Morgunblaðið - 15.05.1997, Blaðsíða 41
40 FIMMTUDAGUR 15. MAÍ1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIB
FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 41
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI:
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
RITSTJÓRAR:
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
BORGARPRYÐI
REYKJAVÍK hefur á undanförnum árum og áratugum eign-
ast svipsterkar og metnaðarfullar byggingar, sem á
ýmsan hátt bæta ímynd höfuðborgarinnar, gera hana forvitni-
legri og eftirsóknai’verðari til heimsókna, hvort sem er fyrir
íbúa landsbyggðarinnar eða erlenda ferðamenn.
Norræna húsið setti þegar sterkan svip á umhverfi sitt
þegar það var byggt á árunum 1966-68 og gerir enn. Sömu-
leiðis Ráðhús Reykjavíkur, sem var umdeild bygging og er
ugglaust enn í hugum einhverra. Perlan í Öskjuhlíð er að
flestra mati afar vel heppnuð bygging, sem þegar hefur öðl-
ast þann sess í hugum margra, að vera einskonar tákn fyrir
Reykjavík. Þjóðarbókhlaðan og hús Hæstaréttar eru hvoru-
tveggja byggingar, sem reistar eru af stórhug til framtíðar.
Kópavogsbær hefur einnig lagt metnað sinn í sérstæðar
byggingar. Þar má nefna Gerðarsafn og sundlaugina í Kópa-
vogi, svo og Kópavogskirkju en þessi mannvirki eru til marks
um smekkvísi og stórhug, sem laðað hefur að tugi þúsunda.
Byggingarnefnd Hafnarhússins hefur nú valið eina af fjór-
um tillögum að hönnun á aðstöðu Listasafns Reykjavíkur, sem
í framtíðinni verður til húsa í Hafnarhúsinu við Tryggvagötú.
Þar verða m.a. sýningarsalir tileinkaðir Erró. Tillaga arkitekt-
anna Margrétar Harðardóttur og Steve Christer hjá Studio
Granda varð fyrir valinu. Gerð var grein fyrir tillögu þeirra
hér í blaðinu í gær.
í greinargerð arkitektanna segir m.a.: „Sérstaða Hafnar-
hússins er ekki fólgin í fögrum húshliðum né góðum hlutföll-
um, heldur í hversdagslegu og hrjúfu yfirbragði, sem nær
mestum styrk í portinu. Reynt er að varðveita þessa eigin-
leika Hafnarhússins og leyfa anda vinnuumhverfisins, sem
áður ríkti í húsinu að lifa áfram í samneyti við nýjan kjarna
Listasafns Reykjavíkur. Þessi kjarni eða holrúm byggir á
minningu úr fortíðinni, en vísar veginn inn í framtíðina. í
útfærslu hússins er gætt hógværðar, í formi og ímynd, jafnt
sem í efni og litum, svo umgjörð hússins verði kyrrlátur bak-
grunnur fyrir vettvang listarinnar."
Vafalaust mun Hafnarhúsið í nýjum búningi og nýju hlut-
verki, auðga mann- og menningarlíf miðborgar Reykjavíkur
í framtíðinni.
BANDAMENNí
V ARN ARMÁLUM
AFSTAÐA hinnar nýju ríkisstjórnar í Bretlandi til sam-
starfs Evrópuríkja í varnarmálum er í þágu íslenzkra
hagsmuna. Komið hefur fram að Bretar leggjast áfram gegn
hugmyndum á ríkjaráðstefnu Evrópusambandsins um að Vest-
ur-Evrópusambandið, sem kallað hefur verið Evrópustoð
NATO, verði sameinað ESB. Þetta hefur jafnframt verið af-
staða íslands, sem á aðild að NATO en ekki að Evrópusam-
bandinu. ísland á aukaaðild að VES og vill að það haldi sjálf-
stæði sínu.
