Morgunblaðið - 15.05.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 45
Sumarskóli Fjölbrautaskólans í
Breiðholti starfræktur í júní
Gæðastjórnun
í skólakerfinu
MENNTAHÓPUR Gæðastjórnun-
arfélagsins hefur hist reglulega í
vetur og fjallað um gæðastjórnun
í menntakerfinu. Síðasti fundur
vetrarins verður haldinn fimmtu-
daginn 15. maí kl. 16.30-18.00 í
Kennaraháskólanum, gengið inn frá
Stakkahlíð.
Gestur fundarins er Jón Sigurðs-
son, fyrrverandi rektor Samvinnu-
háskólans á Bifröst og nefnist er-
indi hans „Gæðastjórnun í fræðslu-
starfí". Hann mun í erindi sínu
m.a. íjalla um skilgreiningu gæða
í fræðslustarfi, þróunarstjórnun og
umbótastarf. Jón hefur tekið virkan
þátt í gæðastjórnunarumræðunni
og skrifaði m.a. grein í nýjasta
hefti tímarits Kennaraháskólans
„Uppeldi og menntun“ um gæða-
stjórnun á háskólastigi, segir í
fréttatilkynningu.
Fundurinn er opinn öllu áhuga-
fólki um menntamál og aðgangur
er ókeypis.
STARFRÆKTUR verður sumarskóli
við Fjölbrautaskólann í Breiðholti í
júnímánuði. í boði verða 40 náms-
áfangar í tungumálum, íslensku,
stærðfræði, raungreinum, ritvinnslu,
félags- og viðskiptagreinum. Nám í
Sumarskóla Fjölbrautaskólans er
matshæft á milli þeirra framhalds-
skóla sem byggja skipulag sitt á
áfangakerfi. Kennsla í Sumarskóla
FB hefst mánudaginn 2. júní og
stendur yfir til 28. júní. Innritað er
frá kl. 16-18 fimmtudaginn 22. maí
nk. og stendur yfir til 30. maí.
„Rík áhersla er lögð á faglegar
kröfur í Sumarskóla FB. Gert er ráð
fyrir 90% skólasókn og geta nemend-
ur tekið allt að tveimur námsáföng-
um eða að hámarki 6 einingar. Einn-
ig er gert ráð fyrir að nemendur
hafi lokið undanförum til þess að
mega skrá sig í áfanga.
Náðst hefur sátt um starfsemi
Sumarskóla FB og að fengnu starfs-
leyfi menntamálaráðuneytisins var
gert sérstakt samkomulag á milli
ljármálaráðuneytisins annars vegar
og Hins íslenska kennarafélags og
Kennarasambands íslands hins veg-
ar um Sumarskóla FB.
Innritað er í Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti," segir í fréttatilkynningu
frá FB.
ÝMISLEGT
Viltu taka þátt í atvinnu-
rekstri á Grænlandi?
SULISA AS, Atvinnuþróunarfélag Grænlands,
var stofnað 1993 af grænlensku heimastjórn-
inni.
Tilgangur fyrirtækisins er að veita alhliða ráð-
gjöf til fyrirtækja á Grænlandi, jafnt nýstofn-
aðra sem rótgróinna.
Með aðild sinni að ýmsum tilraunaverkefnum
hefurfyrirtækið einnig gerst virkur þátttakandi
í þróunarstarfi á sviði viðskipta og iðnaðar á
Grænlandi.
Jafnframt því sem fyrirtækið leggurfram fjár-
magn til nýsköpunarverkefna á Grænlandi,
vinnur SULISA að því að laða erlenda fjárfesta
til Grænlands í því skyni að örva grænlenskt
efnahagslíf.
SULISA leitar fyrst og fremst eftir samstarfi
við lítil og meðalstórfyrirtæki sem og einstakl-
inga í atvinnurekstri.
SULISA AS,
Box 1048,
DK 3900 Nuuk, Grænlandi.
Sími 00 299 2 36 55,
fax 00 299 2 52 15.
Stóðhesturinn Frami
frá Ragnheiðarstöðum
1. sæti í 5 v. flokki stóðhesta á Fjórðungsmót-
inu 1996.
Verður á húsnotkun að Faxabóli 2/2.
B: 8.0-8.3-7.3-8.7-9.8-7.5-8.5-8.36.
H: 8.0-7.5-8.5-8.2-8.3-7.8-8.5-8.12.
Aðaleinkunn 8.24.
Allar upplýsingar og pantanir í Ástund,
sími 568 4240.
HÚSNÆÐI QSKAST
Húsnæði óskast til leigu
5 manna fjölskyldu bráðvantar stóra íbúð eða
hústil leigu í nokkra mánuði frá 1. júlí nk.
Upplýsingar gefur Felix Valsson í hs. 554 6719
eða vs. 560 1000. Netfang: felix@rsp.is eða
valsson@medfak.gu.se
Styrkur vegna
sumarslátrunar dilka
Til þess að örva sumarslátrun dilka hefurverið
ákveðið að greiða bændum sérstakt álag
vegna sumarslátraðra dilka á þessu ári. Geidd-
ar verða kr. 1.200 á hvern innlagðan dilk í vi-
kunni sem hefst 6. júlí nk. Sú fjárhæð lækkar
síðan vikulega um kr. 100 þartil náð er kr. 600,
en þá lækkar greiðslan vikulega um kr. 200.
Framleiðsluráð landbúnaðarins greiðir álagið
beint til bænda að fengnum skýrslum slátur-
leyfishafa.
Nánari upplýsingar er hægt að fá í landbúnað-
arráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, sími 560 9750
og hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins í
Bændahöllinni, sími 563 0300.
Framkvæmdanefnd búvörusamninga.
