Morgunblaðið - 15.05.1997, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Atkvæðagreiðsla á Alþingi um að færa sjálfræðisaldur úr 16 í 18 ár
Mikill meirihluti er fyrir
hækkun sjálfræðisaldurs
MIKILL meirihluti þinginanna
greiddi atkvæði með breytingartil-
lögu meirihluta allsherjarnefndar
Alþingis um hækkun sjálfræðisald-
urs úr 16 árum í 18 ár þegar stjórn-
arfrumvarp til lögræðislaga var af-
greitt frá annarri til þriðju umræðu
á Alþingi í gær. 37 þingmenn sam-
þykktu tillöguna en 20 voru á móti,
einn sat hjá og fimm voru fjarver-
andi.
18 stjórnarliðar greiddu atkvæði
með breytingartillögunni og allir
stjórnarandstöðuþingmenn sem þátt
tóku í atkvæðagreiðslunni, að tveim-
ur undanskildum, samþykktu tillög-
una.
Með frumvarpinu er lögð til ný
heildarlöggjöf um lögræði og var
upphaflega gert ráð fyrir að sjálf-
ræðisaldur miðaðist áfram við 16
ár. Miklar umræður urðu 1 allshetjar-
nefnd um hækkun sjálfræðisaldurs
og í níu af tíu umsögnum sem nefnd-
inni bárust var mælt með hækkun
sjálfræðisaldurs í 18 ár. í nefndará-
liti allsheijarnefndar segir ljóst að
skiptar skoðanir séu um málið og
þyki nefndinni því rétt að ákvörðun
um þetta atriði komi til atkvæða í
þinginu. Lagði meirihluti nefndar-
innar því fram umrædda breyting-
artillögu um hækkun sjálfræðisald-
urs.
18 stjórnarliðar og 2
stjórnarandstæðingar á móti
Var viðhaft nafnakall þegar at-
kvæði voru greidd um tillöguna á
Alþingi í gær og gerðu margir þing-
menn grein fyrir atkvæði sínu. Eft-
irtaldir þingmenn greiddu atkvæði á
móti tillögunni: Árni M. Mathiesen
(S), Björn Bjamason (S), Davíð
Oddsson (S), Friðrik Sophusson (S),
Guðjón Guðmundsson (S), Guð-
mundur Hallvarðsson (S), Olafur Þ.
Þórðarson (F), Halldór Blöndal (S),
Hjálmar Jónsson (S), Kristinn H.
Gunnarsson (Abl.), Katrín Fjeldsted
(S), Pétur H. Blöndal (S), Ragnar
Árnalds (Abl.), Sigríður Á. Þórðar-
dóttir (S), Stefán Guðmundsson (F),
Sturla Böðvarsson (S),_ Tómas Ingi
Olrich (S), Árni R. Árnason (S),
Árni Johnsen (S) og Ólafur G. Ein-
arsson (S). Egill Jónsson (S) sat hjá
við atkvæðagreiðsluna.
Fram kom m.a. í máli þingmanna
sem voru á móti breytingu á sjálfræð-
isaldri að hún fæli í sér skerðingu
mannréttinda þúsunda ungmenna.
„Stærsta hóprefsing
sögunnar"
Ólafur Þ. Þórðarson sagði að hér
væri á ferðinni stærsta hóprefsing
íslandssögunnar. Halldór Blöndal
samgönguráðherra fór fram á að
tillagan yrði dregin til baka svo tími
gæfist til að skoða málið betur fyrir
þriðju umræðu. „Ég tel mikilvægt
að ungt fólk skynji að löggjafi lands-
ins, Alþingi íslendinga, viðurkenni
að það sé fært um að sjá fótum sín-
um forráð," sagði Katrín Fjeldsted
m.a.
Pétur Blöndal hélt því fram að
hér væri á ferðinni forræðishyggja
félagshyggjufólks, sem vildi helst
skipuleggja líf einstaklingsins frá
vöggu til grafar. „Ég vil ekki sviþta
ungt fólki rétti sem það hefur haft
til þessa og tel það stórt spor aftur
á bak í mannréttindum á Islandi ef
tillagan verður samþykkt,11 sagði
Sigríður A. Þórðardóttir.