Það kemur í raun ekki á óvart, þótt stjórn Verkamanna-
flokksins taki svipaða afstöðu i þessu máli og fráfarandi ríkis-
stjórn íhaldsflokksins gerði. Brezkir stjórnmálamenn úr báðum
flokkum hafa ævinlega lagt mikla áherzlu á gott samband
Vestur-Evrópuríkjanna við Bandaríkin og að NATO eigi að
vera varnarbandalagið, sem menn leggi traust sitt á. Ekki
eigi að byggja upp annað varnarkerfi við hlið kerfis NATO.
Bretar hafa verið og verða áfram beztu bandamenn íslend-
inga í þessum efnum og ástæða er til að rækta sérstaklega
sambandið við þá.
Hins vegar má ætla að þótt Vestur-Evrópusambandið haldi
sjálfstæði sínu muni hlutverk þess breytast á næstu árum.
Sennilegt er að niðurstaðan á ríkjaráðstefnu Evrópusambands-
ins verði að ESB geti falið VES verkefni á sviði friðargæzlu
og mannúðaraðgerða. Jafnvel Bretar virðast ljá máls á lausn
af þessu tagi. Jafnframt mun VES geta fengið hergögn og
herstjórnarkerfi NATO að láni í slíkum aðgerðum.
Verði þetta raunin má búast við að þátttaka íslands í vest-
rænu varnarsamstarfi verði flóknari en áður, ekki sízt vegna
þess að ESB-ríki utan NATO, til dæmis Svíþjóð, Finnland og
Austurríki, kynnu að öðlast álíka mikil eða jafnvel meiri áhrif
á aðgerðir VES, Evrópustoðar NATO, en ísland, sem er stofn-
ríki Atlantshafsbandalagsins.
Þetta myndi þó ekki draga úr mikilvægi virkrar þátttöku
íslands í starfi samtakanna, til dæmis með því að íslenzkt
læknalið eða björgunarmenn tækju þátt í friðargæzlu- og
mannúðaraðgerðum. ísland verður að sýna að það sé reiðu-
búið að leggja sitt af mörkum til öryggismála í Evrópu. Með
slíkri viðleitni getur jafnvel lítið ríki stuðlað að því að á það
sé hlustað og tekið tillit til hagsmuna þess. Ekki spillir fyrir
að eiga góða bandamenn.
Líkur á að frumvarp um fjárreiður ríkisins verði að lögum
Ágreiningur um gerð
þj ónustusamninga
VERULEGAR breytingar
verða gerðar á uppbygg-
ingu ríkisreiknings og Ijár-
laga ef Alþingi samþykkir
frumvarp um Qárreiður ríkisins. AIl-
góð sátt eru um frumvarpið meðal
alþingismanna, en Ögmundur Jónas-
son, þingmaður AÍþýðubandalags,
lýsir þó yfir harðri andstöðu við 30
gr. frumvarpsins, sem gerir ráð fyrir
að einstökum ráðherrum sé heimilt
að gera þjónustusamninga við sveit-
arfélög eða einkaaðila um rekstrar-
verkefni til lengri eða skemmri tíma.
Ríkisreikningsnefnd var árið 1990
falið að endurskoða í heild reglur um
bókhald, reikningsskil og gerð ríkis-
reiknings og flárlaga. Nefndin skilaði
áliti í lok árs 1994. Frumvarp um
málið hefur þrívegis verið lagt fram
á Alþingi, en ekki hlotið afgreiðslu.
Nokkur af helstu markmiðum
frumvarpsins eru að reikningsskil
ríkisins verði færð sem næst því sem
gerist hjá fyrirtækjum á almennum
markaði. Á síðasta þingi voru sam-
þykkt lög um ársreikninga og bók-
hald fyrirtækja og verða þau grund-
völlur að reikningshaldi ríkisins. Með
þessu á að vera tryggt að _________
ríkisreikningur og upp-
gjörsaðferðir hans fylgi
því sem næst því sem al-
mennt gerist og að alþjóð-
legar reikningsskilaviðm-
iðanir verði leiðandi við túlkun og
framkvæmd laga um fjárreiður ríkis-
ins.