TILBOÐ/ÚTBQÐ
C
Landsvirkjun
Útboð
Safnæðar og pípuvinna
Landsvirkjun óskar hér með eftirtilboðum í
safnæðar og pípuvinnu í samræi við útboðs-
gögn KRA-14. Verkið nærtil lagningarsafnæða
við Kröflustöð. Alls er um að ræða 1.300 m.
af pípulögnum úr svörtu stáli, smíði 5 borholu-
toppa og raufun 3.000 m. leiðara fyrir borholur.
Safnæðar eru af stærðum frá DN 400 upp í DN
800, fullfrágengnar með einangrun og álklæðn-
ingu. Gert er ráð fyrir að verkið hefjist í júní
1997 og Ijúki í október 1997.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar, Háaleitisbraut 68,103 Reykjavík, frá
og meðfimmtudeginum 15. maí 1997 gegn
óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 3.000,- m.
VSK fyrir hvert eintak.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68,103 Reykjavík, til opnunar
29. maí 1997 kl. 11.00. Fulltrúum bjóðenda er
heimilt að vera viðstaddir opnunina.
TILKYNNINGAR
Auglýsendur athugið
breyttan skilafrest!
Auglýsingatexta og/eða tilbúnum atvinnu-,
rað- og smáauglýsingum sem eiga að birtast
í sunnudagsblaðinu, þarf að skila fyrir kl. 12
á föstudag.
Auglýsingadeild
Sími 569 1111 • simbréf 569 1110
netfang: augl@mbl.is
KENNSLA
UlHBRWnSHklNN _ , , , . x
•~mai Namskeið
til undirbúnings sveinsprófs í húsasmíði
verður haldið í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti,
skólasmiðju við Hraunberg, dagana 23. maí
til 5. júní nk.
Innritað er á skrifstofu skólans og í síma
557 5600 á skrifstofutíma.
Skólameistari.
Matvælarannsóknir
Kynning á niðurstöðum og árangri
Þriðjudaginn 20. maí nk. verða kynntar niður-
stöður nokkurra rannsókna- og þróunarverk-
efna á sviði matvæla og árangur af styrkjum
til „Tæknimanna í fyrirtækjum". Einnig verður
fjallað um verkefni studd af Norræna iðnað-
arsjóðnum og Rammaáætlun Evrópusam-
bandsins. Að kynningunni standa Tæknisjóður
Rannís og Kynningarmiðstöð Evrópurann-
sókna - KERIÐ.
Kynningin er haldin í fundarsal Hótels Loft-
leiða, kl. 13.30—17.00 og er öllum opin.
Eftirtalin verkefni verða kynnt:
Bakkavör efh.
Þróunarvinna tæknimanns.
Halldór Þórarinsson.
Hreinni framieiðslutækni í matvælaiðnadi.
Nordfood
Helga Eyjólfsdóttir.
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins.
Verkun síldar. Evrópuverkefni.
Dr. Guðmundur Stefánsson.
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins.
Betri nýting í rækjuvinnslu.
Stefanía Karlsdóttir.
Iðntæknistofnun.
Lambakjöt. Þróunarstarf og nýjar afurðir.
Dr. Guðjón Þorkelsson.
Rannsóknarstofnun landbúnaðarins.
Íslenskt-Franskt efh.
Þróunarstarf tæknimanns.
Indriði Óskarsson.
Ráðstefnustjóri er Ragnheiður Héðinsdóttir.
ÍS
KYNNINGARMIÐSTÖÐ
EVRÓPURANNSÓKNA
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Dagsferð sunnudaginn
18. maí: Reykjavegurinn —
Heiðabær — Dyradalur um
Nesjavelli. Þetta er 2. áfangi í
þessari skemmtilegu gönguleið
sem er samstarfsverkefni Úti-
vistar og Ferðafélags íslands.
Brottför frá BSÍ kl. 10.30. Verð
1.000 kr.
Dagsferð 19. maí kl. 10.30:
Krossfjöll — Raufarhólshellir.
Hvítasunnuferðir:
Jeppaferð í Bása 17.-19. maí.
Öræfajökull 16.-19. maí.
Gengið á Hvannadalshnjúk.
Skaftafell 16.-19 maf.
Jakaskoðun.
Bésar 16.-19. maí.
Skemmtileg ferð í Bása fyrir alla
fjölskylduna.
Snæfellsjökull 16.-19. maí.
Farið á Snæfellsjökul og skoðun-
arferð um Snæfellsnes.
Netslóð:
http://www.centrum.is/
Útivist
Góðtemplarahúsið,
Hafnarfírði
Félagsvist í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 15. maí. Byrjum að spila
kl. 20.30 stundvíslega.
Allir velkomnir.
Kristniboðssalurinn
Háaleitisbraut 58
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Helgi Hróbjartsson talar.
Aðalstöðvar
KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
Ten-sing sýnir í kvöld söngleik-
inn „Pili" sem er byggður á sögu
John Bunyan „För Pílagrímsins".
Allir hjartanlega velkomnir.
Sýningin hefst kl. 20.
í kvöld kl. 20.30: Lofgjörðarsamkoma.
Rut og Peter Baronowsky frá Svíþjóð
tala.
Laugardagur kl. 20.00. N0RSK
NASJ0NALFEST. Allir velkomnir.
TILKYNNINGAR
Auglýsendur athugið
breyttan skilafrest!
Auglýsingatexta og/eða tilbún-
um atvinnu-, rað- og smáauglýs-
ingum sem eiga að birtast í
sunnudagsblaðinu, þarf að skila
fyrir kl. 12 á föstudag.
Auglýsingadeitd
Sími 569 1111
simbréf 569 1110
netfang: augl@mbl.is