Morgunblaðið - 15.05.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1997 13
FRÉTTIR
Greinargerð Barnaverndarstofu vegna frumvarps um hækkun sjálfræðisaldurs
Þörf á fjórum nýjum
meðferðarheimilum
SEX meðferðarheimili fyrir ungl-
inga eru starfrækt víðs vegar um
landið og verða þau sjö um næstu
mánaðamót þegar nýtt meðferðar-
heimili fyrir unglinga með fíkni-
efnavandamál verður opnað í Varp-
holti í Skjaldavík í Eyjafirði. Með-
ferðarheimilin eru öll einkarekin að
Bakkaflöt í Skagafirði undanskildu
sem er ríkisrekið.
í tengslum við frumvarp um
breytingu á lögræðislögum sendi
Barnaverndarstofa Alþingi greinar-
gerð um aukin meðferðarúrræði ef
sjálfræðisaldur verður hækkaður
úr 16 árum í 18 ár.
Bragi Guðbrandsson, forstöðu-
maður Barnaverndarstofu, segir
nauðsynlegt að opna tvö ný með-
ferðarheimili fljótlega og æskilegt
væri að opna önnur tvö fljótlega,
annað fyrir afbrotaunglinga og hitt
fyrir unglinga með fíkniefnavanda-
mál, ef sjálfræðisaldur hækkar.
Hann segir að áður en börn eru
vistuð á meðferðarheimilunum fari
þau flest í greiningarmeðferð á
Stuðlum í Grafarvogi.
„Við höfum rekið þá stefnu frá
því Barnaverndarstofa tók til starfa
að gera þjónustusamninga við
einkaaðila og leggjum áherslu á
fjölskyldurekin meðferðarheimili.
Við viljum draga úr stofnanaum-
gjörðinni. Bakkaflöt er frábrugðið
þessu vegna þess að við ætlum því
að geta tekið á móti unglingum sem
eru í verulegum mótþróa. Við erum
í öllum tilvikum að tala um ungl-
inga sem eru ekki orðnir sjálfráða
og eru vistaðir þarna samkvæmt
ákvörðun foreldra eða barnavernd-
arnefnda,“ sagði Bragi.
„Erum ekki að reka fangelsi“
Hann segir að tilraunir til stroks
séu gerðar á öllum meðferðarheim-
ilunum. Tvær síðustu tilraunirnar
til stroks á Bakkaflöt séu þær einu
sem hafi heppnast frá því lokuð
meðferðareining var sett á laggirn-
ar í Skagafirði frá 1993. Rými er
fyrir sex unglinga á Bakkaflöt og
tíu stöðugildi starfsmanna.
Bragi segir að einn starfsmaður
hafí verið á næturvakt þegar vist-
menn struku í fyrra skiptið. I kjöl-
farið voru þrír starfsmenn settir á
næturvaktir og ennfremur var bætt
við mönnum á dagvaktir. Síðan liðu
tæpir tveir mánuðir og var þá búið
að fækka niður í einn starfsmann
á næturvakt.
„Það væri hægur vandi að halda
börnunum inni á heimilunum en þá
ber að athuga að við erum ekki að
reka fangelsi. Við veitum börnunum
meðferð og hjálp til þess að glíma
við sína hegðunarerfiðleika. í þeirri
vinnu er mjög mikilvægt að um-
gjörðin sé til þess fallin að við náum
þeim markmiðum. Þess vegna verð-
um við að vera tilbúin að veita þeim
ákveðið traust en um leið tökum
við áhættu. Grundvallaratriði að
baki umhverfismeðferð er að með
jákvæðri hegðun og framförum fá
börnin aukin réttindi og aukið frelsi.
Þegar þau bregðast traustinu verða
þau fyrir réttindamissi," sagði
Bragi.
Barnaverndarstofa hefur eftirlit
með einkareknu heimilunum.
Rekstrarkostnaður þeirra er á bilinu
18 milljónir til 28 milljónir kr. á
ári. Þær kröfur eru gerðar til einka-
reknu heimiianna að þau séu rekin
af aðilum sem hafa menntun og/eða
reynslu á þessu sviði. Gerðar eru
kröfur til ákveðins fjölda rýma og
ákveðins fjölda stöðugilda. Einnig
eru gerðar ákveðnar kröfur um nám
og menntun starfsfólks, símenntun
og endurmenntun. Barnaverndar-
stofa ákveður hvaða börn fá vistun
á heimilunum. Veruleg fjölgun hef-
ur orðið á einkareknu heimilunum
frá því Barnaverndarstofa tók til
starfa.
Vímuefnameðferðarheimili
opnað
Á Stuðlum vistast unglingurinn
upphaflega að öllu jöfnu og þar fer
fram greiningarmeðferð. Dvölin þar
getur tekið allt að fjóra mánuði.
Þijú framhaldsmeðferðarheimili eru
á Norðurlandi, tvö á Suðurlandi og
eitt í Reykjavík. í tengslum við
Bakkaflöt er rekið heimili á Laugar-
mýri sem verður lagt af í vor en í
stað þess tekur til starfa nýtt með-
ferðarheimili í Varpholti í Skjalda-
vík í Eyjafirði sem er fyrst og fremst
fyrir unga vímuefnaneytendur. Þar
er fyrirhugað að verði sex rými.