Framsetning upplýsinga
aðgengilegri
í öðru lagi verður umfang ríkis-
rekstrar skýrt afmarkað í ríkisrekstri
sem á að skýra myndina af afskiptum
ríkisins af efnahagsstarfseminni í
landinu. Þannig verða ýmsir lögboðn-
ir tekjustofnar og umsvif stofnana
ríkisins sem legið hafa utan fjárlaga
og ríkisreiknings tekin inn í skilgrein-
inguna á ríkisreikingi.
í þriðja lagi verður flokkun gjalda
og tekna felld að alþjóðlegum stöðl-
um. Það er gert til þess að auðvelda
Almenn samstaða er meðal þingmanna um
nauðsyn þess að samþykkja frumvarp um fjár-
reiður ríkisins, en hins vegar eru uppi efasemd-
ir um 30. grein frumvarpsins sem fjallar um
gerð þjónustusamninga milli ríkisins annars
vegar og sveitarfélaga eða einkaaðila hins vegar.
Er Alþingi
að framselja
vald sitt?
samanburð út á við og skýrslugjöf
til alþjóðlegra stofnana. Þá er gerður
skýrari munur en nú er á eiginlegum
ríkisrekstri, þ.e. stofnanir í A-hluta
ríkisreiknings, og fyrirtækja og sjóða
í eigu ríkisins sem starfa á almennum
markaðsforsendum.
Stefnt er að því að framsetning
upplýsinga verði aðgengilegri en nú
er þar sem framsetning reikninga
einstakra stofnana ríkisins verður
að mestu samræmd almennum árs-
reikningum fyrirtækja. Auk þess
verða lagðar ákveðnar kvaðir á fjár-
málaráðherra að birta upplýsingar
um ríkisfjármál innan ársins.
________ í ljórða lagi er stefnt
að því að ríkisreikningur
verði í framtíðinni lagður
fram á vorþingi og eigi síð-
ar en í byijun haustþings.
í fimmta lagi er sú skylda
lögð á fjármálaráðherra að leggja
fram á Álþingi, samhliða ijárlaga-
frumvarpi, áætlun um horfur og
stefnumörkun í ríkisíjármálum til
nokkurra ára. í sjötta lagi er lagt
til að fjárlagafrumvarpi og frumvarp
til lánsfjárlaga verði sameinað í eitt
þingskjal og efnistökum þeirra breytt
frá því sem nú er.
Uppgjör á
rekstrargrunni
Gert er ráð fyrir að ríkisreikningur
og fjárlög verði færð á rekstrar-
grunni með tilteknu fráviki en jafn-
framt verði greiðsluhreyfingar sýnd-
ar eins og verið hefur til að byija
með. Við uppgjör á rekstrargrunni
er tekið tillit til skuldbindinga og þar
með útistandandi skulda og eigna
án þess að um beint greiðsluflæði
sé að ræða innan ársins.
Verði frumvarpið um ijárreiður rík-
isins samþykkt mun skilgreining á
gjöldum og tekjum breytast að ein-
hveiju marki. Ymis gjöld sem í dag
eru dregin frá tekjum og tekjuhlið
fjárlaga munu fara yfír á gjaldahlið-
ina og ýmsar tekjur sem eru dregnar
frá gjöldum og gjaldahlið ijárlaga
munu fara yfir á tekjuhliðina. Þetta
þýðir að niðurstöðutölur fjárlaga geta
hækkað, bæði á tekju- og gjaldahlið.
Ákvæði sett um
þjónustusamninga
Frá því að frumvarpið var síðast
lagt fram á Alþingi hafa verið gerð-
ar breytingar á frumvarpinu, en þær
taka mið af þeirri umfjöllun sem
frumvarpið fékk á síðasta þingi. Auk
þess tók ríkisstjórnin þá ákvörðun
að fella inn í frumvarpið annað frum-
varp um þjónustusamninga og hag-
ræðingu í ríkisrekstri, en það var
umdeilt meðal þingmanna og fékk
ekki afgreiðslu á síðasta þingi. í
sainræmi við þetta hefur 30. gr.
frumvarpsins verið breytt. Greinin
gerir ráð fyrir að einstökum ráðherr-
um sé heimilt með samþykki fjár-
málaráðherra að gera verksamninga
og samninga um rekstrarverkefni til
lengri tíma en eins árs við aðra ríkis-
stofnun en sinnt hefur verkefninu,
sveitarfélög eða einkaaðila, enda sé
áætlað fyrir verkefninu í ijárlögum.