„Öll rök mæla með hækkun“
Stuðningsmenn breytinganna
bentu m.a. á að þjóðfélagsaðstæður
hefðu breyst á síðustu árum. Þorri
ungmenna byggi í foreldrahúsum
fram undir tvítugt og nyti stuðnings
foreldra. Þá væri hið íslenska fyrir-
komulag ekki í samræmi við löggjöf
nágrannalandanna þar sem sjálf-
ræðisaldur er 18 ár og rétt sé að
fylgja meginregiu barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna þar sem allir
einstaklingar undir 18 ára aldri séu
skilgreindir sem börn. Þá sé auðveld-
ara að grípa í taumana hjá 16-18
ára unglingum hvað varðar afbrot
og vímuefnaneyslu ef sjálfræðisald-
ur verður hækkaður.
Sólveig Pétursdóttir (S), formað-
ur allsheijarnefndar, benti á að
þingið hefði nú þegar samþykkt
ýmis mál sem gengju í sömu átt
þar sem miðað væri við 18 ára ald-
ursmörk. Hún sagði öll rök mæla
með hækkun sjálfræðisaldurs. Jó-
hanna Sigurðardóttir (ÞJ) sem einn-
ig studdi tillöguna sagði að frum-
varpið tryggði betur að ungt fólk
byggi við öryggi og aðhald foreldra
til 18 ára aldurs. Valgerður Sverris-
dóttir (F) sagðist telja rétt eftir ítar-
lega athugun málsins í allsheijar-
nefnd að hækka sjálfræðisaldurinn
og benti m.a. á að Félag framhalds-
skólanema hefði mælt með að sú
breyting yrði gerð.
Köfun við Æsu
á lokastigi
Reynt að
hífa plóginn
upp í dag
HVÍLD var í gær hjá köfurunum sem
kannað hafa flak Æsu í Arnarfirði
en reyna á að ná skelplógnum upp
í dag. Gangi það verða það lok rann-
sóknarinnar á staðnum að sögn
Kristins Ingólfssonar, fulltrúa Sigl-
ingastofnunar íslands, um borð í
Óðni.
Ákveðið var að hvíla kafarana í
gær og sagði Kristinn Ingólfsson það
m.a. vegna óhreininda í blóði þeirra.
Ráðgert var að þeir yrðu tilbúnir
fyrir síðustu tvær kafanirnar í dag.
Verður þá reynt að hífa upp skel-
plóginn og svæðið umhverfis hann
skoðað. Kristinn sagði að næðist
plógurinn upp verði haldið frá staðn-
um síðdegis í dag enda talið búið
að ná þeim upplýsingum sem mögu-
legt er. Sagði hann llða nokkurn
tíma þar til úrvinnslu þeirra lyki.
Morgunblaðið/Golli
Vorverkin
Siýór og grjót safnast að gijótvarnarnetunum í armenn eru að moka snjónum í burtu og þurfa sums
Óshlíð, milli Bolungarvíkur og Hnífsdals. Vegagerð- staðar að taka niður netin til að komast að honum.
Ekkert
skólahald í
Reykholti
SKÓLAREKSTUR verður ekki
áfram á vegum ríkisins í Reyk-
holti í Borgarfirði, en skólinn
hefur verið starfræktur sem
hluti af Fjölbrautaskóla Vest-
urlands síðastliðin tvö ár sem
tilraunaverkefni. Húsnæði
skólans hefur nú verið auglýst
til leigu.
Gerð var opinber úttekt á
skólanum og var ljóst af henni
að ekki yrði forsenda fyrir því
að halda starfinu þar áfram.
Nú hefur húsnæðið verið aug-
lýst til leigu og er tekið fram
að það verði leigt til starfsemi
sem tengist menntum og menn-
ingu.
Auglýst var eftir hugmynd-
um um rekstur í húsnæðinu og
rekstraraðilum sem stæðu að
þeim hugmyndum sem þeir
legðu fram. Frestur til að skila
inn umsóknum rennur út í dag
og hefur talsverður fjöldi um-
sókna borist.
Heimilað að
auglýsa
miðhálendis-
skipulag
SKIPULAGSSTJÓRN ríkisins
heimilaði í gær að auglýsa til-
lögu að svæðisskipulagi mið-
hálendisins til ársins 2015, en
unnið hefur verið að því skipu-
lagi undanfarin ár.