Samningar hafa verið gerðir við
rekstraraðila og verða fyrstu börnin
tekin þar inn öðru hvoru megin við
næstu mánaðamót.
Á Norðurlandi er einnig meðferð-
arheimilið Árbót í Aðaldal með sex
rými og þar er lögð sérstök áhersla
á að vinna með börnin við búskap.
Á Suðurlandi er meðferðarheimilið
Geldingalækur fyrir yngsta aldurs-
hópinn, þ.e. börn yngri en tólf ára,
með sex rýmum. Elsta meðferðar-
heimilið er Torfastaðir í Biskups-
tungum. Það er einnig með sex
rýmum. í Sólheimum 17 er eftir-
meðferðarheimili fyrir 4-5 ein-
staklinga.
Hækkun sjálfræðisaldurs
kallar á nýja skipan
Bragi segir að það myndi ger-
breyta myndinni að hækka sjálf-
ræðisaldurinn í 18 ár. „Þá verðum
við að sinna þessum hóp frá 16-18
ára sem við höfum ekkert að bjóða
í dag. Tilgangurinn með þessari
hækkun er væntanlega m.a. sá að
ná utan um þann hóp ungmenna,
16-18 ára, sem er stjórnlaus vegna
vímuefnaneyslu eða annarra hegð-
unarerfiðleika. Samfélagið gerir
kröfu til þess að það sé gripið inn
í og börnunum sé hjálpað," segir
Bragi.
Hann segir mjög erfitt að henda
reiður á hve stór vandi þessa aldurs-
hóps er. Barnaverndarstofa tók
saman fyrir Alþingi mat á fjárhags-
legum áhrifum þess ef sjálfræðis-
aldurinn yrði hækkaður. Niðurstað-
an í stórum dráttum var sú að taka
þyrfti í notkun tvö ný meðferðar-
heimili á fyrsta einu til tveimur
árunum eftir hækkun sjálfræðisald-
urs. Annað heimilið yrði sérhæft
fyrir aldurshópinn 16-18 ára en
ekkert slíkt heimili er til í dag. Þá
þyrfti nýtt hefðbundið meðferðar-
heimili fyrir aldurshópinn 13 ára
og eldri vegna þess að hækkun
sjálfræðisaldurs drægi úr gegnum-
streymi á meðferðarheimilunum.
Einnig er líklegt að barnaverndar-
yfirvöld þurfi að taka að sér vímu-
efnameðferð unglinga 16-18 ára.
Því megi búast við að nauðsyn verði
á sérhæfðu vímuefnameðferðar-
heimili. Annað atriði snerti þann
þátt sem lúti að fangelsun afbrota-
unglinga.
„ísland hefur fullgilt barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna en
þurfti að gera fyrirvara viðvíkjandi
tveimur greinum. Annar fyrirvar-
inn lýtur að því ákvæði hans að
ekki megi láta börn undir 18 ára
afplána í fangelsum með fullorðn-
um afbrotamönnum. Við höfum
ekki getað fullgilt þetta ákvæði því
þannig er hlutunum varið hjá okk-
ur. Við höfum ekki sérstök ungl-
ingafangelsi. Ef sjálfræðisaidurinn
er hækkaður úr 16 í 18 ár veit ég
að þær raddir gerast háværari að
unglingar verði úrskurðaðir inn á
meðferðaheimili í stað fangelsa
eins og gerist á meðal annarra
þjóða,“ sagði Bragi.
Bragi segir að tveir til þrír ein-
staklingar undir 18 ára aldri hafi
verið dæmdir í afplánunarfangelsi
árlega á undanförnum árum. Bragi
telur að rekstrarkostnaður tveggja
fyrrgreindu heimilanna yrði 50-80
milljónir kr. á ári án stofnkostnaðar
og annað eins fyrir seinni heimilin
tvö. Samtals yrði því rekstrarkostn-
aðurinn einn á bilinu 100-160 millj-
ónir kr.
OPNUM í DAG
Fleiri spennandi opnunartilboð
Waffle T-sh......JU490 tilboð 590
Lulu peysa.......JU9§0 tilboð 890
Manha Han bolur...2^*90tilboð 1.390
Sally buxur......2*O0O"tilboð 1.490
Lana jakki ......4990tilboð 2.290
Temaskyrta.........lr99Ö"nú 990
Jenny skyrta.......2r5§0 nú 1.490
Shirley buxur......2S§0 nú 1.990
Heidi kjóll........JL29CÍ nú 1.990
Debbie gallabuxur..JitSdO nú 1.990
Dragtartilboð:
Case blazer.... .JJ90 tilboð 4.990
Case buxur ... ...JU890 tilboð 2.590
Case pils........JUS90 tilboð 1.990
Marit buxur......-3990 tilboð 1.990
ReneToppur.......i-990"tilboð 990
Zero blazer + Logo skyrtur + Clint buxur
sbr. mynd.........2U880 nú 9.900
Darwin rúskinsjakki 13900 nú 6.990
Beckley jakkap....3990 nú 1.990
Cream peysa.......3990 nú 1.990
Waffle bolur....1990’ nú 1 stk. 990
.....................2. stk. 1.490
Sendum 13 jjjC HT í®8| Wm I H ET 13 Nýtt kortatímabil
póstkröfu B m ki mm Wmm Mmm I M verið velkomin
Laugavegi 95-97, sími 552 1444 og 552 1844