Þingnefndin, sem fékk málið til
umfjöllunar, taldi talsverða ágalla á
greininni eins og hún var orðuð í
frumvarpinu. Ríkisendurskoðun og
Davíð Þór Björgvinsson lagaprófess-
or voru meðal þeirra sem gerðu at-
hugasemdir við nefndina, en þær
gengu út á að ákvæðið fæli í sér of
víðtækt framsal á valdi til fram-
kvæmdavaldsins til að skuldbinda
ríkissjóð til langs tíma. í öðru lagi
fengju framkvæmdavaldshafar of
víðtækar heimildir til að framselja
opinbert vald til þeirra sem slíkir
samningar væru gerðir við. í þriðja
lagi vantaði heimildir til eftirlits með
verktakanum. í fjórða lagi skorti
verulega á að réttarstaða neytenda
þjónustunnar væri nægilega tryggð
og í fimmta lagi vantaði uppsagnar-
heimildir á slíkum samningum.
í breytingartillögum nefndarinnar
eru settir fyrirvarar á að slíka þjón-
ustusamninga megi gera. Þannig
leggur nefndin áherslu á að við gerð
slíkra samninga sé ávallt hafður fyr-
irvari um samþykki fjárveitingavalds
til fjárgreiðslu úr ríkissjóði sam-
kvæmt þeim, þ.e. að afla þurfi nauð-
synlegrar heimildar í Ijárlögum hvers
árs á samningstímanum. I
breytingartillögunni segir
að í samningi um-rekstrar-
verkefni skuli m.a. skil-
greina umfang og gæði
þeirrar þjónustu sem ríkis-
sjóður kaupir, samningstíma, gi-eiðsl-
ur úr ríkissjóði, eftirlit með þjón-
ustunni og meðferð ágreiningsmála.
Samningstíminn geti lengst verið sex
ár, en þó sé heimilt að hafa hann
lengri ef verkkaupi geri kröfu um að
verksali byggi upp kostnaðarsama
aðstöðu eða búnað vegna verkefnis-
ins.
Ögmundur með
athugasemdir
Allir þingmenn, sem sæti áttu i
þingnefndinni, studdu breytingartil-
lögurnar, en fjórir af fimm fulltrúum
stjórnarandstöðunnar í nefndinni
skrifuðu undir með fyrirvara.
Ögmundur Jónasson alþingismað-
ir
ur er hins vegar mjög óánægður með
30. greinina og hefur lagt fram sér-
staka breytingartillögu um að hún
falli brott.
„Þarna er um að ræða grein sem
veitir heimildir til framkvæmda-
valdsins til að breyta rekstrarfyrir-
komulagi stofnana í almannaþjón-
ustu. Mér finnst mjög varasamt að
löggjafarsamkoman framselji völd
sín á jafnafdráttarlausan hátt og
þarna er gert. Það hafa verið sett
fram þau mótrök, að fyrir þetta hafi
verið girt með ýmsum fyrirvörum.
Ég tel að það sé af og frá og bendi
á að það er mjög óljóst hvort þessar
girðingar séu fyrir hendi.
Mér finnst eitt að gera breytingar
á rekstrarfyrirkomulagi þar sem það
á við, en mér finnst fráleitt að lög-
gjafarvaldið afsali sér valdi í þessum
efnum. Ég bendi á að hér situr ríkis-
stjórn sem er með það að yfirlýstu
markmiði að einkavæða almanna-
þjónustuna. Maður spyr sig hvar
verður staðar numið? Ætla menn að
gera slíka samninga við skólana?
Eru menn að fara með þetta inn í
heilbrigðisþjónustuna, fangelsin eða
löggæsluna?" sagði Ögmundur.
Hann sagðist ekki vera andvígur
því að menn gerðu tilraunir með
breytingar með það að markmiði að
bæta þjónustuna, en alþingismenn
ættu ekki afsala sér valdi í hendur
ráðherra og ríkisstjórnar án þess að
vita hvað þeir væru að gera.