Að sögn Guðrúnar Höllu
Gunnarsdóttur sviðsstjóra
skipulagssviðs Skipulags ríkis-
ins verður skipulagstillagan
væntanlega auglýst um mán-
aðamótin og muni liggja frammi
víða um land og geta allir gert
við hana athugasemdir.
Tillagan á að Iiggja frammi
í 18 vikur, sem er óvenjulega
langur frestur, því venjulega
er athugasemdafrestur 8 vikur.
Býflugur
áberandi
UNDANFARIÐ hafa býflugur
verið nokkuð áberandi og virð-
ist mörgum þær vera í stærra
lagi. Erling Olafsson skordýra-
fræðingur segir svo ekki vera.
í ár sem fyrr séu það þijár vik-
ur í lok apríl og byijun maí sem
flugurnar eru mest á ferðinni.
Vegna kuldans undanfarið
muni sá tími þó framlengjast.
Hann bendir fólki á að halda
ró sinni, því býflugur séu frið-
sælar með eindæmum og stingi
ekki nema tilneyddar.
eikur einnl
o
0
| Pað borgar sig að kunna skil á úrgangi.
I Kynntu þér breytta gjaldskyldu
| á endurvinnslustöðvum okkar.
i velkoiiiin ð Bndurvinnsiustðövarnar
S0RWV
SORPEYÐINQ
HÖFUOBORGARSVÆÐÍSINS bs
Good Morning America sent út frá Austurvelli og Bláa lóninu
Hestar, hönnun, glíma, sjáv-
arréttir og íslensk tunga
HINN vinsæli bandaríski morgun-
þáttur Good Morning America verð-
ur sendur út beint frá íslandi á
morgun, en samkvæmt áhorfskönn-
unum sjá um 23 milljónir Banda-
ríkjamanna þáttinn á sjónvarpsstöð-
inni ABC. Þátturinn er tveggja
klukkustunda langur og hefst út-
sendingin héðan kl. 11, en þá er
klukkan 7 í Bandaríkjunum. Rúm-
lega 100 manns vinna að útsending-
unni.
Að sögn Sigmars B. Haukssonar
verkefnisstjóra er þetta ein flóknasta
sjónvarpssending sem héðan hefur
farið. Sent verður út frá tveimur
stöðum, Bláa lóninu og Austurvelli.
Við Bláa lónið er myndver þar sem
útsendingunni er stjórnað. Rætt
verður við gesti í beinni útsendingu
á báðum stöðum, auk þess sem sumt
af efninu er sýnt af myndböndum
sem þegar hafa verið tekin upp.
Meðal þess sem fjailað verður um
er íslenskt mál og menning, sýnd
verður íslensk glíma og íslenskir
hestar, hönnun og tíska, auk þess
sem sjávarréttir verða bornir á borð.
Hvert atriði er tiltölulega stutt og
reynt að gefa mjög fjölbreytta mynd
af þjóðinni, að sögn Sigmars.
Unnið hefur verið að undirbúningi
þáttarins síðan í desember sl. Sig-
mar segir að fólk frá ABC hafi ver-
ið að streyma til landsins undanfarna
daga og er von á síðasta hópnum í
kvöld. Að útsendingunni standa alls
rúmlega 100 manns, frá Bandaríkj-
unum, Bretlandi, Hollandi og ís-
landi. Þar af eru íslendingarnir hátt
á fjórða tug manns, starfsmenn frá
Pósti og síma, Sjónvarpinu og ýms-
um kvikmyndafyrirtækjum, bílstjór-
ar og fleiri.
Útsendingar frá Norðurlöndunum
hófust á mánudaginn með þætti frá
Kaupmannahöfn, á þriðjudag var
sent út frá Bergen, og í gær var
röðin komin að Stokkhólmi. í dag
er sendur þáttur frá Helsinki og á
morgun lýkur Norðurlandasyrpunm
með þættinum frá íslandi.
Sigmar segir engan vafa leika á
að þetta sé ein besta landkynning
sem íslendingar hafa fengið frá því
að leiðtogafundurinn var haldinn hér
á sínum tíma.