Morgunblaðið - 15.05.1997, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Samkórinn Björk syngur inn á geislaplötu
Finnskir
skartgripir
hjá Ófeigi
FINNSKI listamaðurinn Harri
Syijanen opnar sýningu á verkum
sínum laugardaginn 17. júní kl. 14
í listhúsi Ofeigs, Skólavörðustíg 5.
Harri er gull- og leðursmiður og
hefur rekið listhús og vinnustofu í
miðbæ Helsinki í 26 ár.
Á sýningunni verða skartgripir úr
ýmsum efnivið svo og töskur, belti
og fleira úr leðri. Listamaðurinn
verður viðstaddur opnunina.
Harri er talinn einn af fremstu list-
iðnaðarmönnum finna, hefur hlotið
margar viðurkenningar og haldið
Qölda einkasýninga bæði í heima-
landi sínu og erlendis og tekið þátt
í samsýningum. Hann var kjörinn
listiðnaðarmaður ársins 1996 í Finn-
landi.
Sýningin verður opin mánudaga
til föstudaga frá kl. 10-18 og laug-
ardaga kl. 11-14.
Með sængurnar
í kirkjuna
Morg-unblaðið. Blönduós.
SAMKÓRINN Björk í
Austur-Húnavatnssýslu
notaði síðustu helgi í
það að taka upp lög
fyrir væntanlega út-
gáfu á geislaplötu.
Upptökurnar fóru
fram i Blönduóskirkju
undir stjórn Sigurðar
Rúnars Jónssonar.
Það vakti töluverða
athygli í samfélaginu
þegar sást til kórfélaga
koma til upptöku i
kirkjunni að þeir höfðu
flestir með sér um-
fangsmikla poka. Við
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
SAMKÓRINN Björk tók upp lög á
væntanlegan geisladisk í Blönduós-
kirkju um helgina.
nánari eftirgrennslan kom í ljós
að þeir höfðu haft með sér sæng-
ina að heiman. Ekki var ætlun
kórfélaga að sofa í kirkjunni
heldur voru sængurnar breiddar
yfir kirkjubekkina til að hafa
áhrif á hljómburðinn í kirkjunni
til hins betra. Sáu þar nokkrir
sæng sína útbreidda í orðsins
fyllstu merkingu. Að sögn kórfé-
laga gekk upptakan vel og nutu
kórfélagar aðstoðar ungra hljóð-
færaleikara úr sýslunni við flutn-
ing nokkurra laga. Sljórnandi
Bjarkarkórsins er Peter Wheeler
tónlistarkennari.
LANDSBANKAKÓRINN heldur tónleika í Norræna húsinu.
Vortónleikar
Landsbanka-
kórsins
LANDSBANKAKÓRINN heldur
sína árlegu vortónleika í Nor-
ræna húsinu í dag, fimmtudag,
kl. 20.30.
Sungin verða lög eftir inn-
lenda og erlenda höfunda. Söng-
stjóri er Guðlaugur Viktorsson.
Undirleik á píanó annast Óskar
Einarsson.
Landsbankakórinn var stofn-
aður árið 1989 og eru kórfélagar
nú 28.
----» ♦ ♦
Forstöðumaður
tungumála- o g
menningar-
stofnunar
LAGT hefur verið til að Raija
Wallenius rektor frá Stokkhólmi
verði forstöðumaður Norrænu
tungumála- og menningarstofun-
arinnar í Finnlandi. Hún er fædd
og uppalin í Finnlandi en hefur
starfað í Svíþjóð.
Norræna tungumála- og menn-
ingarstofnunin er nýstofnuð og
aðal verkefnasvið hennar er að
efla þekkingu á tungumálum og
menningu annarra Norðurlanda í
Finnlandi og þekkingu á finnskri
menningu í öðrum norrænum lönd-
um.