Nauðsyn að skýrar
reglur gildi
Sturla Böðvarsson alþingismaður
vék að þessari grein við fyrstu um-
ræðu um frumvarpið fyrr í vetur og
sagði: „Ég tel mjög mikilvægt að
skýrar og klárar reglur gildi um þjón-
ustusamninga sem ríkið gerir og
skýrar og klárar reglur gildi um eftir-
lit og framkvæmd alla. Ég tel mjög
mikilvægt að gengið verði til verks,
sem vonandi verður að þetta frum-
varp verði að lögum með ákvæði um
þjónustusamninga, og komið verði á
samningum við þær ijölmörgu stofn-
anir sem vinna fyrir ríkisvaldið og fá
til þess fjármuni á íjárlögum án þess
að samningar séu í gildi. Ég tel þetta
atriði, þ.e. þjónustusamninga sem 30.
gr. gerði ráð fyrir, séu með allra
mikilvægustu þáttum í þessu frum-
varpi.“
Of mikið vald
til ráðherra
Frumvarpið var tekið til annarrar
umræðu í fyrrinótt. Stjórnarand-
stæðingar, sem þá tóku til máls,
fögnuðu frumvarpinu í heild og þeim
breytingum sem gerðar hafa verið á
því, en lýstu eftir sem áður efasemd-
um vegna tveggja ákvæða frum-
varpsins sem þeir telja að færi ráð-
herrum of mikið vald.
Sérstaklega gagnrýndu þeir 30.
greinina og sögðust vera þeirrar
skoðunar að í fyrsta lagi ætti ákvæð-
ið ekki heima í frumvarpi um fjár-
reiður ríkisins heldur hefði átt að
legga það fram í sérstöku frum-
varpi. I öðru lagi sögðu þeir að of
mikið vald væri fært til ráðherra.
Þó töldu þeir að þær fjölmörgu
breytingar sem þingnefndin hefur
lagt til við 30. greinina væru til bóta.
Þar segir meðal annars að ríkisstjórn
skuli gera þriggja ára áætlun um
alla þjónustusamninga og
leggja fyrir Alþingi.
Ogmundur Jónasson
sagði að með ákvæðinu
væri verið að opna á einka-
væðingu víða í ríkisrekstr-
inum þar sem, hún ætti ekki við og
nefndi sem dæmi skóla og sjúkrahús.
Stjórnarnandstæðingar gagnrýna
einnig 33. grein frumvarpsins. Þar
er tiltekið að ijármálaráðherra sé
heimilt, í samráði við hlutaðeigandi
ráðherra, að veita framlög úr ríkis-
sjóði vegna ófyrirsjáanlegra atvika
án heimildar í fjárlögum. Þijár breyt-
ingartillögur hafa verið lagðar fram
þess efnis að taka þennan rétt af
ráðherra, enda telja sumir þing-
manna að hann stríði gegn stjórnar-
skrá. í breytingartillögum nefndar-
innar er tekið fram að ráðherra sé
skylt að láta fjárlaganefnd Alþingis
vita strax og tekin hefur verið
ákvörðun um slíka greiðslu.
Fjárlög og
lánsfjárlög
sameinuð
Hreyfing gæti komizt
á Rockall-málið á ný
ísland hefur um árabil
átt í deilu við nágranna-
löndin um tilkall til
landgrunnsins á
Hatton-Rockall-svæðinu
suður af landinu. Ólafur
Þ. Stephensen segir að
hreyfing geti nú farið að
komast á málið eftir
langa kyrrstöðu.
STAÐA mála í deilum um til-
kall til landgrunnsins á
Hatton-Rpckall-svæðinu
suður af íslandi gæti tekið
breytingum á næstu mánuðum.
Annars vegar hefur hafréttarsamn-
ingur Sameinuðu þjóðanna tekið
gildi og samkvæmt honum hefur
verið kosin nefnd um mörk land-
grunnsins, sem sennilega tekur til _
starfa í næsta mánuði. Hins vegar
er búizt við að Bretland staðfesti
hafréttarsáttmálann fljótlega, en
íslendingar deila m.a. við Breta um
tilkall til svæðisins. Komið hefur
fram að hugsanlegt sé að þar geti
fundizt olía.
