðum um okkur í hnésbótun- um á henni og hún sagði okkur sögur eða söng. Sögurnar enduðu þó oft undarlega þegar syfjan bar ömmu ofurliði. En það var líka oft fjör hjá okk- ur. Við dönsuðum heilu ballettana og stunduðum fimleika af miklum krafti, allt heima í stofu hjá afa og ömmu. Reyndar ber málverk sem hékk fyrir ofan sófann þess glögg merki því hælaförin sjást þar enn eftir að við stóðum á haus í sófanum heilu og hálfu dagana og notuðum málverkið okkur til stuðnings. Eftir að við urðum eldri var ekki eins mikið samband okkar á mili en _þó hittumst við alltaf af og til. Á heimilinu voru fyrir þrír unglingar en þetta sumar bættust aðrir þrír í hópinn og urðu þá alls sex, allir að vinna í fiski. Það var oft glatt á hjalla hjá okkur, stund- um of glatt fyrir þá fullorðnu á heimilinu. Eftir þetta hitti ég hana lítið í nokkur ár og það var ekki fyrr en ég fór í nám til Reykjavíkur að við fórum að hittast aftur. Þó sam- bandið yrði ekki mikið voru alltaf á milli okkar sérstakar taugar og við fylgdumst mjög vel hvor með annarri. Þessi dýrmæti og góði tími sem við áttum saman í æsku þeg- ar allt var svo einfalt tengdi okkur sterkum böndum og því er svo Isárt að sjá á eftir henni svo ungri. Ég bið Guð að geyma hana og vaka yfir litlu börnunum hennar. + Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, VILBORGAR SIGURRÓSAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Kambsvegi 17, Reykjavík, sem lést þann 19. apríl sl. Dóra S. Jónsdóttir, Magnús Magnússon, Edda Björg Jónsdóttir, Jón Ingi Sigurmundsson, Ragna Kristín Jónsdóttir, barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SIGURÐUR HALLDÓR GÍSLASON frá Hóli, Ólafsfirði, lést á heimili sínu, Reynihvammi 43, Kópa- vogi, þriðjudaginn 13. maí. Fjóla Valdís Bjarnadóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. + Móðir okkar og tengdamóðir, OLGA SIGURBJÖRG JÓNSDÓTTIR, verður jarðsett frá Sauðárkrókskirkju laugar- daginn 17. maí kl. 14.00. Ingvar Gýgjar Jónsson, Sigþrúður Sigurðardóttir, Jón Hafsteinn Jónsson, Soffía Guðmundsdóttir og aðrir aðstandendur. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAUKURJACOBSEN, Efstaleiti 12, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðju- daginn 20. maí kl. 13.30. Egill L. Jacobsen, Guðrún E. Jacobsen, Örn H. Jacobsen, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. + Ástkær sonur okkar og bróðir, ÁRNI PÉTUR LUND, Urriðakvísl 21, Reykjavík, lést í Álaborg fimmtudaginn 8. maí. Maríus Lund, Ásdis Karlsdóttir, Bergþór Lund, Karl Lund. + Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, URSULA BUSK, sem lést í Þýskalandi fimmtudaginn 8. maí sl., verðui jarðsungin frá Kristskirkju, Landakoti, föstudaginn 16. maí kl. 11.00. Eyjólfur Þór Busk, Henning Busk, Sandra Busk, Jens Busk, Alexander Busk. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, RÓSA GUÐNADÓTTIR, Kirkjuvegi 11, Keflavík, sem lést 7. maí, verður jarðsungin frá Kefla- víkurkirkju föstudaginn 16. maí kl. 14.00. Guðbjörn Guðmundsson, Guðný Guðbjörnsdóttir, Gísli Pálsson, Guðmundur Guðbjörnsson, Guðveig Sigurðardóttir, Björn Herbert Guðbjörnsson, Ingunn Ósk Ingvarsdóttir, Róbert Þór Guðbjörnsson, Guðbjörg Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN SVEINSDÓTTIR, Garðvangi, Garði, verður jarðsungin frá Innri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 16. maí kl. 14.00. Tómas Sigurðsson, Ester Ásbjörnsdóttir, Ásmundur Sigurðsson, Björg Ólafsdóttir, Sævar Sigurðsson, Erna Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartkær móðir okkar, ELÍN SIGRIÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR, Kistufelli, verður jarðsungin frá Lundarkirkju laugar- daginn 17. maí kl. 14.00. Sætaferð verður frá BS( kl. 10.30 og frá Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, kl. 13.00. Börnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.