Krafa íslands byggð á
hafréttarsamningnum
ísland gerir kröfu til víðáttumik-
ils svæðis á landgrunninu, sem nær
allt suður undir fimmtugasta
breiddarbaug, eins og sjá má á kort-
inu. Ytri mörk landgrunnsins voru
skilgreind í reglugerð, sem Geir
Hallgrímsson þáverandi utanríkis-
ráðherra gaf út árið 1985. Tveimur
árum áður hafði Alþingi samþykkt
þingsályktunartillögu Eyjólfs Konr-
áðs Jónssonar um að leita skyldi
samkomuiags við Færeyjar, Bret-
land og írland um yfirráð á Hatton-
Rockall-svæðinu.
Krafa íslands er byggð á hafrétt-
arsamningi Sameinuðu þjóðanna,
meðal annars ákvæðum um „eðli-
lega framlengingu“ landsvæðis
strandríkis að ytri mörkum land-
grunnsins. Kröfugerð íslands
byggist á að fundnar séu rætur
landgrunnshlíðarinnar og dregin
lína 60 sjómílur þar fyrir utan, eins
og hafréttai'samningurinn heimil-
ar. -
Viðræður við nágrannaríkin
í reglugerðinni frá 1985 er kveð-
ið á um að leita beri samkomulags
milli íslands og annarra hlutaðeig-
andi landa um endanlega afmörkun
landgrunnsins í samræmi við al-
mennar reglur þjóðaréttar. Tvíhliða
viðræður hafa farið fram á undan-
förnum árum við írland, Bretland
og Danmörku fyrir hönd Færeyja
og var gerð grein fyrir stöðu þeirra
í skriflegu svari Halldórs Ásgríms-
sonar utanríkisráðherra við fyrir-
spurn Guðmundar Hallvarðssonar
alþingismanns á Alþingi í vetur.
Kröfur ríkjanna á Hatton-Rock-
all-svæðinu skarast mjög, eins og
sjá má á kortinu. Bretland og ír-
land komust árið 1988 að sam-
komulagi sín á milli um skiptingu
landgrunnsins, en Danmörk/Fær-
eyjar og ísland mótmæltu þeim
sanmingi.
íslenzk stjórnvöld hafa rætt
Rockall-málið við Danmörku og
Færeyjar af og til undanfarin ár
og hafa löndin m.a. unnið saman
að könnun hafsbotnsins á svæðinu.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur málið verið rætt á
samningafundum um mörk lögsögu
íslands annars vegar og Færeyja
og Grænlands hins vegar, en þeir
fundir hafa verið haldnir undan-
farna mánuði og er sá_ næsti á
dagskrá í næstu viku. í þessum
viðræðum er deilt um stöðu Kol-
beinseyjar og Hvalbaks sem grunn-
línupunkta íslenzku lögsögunnar
og eru málin skyld að því leytinu
að í Rockall-málinu skiptir staða
klettsins Rockall máli, einkum hvað
varðar kröfur Breta til yfirráða á
svæðinu.
íslenzk stjórnvöld hafa oft tekið
málið upp við írland, en fengið þau
svör að ekki væri rétt að stofna til
formlegra viðræðna, heldur væri
nærtækast fyrir íslendinga að
skiptast á skoðunum við —;----------------
Breta. ísland krefst
Brezk stjórnvöld hafa yfirráða langt
lýst sig reiðubúin til að suður í haf
ræða deiluatriði við ís- _____________
lenzk stjórnvöld annars
vegar og dönsk/færeysk stjórnvöld
hins vegar. íslendingar hafa fallizt
á slíkar viðræður en þó talið æski-
legast að viðræður færu fram milli
landanna fjögurra.
í viðræðum íslands og Bretlands
var ákveðið árið 1990 að fela Guð-
mundi Eiríkssyni, þáverandi þjóð-
réttarfræðingi utanríkisráðu-
neytisins, og David Anderson, þá-
verandi þjóðréttarfræðingi í brezka
utanríkisráðuneytinu, að skila sam-
eiginlegri skýrslu um málið til und-
irbúnings frekari viðræðum. Þessir
menn eru nú báðir orðnir dómarar
í nýstofnuðum hafréttardómstóli: Á
tímabilinu 1990-1994 vai' haldinn
fjöldi funda, oftast með þátttöku
íslenzkra og brezkra vísinda-
manna. Gerð skýrslunnar er hins
vegar ekki lokið. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins
var ein ástæða þess að
samstarfið gekk ekki sem
skyldi sú, að ísland á að-
ild að hafréttarsamningn-
um en Bretland ekki og ”
voru því forsendur þær, sem löndin
gáfu sér, ólíkar.
Bretland hyggst fullgilda
hafréttarsamninginn
Hafréttarsamningurinn gildir
ekki nema samkvæmt þeim ríkjum,
sem hafa staðfest hann, þótt sum
ákvæði hans teljist orðið til venju-
réttar. Bretland og Danmörk eru
þannig aðeins bundin af gildandi
venjurétti. Ríkin tvö eru einnig aðil-
ar að samningi um landgrunnið frá
1958.
í áðurnefndu svari Halldórs Ás-
grímssonar kemur fram að líklegt
sé að Danmörk/Færeyjar muni
áfram halda að sér höndum með
fullgildingu hafréttarsamningsins
þar til lausn finnist í deilu um skipt-
ingu landgrunnsins milli Færeyja
og Hjaltlandseyja og kunni dönsk-
um/færeyskum stjórnvöldum að
þykja réttarstaða sín betri sam-
kvæmt samningnum frá 1958.
Brezk stjórnvöld hafa hins vegar
lýst því yfir að þau hyggist fullgilda
hafréttarsamninginn. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins hefur
fullgildingin frestazt vegna kosn-
ingabaráttu og stjórnarskipta í
Bretlandi, e_n stefnt er að henni á
næstunni. í umræðum á brezka
þinginu í fyrra komu þó fram
-------- áhyggjur af áhrifum
samningsins á fiskveiði-
lögsögu og landgrunn
Rockall, en samkvæmt
samningnum eiga
óbyggðir klettar enga
Hugsanlegt
að olía finnist
á svæðinu
efnahagslögsögu.
Landgrunn Islands meðal
fyrstu mála hjá nefnd SÞ
Gildistaka hafréttarsamningsins
árið 1994 er íslandi sennilega í hag
í deilunni vegna þess að íslenzka
kröfugerðin er byggð á efnislegum
ákvæðum hans. Jafnframt skiptir
máli að samkvæmt samningnum
skal setja á stofn svokallaða nefnd
um mörk landgrunnsins. Hún á að
gera tillögur til strandríkja um ytri
mörkin og skulu þau mörk, sem
strandríki ákveður á grundvelli
þessara tiilagna, vera endanleg og
bindandi. Jafnframt ríkir óvissa um
mörkin þar til nefndin hefur fallizt
á skilgreiningu viðkomandi ríkis.
Kosið var í nefndina í febrúar
síðastliðnum, en hún er skipuð 21
fulltrúa. í næstu viku
verða drög að starfsregl-
um hennar síðan lögð fyr-
ir fund aðildarríkja ha-
fréttarsamningsins í New
York. Framhaldið fer eftir
því hvort samkomulag verður um
starfsreglurnar, en búast má við að
nefndin haldi fyrsta fund sinn í
næsta mánuði, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins.
Islenzk stjórnvöld hafa þegar
sent upplýsingar um ytri mörk
landgrunns íslands til aðalfram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna. Þeir, sem gerzt þekkja til,
segja að eitt af fyrstu verkum
nefndarinnar verði væntanlega að
fjalla um þessi mörk, þar sem
málið sér tilbúið til umfjöllunar
af íslands hálfu. Þetta gæti orðið
til að koma hreyfingu á Rockall-
málið á nýjan leik, eftir langa
kyrrstöðu.